24 stundir - 19.04.2008, Blaðsíða 6

24 stundir - 19.04.2008, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2008 24stundir Bretar vilja efna til samstarfs við íslenska vísindamenn í orkumál- um, samkvæmt því sem Sue Whitebread, framkvæmdastjóri bresks ráðgjafafyrirtækis á sviði orkumála, sagði á málþingi í Orku- veitunni í vikunni. „Whitbread fjallaði sérstaklega um sjávarorku sem vaxtarbrodd í endurnýjanlegri orku, en nú eru í gangi um 84 þróunarverkefni á sviði sjávarorku víðs vegar í heim- inum,“ segir í fréttatilkynningu frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, sem ásamt iðnaðarráðuneytinu stóð fyrir málþinginu. Í máli Geirs Guðmundssonar, verkefnisstjóra hjá Nýsköpunar- miðstöðinni, kom fram að Breiða- fjörður hentar sérstaklega vel fyrir sjávarfallavirkjanir. hos Bretar sýna áhuga á samstarfi í orkumálum Samstarf um sjávarfallavirkjanir og að á stofnfundi áhugahópsins hafi komið fram að sveitastjórn hafi óskað eftir skýringum um framtíðaráform nýrra eigenda en ekki fengið svör. Stóra byggðamálið Sævar bendir á að þar sem Emax sé með þjónustu á svæðinu tilheyr- ir nettenging Hvalfjarðarsveitar ekki undir verkefni Fjarskiptasjóðs. „Við lendum því svolítið utangarðs og erum upp á það komin að að- ilinn sem er með þjónustuna hér setji peninga í þetta. Svona er þetta á fleiri stöðum á landinu.“ Segir hann aðgang að interneti vera stórt byggðamál. „Það er upp- lifunin í okkar sveitarfélagi að þetta sé mjög stór þáttur þegar fólk er að ákveða sig hvort það eigi að flytja „Eitt af því sem við viljum gera er að hvetja fólk sem er í svipaðri stöðu til þess að mynda hóp og láta heyra í sér því það þarf að gera eitt- hvað í þessu,“ segir Sævar Finn- bogason, talsmaður áhugahóps um bættar nettengingar í Hvalfjarðar- sveit, sem stofnaður var í vikunni. „Við í Hvalfjarðarsveit búum við þráðlausa nettengingu frá Emax sem hefur reynst afar misjafnlega, en samt greiðum við fyrir hana sambærilegt verð og fólk gerir fyrir góðar ADSL tengingar annars stað- ar,“ segir hann. Ætlar hópurinn að safna upplýsingum um gæði þeirr- ar þjónustu sem fólk nýtur í dag og halda til haga. Jafnframt segir Sævar hópinn hafa áhyggjur „af ítrekuðum eig- endaskiptum Emax dreifikerfisins“ hingað eða ekki. Fólk notar netið mikið og m.a. ræður aðgangur að interneti því hvort fólk getur unnið heiman frá sér eðaekki.“ thorakristin@24stundir.is Áhugahópur um bætta nettengingu stofnaður í Hvalfjarðarsveit Gott internet er byggðamál Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@24stundir.is 11.00 Ég fer að hafa mig tilfyrir vinnuna. Ég byrja alltaf svona um hádegið enda er ég bara í hlutastarfi núna. Ég er orðinn 75 ára gamall og vil ekki hætta að vinna strax, en læt hluta- starf nægja. 12.00 Er mættur upp íNýju Sendibílastöð- ina, þar sem ég vinn, og byrja að keyra þvers og kruss um borgina. Þetta er þannig núna að við bíl- stjórarnir erum alltaf með gems- ann á okkur og svo er bara hringt í okkur yfir daginn og okkur úthlut- að verkefnum. Ég keyri núna frekar lítinn sendiferðabíl og sendist á honum um höfuðborgarsvæðið. 14.30 Ég tek mér stuttakaffipásu á sendi- bílastöðinni. Það er mjög misjafnt hvenær ég tek pásu enda fer það bara eftir því hvernig stendur á varðandi verkefni. Ég læt kaffipás- una duga enda borða ég alltaf kvöldmat heima með konunni minni eftir vinnu. 17.30 Vinnudeginum mín-um er lokið, en hon- um lýkur yfirleitt milli klukkan fimm og sex. Það fer stundum eftir traffíkinni, en ég er þó orðinn van- ur að sneiða hjá þyngstu götunum á háannatíma og fara aðrar leiðir þá. Sem betur fer keyri ég um á léttum flutningabíl ólíkt sumum yngri kollegum mínum á stöðinni og því ná lög um hvíldartíma flutn- ingabílstjóra ekki yfir mig. Þeir þurfa alltaf að stoppa bílinn eftir ákveðið langan tíma því að annars geta þeir verið sektaðir. 18.00 Ég er kominn heimog á frí um kvöldið, enda er ég alveg hættur að vinna á kvöldin og um helgar. Það er annað en í gamla daga og það er skemmst frá því að segja að konan mín gleymir því ekki þegar dóttir mín var um þriggja ára gömul. Hún spurði eitt sinn: „Mamma, er pabbi hættur að vera hjá okkur?“ Þá vann ég myrkranna á milli enda ekki annað í boði ef maður vildi eiga bót fyrir rassinn á sér. 20.00 Kvöldmaturinn erbúinn og ég fer út í hjóltúr. Það má segja að ég sé hálf- gerður hreyfialki enda fer ég mikið út að ganga eða hjóla til þess að halda mér í formi, ásamt því sem ég fer stundum í sund á morgnana. Var kallaður Sólarhringur 24stundir með Grími Ormssyni flutningabílstjóra á Nýju Sendibílastöðinni ➤ Hefur starfað í Nýju Sendi-bílastöðinni við Knarrarvog í fimmtíu ár. ➤ Keyrði áður á milli landshlutaá stórum flutningabílum, en þá var yfirleitt minna að gera yfir háveturinn og þeim mun meira á vorin og á sumrin. GRÍMURGrímur Ormsson hefur starfað sem flutningabíl- stjóri í hálfa öld og á þeim tíma hefur mjög margt breyst. „Ég var nú alltaf kallaður Sólar- hringurinn af hinum bíl- stjórunum í gamla daga af því að það var varla að maður svæfi nokkuð, maður var alltaf að vinna. Svo kom það fyrir að ég tognaði í bakinu enda ekki öll þessi tækni eins og núna til þess að auðvelda vinn- una við að setja inn í bílana og taka úr þeim aftur,“ segir hann. Vinn hálfan daginn „Ég nenni ekki að hætta alveg strax en læt hlutastarf duga.“ Grímur Ormsson að störfum. 24stundir/Valdís Thor Slökkvilið Ísafjarðarbæjar hefur fest kaup á körfubíl. Er haft eftir Þorbirni Sveinssyni slökkviliðs- stjóra í BB að bíllinn sé bylting í starfi slökkviliðs- ins þar sem hann nær upp í allar hæstu byggingar á Ísafirði. Keypti slökkvilið- ið bílinn af Brunavörnum Suðurnesja og greiddi fyr- ir hann þrjár milljónir. Bíllinn er af gerðinni Volvo 720, árgerð 1981, en hefur verið árlega yfirfærður af verksmiðj- unum og í fullkomnu standi að sögn Þorbjarnar. þkþ Nýr körfubíll á Ísafirði Stofnfundur Hollvinasamtaka Hallargarðsins verður haldinn á Fríkirkjuvegi 11 nk. sunnudag kl. 13. „Við viljum efla vitund fólks um mikilvægi Hallargarðsins,“ segir Þorleifur Gunnlaugsson, talsmaður hópsins. Meðal við- burða er leiðsögn um húsið auk þess sem Jón H. Björnsson lands- lagsarkitekt og hönnuður garðs- ins segir frá tilurð hans. þkþ Hollvinasamtök Hallargarðsins BSRB hvetur til þess að þegar í stað hefjist viðræður við fjármálaráðu- neytið um skammtímasamning. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn BSRB sendi frá sér í gær. Í ályktuninni ítrekar stjórn BSRB mikilvægi þess að kjör innan al- mannaþjónustunnar verði stór- bætt. Víða sé við alvarlega mann- eklu að stríða sem rekja megi til bágra kjara og brýnt sé að taka af alvöru á þeim vanda. BSRB vill skammtímasamning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.