Alþýðublaðið - 18.11.1972, Blaðsíða 8
Simi :!2075
Simi 410X5
LAUGARASBfÚ
KÓPAVOGSBlO
MAÐUIl
„SAMTAKANNA”.
Áhrií'amikil og afar spennandi
bandarisk sakamálamynd i litum
um vandamál á svibi kynþátta-
misréttis i Bandarikjunum.
Myndin er byggö á sögu eftir
F'rederiek Laurence Green. Leik-
stjóri: Robert Alan Aurthur.
Aðalhlutverk: Sidney Poitier,
Joanna Shimkus og A1 Freeman.
islen/kur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
STJÖRNUBIÓ s»»»« inoKi
Glaumgosinn og hippa-
stúlkan
(Thcrc’s a (»irl in my Soup)
PtTER SELLERS GOLUIE HAWN
islen/kur tcxti
Sprenghlægileg og bráðfyndin ný
amerisk kvikmynd i litum. Leik-
stjóri Roy Boulting. Aðalhlut-
verk: Peter Sellers og Goldie
Hawn .
Sýnd kl. 5,7 og 9
Bömiufi innan 12 ára
LUKiUMORDINGINN
(„A Prol'essional Gun”)
Mjög spennandi itölsk-amerisk
kvikmynd um ofbeldi, peninga-
græðgi, og ástriður.
tslenzkur texti
Leikstjóri: SERGIO CORBUCCI
Tónlist: ENNIO MORRICONE
(Dollaramyndirnar)
Aðalhlutverk: Franco Nero, Tony
Musante, Jack Palance.
Sýnd kl. 5, 7, og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára
#ÞJÓÐLEIKHÍISIÐ
Lýsistrata
5. sýning i kvöld kl. 20. Uppselt.
Glókollur
sýning sunnudag kl. 15. Næst sið-
asta sýning.
Sjálfstætt fólk
sýning sunnudag kl. 20.
Miðasala 13.15 til 20. Simi 1-1200.
FLUGIIETJAN
(The Blue Max.)
Raunsönn og spennandi kvik-
mynd um loftorustur fyrri heims-
styrjaldar.
íslcn/.kur texti.
Hlutverkaskrá:
George Peppard
Janies Mason
Ursula Andress
Endursynd kl. 5 og 9.
Biinnuð börnum.
HAFNARBld
Ahrifamikil og afbragðsvel gerð
og leikin ný norsk-ensk kvikmynd
i litum, sem hvarvetna hefur vak-
ið gifurlega athygli. — Myndin er
byggð á hinni frægu bók nóbels-
verðlaunaskáldsins ALEXAND-
ER SOLSJENITSYN, og fjallar
um dag i lifi fanga, i fangabúðum
i Siberiu, — harðrétti og ómann-
úðlega meðferð. — Bókin hefur
komið i islenzkri þýðingu.
TOM COURTENAY
KSPENSKJÖNBKRG
ALF MALLANI)
JAMES MAXWELL
Leikstjóri:
C’ASPER WREDE
tslenzkur texti.
Sýnd kl. 5 - 7 - 9 - og 11.
HASKOLABIO sí„,í 22,40
(iuöfaíiirinn
(The Godfather)
Alveg ný bandarisk litmynd sem
slegið hefur öll met i aðsókn frá
upphafi kvikmynda.
Aðalhlutverk:
Marlo Brando
Al Pacino
Jaines Caan
Leikstjóri:
Francis E'ord Ceppola
Bönnuð innan 16 ára
tslenzkur texti
Sýnd kl. 5 og 8,30
Alliugiö sérstaklega:
1 Myndin verður aðeins sýnd i
Reykjavik.
2. Ekkert hlé.
3. Kvöldsýningar hefjast kl. 8.30.
4. Verð kr. 125.00
Dóminó
i kvöld kl. 20.30. — Uppselt.
Leikhúsálfarmr
sunnudag kl. 15,00
Kristnihaldiö
sunnudag kl. 20,30 - 155. sýning.
Nýtt aósóknarmet í löno.
Atómstöðin.
þriðjudag kl. 20,30.
Dómíno
fimmtudag kl. 20.30. — Siðustu
sýningar.
Aðgöngumiðasalan í Iðnó er opin
lrá kl. 14. Simi 16620.
Iþróttir 2
Að ofan sjást stofnendur Blaksambandsins, en að neðan stofnendur Borðtennissambandsins. Með
eru stjórnarmenn iþróttahreyfingarinnar og starfsmenn.
SÉRSAMBONDIN ORNN 12
- OG FLEIRIIVÆNDOM
Eins og skýrt var frá stutt-
lega i blaðinu á þriðjudaginn,
voru tvö ný sérsambönd stofnuð
innán ÍSÍ um siðustu helgi. Bæði
stofnþingin voru haldin i húsa-
kynnum íSi í Laugardal. Sérsam-
höndin innan ÍSÍ eru nú orðin 12
talsins. og fleiri eru væntanleg á
næslunni.
Gisli Halldórsson forseti tSt
stýrði báðum þingunum og af til-
efni stofnunar þessara nýju sér-
sambanda flutti hann ávarp, þar
sem hann m.a. greindi frá þeirri
miklu aukningu semorðið hefði i
iðkun iþrótta hérlendis undanfar-
in ár, eða á einum áratug úr 16
þúsund manns i 40 þúsund manns.
Sagði forseti tSt, að margt hefði
orðið til að gera þennan mikla
vöxt mögulegan, svo sem bætt að-
staða á völlum og i iþróttahúsum,
aukinn skilningur opinberra aðila
á gildi iþrótta, stytting vinnutim-
ans og loks mikil fjölgun leiðbein-
enda og leiðtoga.
Það væri ásetningur tSt að
reyna að tryggjaþað að þessi þró-
un héldi áfram, svo að allir lands-
menn, er þess óskuðu gætu átt
kost á að stunda iþróttaiðkanir
sér til heilsubótar og ánægju.
Varðandi vöxt og viðgang nýrra
iþróttagreina væri starfsemi sér-
sambandanna nauðsynleg. Sú
væri reynsla liðinna ára og á sið-
asta íþróttaþingi hefði stjórn ISl
beitt sér fyrir lagabreytingum,
sem auðvelduðu stofnun sérsam-
banda. Siðar I vetur mundu
stofnuð sérsambönd fyrir Lyft-
ingar og Judó.
Mikil gróska hefur verið undan-
farið i blaki og borðtennis, iðk-
endum fjölgað mikið, og kvaðst
forseti ISt vonast til þess, að með
stofnun þessara tveggja nýju sér-
sambanda hefðu verið stigin
heillaspor. tSt mundi styðja bæði
samböndin eftir föngum.
Blaksamband islands (BLÍ)
Þessir aðilar stóðu að stofnun
sambandsins:
tþróttabandalag Reykjavikur,
tþróttabandalag Akureyrar,
íþróttabandalag Vestmannaeyja,
Iþróttabandalag Hafnarfjarðar,
tþróttabandalag Suðurnesja,
Hérðassambandið Skarphéðinn,
Héraðssamband Suður-Þingey-
inga,
Ungmennasamband Kjalarnes-
þings,
Ungmennasamband Borgar-
fjarðar,
Ungmennasamband Skaga-
fjarðar,
Ungmennasamband Austur-Hún-
vetninga.
Einnig sátu stofnþingið sem
gestir frulltrúar frá Blakdeild
iþróttafélags stúdenta.
Framhald á bls. 4
HAFSTEINN INN AFTUR?
Um helgina vcrður ársþing KSt haldið i Reykjavik. Fyrirfram
var búist við spennandi kjöri i stjórn, en nú er Ijóst að Albert
Guðmundsson mun fá algera traustsyfirlýsingu á þinginu.
Hins vegar verður nokkur spenna i sambandi við kjör manna i
stjórn, en þrir mcnn eiga að ganga úr stjórn. Einn þeirra, Hörður
Felixsson gefur ekki kost á sér að nýju, cn þeir Helgi Danielsson
og Friöjón Friðjónsson gefa aftur á móti kost á sér.
Nú er fastlega búist við þvi að Hafsteinn Guðmundsson komi inn
lil kjörs að nýju, er liklegt að hann nái kosningu —SS.
Laugardagur 18. nóvember 1972