24 stundir - 25.06.2008, Blaðsíða 6
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
Icelandair tilkynnti í gær að það
myndi segja upp 240 einstakling-
um fyrir lok júnímánaðar. Um er
að ræða 64 flugmenn og 138 flug-
freyjur auk starfsmanna á tækni-
sviði, á söluskrifstofum og í flug-
umsjón. Til viðbótar var 24 flug-
mönnum sagt upp í lok maí og 116
flugfreyjum sem ráðnar höfðu ver-
ið til sumarstarfa.
Þá var búið að fækka um 15 til
20 manns á skrifstofu fyrirtækisins
frá áramótum og ljóst að 38 starfs-
menn á tæknisviði, á söluskrifstof-
um og menn sem vinna við flug-
umsjón missa einnig vinnuna.
Starfsmenn Icelandair á Íslandi
voru 1.361 í maí síðastliðnum og
þeim hefur því fækkað um fimmt-
ung í þessum aðhaldsaðgerðum.
Stjórnendur Icelandair funduðu
með flugmönnum og -freyjum í
gærmorgun þar sem tilkynnt var
um aðgerðirnar. Uppsagnarbréf
þeirra sem missa vinnuna voru
send út í gær.
Icelandair er eitt af tólf dóttur-
fyrirtækjum Icelandair Group.
Samkvæmt tilkynningu félagsins
eru öll fyrirtækin að bregðast við
breytingum í rekstrarumhverfi í
flug- og ferðaþjónustu með áherslu
á „kostnaðaraðhald og sveigjan-
leika.“ Í síðustu viku tilkynnti
Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli
(IGS), eitt dótturfyrirtækjanna,
Vinnumálastofnun að hún myndi
segja upp allt að 100 einstaklingum
um komandi mánaðamót. Guðjón
Arngrímsson, upplýsingastjóri Ice-
landair Group, vildi aðspurður
ekki segja neitt um hvort von væri
á frekari uppsögnum hjá öðrum
dótturfyrirtækjum félagsins.
Verið að taka til í rekstrinum
Birkir Hólm Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Icelandair, segist
ekki sjá fram á frekari uppsagnir að
sinni. „Við stefnum að því að
styrkja reksturinn og hagræða í
honum þannig að við fáum fyrir-
tækið aftur í plús. Það er verið að
taka á ýmsum rekstrarþáttum, til
dæmis að draga úr olíukostnaði
með því að fljúga hægar, létta vél-
arnar og annað slíkt. Það eitt og sér
sparar um 300 milljónir króna. Svo
höfum við fækkað millistjórnend-
um úr fimmtán í sjö og sölu- og
markaðsstjórum úr átta í þrjá.“
Birkir vill ekki gefa upp hversu
mikið sparast í rekstrinum með
uppsögnunum. Hann segir vel
koma til greina að endurráða hluta
af starfsfólkinu sem hefur verið
sagt upp ef aðstæður skapast til
þess. „Við erum að leita verkefna
fyrir vélarnar okkar og ef þau koma
inn þá ráðum við fólk. En eins og
staðan er í dag er lítil eftirspurn eft-
ir leiguvélum.“
Þriðjungur úr
háloftunum
Icelandair segir upp fimmtungi starfsfólks á Íslandi Flug-
mönnum og flugfreyjum fækkar um þriðjung frá því sem var
➤ Flugmenn hjá Icelandair hafaverið í kringum 300. 88 hefur
verið sagt upp. Þeim fækkar
því um tæpan þriðjung.
➤ Flugfreyjur hjá Icelandairvoru um 430 síðasta vetur.
138 flugfreyjum var sagt upp
í gær. Þeim fækkar því um
þriðjung.
➤ Þess utan var 38 manns sagtupp í öðrum deildum. Áður
hafði fækkað um 15 til 20 á
skrifstofu Icelandair.
HÓPUPPSAGNIR
24stundir/Árni Sæberg
Uppsagnir Forsvarsmenn Icelandair funduðu með flugfreyjum í gær þar sem tilkynnt var um hópuppsagnir á meðal þeirra.
6 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 24stundir
Hressing
í bolla frá
Knorr
„Eins og gefur að skilja þá bitnar
hækkandi eldsneytisverð og fall
krónunnar mjög hart á strætó,“
segir Ármann Kr. Ólafsson stjórn-
arformaður Strætó. Hann segir að
reksturinn sé orðinn erfiður en
vekur athygli á að almenningssam-
göngur séu mikilvægari nú en áður
vegna hás eldsneytisverð.
„Þetta hlýtur að vera sameigin-
legt markmið ríkis og sveitarfélaga.
Ég skil að ríkið vilji fara varlega í að
breyta álögum á eldsneyti en hins
vegar gæti sameiginlegt átak í al-
menningssamgöngum verið útspil
sem kæmi báðum aðilum til góða,“
segir Ármann og bætir við: „Ríkið
gæti til dæmis fjölgað strætórein-
um meðfram þjóðvegum á höfuð-
borgarsvæðinu til að gera þær eft-
irsóttari.“ elias@24stundir.is
Ármann Kr. Ólafsson stjórnarformaður Strætó
Eldsneytisverðið
þyngir róðurinn
Stjórnendur fyrirtækja í ferða-
þjónustu kvíða haustinu, að sögn
Ernu Hauksdóttur, framkvæmda-
stjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.
„Sumarið gengur sinn gang. Það
var búið að selja mikið fyrirfram í
ferðir hingað í sumar og gengisfall-
ið gagnast þeim sem koma hingað
á eigin vegum.“
Erna bætir því við að það sem
ráði fyrst og fremst ferðum fólks sé
efnahagsástandið í þess eigin lönd-
um. „Við vitum að það er mikil
efnahagslægð í Bretlandi þaðan
sem flestir erlendir ferðamenn
koma. Bandaríkjamenn ferðast
ekki í þessa átt vegna óhagstæðrar
stöðu dollars gagnvart evru og í
Þýskalandi er mikil herferð fyrir
því að fólk ferðist heima. Sam-
dráttur hjá flugfélögum hefur auk
þess áhrif á alla ferðaþjónustuna.
Menn kvíða þess vegna haustinu.“
Grímur Sæmundsen, forstjóri
Bláa lónsins, segir verið að hag-
ræða hjá fyrirtækinu á ýmsum
sviðum fyrir haustið. Starfsmenn
fyrirtækisins eru rúmlega 200 en að
undanförnu hefur á annan tug
manns verið sagt upp og koma
uppsagnirnar til framkvæmda í
haust. „Við erum að rýna í hvað
framundan sé og búa okkur undir
að þurfa að takast á við samdrátt.
Það er ekki spurning að hópupp-
sagnir hjá Icelandair vekja ugg inn-
an ferðaþjónustunnar. Það ríkir
mikil óvissa með haustið og vet-
urinn, bæði vegna aðgerða Ice-
landair og svo virðist sem bókanir
séu ekki endilega með þeim hætti
sem menn vilja sjá.“
Áætlanir Bláa lónsins um heilsu-
hótel hafa verið settar í salt, að
sögn Gríms. „Framkvæmdir vegna
stækkunar baðstaðarins og flutn-
ingur Hreyfingar voru umfangs-
meiri en við bjuggumst við. Svo
hafa ytri aðstæður þróast með svo
ótrúlegum hætti að það væri óðs
manns æði að láta sér detta í hug
að fara í framkvæmdir.“
ingibjorg@24stundir.is
Fyrirtæki í ferðaþjónustu búa sig undir mögulegan samdrátt
Stjórnendur kvíða haustinu
Stofnað hefur verið nýtt fasteigna-
félag, Eik Properties ehf., sem
verður að öllum líkindum næst-
stærsta fasteignafélag á landinu, á
eftir Landic Property.
Heildareignasafn hins nýja félags
er 54 milljarða virði en eigið fé
þess er um 21 milljarður.
„Við komum því mjög sterkt til
leiks,“ segir Garðar Hannes Frið-
jónsson, forstjóri Eikar Proper-
ties.
Eik Properties á nú allt hlutafé í
Eik fasteignafélag hf., allt Fast-
eignafélag Íslands ehf., sem á t.d. Eignarhaldsfélagið Smáralind hf.,
64% hlut í Glitni Real Estate Fund hf. og 10% hlut í Eignarhaldsfélag-
inu Fasteign hf., sem á opinberar byggingar í ýmsum sveitarfélögum á
landinu.
Garðar segir að ólíkt sumum félögum í þessum bransa séu öll félög
Eikar Properties með jákvætt fjármagnsflæði eftir að búið er að greiða
vexti. „Þetta er alls engin neyðarsameining, heldur sameining til að
búa til sterkt félag sem stendur af sér niðursveifluna og getur nýtt þau
tækifæri sem verða til með henni.“
Hið nýja fasteignafélag verður í eigu Saxbygg ehf. sem er með 52%
eignarhlut og Glitnis sem er með 46% eignarhlut. Þá eiga aðrir fjár-
festar 2%.
Saxbygg eignast hlutaféð í skiptum fyrir hlut sinn í Fasteignafélagi Ís-
lands og hlut sinn í Glitni Real Estate Fund. Glitnir eignast hlutaféð í
skiptum fyrir hlut bankans í Fasteignafélagi Íslands, hlut sinn í fast-
eignafélaginu Eikarhaldi, hluta af eign sinni í Eignarhaldsfélaginu
Fasteign og hlut sinn í Glitni Real Estate Fund.
Eigendur Eikar Properties stefna á að skrá félagið á markað þegar
markaðsaðstæður eru betri, og þegar búið verður að byggja félagið
upp. Garðar segir ómögulegt að segja til um hvenær það verður. hos
54 milljarða fasteignafélag
Utanríkisráðherrar Norður-
landanna taka undir ályktun ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna
þar sem pólitískt ofbeldi í Sim-
babve er fordæmt. Þeir segja að
binda verði enda á ofbeldið og
leggja drög að lögmætri, lýðræð-
islegri og umbótasinnaðri stjórn í
Simbabve. Norðurlöndin segjast í
yfirlýsingu reiðubúin að veita
slíkum stjórnarumbótum öfl-
ugan stuðning.
Stöðva verður
óöld í Simbabve
Ríkislögreglustjóri hefur sent frá
sér aðvörun vegna sms-skilaboða
þar sem viðtakendum er sagt að
þeir hafi unnið 945 þúsund bresk
pund og þeir beðnir að senda
póst á uppgefið netfang.
„Hér er um að ræða enn eina að-
ferðina við að reyna að svíkja fé
út úr fólki. Ríkislögreglustjóri
ráðleggur fólki að svara ekki
þessum sms-skilaboðum.“ hos
Reynt að svíkja
fé út úr fólki