24 stundir - 08.08.2008, Qupperneq 30
Listin að draga fluguna hratt
inn með rykkjum, eða jöfnum
togum, er ein besta aðferðin við að
fá fisk til að taka. Við æsum fisk-
inn upp, egnum hann, stundum
alla leið upp í yfirborð, stundum
bara þetta eina fet frá botni sem
nægir í góðan slag.
Sigurður Héðinn leiðsögumað-
ur skrifar grein á flugur.is um
,,strippið“, að það hafi verið þýski
listmálarinn Bengt Koperling sem
kynnti þessa aðferð fyrir íslensk-
um veiðimönnum. Grein Sigurðar
er góð kennsla fyrir þá sem vilja
,,strippa upp lax“. Fyrst beittu
menn þessum skæða inndrætti í
vatni sem var of ,,dautt“ til að
flugan fengi líf. Þá urðu menn að
draga inn og gefa líf í fjaðrir og
hár. Síðan þá hefur aðferðin þróast
og má segja að hægt sé að strippa
allt vatn og allar flugur, stórar og
litlar, hvort sem þær eru uppi í yf-
irborðinu eða niðri við botn.
Gott íslenskt orð hefur ekki
fundist þrátt fyrir ótal tilraunir:
Rykkja, fleyta, draga – en strippið
vinnur oft enda þjált og tvíræðnin
góð.
Hvað gerir maður?
Við erum stödd í meðalstórri
laxveiðiá: Við höfum kastað á fisk.
Nú er um að gera að halda stang-
artoppnum eins neðarlega og
hægt er, þ.e. alveg við vatnsflötinn
og fylgja línunni eftir þar sem hún
ferðast þvert á straum. Maður á að
benda með stangaroddi á punkt-
inn þar sem maður telur fluguna
vera, eftir því sem straumurinn
ber hana með sér, og rykkja hratt
inn.
Gott er að kasta yfir straum í
45-65 gráðu horni, laga línuna
með því að vippa til, svo beint
samband sé við fluguna, og byrja
að draga fluguna inn með 10 til 15
cm löngum handtökum. Hér á að
vera beint samband milli handar
og flugu, engar lykkjur eða bugir á
línunni.
Fiskur sem kemur upp í svona
hraðan inndrátt tekur mjög kröft-
uglega. Þá er mikilvægt að bregða
við rólega, láta hann bara festa sig
sjálfan án þess að hamast á móti.
Víða er rykkt
Þessi aðferð er skæð við laxa,
urriða og bleikjur. Margsinnis hef-
ur maður lent í því að ekkert dug-
ar fyrr en rétti drátturinn kemur.
Og rétti drátturinn er stundum
hægur, stundum hraður. Stundum
með löngum, stundum stuttum
togum. Í straumvatni er kúnstin
að kasta þannig og laga línuna til
svo að hægt sé að rykkja beint yfir
ætlaðan legustað fisks. Í laxveiðiá
mæla flestir með eins hröðum
drætti og mögulegt er. Í ósum og
vötnum þarf oft að gefa flugunni
tíma til að sökkva og ná athygli
fisks á dauðu reki. Svo neglir hann
um leið og maður byrjar að rykkja
inn. Allar flugur henta. En í lax
mæla margir með langhala
(longtail ef menn þykjast ekki
skilja íslensku) og örflugum. Þeir
sem vilja alveg endilega fá ,,flug-
una sem hann tekur“ á hröðum
drætti ættu að biðja um Black
brahan eða Black and blue. Með
langhala.
Ég hygg að flestum reynist erf-
iðast að kasta, laga til línu og draga
inn á miklum hraða þar sem
straumur er mikill og flugan þarf
að fara nákvæmlega yfir ætlaðan
legustað. Það er að svo mörgu að
hyggja í senn. Það er því ekki vit-
laust að staðsetja sig vel ofan við
stein, spegil eða lygnu þar sem
fiskur liggur og kasta í þröngu
horni niður þannig að flugan
hangi í námunda við legustaðinn
þegar maður byrjar að rykkja en
feykist ekki burt með línunni eins
og gerist ef maður kastar mjög
þvert á streng. Auðveldast er að
byrja að æfa sig á fallegri lygnu og
einbeita sér að einu í senn, kasta
þvert og draga svo í djöfulmóð
inn. Og já, hann eltir stundum al-
veg upp í harða klof á manni. Þá er
nú gaman að vera til.
Veiddu betur í samstarfi við flugur.is
Listin að strippa
Stripp Eina strippið
sem ekki er bannað í
Reykjavík
Stefán Jón Hafstein
talar um veiði
VEIDDU BETUR
30 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2008 24stundir
Eftir Kjartan Þorbjörnsson
veidi@24stundir.is
Á vef Stangaveiðifélags Reykjavík-
ur er sagt frá góðri veiði í Fnjóská.
Búið sé að skrá yfir 250 laxa það
sem af er sumri og sé það miklu
betri veiði en náðst hefur á sama
tíma undanfarin ár. Blaðamaður
hringdi í Jóhann Þorbjörnsson
sem var við veiðar í ánni í vikunni.
„Þetta gekk mjög vel, við náðum
átta löxum á okkar stöng þessa tvo
daga,“ sagði Jóhann. „Mest var
þetta stórlax, fimm til átta kíló, en
nokkrir smálaxar fylgdu með.“
Hann sagði neðsta svæðið gefa
minnst þessa dagana. Vatnsstaða
væri það góð að laxinn straujaði
beint í gegnum það og upp á svæði
tvö, þrjú og fjögur. „Þetta átta
stanga holl náði 45 löxum sam-
anlagt. Það besta er að þetta er
nánast allt stór fiskur og hann er
alls staðar í ánni.“
Sjö laxar í beit
Jóhann sagðist ekkert hafa orðið
var við bleikjuna sem Fnjóská er
fræg fyrir. „Hún virðist hafa rokið
beint upp á silungasvæðið sem er
efst í ánni,“ sagði Jóhann sem þeg-
ar er farinn að skjálfa af spenningi
yfir næstu veiðiferð en hann er á
leiðinni á Nessvæðið í Laxá í Að-
aldal. Þar hafa tuttugu pundararn-
ir verið að sýna sig upp á síðkastið.
Veiðimaður datt í lukkupottinn í
vikunni og náði þar sjö löxum
sama morguninn í Presthyl. Sam-
kvæmt www.svfr.is var einn smá-
lax, annar um tíu pund og síðan
voru hinir fimm frá fimmtán upp í
tuttugu og eitt pund. Alvöru
morgunveiði það.
Hjöleifur Steinarsson kom af
silungasvæði Vatnsdalsár um síð-
astliðna helgi. „Þetta var flott ferð.
Hollið var með yfir hundrað
fiska,“ sagði Hjörleifur aðspurður
um aflabrögð. „Þetta var eiginlega
allt góð sjóbleikja. Það komu þrír
laxar og örfáir, smáir sjóbirtingar.“
Hann sagði að Brandanesið hefði
gefið langmest af aflanum. Þar hafi
alltaf verið veiðimenn. „Straum-
flugurnar gáfu minnst. Það var
helst að Black-Ghost gæfi. Við
fengum þetta langmest á alls konar
púpur; heimasætupúpuna, Guð-
mann og allskonar brúnar vínyl-
púpur,“ sagði Hjörleifur og sagði
að þeir hefðu séð slatta af laxi en
mest var hann rétt utan lögsögu
silungasvæðisins, þ.e. rétt fyrir of-
an brúna á þjóðveginum.
Vantar fleiri frystikistur
Miklar sögur berast af mokveiði
í Rangánum. Þegar hringt var í
Guðbrand Einarsson, yfirleiðsögu-
mann í Ytri-Rangá, svaraði hann
hálfmóður í símann, enda handa-
gangur í öskjunni. „Það komu 116
laxar fyrripartinn hjá okkur en ég
er ekki búinn að sjá hvað kom
seinnipartinn. Þetta eru um tvö
hundruð fiskar á dag,“ sagði Guð-
brandur, en veitt er á 18 stangir í
Ytri-Rangá. „Nú er bara stunduð
fluguveiði og það eru öll svæði
inni og allir í fiski.“ Hann sagði
horfa til vandræða með frystipláss
því veiðimenn í lengri hollum
væru fljótir að fylla allar frystikist-
ur. Svo mikið væri af laxi. Hann
sagði að jafnvel hefði komið fyrir
að menn sendu part af aflanum á
undan sér í bæinn.
„Það er mikið að ganga af nýj-
um fiski. Ætli nýgengnir fiskar séu
ekki um 70% af því sem fæst
núna,“ sagði Guðbrandur. Að-
spurður um starf leiðsögumanns-
ins í slíkri mokveiði sagði hann:
„Þetta er þægilegt að því leyti að
það er auðvelt að ná í fisk, en aftur
á móti mikil vinna að ganga frá
öllum þessum afla fyrir veiði-
mennina. Það þarf að rota, blóðga,
plasta, koma í frost og skrá síðan
allan aflann.“
Mokveiðin heldur áfram
Lax, lax, lax
og aftur lax
Það er kannski að bera í
bakkafullan lækinn að
segja góðar fréttir af lax-
veiðiám landsins. Flestir
sem talað er við, hvort
sem það eru veiðimenn
eða leigutakar, lýsa
ánægju sinni með afla-
brögð og laxagengd.
Menn eru jafnvel farnir
að tala um að beri í „laxa-
fullan“ lækinn.
Lax á land Leið-
sögumaður hjálpar til við
löndun í Elliðaánum,
Matthías Stefánsson, sem er að-
eins 6 ára, var við veiðar á svæði
tvö í Blöndu með föður sínum og
afa um síðustu mánaðamót þegar
risalax greip hjá honum silfur-
spúninn. Matthías var með ódýra
bensínstöðvarstöng og fékk hann
að finna fyrir því þegar þeir feðg-
arnir börðust við laxinn í hálftíma.
Þetta er fyrsti lax Matthíasar og
greinilegt að veiðigenin eru arfgeng
því foreldrar hans, Stefán og
Harpa, vinna bæði hjá Lax-á við
sölu veiðileyfa og eru mikið lax-
veiðifólk. Matthías á því örugglega
eftir að krækja í þá fleiri.
6 ára með 16 punda lax
Sumareintak Sportveiðiblaðsins
kom út á dögunum. Gunnar Ben-
der ritstýrir að venju og er þetta
27. árið sem blaðið kemur út.
Meðal efnis í 100 síðna blaðinu er
viðtal við Ingva Hrafn Jónsson,
laxakóng við Langá. Einnig eru
viðtöl við m.a. Sæbjörn Krist-
jánsson silungsveiðigúrú, Ásgeir
Halldórsson í Sportvörugerðinni,
Eggert Skúlason sjónvarpsmann
og Bjarna Hafþór Helgason,
kaupfélagsveiðimann frá Húsa-
vík. Fjölmargir eiga efni í blaðinu
og í því eru margar myndafrá-
sagnir.
Nýtt Sportveiðiblað
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Við fengum þetta langmest á alls konar púp-
ur; heimasætupúpuna, Guðmann og alls kon-
ar brúnar vínylpúpur.
veiði