24 stundir - 21.05.2008, Qupperneq 29
24stundir MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 29
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
„Það er okkur mikið gleðiefni að
Kaupþing hafi ákveðið að styrkja
mótaröðina áfram næstu þrjú árin
enda ekki sjálfgefið eins og staðan
er í dag,“ segir Hörður Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri Golfsam-
bands Íslands. Sambandið blés til
blaðamannafundar í vikunni til að
kynna Kaupþingsmótaröðina þetta
árið en þar etja kappi allir helstu
kappar landsins. Var þar tilkynnt
að Kaupþing muni áfram standa
þar að baki næstu árin en fyrsta
mótið fer fram nú um helgina á
Strandavelli á Hellu og verða þar
144 þátttakendur; hámark 108 í
karlaflokki og 36 í kvennaflokki.
Sátt og ósátt
Innan golfheimsins eru ekki allir
á eitt sáttir við styttinguna úr 54
holum í 36 en þeir kylfingar sem 24
stundir tóku tali vegna málsins
voru jákvæðir. Haraldur Heimis-
son, stigameistari frá fyrra ári, var
ekki í vafa um að styttri mót þýddu
meiri samkeppni. „Álagið er minna
sem aftur þýðir færri mistök og þar
sem áfram er spilað á tveimur dög-
um ættu menn almennt að koma
ferskari til leiks en ef þeir spila tvo
hringi einn daginn og einn þann
síðari.“ Örn Ævar Hjartarson og
fleiri sem rætt var við voru sam-
mála þessu sjónarmiði Haraldar.
Ítrekað skal að Íslandsmótið í
höggleik verður þó áfram 72 holur
eins og verið hefur.
Færri stig
Breytingar hafa einnig verið
gerðar á stigaútreikningi á móta-
röðinni með það að markmiði að
gera mótin enn jafnari en verið
hefur. Verða þannig færri stig nú í
boði fyrir sigur á stökum mótum.
Verðlaun fyrir sigur á hverju
móti er 75 þúsund króna ferða-
vinningur en að auki hefur stjórn
golfsambandsins ákveðið að sá
stigahæsti að mótaröðinni lokinni
fái þátttökurétt á áhugamannamóti
erlendis og sé um atvinnumann að
ræða mun GSÍ greiða allan kostnað
viðkomandi við þátttöku á úrtöku-
móti fyrir Evrópumótaröðina
2009.
Garðavöllur Skartar hér sínu feg-
ursta. Þar verður keppt á Kaup-
þingsmótaröðinni um miðjan júní.
Allir bestu kylfingar landsins að gera klárt fyrir helgina
Meiri hasar á Kaup-
þingsmótaröðinni
Í stað þess að úrslit fáist
eftir 54 holur, eða þrjá
hringi eins og verið hefur
á Kaupþingsmótaröðinni
í golfi undanfarin ár,
verða nú aðeins leiknir
tveir hringir eða 36 holur.
Kylfingar eru almennt á
því að þessi breyting geri
mótið meira spennandi
fyrir þá og aðra áhuga-
sama. Ekki var þó full sátt
um breytinguna innan
golfsambandsins
➤ Sjö mót í sumar alls, þar af Ís-landsmót í höggleik og holu-
keppni.
24.-25. maí Strandavöllur
7.-8. júní Hólmsvöllur
21.-22. júní Garðavöllur
24.-27. júlí Vestmanna-
eyjavöllur
29.-31. ágúst Grafarholts-
völlur
13.-14. september Urr-
iðavöllur
20. september Hvaleyr-
arvöllur
MÓTARÖÐIN 2008
Íslenskur golfheimur hefur eign-
ast sitt eigið hirðskáld ef marka má
ummæli Jóns Ásgeirs Eyjólfssonar,
forseta Golfsambands Íslands, um
nýútkomna bók Kristjáns Hreins-
sonar, Golf og gaman, þar sem höf-
undur birtir ljóð um og frásagnir af
reynslu sinni í golfinu og þeim
misgóðu kylfingum sem hann hef-
ur hitt fyrir á völlum landsins.
Óhætt er að mæla með bók
Kristjáns enda stunda langflestir
golfið sér til gamans og sögur af
hrakförum félaganna ósjaldan
látnar flakka að loknum hring á
völlum landsins.
Gamansögurnar sem Kristján
segir eru margar og oft um lands-
þekkt fólk. Eitt sinn spilaði Kristján
með séra Erni Bárði Jónssyni sem
eins og presti sæmir varast vítin á
vellinum. Segir Kristján frá því að
skyndilega hafi prestur þurft að
kasta af sér vatni á þriðju braut á
velli Nesklúbbsins á Seltjarnarnesi í
þann mund sem Kristján sjálfur
reyndi högg úr mýri sem þar er.
Varð Kristjáni þá að orði:
Þeir segja að golfið bara batni
á braut við hverja tjörn
ef kastar af sér vígðu vatni
a völlinn séra Örn.“
Fyrsta hirðskáld íslenska golfsins komið fram
Grátlegt golf og gaman
Misgaman Golfið getur
reynt á taugar og skap.
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800
í dag
Miðvikudagur 21. maí 2008
Þó svo samkynhneigð
söngkona hafi fært Serbum
sigurinn í Evróvisjón í fyrra
eru fordómar enn víða.
»Meira í Morgunblaðinu
Fordómar í Serbíu
Tímasetning listvið-
burða í kvöld virðist taka
mið af úrslitaleik Meist-
aradeildarinnar.
» Meira í Morgunblaðinu
Fótbolti og list
Hljómsveitin Steini bar
sigur úr býtum í Þorska-
stríðinu, tónlistarkeppni
Cod Music.
» Meira í Morgunblaðinu
Samningur og lýsi
reykjavíkreykjavík