Eintak - 30.03.1994, Qupperneq 2
Ætlarðu
að keyra
leigubíl í
ellinni,
Björn?
©Ámi Samfjölgar umboðunum © Bíódagar að klárast QSambíóin
og Stjömubíó setja DV í straffvegna gagnrýni
| síðasta Eintaki
|sögðum við frá
því að Sambíóin
hefðu aðeins sýnt
eina af þeim sjö
; myndum sern hlutu
flest Óskarsverðlauna í ár. Árni
Samúelsson heldur engu að síður
áfram að tryggja stöðu sína á ís-
lenska kvikmyndamarkaðnum því
nýlega gerði hann samning um
dreifingu á myndum Morgan Creek
og Miramax kvikmyndafyrirtækj-
anna. Fyrir hefur Árni umboð fyrir
amerísku risana Disney, Warner
Brothers og 20th Century Fox. Mir-
amax er sérstakur fengur fyrir Árna
því fyrirtækið er stærsti dreifingar-
aðilinn á listrænum kvikmyndum í
heiminum og því má þúast við að
fjölþreytni kvikmynda í Sambíóun-
um eigi eftir að aukast verulega á
næstunni...
w
IHamborg er verið að leggja síð-
ustu hönd á vinnslu kvikmyndar
Friöriks Þórs Friörikssonar,
Bíódaga. í myndinni segir frá ung-
um dreng á fyrri hluta sjöunda ára-
tugarins í Reykjavík sem hrærist (
heimi kvikmynda og nýfengins
Kanasjónvarps. Hann er sendur í
sveit og fantasíur kvikmyndanna
verða þar að raunveruleika í ís-
lenskri sagnahefð. Með hlutverk
piltsins fer Orri Helgason en hann
er sonur leikaranna Helga Björns-
SONAR og VlLBORGAR HALLDÓRS-
dóttur. I öðrum hlutverkum er
landslið íslenskra leikara með Rú-
rik Haraldsson og Guörúnu Ás-
mundsdóttur, en fjöldi annarra
leikara kemur við sögu. Að sögn
leikstjórans verður myndin frum-
sýnd einhvern tímann í sumar...
EINTAK sagði frá því fyrir ein-
um og hálfum mánuði síðan
að GIsla Einarssyni, kvik-
myndagagnrýnanda DV, væri mein-
aður aðgangur að Samþíóunum og
Stjörnuþíói. Svo illa var Gísli þokk-
aður að hann fékk ekki einu sinni
að borga sig inn á myndir sem voru
sýndar í þessum bíóhúsum. Sagði
Karl Schöith, eigandi Stjörnubíós,
þegar hann var spurður um þetta
mál að Gísli hefði hagað sér eins
og skepna í skrifum sínum um þíó-
ið. Gísli vildi ekki una þessu og leit-
aði réttar síns hjá lögfræðingi sem
taldi bíóin í órétti. Það nýjasta sem
er að frétta af þessu máli er að
Sambíóin og Stjörnubíó hyggjast
hvergi slaka á í baráttu sinni gegn
Gísla og næsta skref hjá bíóunum
er að hætta að auglýsa í DV. Tekju-
tap DV vegna þessa mun varlega
áætlað verða um þrjár milljónir
króna á ársgrundvelli...
LOF
LAST
PAÐ VÆRI TILQANQSLAVST...
...fær Gunnlaugur Clausen
ríkislögmaður fyrir að hafa
stefnt hluthöfunum í Sam-
einuðum verktökum, tapa
málinu í undirrétti, áfrýja
þvi til Hæstaréttar og vinna
það þar. Með því aflaði
hann ríkissjóði hærri fjár-
muna en stjórnmálamönn-
um er treystandi til að eyða
á...ja, um þremur dögum.
...fær Þorsteinn Pálsson
fyrirað láta Guðjóni A.
Kristinssyni varaþingmanni
það eftir að flytja kvóta-
málið inn í sali Alþingis.
Meðan Þorsteinn hefur
verið sjávarútvegsráðherra
hafa þessir salir verið ör-
uggasti staður á jarðríki
fyrir þá sem geta ekki og
vilja ekki mynda sér skoð-
un á sjávarútvegsmálum.
Það er honum að kenna að
þegar þessi mál koma loks
til umræðu er það gert
með vestfirskum ofstopa.
Stelling fyrír dymbilviku. Útréttir arm-
ar og fæturnir eilítið krosslagðir. Með
einbeitingu hefur fólki tekist að fá blóð
til að vætla út úr lófunum. En þótt það
takist ekki er aldrei að vita nema blóð
vætli um heilann og auki mönnum inn-
sýn í þjáninguna
sem varpaði öllum
syndum á bak við
oss. Ástundist að-
eins af einlægni
og heilum hug.
að draga
á eftir sér
lappirpar
að fá sér kríu
að sletta úr
klaufupum
Björn Bjarnason stendur fyrir
frumvarpi sem afnemur ald-
ursákvæði sem banna leigu-
bflstjórum á tilteknum vinnu-
svæðum í þéttbýli að keyra
eftir 70 ára aldur.
Allir upp
úreftir
kosningar
Ógeðfelldasta frétt vikunnar
birtist í DV á fimmtudaginn var.
Hún var svohljóðandi:
„Borgarráð hefur samþykkt til-
lögu íþrótta- og tómstundarráðs
um að sundstaðir borgarinnar
verði opnir lengur.
Sundstaðirnir verða opnir
mánudaga til föstudaga frá 7 til 22
og er það lenging um klukkutíma.
Sundlaugarnar verða opnar frá 8 til
20 á laugardögum og sunnudögum
og er það lenging um tvær klukku-
stundir.
Árbæjarlaug verður opin mánu-
daga til föstudaga frá 7 til 22.30 og
laugardaga og sunnudaga frá 8 til
20.30 allt árið.
Breytingarnar taka gildi 5. apríl.“
Þá veit maður það. Fyrst lagði
Markús til 800 milljónir til at-
vinnulausra til að bæta stöðu Sjálf-
stæðisflokksins í borginni. Síðan
leyfði hann strætóstjórum að vera í
Starfsmannafélagi Reykjavíkur-
borgar. Þá kom Árni Sigfússon og
opnaði Fæðingarheimilið. Og nú
ætla sjálfstæðismenn að tæla til sín
atkvæði í laugunum.
Ef einhver vill synda veit hann
nú að þá er best að synda á kosn-
ingaári. Á sama hátt og strætóstjór-
ar, sængurkonur og atvinnuleys-
ingjar mega éta það sem úti frýs eft-
ir kosningar, þannig munu
sundlaugagestir verða
reknir upp úr þann 29.
maí næstkomandi, daginn
eftir kosningar.
„Nei, ég hef ekki hugsað mér
að gera það. Ég hef engin rétt-
indi til þess. “
Af hverju er starfsaldur leigu-
bílstjóra þér svona hugleik-
inn?
„Þetta er spurning um að allir
séu jafnir fyrir lögunum. Núver-
andi lög ná til leigubílstjóra á
fimm svæðum á landinu og þau
mismuna leigubílstjórum annars
vegar og sendiferðabílstjórum,
vörubílstjórum og langferðabíl-
stjórum hins vegar. Lögin eru
líka í uppnámi af öðrum orsök-
um því aldursákvæði þeirra hafa
verið kærð tit mannréttindar-
nefndar Evrópu. “
Er ekki talið að það geti verið
hættulegt að menn séu ak-
andi bíl komnir á efri ár?
„Ef öryggið er haft að leiðarljósi
á að taka á þessum málum í
umferðarlögum. “
Menn sem komnir eru yfir
sjötugt geta verið þingmenn
og ráðherrar en ekki sendi-
herrar. Ætlarðu að reyna að
breyta þvi líka?
„Þar ráða önnur sjónarmið.
Frumvarpið snýst ekki um það,
hvenær menn eigi að
hætta vinnu heldur
miðar að þvíað upp- ||
ræta misrétti. “
Sveinsheit nudd
fræðings og
eiður
nudd-
fræðings
Nuddjriddarinn Rafn Geirdal lætur
1 serneyra
Jóhannes Gunnarsson, formaður neytendasamtakanna, kærði
Rafn Geirdal, skólastjóra Nuddskóla Rafns Geirdals, til Rannsóknarlög-
reglunnar þann 12. ágúst 1992 meðal annars vegna siðareglna sem nem-
endur skólans vildu ekki sætta sig við að þurfa að gangast undir. Rafn hef-
ur verið ötull við að senda fjölmiðlum afrit af bréfum sem hann hefur
skrifað Jóhannesi að undanförnu.
Skólastjórinn tekur starf sitt mjög alvarlega en fyrsta grein siðarregln-
anna segir að nemendum beri að virða skólastjóra til fulls. Önnur grein
krefst algjörrar þagnarskyldu um öll persónuleg samskipti, milli nemenda,
milli nemenda og skólastjóra, og milli nemenda og gesta. Þá segir að óleyfi-
legt sé að bera neikvæð ummæli út fyrir skólann. Nemendum er bent á að
sýna fullt umburðarlyndi hver við annan í þriðju grein og í þeirri fjórðu er
þeim hótað brottrekstri gerist þeir brotlegir við fyrrnefnd ákvæði. Þessar
reglur gilda út fyrra námsárið en þá taka við strangari siðareglur fyrir
sveinsárið og viðkomandi sveinn er látinn sverja heit; „sveinsheit nudd-
fræðings" að þvi er segir í fimmtu og sjöttu grein siðareglnanna.
Með bréfi Rafns Geirdals fylgir einnig plagg með yfirskriftinni:
Eiður nuddfræðings, sem er svarinn eftir að nuddfræðingar eru full-
menntaðir, og minnir hann einna helst á sáttmála riddara hringborðs Art-
húrs konungs í hátíðleik sínum.
Eiður
nuddfræðings
Þegar ég er nú tekinn í raðir nuddfræðinga:
Skuldbind ég mig að helga líf mitt þjónustu við mannkynið.
Ég mun sýna skólastjóra og kennurum mínum þá virðingu sem þeim ber.
Ég mun rækja starf mitt af samviskusemi og göfuglyndi.
Ég mun hafa heilbrigði skjólstæðinga minna í huga fremur öllu öðru.
Ég mun virða þau leyndarmál sem mér er trúað fyrir, jafnvel eftir að skjólstæðingur er látinn.
Ég mun viðhalda með öllum ráðum sem mér eru tiltæk, heiðri og göfugum
hefðum
nuddfræðistéttarinnar.
Starfsfélagar mínir munu vera mér bræður.
mun ekki láta umhugsun um trú, þjóðerni, kynþátt,
flokkssjónarmið eða þjóðfélagsstöðu hindra mig í skyldum mínum við skjólstæðinga mína.
Ég mun viðhalda æðstu virðingu fyrir mannlegu lífi allt frá upphafi þess, jafnvel þó mér sé ógn-
að, og ég mun ekki nota nuddþekkingu mína andstætt lögmálum manngæsku og mannúðar.
Þessi loforð gef ég af öilu hjarta og bestu vitund.
W/ái
...
ft \
OQEÐFELLDASTA
FRÉTT
VIKWNNAR
STELLINQ VIKWNNAR
2
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1994
© JÓN ÓSKAR