24 stundir - 25.06.2008, Qupperneq 34
34 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 24stundir
Feim-Lene Bjerre • Bæjarlind 6 • Kóp.
Sími 534 7470 • Vefverslun www.feim.is
Opið virka daga kl. 10-18,
laugardaga kl. 10-16.
Vaxtalaus lán til allt að 12 mán.
Vinsælu garðhúsgögnin
frá Kanada
Nú getum við boðið
þessa frábæru hönnun
úr FURU
Mjög fallegur og létt fylltur í BC skálum
á kr. 2.950,- buxur fást í stíl í S,M,L,XL
á kr. 1.450,-
Mjög fallegur og létt fylltur í BC skálum
á kr. 2.950,- buxur fást í stíl í S,M,L,XL
á kr. 1.450,-
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 3366
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf
www.misty.is
Aðþrengdur Afsakið að ég er til!
ÞÉR ERUÐ DÆMDIR FYRIR
LANDRÁÐ OG SKAL REFSING ÞÍN VERA
. . . Á I!! ENDEMIS, SKAR MIG Á
BLAÐINU!! ÁI , Á I, Á I . . . ! !
ÞETTA SÍMTAL GETUR VERIÐ HLERAÐ AF
GÆÐAEFTIRLITINU - SVO TALAÐU SKÝRT
OG AF VITI EÐA ÉG SKELLI Á ÞIG.
Bizzaró
Skref 4: Hafið í huga að
framkvæma skref 1 til 3
á stóru útisvæði, nálægt
stóru vatni.
MYNDASÖGUR
Bræðurnir Robin og Barry Gibb
íhuga að snúa aftur sem The Bee
Gees en fimm ár eru liðin frá því
að bróðir þeirra Maurice dó.
Robin sagði í viðtali við BBC að
endaleg ákvörðun væri í rauninni
í höndunum á bróður sínum því
að sjálfur myndi hann slá til hve-
nær sem er.
Bræðurnir sungu saman á sviði í
Miami fyrir tveimur árum, en
notuðu þá ekki nafnið. bös
Snúa The Bee
Gees aftur?
Hans er ekki sökin á slakri mynd;
heldur er þar aðeins handritinu
um að kenna. Myndin er annars
vel unnin og vel leikin. Hinsvegar
er það ekki nógu trúverðugt að
maður sem lítur út eins og Aaron
Eckhart, sem þykir með mynd-
arlegri mönnum, skuli túlka því-
líkan aulabárð í yfirvigt og kjána
sem persóna hans er. Ekki frekar
en að Julia Roberts gæti verið box-
ari, eða Sylvester Stallone vís-
indamaður. Annars er þetta ágætis
mynd, ég hef bara séð hana áður.
Kvikmyndir traustis@24stundir.is
Meet Bill fjallar um miðaldra
mann sem uppgötvar einn daginn
að hann er of feitur, konan hans
heldur framhjá honum og hann
hatar vinnuna sína.
Þegar hann kynnist táningsstrák
og unglingsstúlku, sér hann hlut-
ina í nýju ljósi og ákveður að
bretta upp ermarnar og ná tökum
á lífi sínu.
Endurunnið efni
Fyrir þá sem ekki sáu American
Beauty er þessi mynd eflaust fín,
fyndin og frumleg. Annars er hún
ansi aum eftirlíking. Þrátt fyrir
ágæta spretti inn á milli, er hún á
köflum kjánalega klisjuleg í við-
leitni sinni til að vera frumleg, hip
og kúl. Viðfangsefnið er það sama
og í American Beauty, karlmaður
með gráa fiðringinn sem breytir
lífsmunstri sínu og breytist í ung-
ling.
Þetta hljómar allt mjög jákvætt,
að miðaldra menn poppi sig að-
eins upp, en reyndin er auðvitað
allt önnur, því fátt er kjánalegra en
ístrubelgir sem klæða sig eins og
tvítugir goshnakkar, í hvítum
támjóum skóm, aðsniðnum allt of
þröngum fötum, með skyrtuna
hneppta niður að nafla svo grá-
sprengd bringuhárin fái að njóta
sín, ásamt gervibrúnkunni. Ekki
falleg sjón.
Aaron Eckhart er ágætis leikari,
sem skilar sínu eins og til er ætlast.
Aumingi? Aaron Eckhart lítur ekki út fyrir að vera sú mannleysa sem hann á að túlka í
myndinni. Mannleysur eiga nefnilega ekki séns í Jessicu Alba.
Klisjukjánaskapur sem allir hafa séð áður
Leikstjóri: Bernie Goldmann, Melissa Wallack
Aðalhlutverk: Aaron Eckhart, Jessica Alba,
Logan Lerman.
Meet Bill
Svo virðist sem Boy George
muni ekki fá inngöngu til Banda-
ríkjanna í bráð sem þýðir að hann
getur ekki staðið við fyrirhugaða
tónleikaferð þar í landi. Gamli
skallapopparinn á að hefja 24 tón-
leika reisu um Bandaríkin þann 11.
júlí næstkomandi en yfirvöld þar í
landi neita að hleypa honum inn
fyrr en réttarhöldum hans í Bret-
landi er lokið.
Handjárnaður fylgisveinn
Söngvarinn, sem er 47 ára gam-
all, er ákærður fyrir mannrán og á
að mæta fyrir rétt í nóvember til
þess að svara til saka. George á að
hafa handjárnað ungan mann í
apríl á síðasta ári er hann lokkaði
hann heim til sín í kynlífsleiki í
íbúð sinni þar sem hann skyldi
hann svo eftir í einhverja daga.
Maðurinn segir gamla sykurp-
úðann einnig hafa beitt sig lík-
amlegu ofbeldi. Söngvarinn hefur
neitað allri sök og lögfræðingar
hans neita að tjá sig um málið við
fjölmiðla annað en að þeir séu að
berjast fyrir því að popparinn nái
að standa við skuldbindingar sínar
í Bandaríkjunum.
Fórnarlambið er norskur karl-
maður, rétt undir þrítugu, er starf-
aði þá sem fylgisveinn. Í hverju það
starf svo felst nákvæmlega, fylgir
víst ekki sögunni. biggi@24stundir.is
Þykir of klúr fyrir Kanann
FÓLK
24@24stundir.is a
Þetta hljómar allt mjög jákvætt, að miðaldra menn
poppi sig aðeins upp, en reyndin er auðvitað allt önn-
ur, því fátt er kjánalegra en ístrubelgir sem klæða sig eins-
og tvítugir goshnakkar. fréttir
Tónlistarframleiðandinn Jer-
maine Dupri hefur tilkynnt fjöl-
miðlum að hann hyggi nú á barn-
eignir með Janet Jackson en þau
hafa verið par til fjölda ára.
Dupri sagði að þau myndu byrja
að reyna þegar tónleikaferðalagi
Jackson lýkur í haust. íav
Nýtt Jackson-
barn á leiðinni
Nýjustu fréttir herma að rapp-
arinn Nelly sé við það að biðja
söngkonunnar Ashanti eða hafi
jafnvel látið til skara skríða á
BET-verðlaunahátíðinni í gær-
kvöldi. Lítið hefur farið fyrir
parinu að undaförnu en gera má
ráð fyrir glæsilegu brúðkaupi ef
þau láta pússa sig saman. íav
Nelly á leið upp
að altarinu?
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744
Hvað ætlar
þú að gera
í dag?