24 stundir - 25.06.2008, Blaðsíða 11
24stundir MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 11
ÁSTAND HEIMSINS
frettir@24stundir.is a
Við þurfum bara að hreinsa til og halda lífinu
áfram. Auðvitað er það ekki eins auðvelt og að
segja það en það er það sem við þurfum að gera. Og
það munum við gera. JoAnne Smiley, bæjarstjóri Clarksville í Missouri.
Mississippifljót heldur áfram að
hrella nágranna sína með vatna-
vöxtum. Veðurfræðingar telja að
flóðhæð nái senn hámarki, en
varnargarðar eru víðast vatnssósa
og hætt við að þeir bresti.
„Fólk er þreytt, en það er enn þá á
staðnum og enn þá sterkt,“ segir
Jo Anne Smiley, bæjarstjóri smá-
bæjarins Clarksville, sem er var-
inn af bráðabirgðavarnargörðum
úr sandpokum. „Þetta er sam-
félag sem getur staðið þetta af
sér.“
Robert L. Van Antwerp, yfirmað-
ur verkfræðideildar hersins,
skoðaði flóðasvæðin á mánudag.
Hann lofaði vel heppnaða sam-
vinnu yfirvalda og hrósaði al-
menningi fyrir frammistöðu sína
á erfiðum tímum.
„Það er hörkuslagur í gangi við
flóðið hérna og ég hef óhemju-
góða tilfinningu fyrir fólkinu á
svæðinu,“ sagði Van Antwerp á
blaðamannafundi.
Um 17.000 hektarar akurlendis
hafa farið undir vatn en telja
menn það vel sloppið miðað við
stærð flóðsins. andresingi@24stundir.is
Enn barist
við Miss-
issippi
AFPAð flýja Fólk bindur dýnu við þak bíls til að geta lagt í hann á flótta undan flóðavötnum Mississippiár í Missourifylki.
Kósí í Ísrael Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti sótti Ísrael heim ásamt eiginkonu sinni, Cörlu Bruni-Sarkozy.
Seppaskór Þýskur lögregluhundur sýnir blaðamönnum nýju skóna sína. Lögreglan í Düsseldorf hefur
gripið til þessa ráðs til að verja loppur voffanna fyrir glerbrotum og annarri óværu.
Bann í bráð? Flugeldasölur sem þessi gætu senn heyrt sögunni til í Bagdad. Þingið tekur í mánuðinum til um-
ræðu tillögu um bann við innflutningi, sölu og dreifingu skotelda í landinu.