24 stundir - 08.08.2008, Side 35
„Hann Baddi frá Flytjanda
hringdi í mig og ætlar að lána okk-
ur bíl,“ segir Diva de la Rosa,
söngkona Sometime, er auglýsti
eftir bíl til þess að flytja sig og
hljómsveit sína í Gay Pride-göng-
unni á laugardag. „Hann er alveg
besti maður í heimi núna. Við ætl-
um að vera með diskópartí á hjól-
um alla leiðina að Lækjargötu.
Núna þarf að klára að sauma alla
búninga og svo að skreyta bílinn í
dag og á morgun. Núna erum við
að fara að kaupa sprengjur og svo-
leiðis.“
Sometime var í krísu í fyrradag
eftir að leit að bíl hafði ekki borið
neinn árangur. Þau höfðu þegið
styrk frá Gay Pride-nefndinni til
þess að vera með atriði og mikill
tími hafði farið í skipulagningu.
Eftir mikinn ys og þys voru lík-
urnar á sendibíl ekki bjartar og
bjuggust liðsmenn sveitarinnar við
því að þurfa að hætta við áform
sín. En þau hafa nú verið tryggð og
gestir göngunnar geta því dillað sér
við poppaða raftóna sveitarinnar á
morgun. Sveitin ætlar að velja 4-5
lög og endurtaka þau í sífellu í
göngunni.
„Fólk stendur yfirleitt og horfir
á gönguna fara framhjá og þannig
nær það í mesta lagi tveimur lög-
um. Þannig að við veljum bara það
besta.“ Þeir sem vilja svo sjá sveit-
ina spila öll lögin sín geta mætt á
Q-bar að skemmtiatriðum loknum
við Arnarhól. Þar mun sveitin
koma fram ásamt ærslafullu ung-
mennunum í <3 Svanhvít.
Sometime er hugarfóstur Daní-
els Þorsteinssonar trommara og
Divu de la Rosa en þau eru jafn-
framt einu liðsmenn sveitarinnar
er hafa verið með frá upphafi.
Upphaflega var Curver Thorodd-
sen í sveitinni líka og Dj Dice er lék
áður með Quarashi. Plata sveitar-
innar er búin hjá framleiðanda, en
endurútgáfa er væntanleg.
Liðsmenn Sometime anda léttar eftir dauðaleit að bíl
Diskópartíi á hjólum reddað
24stundir/Eggert Jóhannesson
Sometime Verður með í Gay Pride-göngunni á morgun, í sérskreyttum diskóbíl sem
fannst eftir langa leit í gær.
24stundir FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 2008 35
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
Staðurinn - Ræktin
telpurS onuK r
Skráning hafin á öll eftirtalin námskeið:
Núna eru námskeiðin okkar að hefjast
og við iðum í skinninu!
Þú getur strax byrjað að æfa!
Um leið og þú skráir þig á námskeið og greiðir fyrir það geturðu strax byrjað að æfa – sækja tíma í opna kerfinu okkar og tækjasal þar til námskeiðið hefst.
Öllum námskeiðum fylgir frjáls aðgangur að tímum í opna kerfinu og tækjasal.
Á heimasíðunni okkar, www.jsb.is færðu svo nánari upplýsingar um það sem við höfum að bjóða.
DAN
SSTUDIO
JS
B
Dansstudio
Fyrir stelpur og stráka 16 ára og eldri
sem elska að dansa!
60+
Líkamsrækt fyrir konur 60 ára og eldri
STOTT Pilates
Æfingakerfi byggt á pilatesæfingum Josseph
Pilates .
ATH Þurftum að bæta við nýju námskeiði
vegna eftirspurnar
Rope Yoga
Heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi.
Lokuð 9 vikna námskeið
TT 3
Lokuð 9 vikna átaksnámskeið
3x í viku fyrir stelpur 16-20+ ára
TT – Átaksnámskeiðin sívinsælu.
Lokuð 9 vikna námskeið 3x í viku.
ATH höfum bætt við nýjum tímum
kl. 10:15
Einn frægasti bílahönnuður Ítala,
Andrea Pininfarina, lést í slysi í
gær, er bíll keyrði á vespuna sem
hann ók.
Pininfarina var 51 árs gamall og
var þekktur fyrir hönnun á ýms-
um sportbílum á borð við Ferrari,
Maserati, Volvo og Fiat.
Pininfarina-fyrirtækið var stofnað
af afa hans, Battista Pininfarina,
og hefur átt þátt í hönnun ýmissa
frægra bílategunda og heim-
ilistækja á borð við Gorenje. tsk
Hönnuðurinn
Pininfarina allur
Rannsóknarblaðamaðurinn
Martin Bashir, sem er þekktastur
fyrir viðtöl sín við Díönu prins-
essu og Michael Jackson, hefur
beðist afsökunar á ummælum
sínum um asískar konur, sem
hann segir „smekklaus“.
Bashir sagðist á árshátíð Asísk-
ameríska blaðamannafélagsins
„vera glaður að vera innan um
svo margar asískar gellur. Ég er
feginn því að ræðupúltið hylur
mig fyrir neðan mitti.“
Bashir, sem sjálfur er af pakist-
önskum uppruna, er fréttaskýr-
andi í fréttaþættinum 20/20 á
ABC í Bandaríkjunum. tsk
Bashir biðst
afsökunar
Bresku prinsarnir Harry og Willi-
am hafa ákveðið að mæta á frum-
sýningu nýjustu James Bond-
myndarinnar, Quantum of Sol-
ace, sem verður þann 29. október
næstkomandi í London.
Bræðurnir báðu um að fá að vera
viðstaddir, því þeir ætla sér að
safna fé handa góðgerðarsamtök-
unum Hjálp fyrir hetjur og kon-
unglegu bresku hersveitunum
sem aðstoða særða hermenn og
aðstandendur þeirra.
„Við erum afar upp með okkur,“
sagði Michael G. Wilson, einn
framleiðenda myndarinnar. tsk
Konungleg
Bond-sýning