24 stundir - 21.05.2008, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 24stundir
LÍFSSTÍLLNEYTENDUR
neytendur@24stundir.is a
Það er ekki aðeins munur á eyðslu bíla eftir
stærð þeirra heldur er stundum munur á bílum í
sama stærðarflokki.
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Margir eru nú þegar farnir að
skipuleggja ferðalög innanlands í
sumar en hætt er við að síhækk-
andi eldsneytisverð letji marga til
farar.
Á vefsíðu Orkuseturs getur
fólk reiknað út kostnað við ferða-
lög innanlands út frá tegund bíls,
orkugjafa, vélarstærð og fleiri
þáttum. 24 stundir slógu inn
nokkrar algengar bíltegundir og
könnuðu hvað það kostaði að aka
frá Reykjavík til Akureyrar.
Það er ekki aðeins munur á
eyðslu bíla eftir stærð þeirra
heldur er stundum munur á bíl-
um í sama stærðarflokki. Þá get-
ur verið munur á eldsneytis-
kostnaði bíls af sömu tegund eftir
stærð vélar og orkugjafa. Sem
dæmi má nefna að það kostar
4.332 kr. að aka Honda CR-V
jepplingi með 1998 sm3 vél frá
Reykjavík til Akureyrar. Aki mað-
ur þessa leið á dísil-útgáfu sama
bíls sem er með 2204 sm3 vél
verður kostnaðurinn talsvert
lægri eða 3.420 kr. Dísilbíllinn
losar enn fremur minna af kolt-
víoxíði á sömu leið eða 68,7 kg á
móti 83,8 kg sem bensínbíllinn
eyðir.
Þessir útreikningar eru að
sjálfsögðu aðeins til viðmiðunar
enda hafa fleiri þættir áhrif á
eldsneytiseyðslu bílsins svo sem
aksturslag, ástand bílsins og
hleðsla. Þó að almenningur fái
litlu ráðið um hækkandi elds-
neytisverð hefur hann sitthvað
um þessa þætti að segja.
Stærð og kostnaður Nokkur
munur getur verið á eldsneyt-
iseyðslu bíla í sama stærðarflokki.
Hægt er að reikna út kostnað vegna eldsneytiseyðslu
Ferðakostnaður eftir
ólíkum bíltegundum
Hægt er að reikna út
kostnað við ferðalög inn-
anlands út frá ólíkum bíl-
tegundum, vélarstærð,
orkugjafa og fleiri þátt-
um á vefsíðu Orkuseturs.
Samanburður á ferðakostnaði frá Reykjavík til Akureyrar (388 km)
eftir bíltegundum:
Smábílar:
Tegund Eldsneyti Slagrými vélar Kostnaður CO2-útblástur
Toyota Auris bensín 1598 sm3 3.319 kr. 64,4 kg.
Honda Jazz bensín 1339 sm3 2.756 kr. 51 kg.
Opel Corsa bensín 1199 sm3 2.869 kr. 58,6 kg.
Miðstærð:
Tegund Eldsneyti Slagrými vélar Kostnaður CO2-útblástur
VW Passat bensín 2324 sm3 4.219 kr. 91,2 kg.
Toyota Corolla bensín 1796 sm3 3.769 kr. 76,8 kg.
Skoda Octavia bensín 1984 sm3 3.488 kr. 73,7 kg.
Jeppar/jepplingar:
Tegund Eldsneyti Slagrými vélar Kostnaður CO2-útblástur
Ford Escape bensín 3000 sm3 5.119 kr. 99,7 kg.
Toyota Landcr. bensín 3956 sm3 5.626 kr. 118,3 kg.
Land R. Defender bensín 2495 sm3 5.602 kr. 116,0 kg.
Útreikningarnir eru miðaðir við að verð á bensínlítra sé 145 kr.
Heimild www.orkusetur.is.
ELDSNEYTISKOSTNAÐUR NOKKURRA BÍLTEGUNDA
Innbrotsþjófar sjá því miður
stundum til þess að gott sumar-
ferðalag fær slæman endi. Fyrir ut-
an það fjárhagslega tjón sem slíkar
heimsóknir skilja eftir sig, hafa þær
áhrif á andlega líðan heimilis-
manna. Það borgar sig því að huga
vel að vörnum gegn innbrotum áð-
ur en fjölskyldan heldur í frí.
Margir koma sér upp þjófavarna-
kerfi sem tengt er öryggisfyrirtæki
á meðan aðrir grípa til annarra að-
ferða.
Fáðu nágranna eða fjölskyldu til
að fylgjast með húsinu. Póstur og
dagblöð sem safnast upp eru til
marks um að enginn sé heima og
því þarf að láta fjarlægja það.
Einnig er gott að fá fólk til að
dvelja í húsinu, kveikja á ljósum og
útvarpi, hreyfa gluggatjöld o.s.frv.
Þá lítur út fyrir að einhver sé á
staðnum. Sumir setja tímaskynjara
á ljós og útvarp.
Ekki skilja eftir skilaboð á sím-
svara um að þú sért ekki heima.
Láttu frekar flytja símtöl í farsíma
ef mögulegt er.
Gakktu úr skugga um að allir
gluggar og hurðir séu tryggilega
læst áður en haldið er af stað.
Hugað að innbrotavörnum áður en haldið er í frí
Óboðnir gestir í sumarfríinu
Innbrot Ferðalangar þurfa að huga
að vörnum gegn óboðnum gestum
áður en lagt er í hann.
Umframþyngd í bílnum eykur
eldsneytiseyðslu hans. Það er því
skynsamlegt að aka ekki um með
þunga hluti í bílnum sem maður
hefur ekki þörf fyrir. Þegar farið
er í ferðalög ætti ekki heldur að
taka með meiri farangur en nauð-
synlegt er. Toppgrindur og far-
angurshirslur á þaki hafa einnig
áhrif á bensíneyðslu og því betra
að geyma farangur í bílnum sjálf-
um ef það er mögulegt.
Aukinni þyngd
fylgir eyðsla
Þeir sem hafa hugsað sér að aka
um framandi lönd í sumarfríinu
ættu að byrja á að kynna sér
hvaða gögn (svo sem öku-
skírteini, vegabréf og tryggingar)
þeir þurfa að hafa meðferðis.
Flestir kjósa að taka bílaleigubíl
þegar þeir aka um framandi lönd.
Alltaf eru þó einhverjir sem fara á
eigin bíl og draga jafnvel tjald-
vagn eða hjólhýsi á eftir sér. Mik-
ilvægt er að taka öll skráning-
arskírteini með sem og alþjóðlega
staðfestingu á því að bíllinn sé
ábyrgðartryggður.
Einnig er mikilvægt að menn
kynni sér vel þær umferðarreglur
sem gilda í viðkomandi landi, til
dæmis hvað varðar akstur á þjóð-
vegum og hraðbrautum.
Nánari upplýsingar um bíla-
ferðalög erlendis er hægt að nálg-
ast á vefsíðu Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda, www.fib.is.
Ekið á framandi
þjóðvegum
Ástand bílsins hefur sitt að segja
um eldsneytiseyðslu hans. Van-
stillt vél, rangur loftþrýstingur í
hjólbörðum og jafnvel óhreinindi
á lakki geta aukið eldsneyt-
iseyðsluna að óþörfu. Vanstillt vél
getur notað allt að helmingi
meira eldsneyti en vél sem er rétt
stillt. Flesta munar um það.
Of lítill loftþrýstingur í hjólbörð-
um getur aukið eyðsluna um allt
að 6% auk þess sem það styttir
endingu hjólbarðans.
Gott ástand
borgar sig
Vefsíðan
Ferðalangur
(www.ferda-
langur.net)
hefur gefið út
sérstaka
handbók sem
fólk getur
hlaðið niður
af netinu eða
prentað út án
endurgjalds. Handbók Ferða-
langs er um 30 síður og hefur að
geyma ýmsar hagnýtar upplýs-
ingar og góð ráð fyrir þá sem ætla
að leggjast í ferðalög á næstunni.
Þar er meðal annars fjallað um
farangur, flugfélög, tryggingar og
gengismál. Efnið hefur áður birst
á síðunni en nú er búið að safna
því saman í eina bók.
Hagnýt ráð fyrir
ferðalanga
Þeir sem vilja ferðast ódýrt lands-
hluta á milli geta prófað hvort
þeir finna eitthvað við sitt hæfi á
síðunni www.samferda.net. Hún
er ætluð fólki sem vill samnýta
ferðir með öðrum. Fólk þarf að
skrá brottfararstað og komustað
auk dagsetningar og tímasetn-
ingar ferðalagsins.
Ferðast saman
milli landshluta
Áður en haldið er í ferðalag er
gott að taka niður raðnúmer
(serial number) á myndavélum,
fartölvum og öðrum verðmætum
sem kunna að leynast í farangr-
inum. Það kemur að gagni ef
tækjunum er stolið eða þau týn-
ast. Einnig getur verið gott að
taka niður númer á vegabréfi og
öðrum mikilvægum gögnum og
geyma á vísum stað ef þau skyldu
glatast.
Áður en haldið
er af stað
LÍFRÆNIR SAFAR
Fæst í heilsubúðum og helstu
matvöruverslunum landsins