Alþýðublaðið - 18.11.1972, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 18.11.1972, Qupperneq 5
Alþýðubiaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig- hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórn- ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666. Blaðaprent h.f. ÓVIRDING VID ALÞINGI Núverandi stjórnarflokkar velja sér einkenni- lega málaflokka til að setja íslandsmet i. Til dæmis að taka þinglið þeirra. Þrátt fyrir það háa kaup, sem þingmenn hafa veittsér, afráða þingmenn stjórnarsinna að setja fslandsmet i að standa sig illa i starfinu. Á Alþingi i fyrra má heita, að sumir stjórnar- þingmannanna hafi rétt svona með hangandi hendi nennt að taka þátt i þingstörfunum. Þeir voru si og æ að fá sér fri frá störfum og láta kalla á varamenn fyrir sig. Gekk þetta svo langt, að sjálfir þingforsetarnir, sem voru þó úr stjórnarherbúðunum, gátu ekki orða bundizt og báðu formenn þingflokka um hjálp við að halda þingmönnum við vinnu sina. Þessi sífelldu burthlaup stjórnarþing- mannanna urðu til þess, að allur kostnaður við þinghaldið fór langt fram úr áætlun. Aldrei i sögu Alþingis höfðu neitt likt því jafn margir varamenn verið til kvaddir og i fyrra. Það var íslandsmetið, sem stjórnarþingmennirnir settu. settu. Eins og vænta mátti voru það og eru þing- menn Alþýðubandalagsins, sem mesta kæru- leysið og stærsta óvirðinguna sýna Alþingi, enda er það grundvallaratriði i skoðunum kommún- ista að hafa skömm á öllum lýðræðis- og þing- ræðislegum reglum . Tökum til dæmis komma- foringjann Lúðvik Jósefsson. Nú hefur hann látið gefa sér leyfi frá þingstörfum vegna þess að hann hafi ekki tima til að sinna Alþingi. Hann hafi svo mikið að gera við önnur störf. Og svo situr hann i skrifstofu sinni i Reykjavik, nokkr- um húslengdum frá Alþingishúsinu, og gefur þinginu langt nef. Það hefur aðeins einu sinni áður komið fyrir i allri sögu Alþingis, að islenzkur ráðherra hafi fengið leyfi frá þingstörfum út frá þeirri ástæðu einni, að hann þættist hafa svo mikið að gera i ráðherrastarfi. Það eina fordæmi i þingsögunni er frá þvi i fyrra, og þá var um sama manninn að ræða, — Lúðvik Jósefsson. Þá fékk hann sér lika fri frá Alþingi vegna mikilla anna við önnur verk, en notaði það fri svo til að ferðast á kommafundi og skrifa um sjálfan sig i Þjóðvilj- ann. Lúðvik Jósefsson er fyrsti islenzki ráðherr- ann, sem leyfir sér að sýna Alþingi þá óvirðingu, að segjast ekki hafa tima til að mæta þar vegna þess, að hann sé upptekinn við annað. Aðrir ráð- herrar hafa aldrei farið fram á slikt fjarvistar- leyfi nema annað hvort vegna veikinda ellegar vegna þess að þeir þurftu að fara úr landi i em- bættiserindum. En Lúðvik lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Og þvi siður Magnús Kjartansson. Þegar þingmenn leyfðu sér að gagnrýna þessa dæmalausu framkomu Lúðviks þá blés Magnús Kjartansson sig upp i reiði og sagðist furða sig á þvi, að menn leyfðu sér að gagnrýna fjarvistir Lúðvíks á meðan hann væri fjarverandi. Fyrr má nú vera mikillætið. Má ekki gagnrýna ráð- herra fyrir að skrópa frá skyldustörfum fyrr en þeir eru hættir að skrópa? Menn, sem þannig hugsa, ættu að sjá sómann sinn i að segja hreinlega af sér þeirri þing- mennsku, sem þeir þykjast ekki geta betur sinnt en þetta. UM MÁLEFNI REYKJAVÍKURBORGAR URBÆTUR GERDAR I stjórnunarmAlum A fuiicli borgarstjórnar nýveriö var fjallað um endurbætur i stjórnunarmálum borgarimrar. Er það málaflokkur, sem Alþýðu- fiokksmenn i borgarstjórn liafa mjög látið sig skipta og fengið samþykktar þar tillögur, sem lagt liafa grundvöll að miklum breytingum til bóta i stjórnkerfinu. A fyrrnefndum fundi flutti Björgvin Guðmundsson, borgar- fulllnii, ræðu þar senr hann lýsti stefnu Alþýðuflokksins i stjórn- inálunum og greindi frá þvi, sem flokkurinn vildi láta betrumbæta frá þvi, sem nú er. Fer ræða Björgvins hér á eftir. ,,£g vil byrja á þvi að lýsa yfir stuðningi minum við þá tillögu, sem borgarfulltrúi Steinunn Finnbogadóttir hefur lagt hér fram. Ég tel það sé full þörf á þvi að taka stjórnkerfi borgarinnar nú til endurskoðunar, og raunar eigi það stöðugt að vera i endur- skoðun og athugun. Undrar mig það raunar að stjórnkerfisnefnd, sem hafði verið sett á fót skuli hafa verið lögð niður. Talsmaður meirihlutans sem talaði hér á undan mér, Birgir tsl. Gunnars- son, tók undir það, að nauðsynlegt væri að endurskoða stjórnkerfið og að það þyrfti stöðugt að gefa þvi gaum og er það út af fyrir sig gott að meirihlutinn skuli hafa tekið undir þetta höfuðsjónarmið tillögunnar. Ég er hins vegar ekki sammála honum um það að það eigi að fela bórgarráði að gera þetta. Ég held að okkur hætti of mikið að fela borgarráði að gera alla skapaða hluti. Sannleikurinn er sá, að borgarráð kemst ekki yfir að gera allt, sem gera þarf. Ég held að það væri mun skyn- samlegra að koma á fót nefnd, eins og borgarfulltrúi Steinunn Finnbogadóttir gerir hér tillögu um. Uún gæti gjarnan heitið Stjórnkerfisnefnd, eins og sú gamla, þannig að það væri þá verið að endurreisa þá nefnd, og að sjálfsögðu finnst mér það eðli- legt, eins og borgarfulltrúi Birgir lsl. Gunnarsson benti á að allir flokkar ættu íulltrúa i þeirri nefnd. Það er alveg rétt, sem borgarfulltrúi Birgir tsl. Gunn- arsson sagði, að það hafa verið gerðar nokkrar breytingar á stjórnkerfinu á undanförnum árum. Það vill nú svo til að Al- þýðuflokkurinn hefur átt frum- kvæðið að þvi, að koma ýmsum þeim breytingum i framkvæmd. Borgarfulltrúi Steinunn Finn- bogadóttir gat um það, að árið 1964 heföi verið samþykkt að kjósa sjö manna nefnd, til þess að athuga stjórnkerfi borgar.innar. Þessi tillaga var samþykkt i framhaldi af tillögu, sem borgar- lulltrúi Alþýðuflokksins, Óskar Hallgrimsson, hafði flutt, en hann hafði lagt til, að kosin yrði fimm manna nelnd, til þess að athuga sérstaklega hvort ekki væri tima- bært að gera ýmsar breytingar á stjórn borgarmálefna Reykja- vikur. Með leyfi forseta vildi ég leyfa mér að lesa hér hluta úr þeirri tillögu, en hann hljóðar svo: „Borgarstjórn Reykjavikur samþykkir að fela fimm manna nefnd að athuga sérstaklega hvort ekki sé hagkvæmt og tima- bært að gera þær breytingar á stjórn borgarmálefna Reykja- vikurborgar, að i stað einnar framkvæmdastjórnar (borgar- ráðs) verði borgarstjórninni skipt i nokkrar meginnefndir, sem hver um sig fari með framkvæmd til- tekinna málaflokka, svo sem t.d. fjármála, félagsmála, skipulags- mála og svo lramvegis.'’ Fjölgun bogarfulltrúa Borgarfulltrúi Óskar Hall- grimsson lagði þá einnig til að tekið yrði til athugunar hvort ekki bæri að fjölga borgarstjórum, eins og Steinunn Finnbogadóttir gat um hér áðan, að kæmi til mála, og hann lagði þá einnig til að fjölgað yrði borgarfulltrúum upp i 21, eins og lög heimila. Nú á þessum sama fundi þá bar Óskar Hallgrimsson. borgarfulltrúi Al- þýðuflokksins, Iram tillögu um það, að kosnar yrðu stjórnar- nefndir fyrir ýmis borgarfyrir- tæki, svo sem Rafmagnsveituna, hitaveitu. vatnsveitu. Vélamið- Björgvin Guðmundsson, borgarfulltrúi. stöð Reyk javikurborgar og Strætisvagna Reykjavikur. Og það var einmilt sú tillaga sem leiddi til þess, að það var komið á fót Stjórnarnefnd Veitustofnana, sem nú starfar, þannig að þessi tillöguflutningur Óskars leiddi til þess að það va- komið á stjórnar- nelnd yfir þess fyrirlæki svo og fyrir SVR. Tel ég að það hafi verið til mikilla bóta. Nú, Birgir Isl. Gunnarsson, borgarfulltrúi, hann minntist hér á tvö ný ráð, scm hala verið mynduð á siðari árum, Félagsmálaráð og Heil- hrigðismálaráð, sem mikla breytingu á stjórnkerfinu. Ég tek undir það með honum, að myndun þessara ráða er til mikilla bóta, og það var einmitt borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, Fáll Sigurðsson, sem átti frumkvæðið að þvi að Ileilbrigðismálaráöi var komið á' fót. Hann flutti tillögu i borgar- stjórn um það að komið yrði á fót samræmdri stjórn yfir heil- brigðismál borgarinnar og það var einmitt sá tillöguflutningur sem leiddi lil þess að Heilbrigðis- málaráð var stofnað. Þannig að það kemur i ljós að stundum ber nú tillöguflutningur okkar minni- hlutaflokkanna árangur, endaþót þaö gerist ávallt i þvi formi að það skjóti upp nýjum tillögum frá meirihlutanum, þar sem tekin eru upp þau mál, sem við minni- hlutamenn berum fram. áður. Ég er þeirrar skoðunar. eins og fyrir- rennari minn hér i borgarstjórn, Öskar Haligrimsson var, að það a'tti að koma á meiri verkaskipt- ingu i borgarstjórninni, skipta henni meira upp i starfsnefndir. Það er svo i dag, að ýmsir bprgarfulltrúar eru ekki i neinum nefndum bogarinnar, og fylgjast þvi ekki með veigamiki- um þáttum borgarmálanna. Að visu var það mikil bót á stjórn- kerfinu, tel ég, þegar tryggt var að allir flokkar borgarstjórnar ættu aðild að borgarráði. Þar eð borgarráð er framkvæmdastjórn borgarinnar, og þar i gegn iara nær allir hlutir. En það er nú samt sem áður svo, að ýmsir mikilvægir hlutir berast borgar- ráði i formi fundargerða lrá ýms- um nelndum og ráðum, sem starfa á vegum borgarinnar, þannig að þegar þessi mál berast i formi fundargerða til borgar- ráðs, þá vita nú borgarráðsmenn, sem ekki eiga fulltrúa i þessum umræddu nefndum eða ráðum harla litið um það hvað á lerðinni er. Jöfnun á aðstöðu í þessu sambandi þá vil ég t.d. minnasl á Innkaupastofnun Reykjavikurborgar. Þetta er mikilva-g stolnun, sem hefur á hendi útboð á verklegum fram- kvæmdum og leitar tilboða i ýmsa dýra hluli, sem borgin kaupir. Þarna er verið að velta milljónum og tugum milljóna. Tveir af flokkum borgarstjórnar eiga þarna ekki neinn fulltrúa til þess að fylgjast með málum, þ.e.a.s. Samtök frjálslyndra og Alþýðullokkurinn. Við verðum að láta okkur nægja að frétta um þetta á lokastigi afgreiðslunnar, þegar málin eru afgreidd i borgarráði. Kf hefi óskað eítir þvi i borgarráði, að þeim flokkum, eða [ieim borgarfulltrúum, sem ekki eiga fulltrúa i Innkaupa- stolnuninni verði sendar fundar- gerðir Innkaupastofnunar Reykjavikurborgar áður en þær eru lagðar fyrir borgarráð, þann- ig að okkur gel'ist tækifæri til þess að lita aðeins á málin áður en þau koma þar fyrir, en það hefur nú ckki verið orðið við þessari ósk minni enn þá, en ég vona að þess verði ekki langl að biða. En það er svo um fleiri veigamiklar nefndir sem starfa á vegum borgarinnar, að ýmsir flokkar og ýmsir borgarfulltrúar eiga þar ekki aðgang að, og geta þvi ekki fylgst nægilega vel með málum. Ég get nefnt þar t.d. að Samtök frjálslyndra og vinstri manna eiga ekki fulltrúa i einni einustu nefnd, sem nú starfar á vegum borgarinnar og hvorki Samtök frjálslyndra og vinstri manna né Alþýðuflokkurinn eiga fulltrúa i einni einustu fimm manna nefnd borgarinnar og eru þó margar mikilvægar nefndir borgarkerfis- ins skipaðar fimm mönnum. Þelta skapar aö sjálfsögðu mjög mikinn aðstöðumismun, en úr Framhald á 2. siðu. FLOKKSSTARFIÐ AFMÆUSFUNDUR Kvenfélag Alþýðuflokksins i Hafnarfirði heldur fund miðviku- daginn 22. nóvember klukkan 20.20 I Alþýðuhúsinu. Dagskrá fundarins verður þessi: 1. Minnst 25 ára afmælis félagsins. 2. Jón Armann Iléðinsson ræðir um flokksþingið og ályktanir þess. 2. Breytingar á skipan fulltrúaráðs. 4. Sýndar myndir frá landsfundinum. 5. Bingó. Félagskonur eru hvattar til að mæta vel og stundvislega. Stjórnin. Laugardagur 18. nóvember 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.