24 stundir - 21.05.2008, Blaðsíða 2
Úrskurður Skipulags-
stofnunar ríkisins um
Bitruvirkjun er um margt
nýstárlegur segir Össur
Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra, sá sem veitir
virkjanaleyfin.
„Þetta var afdráttar-
laust. Röksemdafærslan
var nýstárleg. Til dæmis
að vernda þyrfti sérstakar jarð-
minjar af því þær hefðu fræðslu-
gildi. En það er alveg ljóst að
þessi virkjun sætti harðri gagn-
rýni af því hún var svo
nærri stórum byggða-
kjarna.
Össur er ósammála
því áliti forstjóra Orku-
veitunnar að niður-
staðan hafi mikil nei-
kvæð áhrif á framtíð
jarðvarmavirkjana á Ís-
landi. „Ég held ekki.
Þarna eru sérstakar aðstæður og
eindregin mótmæli meirihluta
íbúa. Auðvitað á að hlusta á þá,“
segir ráðherra. beva@24stundir.is
Áhyggjulaus um framtíð jarðvarmavirkjana
Nýjar og forvitni-
legar röksemdir
2 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 24stundir
VÍÐA UM HEIM
Algarve 19
Amsterdam 15
Alicante 24
Barcelona 22
Berlín 17
Las Palmas 23
Dublin 12
Frankfurt 18
Glasgow 13
Brussel 15
Hamborg 14
Helsinki 12
Kaupmannahöfn 14
London 14
Madrid 20
Mílanó 19
Montreal 8
Lúxemborg 16
New York 12
Nuuk 2
Orlando 24
Osló 11
Genf 15
París 18
Mallorca 20
Stokkhólmur 8
Þórshöfn 7
Austan 8-13 m/s syðst, annars hægari vindur.
Skýjað með köflum sunnan- og vestanlands
og stöku skúrir, einkum síðdegis. Skýjað og
sums staðar dálítil væta norðan- og aust-
anlands, en bjart að mestu. Hiti 5 til 12 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
6
7
4
6 5
Bjart að mestu
Austan og suðaustan 5-15 m/s, hvassast við
suðurströndina. Skúrir sunnan- og vestantil,
en bjartviðri norðanlands. Hiti 8 til 15 stig,
hlýjast norðanlands.
VEÐRIÐ Á MORGUN
7
8
6
7 6
Skúrir sunnan- og vestanlands
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur
(OR) ákvað á fundi sínum í gær að
hætta undirbúningi að gerð Bitru-
virkjunar. Ákvörðunin kemur í
kjölfar álits Skipulagsstofnunar á
mati á umhverfisáhrifum vegna
virkjunarinnar sem birt var í gær.
Þar sagði að virkjunin væri óásætt-
anleg vegna verulegra neikvæðra
og óafturkræfra umhverfisáhrifa.
Hverahlíðarvirkjun áfram
Á fundinum var einnig tekin
ákvörðun um að halda áfram und-
irbúningi vegna Hverahlíðarvirkj-
unar, en Skipulagsstofnun kynnti
einnig álit sitt á umhverfismati
vegna hennar í gær.
Ráðgert að byggingu Hverahlíð-
arvirkjunar og stækkun Hellisheið-
arvirkjunar verði lokið í kringum
áramótin 2010-11.
Mikil vonbrigði
Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR,
segir niðurstöðuna vissulega vera
mikil vonbrigði. „Þetta eru von-
brigði bæði fyrir fyrirtækið og
starfsmennina sem eru búnir að
vinna að þessu og héldu að þeir
hefðu fundið lausn sem yrði sátt
um á milli virkjunar og náttúru-
verndar,“ segir hann og bætir við:
„Þetta eru samt engin endalok fyrir
Orkuveituna.“
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur fundaði í gær
Bitruvirkjun slegin af
Hætt við virkjun Stjórn
Orkuveitunnar hætti við
Bitruvirkjun í gær.
ÁHRIFIN MEST Í ÞORLÁKSHÖFN »14
„Hrefnuveiðarnar eru engin stór
prinsippákvörðun, því hún var
tekin 2006,“ segir Einar K. Guð-
finnsson sjávarútvegsráðherra.
„Það hefði verið stór ákvörðun að
hætta við veiðarnar,“ segir ráð-
herrann sem hefur ekkert nema
gott að segja um viðbrögð Sam-
fylkingarráðherranna og telur
mótmæli þeirra ekki hörð og
málið ekki stórt og alls ekki trufl-
andi fyrir ríkisstjórnina.
Gæti endað inni í ríkisstjórn
Össur Skarphéðinsson ferða-
málaráðherra útilokar hreint
ekki að hrefnuveiðarnar verði
teknar upp í ríkisstjórn. „Það er
alveg ljóst að ef það kemur fram
minnsta vísbending um að
hrefnuveiðarnar hafi þau skað-
legu áhrif sem fyrirtæki í ferða-
þjónustu telja, þá þarf rík-
isstjórnin auðvitað að skoða
málið betur. Ég mun gera það
sem rétt er í þessari stöðu og
halda fram hagsmunum þeirrar
greinar sem mér er trúað fyrir,
sem er ferðaþjónustan. Ég tel
hrefnuveiðarnar andstæðar hags-
munum hennar.“
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra styður ákvörðun sjáv-
arútvegsráðherra og er sáttur við
samstarfsflokkinn líka. Hann tel-
ur Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur utanríkisráðherra bregðast já-
kvætt við. „ Hún lofar í sinni
yfirlýsingu að útskýra málið út
frá sjálfbærniforsendum ef hún
væri beðin um að útskýra það á
erlendum vettvangi og það tel ég
mjög jákvætt.“ Nefnd forsætis-
ráðherra um ímynd Íslands skil-
aði skýrslu þar sem upphaf hval-
veiða 2006 er gagnrýnt. Skort hafi
á samhæfingu atvinnugreina og
hagsmunaaðila. beva
Hvalir og ímynd þjóðar
„Breytingin felur einkum í sér
færri ferðir, en þó verður áfram
15 mínútna tíðni á helstu leið-
um.“ segir Reynir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Strætó, en 1. júní
næstkomandi tekur sumaráætlun
gildi. „Á leið 5 og 12 verða þó
smávægilegar breytingar,“ bætir
hann við. Hann segir ástæður
þess að dregið sé úr tíðni á sumr-
in einkum vera tvær. „Farþegum
fækkar gríðarlega á sumrin. Svo
þurfa vagnstjórarnir að fara í
sumarfrí eins og annað fólk,“ seg-
ir Reynir sem bendir farþegum á
að kynna sér áætlunina á
www.straeto.is. ejg
Sumaráætlun Strætó byrjar 1. júní
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
Áætlunarflugi Iceland Express frá
Stansted-flugvellinum í London til
Keflavíkur var breytt á sunnudags-
kvöldið svo að vélin gæti komið við
í París til að sækja fleiri farþega. Af
þessum sökum seinkaði komu far-
þega frá London til Keflavíkur um
rúmar tvær klukkustundir.
Gremja á meðal farþega
Kona sem var farþegi í flugvél-
inni frá London og vill ekki láta
nafns síns getið segir breytingu
flugfélagsins á ferðatilhöguninni
hafa valdið farþegum óþægindum
og töluvert hafi borið á gremju á
meðal þeirra vegna breytinganna.
Hún segir að farþegum hafi ekki
verið tilkynnt um breytinguna fyrr
en flugstjóri vélarinnar baðst vel-
virðingar á þeim óþægindum sem
hún kynni að valda farþegunum,
eftir að vélin var komin í loftið
áleiðis til Parísar.
„Þetta er fyrsta flugið okkar frá
París í sumar og vegna þess hversu
fáir farþegar voru bókaðir þaðan
var ákveðið að sækja þá svona í
staðinn fyrir að fella flugið niður.
Þetta var frekar lítil röskun fyrir
alla farþega okkar, enda voru allir
látnir vita með tölvupósti og SMS-
skilaboðum hvað stæði til með
góðum fyrirvara,“ segir Lára Óm-
arsdóttir, upplýsingafulltrúi Ice-
land Express.
Hún segir farþega Iceland Ex-
press geta átt von á því að ferðir
verði sameinaðar með þessum
hætti í byrjun sumars, enda sé í
sumum tilfellum lítið bókað í ein-
staka flug svo snemma sumars.
Fleiri breytingar í vændum
„Ég get ekki útilokað að við
þurfum að grípa til þessa ráðs í ein-
hver þrjú fjögur skipti núna í maí,
en í sumar verður þetta ekki gert.
Ástæða þessa er auðvitað sú að það
er dýrt að fljúga með fáa farþega
fram og til baka og við viljum ekki
hækka verðið hjá okkur heldur
halda því niðri. Við bjóðum við-
skiptavinum okkar upp á sama
verð nú og í fyrra þrátt fyrir geng-
isfall krónunnar og hækkun elds-
neytisverðs.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Óvissuferðir
Iceland Express
Iceland Express breytti flugi frá London til að sækja farþega í
París Sparnaðaraðgerð til að halda verðinu niðri, segir talsmaður
Á flugi Upplýsingafulltrúi
Iceland Express fullyrðir að
breyting á flugi frá London
hafi valdið farþegum litlum
óþægindum.
➤ Sumaráætlun Iceland Expressgildir frá 15. maí til 14. sept-
ember.
➤ Áfangastaðir flugfélagsinseru fjórtán talsins, þeirra á
meðal eru Alicante, Barce-
lona, Berlín, Kaupmanna-
höfn, London og París.
ICELAND EXPRESS
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra hefur kallað eftir
gögnum frá Fjármálaeftirlitinu
um sölu stjórnarmanna
SPRON, Ásgeirs Baldurs, Hild-
ar Petersen og Gunnars Þórs
Gíslasonar, á hlutum í SPRON.
Stjórn SPRON hafði tekið
ákvörðun um að skrá félagið á
markað þegar salan á hlut-
unum fór fram, í júlí í fyrra, en
ekki var upplýst um hana þegar
hún fór fram. Samtals seldu
stjórnarmennirnir fyrir um 195
milljónir að nafnvirði.
Efnahagsbrotadeild
SPRON-gögn
til skoðunar