24 stundir - 19.04.2008, Síða 30
LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2008ATVINNA30 stundir
Auglýsingasíminn er
510 3728 og 510 3726
Hótel Örk óskar eftir að ráða
starfsmann í gestamóttöku
Um er að ræða vaktavinnu og æskilegt er að starfsmaður sé 25 ára eða eldri.
Hæfniskröfur
• Almenn tölvukunnátta.
• Íslenska, enska og helst eitt norðurlandamál.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknir skulu sendast Sigurði á netfangið
sigurdurs@hotel-ork.is
og veitir hann nánari upplýsingar í síma 483-4700
Grunnskólann á Tálknafirði vantar
kennara til starfa á næsta skólaári.
Auk umsjónarkennslu á öllum stigum vantar
kennara í eftirtaldar greinar:
• Stærðfræði
• Íslensku
• Náttúrufræði
• Samfélagsfræði
• Tungumál
• Smíði og nýsköpun
• Íþróttir
Ódýrt húsnæði og flutningsstyrkur í boði.
Kennarar fá fartölvu til afnota við störf sín.
Upplýsingar gefur Ingólfur Kjartansson
skólastjóri í síma 456 2537 eða 897 6872.
Netfang; grunnskolinn@talknafjordur.is
Kennarar athugið!
Laus störf hjá Tálknafjarðarhreppi
Umsóknarfrestur er til 2. maí nk.
Grunnskólinn á Tálknafirði er þátttak-
andi í Olweusarverkefni Menntamála-
ráðuneytisins. Skólinn hefur verið
þátttakandi í grænfánaverkefni Land-
verndar síðan 2004 og flaggaði Græn-
fánanum fyrst vorið 2006. Skólinn hef-
ur undanfarin ár í samstarfi við Grunn-
skóla Vesturbyggðar unnið að þróun
dreifmenntarkennslu á grunnskólastigi
í verkefni sem nefnist Dreifmennt
v/Barð. Unnið verður að frekari þróun
þessa verkefnis á næsta skólaári, nú í
samstarfi við grunnskóla á norðan-
verðu Snæfellsnesi. Í undirbúningi er
samstarf við skóla og skólabúðir í
austanverðu Finnlandi með samstarf
nemenda á unglingastigi skólanna í
huga.
Sumarstörf
Almenn þrif – Bónstöð – Gluggaþvottur – Iðnaðarþrif
Óskum eftir starfsfólki á aldrinum 17 - 30 ára í sumarvinnu.
Upplýsingar gefur Jón Gunnar í síma 821-7743,
jongunnar@ath-thrif.is www.ath-thrif.is
Launin á íslenskum at-
vinnumarkaði endurspegla
ekki endilega hversu dýrt
er að lifa hér. Þetta gerir að
verkum að margir eiga lítið
eftir í veskinu þegar búið
er að greiða reikningana í
byrjun mánaðar. Við slíkar
aðstæður er best að byrja á
því að skoða vel útgjöldin og
reyna að skera niður þar sem
það er hægt. Oft er það ekki
nóg og þá getur verið nauð-
synlegt að leita að aukavinnu,
að minnsta kosti tímabundið.
Möguleikarnir eru töluvert
margir en best er að byrja á
því að skipuleggja nákvæm-
lega hvernig hægt er að koma
aukavinnunni fyrir. Ef börn
eru á heimilinu getur þetta
verið heilmikið púsl.
Þegar búið er að skipu-
leggja barnapössun og finna
hentug kvöld, helgar eða
morgna þegar hægt er að
bæta við meiri vinnu er
komið að því að finna vinnu
sem hentar.
Líklegt er að dagvinnan
sé krefjandi og því er betra
að reyna að finna aukavinnu
sem krefst ekki jafnmikils,
hvorki andlega né líkamlega.
Morgunhanar sem hafa
gaman af göngutúrum ættu
til dæmis að hafa samband
við dagblöðin og athuga með
útburð á meðan þeir sem
vilja líkamlega þægilega
vinnu gætu haft samband
við símaver fyrirtækja sem
rekin eru víðsvegar um
land. Þar vinnur starfsfólkið
í nokkra klukkutíma við
símann þar sem það tekur á
móti símtölum eða hringir
út kannanir eða sölusímtöl.
Þeir sem vilja helst alltaf
vera með mikið líf og fjör í
kringum sig gætu sótt vinnu
á bar eða sem þjónar á veit-
ingahúsi. Heimilisþrif eru
einnig mjög sniðug fyrir þá
sem vilja vinna sjálfstætt og
geta stjórnað sínum vinnu-
tíma sjálfir.
Aukavinna þarf ekki að
vera kvöð svo lengi sem
viðkomandi finnur sér starf
við hæfi.
Aukavinna
við hæfi
107.000 eintök
á dag - ókeypis
Auglýsingasíminn er
510 3744
- kemur þér við