24 stundir - 08.08.2008, Blaðsíða 26
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Eyfirðingar veita Hinsegin dögum í
Reykjavík harða samkeppni um
helgina. Búist er við að fjöldi
manns leggi leið sína á Fiskidaginn
mikla á Dalvík og á Handverk og
uppskeru á Hrafnagili. Sigurlína
Osuala, framkvæmdastjóri Hand-
verks og uppskeru, segir að þema
hátíðarinnar að þessu sinni sé mið-
aldir. „Gásahópurinn ætlar að setja
upp lítið miðaldaþorp og sýna
vinnuaðferðir og handverk sem var
einkennandi fyrir þann tíma,“ segir
Sigurlína.
Námskeið í næstu viku
Hátíðin hefst í dag og lýkur
formlega á sunnudag. Innlendir
handverksmenn sýna og selja vörur
sínar auk þess sem fölbreyttur hóp-
ur erlendra handverksmanna sækir
hátíðina heim. „Við erum með
verkstæði handverksmanna þar
sem ýmsar vinnuaðferðir eru sýnd-
ar og þá er kannski hægt að fá að
prófa. Svo erum við með námskeið
sem byrja á mánudeginum og
standa alla næstu viku. Við erum
með námskeið í silfursmíði, út-
saum, körfugerð og í miðaldakjóla-
saum,“ segir Sigurlína.
Hver með sína uppskrift
Fiskidagurinn mikli fer fram á
Dalvík á morgun en hátíðarhöldin
hafa þó staðið alla vikuna. Hefð er
fyrir því að bæjarbúar bjóði gestum
í fiskisúpu á föstudagskvöld og
verður engin breyting þar á í kvöld.
„Það er hver með sína uppskrift.
Við gefum grunnhráefnið til að
hjálpa til við kostnað en annars er
þetta algerlega í boði íbúanna.
Þetta er þeirra kvöld,“ segir Júlíus
Júlíusson, framkvæmdastjóri Fiski-
dagsins mikla.
Áður en blásið verður til fiski-
veislunnar ætla bæjarbúar að safn-
ast saman fyrir neðan kirkjuna og
mynda vináttukeðju. „Vináttu-
keðjuverkefnið tókst mjög vel í
fyrra og fólk er afar spennt fyrir
því. Þá stöldrum við aðeins við og
hugsum um náungann og náunga-
kærleikann. Það voru þúsundir
manna sem leiddust og knúsuðu
hver annan í lokin. Þetta var alveg
einstakt,“ segir Júlíus.
Dagskrá Handverks og uppskeru
má nálgast á vefsíðunni
www.handverkshatid.is og dagskrá
Fiskidagsins á www.fiskidagur-
.muna.is.
Handverkshátíð Handverk af
ýmsu tagi verður til sölu og sýnis á
Hrafnagili um helgina.
Fiskidagurinn mikli og handverkshátíð í Eyjafirði
Miðaldaþorp og
lostæti úr sjónum
Búist er við að þúsundir
leggi leið sína á Fiskidag-
inn mikla í Dalvík og á
Handverk og uppskeru á
Hrafnagili. Reist verður
miðaldaþorp á Hrafnagili
og á Dalvík bjóða íbúar
gestum til fiskisúpu-
veislu.
➤ Handverkshátíðin á Hrafna-gili er nú haldin í 16. skipti.
➤ Fiskidagurinn mikli er hald-inn í 8. skipti á laugardag.
➤ Gerð verður tilraun til aðbaka stærstu pitsu á Íslandi á
Fiskideginum.
➤ Íslenskar og finnskar leir-listakonur verða með sýningu
á Handverkshátíðinni.
HÁTÍÐIR Í EYJAFIRÐI
26 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2008 24stundir
Skipulagsauglýsingar - Borgarbyggð
Breyting á deiliskipulagi á Hvanneyri:
Í samræmi við 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997
hefur sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkt að auglýsa
eftirfarandi deiliskipulagsbreytingu:
Um er að ræða breytingu á hesthúsahverfi á Hvanneyri þar sem
lóðum er fjölgað úr 5 í 19
Tillögurnar verða til sýnis í Ráðhúsi Borgarbraut 14 Borganesi
frá 8. ágúst til 19. september, frestur til að skila inn
athugasemdum rennur út 19. september 2008
Skriflegum athugasemdum skal skila til skipulags- og
byggingarnefndar Borgarbyggðar. Þeir sem ekki gera
athugasemd við tillögurnar teljast þeim samþykkir.
Framkvæmdasvið Borgarbyggðar
Clapton í Grafarvogi
Gítarleikarinn góðkunni Eric
Clapton fer fimum höndum um
strengina sex í Egilshöll í kvöld.
Upphitun er í höndum Ellenar
Kristjánsdóttur. Þetta eru tónleikar
sem enginn unnandi góðrar tón-
listar ætti að láta framhjá sér fara.
Fjölskyldan í Viðey
Fjölskyldu- og barnahátíð fer
fram í Viðey sunnudaginn 10.
ágúst kl. 12:30-17. Felix Bergsson
skemmtir börnum á öllum aldri,
skátafélagið Landnemar stýrir
skemmtilegum víðavangsleikjum
og boðið verður upp á flugdreka-
gerð svo fátt eitt sé nefnt. Tilvalið
tækifæri fyrir fjölskylduna að gera
sér glaðan dag í Viðey.
Skapandi börn
Listasmiðja fyrir börn á aldrin-
um 10-14 ára fer fram í Verksmiðj-
unni – menningarmiðstöð á Hjalt-
eyri helgina 9.-10. ágúst.
Listasmiðjan stendur frá kl. 10 til
15. Þátttökugjald er ekkert. Nánari
upplýsingar eru á vefsíðunni
www.verksmidjan.blogspot.com.
Django-hátíð á Akureyri
Undanfarna daga hefur hin ár-
lega Django Jazz-hátíð farið fram í
höfuðstað Norðurlands. Tríó Ola
Kvenberg heldur tónleika á Græna
hattinum í kvöld kl. 21:30. Hátíð-
inni lýkur síðan með Grand finale í
Sjallanum annað kvöld þar sem
fjöldi innlendra sem erlendra tón-
listarmanna kemur fram.
Það besta í bænum
Það verður ekki leiðinlegt að
ganga niður á Laugaveginn á laug-
ardag þegar gleðiganga Hinsegin
daga fer fram. Gangan leggur af
stað frá Hlemmi kl. 14 og verður
óvenjuglæsileg og litrík að þessu
sinni í tilefni af tíu ára afmæli há-
tíðarinnar.
Að göngu lokinni verður slegið
upp hinsegin hátíð við Arnarhól
þar sem innlendir og erlendir
skemmtikraftar koma fram. Á mið-
nætti verða síðan hinsegin dans-
leikir á skemmtistöðunum Organ,
Nasa og Q-Bar. Gleðigangan er há-
punktur Hinsegin daga sem lýkur á
sunnudag.
Dagskrá hátíðarinnar í heild
sinni og frekari upplýsingar má
nálgast á www.gaypride.is. ej
Hýrnar yfir Reykjavík
Kærleiksganga, rómantísk sigling
og bílabíó er meðal þess sem er á
dagskrá árlegrar Ástarviku í Bol-
ungarvík. Ástarvikan hefst á
sunnudag með því að þorpsbúar
sleppa ótal gasblöðrum upp í
himingeiminn. Á blöðrurnar
verða ritaðar ástarkveðjur frá
Bolvíkingum til gervallrar heims-
byggðarinnar. Jafnframt sýna
Veraldarvinir magadans og
syngja og leika á gítar. Athöfnin
fer fram á flötinni við ána og
hefst kl. 14.
Á VaXon verður opnuð servíettu-
sýning og í ráðhúsinu sýning
myndlistarkonunnar Magdalenu
Margrétar Kjartansdóttur.
Ástarvikan heldur áfram á mánu-
dag og verður fjölbreytt dagskrá í
boði fram á laugardag.
ej
Ástin svífur yfir vötnum
Þeir sem dvelja í sumarbústöðum
í Grímsnesi eða nágrenni geta
skellt sér á Grímsævintýri á Borg
í Grímsnesi sunnudaginn 9.
ágúst. Haldinn verður útimark-
aður og tombóla. Sterkustu menn
landsins keppa um titilinn upp-
sveitavíkingurinn 2008. Ingó sem
er oft kenndur við Veðurguðina
leikur á kassagítar á sundlaug-
arbakkanum kl. 15 en almenn
dagskrá hefst kl. 13. ej
Sannkallað
Grímsævintýri
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Gásahópurinn ætlar að setja upp lítið mið-
aldaþorp og sýna vinnuaðferðir og handverk
sem var einkennandi fyrir þann tíma.
helgin