24 stundir - 25.06.2008, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 24stundir
Eftir Hauk Harðarson
haukurh@24stundir.is
„Það mikilvægasta er að bera á þau
reglulega. Best er að gera það tvisv-
ar á ári, þegar þau eru tekin út og
þegar þau eru sett aftur inn,“ segir
Magnús Ólafsson, brautarstjóri í
húsgagnadeild Iðnskólans í
Reykjavík til þrjátíu ára, aðspurður
hvað sé best að gera til að hámarka
endingu viðargarðhúsgagna.
Glæra olíu á dökkan við
Magnús segir mikilvægt að vatn
komist ekki í beran við því þá gráni
hann. „Á dökkan við eins og ma-
honí er best að nota glæra olíu svo
viðurinn fái að njóta sín sem best.
Ef þau eru farin að grána þarf að
pússa þau með sandpappír og bera
svo olíuna á. Þannig er hægt að
halda þeim fallegum þokkalega
lengi,“ segir Magnús. Á ljósari við-
artegundir á borð við furu segir
Magnús gott að nota olíubæs eða
litaða olíu. Hún er til í mörgum
litum og tegundum en nota skal
þann lit sem er næstur húsgagninu
sjálfu.
Umhirðan skiptir öllu máli
„Ef maður vill hafa falleg hús-
gögn í kringum sig skiptir öllu
máli að gefa sér smá tíma til að
hugsa um þau. Ef maður ber á
þetta tvisvar á ári þarf voðalega lít-
ið að gera. Ef maður aftur á móti
missir þau úr höndunum þarf að
fara út í heljarinnar slípingar- og
sköfunarvinnu sem kosta mikinn
tíma og peninga,“ segir Magnús.
Viðarhúsgögn Það kemur í bakið á manni að trassa að bera á viðarhúsgögnin. Að
bera á þau tvisvar á ári kemur í veg fyrir mikla slípingarvinnu.
Það borgar sig að bera tvisvar á ári á viðargarðhúsgögnin
Smá umhirða sparar
mikla vinnu og vesen
➤ Magnús mælir sterklega meðþví að bera á viðarhúsgögn
tvisvar á ári.
➤ Á dökkan við skal nota glæraolíu svo viðurinn fái að njóta
sín sem best.
VIÐARGARÐHÚSGÖGN
Það færist í vöxt að fólk
kjósi falleg og vönduð
viðargarðhúsgögn fram
yfir hina sígildu plast-
stóla. Magnús Ólafsson
hefur verið brautarstjóri í
húsgagnadeild Iðnskól-
ans í Reykjavík í hartnær
þrjátíu ár.
Til að ná sem bestum árangri í
umhirðu á viðarhúsgögnum verð-
ur að taka tíðarfar og viðartegund
með í reikninginn og haga um-
hirðu eftir því. En hvað sem því
líður eru nokkrir punktar sem allir
eigendur viðargarðhúsgagna ættu
að tileinka sér óháð veðri, vindum
og viðartegundum.
Hyljið og geymið Yfir þá mán-
uði sem ekki er fyrirhugað að
nota garðhúsgögnin er ráðlegt að
setja ábreiðu yfir þau og geyma í
bílskúr eða garðskýli.
Lesið leiðbeiningar framleið-
anda Þegar keypt eru ný húsgögn
ættu leiðbeiningar sem snúa að
umhirðu og meðferð hús-
gagnanna að fylgja með. Gætið
þess að geyma og lesa slíkar leið-
beiningar þar sem þær eru oftast
mjög gagnlegar.
Sólskin og regn Á meðan þessi
tvenna er besti vinur gróðursins í
garðinum er sambandið við við-
argarðhúsgögnin ekki jafn-
gæfuríkt. Hugleiðið að hylja hús-
gögnin í rigningu en athugið að
góð umhirða á borð við að bera á
húsgögnin tvisvar á ári hjálpar
verulega í baráttunni við sól og
regn.
Viðarvörn Berið á viðarvörn
tvisvar á ári. Þegar þau eru tekin
út og svo aftur þegar þau eru sett
í geymslu eftir sumarið. Passið að
bera á olíu sem passar við við-
artegundina.
Strjúkið óhreinindi af Það hefur
reynst gagnlegt í gegnum tíðina
að renna yfir húsgögnin með
þurrum klúti vikulega.
Ekki vanrækja stól- og borðfæt-
urna Borðin og stólarnir standa
jú flest á fjórum fótum og því er
mikilvægt að gleyma ekki að bera
vel á þá. Ekki láta fæturna standa
í grasi því við það myndast of
mikill raki fyrir viðinn. Í upphafi
sumars er gott að fylla fjóra bolla
með viðarvörninni sem er notuð
á viðinn og setja fæturna ofan í
þá og láta standa í nokkra tíma
eða þangað til fæturnir hafa
drukkið í sig viðarvörnina.
haukurh@24stundir.is
Sumt geta allir eigendur tileinkað sér
Góð ráð fyrir alla eigendur
viðargarðhúsgagna