24 stundir - 21.05.2008, Blaðsíða 13
NordicPhotos/AFP
Sorg Syrgjandi móðir er flutt á brott eftir að hafa þurft að bera kennsl á lík barns síns í líkhúsi í Hanwang. Ljóst er að fjöldi foreldra á
skjálftasvæðunum hefur misst sitt eina barn, þar sem stefna yfirvalda hefur verið að hver fjölskylda megi einungis eignast eitt barn.
Kyrrð Þúsundir manna komu saman á
Torgi hins himneska friðar í Peking.
Minnast látinna Þúsundir grunnskólanema mynduðu saman hjartalaga hring um
tákn Wenchuan-bæjar á torgi í Linfen í Shaanxi-héraði á mánudaginn.
Bjargað Kínverskir hermenn flytja konu á brott sem fannst á lífi í rústum húss í Beichuan. Úrhellisrigning hefur gert björg-
unarmönnum mjög erfitt fyrir og lokaðist fjöldi bæja af eftir að aurskriður lokuðu vegum.
Rökkur Þúsundir manna hafa dvalið utandyra síðustu nætur af ótta við öflugan eft-
irskjálfta. Þessi ungmenni styttu sér stundir með því að taka í spil á torgi í Chengdu.
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
„Það ríkir bæði reiði og sorg hér í
Kína eftir jarðskjálftann,“ segir Hans
Bragi Bernharðsson, framkvæmda-
stjóri Enex Kína. „Ekki er talað um
annað en skjálftann. Þriggja daga
þjóðarsorg hófst í landinu á mánu-
daginn og fólk er að sjálfsögðu slegið
yfir þessu. Fólk fylgist mjög vel með
þar sem bæði kínverskir og erlendir
fjölmiðlar hafa verið með beinar út-
sendingar allan sólarhringinn frá þeim
svæðum sem urðu hvað verst úti.“
Allir létu sig hverfa
Hans Bragi hefur verið búsettur í
Kína í tólf ár og býr nú í borginni Xia-
nyang í Shaanxi-héraði, um 600 kíló-
metra frá upptökum skjálftans. „Ég
var reyndar staddur í Peking þegar
skjálftinn reið yfir, en ég er farinn að
halda að ég sé eini maðurinn í landinu
sem fann ekki fyrir honum. Ég var á
15. hæð í skrifstofubyggingu og var að
bíða eftir fólki þegar mjög æst kona
birtist allt í einu, talar mjög hratt og
óskýrt og eina orðið sem ég skildi var
jarðskjálfti. Þá gekk ég út og sá að allir
létu sig hverfa. Konan mín og dóttir
fundu hins vegar mjög greinilega fyrir
skjálftanum.“
Skjálftinn mældist 7,9 stig á Rich-
terskvarða í Sichuan-héraði, en um
3,5 stig í Peking, 1.400 kílómetra frá
upptökunum.
Mestu hörmungarnar
Hans Bragi segir þetta mestu
hörmungarnar sem hafa riðið yfir
Kína þann tíma sem hann hefur verið
þar. „Ég finn fyrir miklum samhug
meðal Kínverja. Það sem er öðruvísi
við þessar hörmungar samanborið við
aðrar er að það hefur verið mjög mik-
ið fjallað um þetta í fjölmiðlum. Það
er ekki algengt að innlendum jafnt
sem erlendum fjölmiðlum hafi verið
hleypt inn á hamfarasvæði, en um-
fang eyðileggingarinnar hefur auðvit-
að sitt að segja. Það hafa verið haldnar
vökur um allt land og Kína stoppaði í
þessar þrjár mínútur í gær [mánu-
dag].“
Hans Bragi segir að fólk í Xianyang
hafi fundið fyrir tíðum eftirskjálftum.
Hann segir margt fólk vera mjög
stressað og að fjöldi fólks hafi dvalið
utandyra yfir nóttina. „Mér sýnist á
öllu að svo verði aftur í nótt. Maður
skilur þetta að ákveðnu leyti en manni
finnst það ákveðin móðursýki líka.“
Reiði vegna eyðileggingar
Að sögn Hans Braga hefur sérstak-
lega mikið verið fjallað um allan þann
fjölda skólabygginga sem hrundu í
skjálftanum, en áætlað er að um sjö
þúsund skólar hafi eyðilagst í Sichuan-
héraði. „Á svæðum næst upptökun-
um hrundi allt en á svæðum fjær
gerðist mjög oft að skólar hrundu þó
að aðrar byggingar hafi staðið þetta af
sér. Stjórnvöld segja að þetta verði
skoðað sérstaklega og að þeir sem
ábyrgðina bera á illa byggðum skóla-
byggingum verði dregnir fyrir dóm-
stóla. Kurteislega þýðir þetta að þeir
sem hafa gerst sekir um eitthvað slíkt
megi eiga von á að fá dauðarefsingu.
Það ríkir því bæði reiði og sorg hérna í
Kína.“
Reiði og
sorg í kjöl-
far skjálfta
Íslendingur búsettur í Kína segir Kínverja
slegna og að samhugurinn sé mikill
➤ Kínversk yfirvöld hafa stað-fest að rúmlega 40 þúsund
manns hafi látist og um 250
þúsund slasast.
➤ Fleiri tuga þúsunda er ennsaknað, en í gær var fólk enn
að finnast á lífi í rústum húsa.
JARÐSKJÁLFTINN
24stundir MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 13
ÁSTANDIÐ Í KÍNA
frettir@24stundir.is a
Kurteislega þýðir þetta að þeir sem
hafa gerst sekir um eitthvað slíkt
megi eiga von á að fá dauðarefsingu.
Hans Bragi Berharðsson, framkvæmdastjóri Enex Kína.