24 stundir - 25.06.2008, Qupperneq 38
Eftir Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
Áhugi Íslendinga á So You Think
You Can Dance hefur vaxið stöð-
ugt síðan fyrsta þáttaröðin var
sýnd og því ákvað Stöð 2 að kosta
för íslenskra dansara í fjórðu þátta-
röð. Gengið var frá þessu þegar
Dan Karaty heimsótti landið á síð-
asta ári. Parið Hjördís Lilja Örn-
ólfsdóttir og Steve Lorenz fór út í
hæfnispróf fyrir hönd okkar Ís-
lendinga.
Stressuð á sviðinu
Hjördís og Steve starfa bæði hjá
Íslenska dansflokknum. Þau fóru
til Milwaukee í lok mars og tóku
þátt í hæfnisprufunum. Parið vakti
mikla athygli í prufunum og kynn-
irinn, Cat Deeley, ræddi við þau í
röðinni og aftur þegar inn var
komið. „Ég fór á svið á undan
Steve en ég hafði ekki gert ráð fyrir
því fyrirfram að ég yrði tauga-
óstyrk,“ segir Hjördís. „Það breytt-
ist þó eftir að við höfðum beðið í
salnum allan daginn og horft á
keppnina. Starfsfólkið gerði auð-
vitað í því að stressa okkur upp og
það virkaði hjá þeim.“
Þættirnir eru nú þegar komnir í
loftið í Bandaríkjunum en sýndir
eru fjórir þættir úr áheyrnarpruf-
unum. Þar koma íslensku dans-
ararnir hvergi fram og áhorfendur
eru því engu nær um hvernig þeim
gekk.
Útlendingar komast ekki að
24 stundir komust þó að því að
ekki er nóg með að parinu hafi
gengið einstaklega vel heldur
komst Steve í hina eftirsóttu Las
Vegas-viku. Þangað fóru um 200
manns af mörg þúsund sem mættu
í prufur. Í Las Vegas eru dans-
ararnir píndir í heila viku og að
lokum eru 20 valdir til að taka þátt
í keppninni. Þrátt fyrir þetta sést
Steve ekki nema augnablik í þætt-
inum og munu líklega fæstir taka
eftir honum. Þetta mun vera vegna
þess að útlendingar eru markvisst
klipptir úr þættinum vegna reglna
um atvinnuleyfi. Reglur keppn-
innar heimila útlendingum þátt-
töku en þeir eiga enga von um að
komast áfram þar sem þau þurfa
leyfi til að geta ferðast um Banda-
ríkin og haldið sýningar að lokinni
keppni. Aðstandendur þáttanna
útvega ekki eða aðstoða með dval-
arleyfi fyrir erlenda keppendur. Á
hverju ári halda fleiri vongóðir
dansarar til Bandaríkjanna í
áheyrnarprufur án þess að gera sér
grein fyrir að þeir munu aldrei
birtast á skjánum.
Það er þó ekki útilokað að við
sjáum parinu bregða fyrir á Stöð 2
en líklega verður sýnd önnur og al-
þjóðlegri útgáfa af þættinum hér á
landi. Við á 24 stundum vonum að
sjálfsögðu að við fáum að sjá þau
Hjördísi og Steve.
Íslenska parið klippt út úr So You Think You Can Dance
Steve Lorenz
komst til Vegas
Íslenskir dansarar tóku
þátt í einum vinsælasta
raunveruleikaþætti
Bandaríkjanna en kom-
ust að því að útlendingar
geta ekki komist í úrslit
Vinsælust Sabra úr 3. seríu.
Morgunblaðið/Golli
Danspar Hjördís
og Steve dönsuðu í
Bandaríkjunum.
38 MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 2008 24stundir
„Hvítabjörn og sauðkind eru
tvennt ólíkt, þó bæði séu hvít.
Fólk virðist samt sem áður rugl-
ast á þessum ólíku dýrum. Ég
spyr; Hvað varð eiginlega um
náttúrufræðikennslu þessa lands?
Miðað við lýsingarnar und-
anfarið þá hefur eitthvað miður
farið við kennslu í dýrafræði.“
Ásgerður Júlíusdóttir
sterrur.blog.is
„Það eru allir að sjá ísbjörn hvert
sem þeir líta og þyrlur og fólk
sent í leit að þessum blessuðu
hestum og kindum sem fólk held-
ur að sé ísbjörn. Þetta er orðið að
allsherjar gríni! Þvílíka hasiter-
ingin í fólki, um leið og það sér
eitthvað hvítt í fjarska þá er það
ísbjörn. Magnaður andskoti!“
Ómar Örn Ólafsson
omar.eyjan.is
„Spurning hvort einhver bóndinn
sé farinn að setja óhóflegt magn
stera í kindurnar sínar?
Svona til þess að drýgja afurðina
aðeins, líkt og kjúklingabændur
hafa gert með sínum aðferðum
undanfarin ár …“
Óttarr Guðlaugsson
blogg.gattin.net
BLOGGARINN
HEYRST HEFUR …
Böddi í Dalton hefur náð sér að fullu eftir líkams-
árásina á Höfn. Eftir þann lífsháska er kannski ekk-
ert undarlegt að pilturinn ætli sér að fagna þrítugs-
afmæli sínu með glans um næstu helgi en sveitin
stendur fyrir mikilli garðveislu á Hressó á föstu-
dagskvöld að því tilefni. Þar ætlar Dalton að spila
lögin sín auk þess sem Böddi tekur lög af vænt-
anlegri sólóplötu. bös
Valgeir Sigurðsson virðist vera á góðri leið með að
kynna útgáfufyrirtæki sitt, Bedroom Community,
sem hið næsta „kúl“ frá Reykjavík. Nýjasta útgáfa
félagsins, breiðskífa með bandaríska tónskáldinu
Nico Muhly, var valin poppplata vikunnar af enska
dagblaðinu The Sunday Times. Sem kom Valgeiri
og félögum skemmtilega á óvart, þar sem platan var
aldrei hugsuð sem poppplata. bös
Birgir Ísleifur Gunnarsson og félagar hans í Mo-
tion Boys eru við það að sleppa nýju lagi í spilun.
Það heitir The Queen of Hearts og segir Birgir að
lagið muni verða „skemmtilegt sjokk“ fyrir þá sem
þekkja til sveitarinnar því þar kveði við nýjan tón.
Segir meiri áhrif frá Rolling Stones en Kraftwerk.
Motion Boys eru að hljóðrita 11 laga plötu er verð-
ur kláruð í ágúst. bös
„Fólk er mjög ánægt með bjór-
verðið hjá okkur, en ekki er hægt
að segja að sama ánægja ríki með
eldsneytisverðið,“ segir Valdimar
Halldórsson, einn eigenda Ný-
lenduvöruverslunar Hemma &
Valda, sem í fyrradag seldu bjórinn
á díselverði, eða hálfan lítra á 198
krónur.
Eins konar menningarstarfsemi
Þeir félagar opnuðu staðinn fyr-
ir rúmum mánuði, sem staðsettur
er í gamla Hljómalindarhúsinu við
Laugaveg 21. Þeir selja frekar
óhefðbundnar vörur, bjór, barna-
föt, reiðhjól og ermahnappa svo
fátt eitt sé nefnt. „Við erum opnir
fyrir allri hönnun, fyrir þá sem
vilja selja hjá okkur, en annars er
þetta bar og kaffihús líka. Við
höldum tónleika og ýmsa menn-
ingarviðburði líka.“
En eru það góð viðskipti að selja
bjór á afslætti í kreppuástandi?
„Við prófuðum aðeins aðra út-
færslu á þessu á kvenréttindadag-
inn, þegar við veittum konum sér-
stakan afslátt. Það gafst mjög vel,
þó svo um hafi verið að ræða já-
kvæða mismunun! Þá heyrðum
við af því, að erlendis væri bensín-
ið orðið dýrara en bjórinn og þá
stukkum við til og vorum með
einn kút á tilboði milli 9 og 10. Við
auglýstum þetta bara á heimasíð-
unni okkar, verzlun.com, en þetta
hefur gefist vel og mun vera eitt-
hvað áfram í sumar,“ segir Valdi,
sem vonar bara að bensínið hækki
enn þá meira. „Já, það væri ekki
ónýtt fyrir okkur, þá kannski get-
um við haldið þessu réttu megin
við núllið!“
traustis@24stundir.is
Nýlenduvöruverslun Hemma & Valda
Selja bjórinn
á bensínverði
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
8 5 2 9 7 3 4 1 6
9 4 1 5 6 2 3 8 7
6 7 3 8 1 4 2 5 9
4 1 7 6 8 9 5 2 3
2 8 9 7 3 5 6 4 1
3 6 5 2 4 1 9 7 8
1 9 4 3 2 7 8 6 5
7 3 6 4 5 8 1 9 2
5 2 8 1 9 6 7 3 4
Hvað meinaru ’settu upp tjaldið’ ?
Tjaldið ER komið upp.
Jæja Árni, á að fara á Bjarkar og Sigur Rósar tónleikana á
laugardaginn?
Árni Johnsen alþingismaður hefur átt í orðaskiptum við Björk Guð-
mundsdóttur á síðum blaðanna, en hann sakaði Björk um barna-
leg viðhorf til stóriðju. Björk og Sigur Rós halda útitónleika í Laug-
ardalnum á laugardaginn, en yfirskrift tónleikanna er náttúra.
FÓLK
24@24stundir.is a
Já, ég hugsa það nú.
fréttir
25% AFSLÁTTUR
SUMARTILBOÐ
®
- Lifið heil