Eintak

Tölublað

Eintak - 30.03.1994, Blaðsíða 4

Eintak - 30.03.1994, Blaðsíða 4
Fimmtudagurinn 24. mars Ég er orðinn hálf ítalskur á veru minni hér ( Róm. Þegar ég hringdi heim eftir fréttum í eftirmiðdaginn fannst mér ég allt í einu hljóma eins og Kristján Jóhannsson. Það var lífsgleði og hreimur í röddinni. Og ég var nokkuð ánægður með hann. Hreimur bendir til velgengni í útlöndum og að maður sé ekki upp á skítapakkið heima kominn. Ég er að hugsa um að halda honum. köngkonan |ANNA "WIjöll Ol- AFSDÓTTIR virðist vera mest spenn- andi Islendingurinn þessa dagana ef marka má viðtöl í aprílheftum tíma- ritanna Mannlífs og Heimsmyndar. I Mannlífi eru átta síður lagðar undir myndir af Önnu og viðtal þar sem hún meðal annars ræðir hvernig það er að vera Ijóska, segir frá vini © Gestir og gjörningar hjá Hallbirni kántrýkóngi © Anna Mjöll talar um vin sinn Michael í tveimur tímaritum sínum Michael Jackson, lýsir lífinu í Los Angeles og viðbrögðum sínum við jarðskjálftunum þar í janúar. I Heimsmynd er Anna á fjór- um síðum og þar ræðir hún meðal annars hvernig það er að vera Ijóska, segir frá vini sínum Michael Jackson, lýsir lífinu í Los Angeles og viðbrögðum sínum við jarð- skjálftunum þar í janúar... ættirnir Gestir og gjörningar hafa hingað til eingöngu ver- ið sendir út frá veitingahús- um af Stór-Reykjavíkursvæðinu. Fljótlega verður þó breyting þar á, en fyrirhugað er að senda út einn þátt frá einum margrómuðum veit- ingastað á landsbyggðinni einhvern tímann á næstu vikum. Upptöku- stjórinn BjÖRN EMILSSON hyggst nefnilega halda með lið sitt norður á Skagaströnd og taka hús á Hallbirni Hjartarsyni, oft- ast kenndum við kántrý, og senda beint út frá veitingastað hans, Kántrýbæ. Hallbjörn mun þegar vera farinn að leggja drög að dag- skránni en auk þess sem hann mun að sjálfsögðu sjálfur troða upp, ætl- ar hann að fá til liðs við sig kántrý- unnendur af herstöðinni við Kefla- vikurflugvöll. Þar verða fremstir í flokki kántrýplötusnúðurinn þel- dökki ALEX „Buck“ BUCHANAN og dansflokkur sem mun sýna kú- rekadansa. Hallbjörn mun hafa uppgötvað þetta fólk í grein sem birtist í EINTAKI fyrir tveimur vik- um þar sem sagt var frá ferð Bubbleflies inn fyrir girðinguna sem umlykur herstöðina. Þegar Hall- björn hafði samband við Alex og félaga reyndist það auðsótt mál að fá þá til að aðstoða hann við út- breiðslu kántrýboðskaparins... Föstudagurinn 25. mars Ég horfði á Berlesconi flytja lokaræðu sína í kosningabaráttunni. Á meðan aðrir frambjóðendur kúldruðust á torgum sat hann snyrtilegur og yfirvegaður í eigin stúd- íói og bauð fólki að hlýða á sig í sinni eigin sjónvarpsstöð. Þetta kalla ég stíl. Kannski verður fjölmiðlafyrirtækið hans Frikka ein- hvern tímann svo stórt að við getum boðið Davíð að flytja sínar kosningaræður úr okkar eigin stúdíói. Þá verður Efst á baugi ef til vill orðið að vikulegum þætti þar sem ég kryf mál líðandi stundar og fæ jafnvel til mín vini mína í stúdíóið. Þegar ég horfði á Berlesconi var mér hugsað til þess hversu stutt við Davíð erum komnir þrátt fyrir hversu langt við höfum komist. Laugardagurinn 26. mars EINTAK hefur undir höndum greinargerð sem Sævar M. Ciesielski ændi dómsmálayfirvöldum á síðasta ári í þeirri viðleitni að fá mannorð sitt hreinsað vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálanna Vill fá uppreisn æru sinnar tsas"*" 1 ræstingakerfi fangelsisins bráðabirgðasamþykkt Hollustuvernd og það mjög köldu eða mjög 1 lofti inn í lokaða kle seðI^an, haldið Fríkki hringdi í mig og sagði að Alþingi væri hætt að kauþa Pressuna hans vegna greinar um Vigdísí forseta í síðasta blaði. Mín fyrstu viðbrögð voru að endurskoða hugmynd mína frá því á föstudeginum um sjónvarpsstöðina, Davíð, Frikka og mig. Mín önnur viðbrögð voru spum: Hvaða grein? Frikki send imér Pressuna en ég man ekki eftir neinni grein um Vigdísi. Eg las viðtal við ákaflega efnilegan og sjálf- stæðan mann sem var að fóta sig í erfiðri samkeppni nektardanssveina. Eg sagði Frikka að þetta væri bara öfund í þingmönn- unum. Ég hef pissað í þinghúsinu og veit vel að sumir þingmannanna gætu aldrei látið taka af sér myndir eins og af unga manninum. Priöjudagurinn 30. mars Þeir hringdu í mig frá Ríkisútvarpinu og ég gaf þeim túlkun mína á úrslitum kosning- anna með sérstakri tilvísun til ástandsins heima. Á meðan ég talaði undraðist ég sjálf- ur hversu djúpa innsýn ég hafði fengið í itölsk þjóðfélagsmál. Eg velti því mér á eftir hvort það gæti stafað af því að þegar maður þekkir eitt þjóðfélag ofan í hörgul að þá geti maður greint sundur önnur þjóðfélög með leifturhraða. Um stund skaut því upp í kollin- um að ef til vill væri það ekkiástæðan held- ur væri ég einfaldlega klár. Ég eyddi kvöld- inu á rölti um þessa borg mikiimennanna og er nú að leggjast sæll og glaður til hvílu. Sævar M. Ciesielski, sem fékk þyngsta dóm sakborning- anna í Guðmundar- og Geir- finnsmálunum svokölluðu, hef- ur unnið sleitulaust að því að fá nafn sitt og æru hreinsað frá því hann losnaði úr fangelsi. Á síð- asta ári fluttist hann búferlum til Bandaríkjanna en áður en hann fór vestur sendi hann Þorsteiní Pálssyni dómsmálaráðherra, Boga Nilssyni rannsóknarlög- reglustjóra og fleirum greinar- gerð þar sem hann fer ffam á að dómsmálayfirvöld veiti honum upþreisn æru. Sævar var dæmdur til ævi- langrar fangavistar af Sakadómi Reykjavíkur í árslok 1977 en Hæstiréttur mildaði refsinguna í 17 ára fangelsi í febrúar 1980. Flestir sakborninganna hafa haldið því fram að játningar þeirra hafi verið knúðar ffam með harðræði og lýst yfir sakleysi sínu. Enginn þeirra hefúr þó gengið harðar ffam í því að fá málið tekið upp aftur en Sævar. EINTAK hefur undir höndum greinargerð hans sem dagsett er 27. september 1993. Ljóst er af lestri greinargerðar- innar og samtölum við Sævar að hann hefur lagt á sig mikla vinnu til að finna leið til að hreinsa nafh sitt fyrir dómstólum. Hann bendir á að ef ljóst þyki að rang- ur dómur hafi verið kveðinn upp og verulegir gallar þyki hafa ver- ið á meðferð málsins þá geti Hæstiréttur kveðið upp úrskurð þar að lútandi og ómerkt fyrri dóm. Síðan segir Sævar orðrétt: „Það eina sem vakir fyrir mér er að ég geti um frjálst höfúð strokið og fái uppreisn æru minnar sem ég á örugglega skilið þó aldrei verði bættur skaðinn.“ 1 inngangskafla rekur Sævar lauslega niðurstöðu Sakadóms þar sem greint er frá því að e n g a r óyggjandi sannanir hafi komið fram um sekt ákærðu en þeir verið dæmdir á eigin játningum. Ein helstu rökin fyrir því hjá Sakadómi og Hæstarétti að neita að taka mark á afturköllun sak- borninga á játningum sínum voru þau að Sævar og Tryggvi Rúnar Leifsson hafi verið í samhliða klefúm og því átt möguleika á að samræma ffam- burð sinn. Sævar segir í greinar- gerðinni að það sé rangt. „Sam- kvæmt fangelsisbókunum vor- um við Tryggvi aldrei hafðir í ldefa næst hvor öðrum. Við vor- um á þessum tíma í sitthvoru fangelsinu.“ Sævar Iýsir fyrir dómsmála- ráðherra og rannsóknarlögreglu- stjóra þeim aðstæðum sem hann bjó við í langri einangrunarvist á meðan á rannsókninni stóð. „Ég var hafður í 6 ferm. klefa glugga- lausum nótt og dag í tvö ár. Sá aðbúnaður í Síðumúlafangelsi sem ég þurfti að þola var hrylli- legur. Ég naut ekki þeirrar réttarverndar að fá að tala við lögmann og var alfarið tekið fyrir það af einhverjum sérstökum ástæðum. Loft- var á hjá og það blés köldu eða mjög heitu inn í lokaða klefana. vitnaði um að hefði verið vöku fýrir mér með háreysti og öðrum vitleysisgangi og beittur pynt- ingum. Viðurkennt var af fangelsisyfirvöldum að mér var neitað um lesefni og skriffæri, NAFNSPJALD VIKWNNAR Seðillinn hér til hlíðar er eitt frumlegasta nafnspjald sem EINTAK hefur komist yfir. Það er Páll Helgason frá Vestmannaeyjum sem hefur endumýtt gamlan tíu króna seðil á svona skemmtilegan hátt. Tíu kröna seðillinn var fyrsti seðillinn sém datt ut eftir að tvö núll voru tekin aftan af krónunni. Það er ekki víst að þeír sem eru yngri en tíu ára muni eftir honum, svo lengi hefur tíu króna myntin verið i umferð. Tiu krónu seðl- arnir hafa greinilega ekki allir lent i pappírstæturunum í Seðlabankanum eða hjá söfnurum því Páll er með bunka sem hann hefur útbúið eíns og þann hér til hliðar. Vinstra megín á seðlinum, fyrir neðan talnarunu, eru þessar venjulegu upplýsingar sem eru á nafnspjöldum og aftan á honum er lógó fyrirtækis Páls: lundi með víkingahjálm, skjöld og öxi. Páll er vel þekktur í Eyjum enda ferðamógúli staðarins. Er það mál manna að túristar í Eyjum komist ekki hjá því að láta eítthvað af hendi rakna til hans, svo umsvifamik- ill er Páll. Hann er til dæmis með rútu og bátinn P.H. Víking sem hægt er að fara með í skoðunartúra um eyjamar, meðal annars í Klettshelli. Páll klæðist jafnan kúrekafatnaði og hefur sá klæðaburður vakið mikla athygli erlendra túrista sem koma til eldgosaeyjunnar. Það var frí í kosningabaráttunni og ég slappaði af ásamt góðum hægri manni sem ég kynntist kvöldinu áður. Við ræddum um heima og geíma og flest annað en kosning- amar, Hann spurði mig um ísland og sjálfan mig. Ég lýsti nánu samstarfi okkar Davíðs og áður en ég vissi af var ég kominn á flug. Fór að segja honum frá að við hefðum þekkst í æsku, brallað ýmislegt og meira að segja fermst saman. Itölum þykir mikið til þess koma. Um tíma var ég farinn að velta því fyrir mér að segja honum frá hvernig ég bjargaði Davíð upp úr Ölfusá en hætti við. Þess í stað sagði ég honum frá Krumma og lét hann veiða Davíð upp úr ánni en lýsti því síðan hvernig ég blés í hann lífi, Maður er svo frjáls í útlöndum. Sunnudagurinn 28. mars Ég hringdi heim og talaði við Kjartan. Hann sagði að Ámi stæði sig bara vel og var bjartsýnni en áður. Ég benti honum á að hingað til hefðum við verið alltof linir gagn- vart andstæðingum okkar. Við ættum dóms- málaráðherrann og sá ráðherra er lykilþer- sóna í kosningaþaráttunni á Ítalíu. Ef Þor- steinn væri leiðitamari gætum við látið hann skipa sérstakan rannsóknardómara til að kanna einhvem af R-listanum. Til dæmis þennan Alfreð Þorsteinsson. Hann er forstjóri Sölunefndar varnarliðseigna og ég get hengt mig uþþ á að því starfi gegnir enginn án þess að spillast. Ingibjörgu mætti síðan örugglega negla á einhverju sukki úr stúdentapólitíkinni úr því maðurinn hennar getur ekki verið í neinum bisness. Mánudagurinn 29. mars auk rúmfatnaðar, mánuðum saman og einnig var tóbak skammtað. Ég hefði verið hafður í fótjámum svo vikum skipti. Mér var einnig neitað um útivist í rúmt ár.“ Sævar segir jafnffamt ffá því að sakborningarnir hafi gengist undir lygapróf og þar hafi ekkert komið ffam sem benti til sektar. Það hafi hins vegar ekki verið tal- ið þeim til tekna. Hann fúllyrðir að annariegar hvatir hafi ráðið þvi að rann- sóknarmennirnir hafi þvingað ffam niðurstöður úr rannsókn- inni sem þeir hafi svo lagt fyrir dómstóla. „Starfsmenn er unnu við rannsókn þessara fyrrnefndu mála nutu góðs af þeim og kom- ust í betri stöður en ella hefði orðið. Flestir af þessum aðilum telja sig hafa upplýst málið þó aldrei hafi fúndist tangur né tet- ur af þeim manni eða mönnum er hurfú... enda er það fátt sem særir menn meira en að komast að þeirri niðurstöðu að dóm- greind þeirra hafi ekki staðist.“ Þá hnykkir á með því að segja að rannsóknarmennirnir hafi hlotið félagslegan og efnahagslegan ávinning af því að ljúka málinu. Drýgsti hluti greinargerðar- innar inniheldur ýmsar tilgátur Sævars um hver afdrif Guð- mundar Einarssonar og Geir- finns Einarssonar hafi orðið, en ekki er hægt að rekja þær hér. © t nœstu viku birtist hins vegar ít- arlegt viðtal við Sœvar um baráttu hans til að fá dómana i Guðmund- ar- og Geirfinnsmálunum ógilda. UNDARLEQ VERÖLD HILMARS ARNAR Verus incessu paduit deus? Þetta voru tímar júróhippanna: ótrúlegs kynstofns sem flykktist til Evrópu með Ice- landair í ódýrum pakkaferðum sem beinlín- is gerðu ráð fyrir því að þeir kæmu við á landinu ísa og ætu, reyktu og drykkju mig og vini mína út á gaddinn. Júróhipparnir voru allir karlkyns og hétu Bill, Bud eða Bo. Þeir voru með sama fasið, heimsmennsku þess sem hefur gert allt, verið alls staðar og þekkt alla og þetta nægði þeim til þess að komast yfir sætu stelpurnar, fá lánaða sæfæbækur sem þeir aldrei skiluðu og síðan hurfu þeir úr lífi okkar eins snögglega og þeir höfðu komið. Júróhipparnir voru hins vegar alltaf slæmir lygarar og maður skemmti sér við að spyrja þá um látna andans menn og fékk um hæl partýsögur af Keruac & co þar sem þeir höfðu gert BillBudBo að trúnaðarvinum og ætluðu helst að byggja næstu skáldsöguna á þeim. Það var því sérkennilegt að komast í kynni við hið gangandi svarthol, þennan ameríska sagnaþul sem var aldrei hægt að hanka á því að hann hefði ekki lesið einhverja bók eða vissi ekki nákvæm æviatriði allra þeirra sem við minntumst á. Hann var einnig náma upplýsinga um hættur helstu matartegunda, málningar, rafmagnstækja, genitískrar kvikasilfúrseitrunar eftir sárasóttarlækning- ar nítjándu aldar og raunar alla þætti um- hverfisins því ég man ekki í svipinn eftir neinu sem honum tókst ekki að sanna að væri lífshættulegt. Viðkvæmir vinir mínir sem voru að éta sér til heilagleika og voru jurtaætur af hug- sjón fóru fölnandi því samkvæmt honum var mysósúpa það eina sem fékkst í Náttúr- unni sem var ekki bráðdrepandi. Annað vinafólk var orðið svo sannfært að það væri að deyja úr rafsegulmengun að það hug- leiddi að flytjast inn í gamlan torfbæ á ein- hverjum útkjálka þar sem einn þeirra hafði verið í sveit. Síðar hef ég notað margar þessar sannanir hans til að hleypa lífi í partý víðs vegar um heúninn og það merkilega er að flest er þetta orðið að afmennum sannindum í meðvituð- um kreðsum og oft hef ég flett í gegnum ný- aldarrit og bæklinga í þeirri veiku von um að sjá vin minn svartholið í tölu gúruanna. Hann hefði getað orðið mega. En bestar voru samt allar skandalasögum- ar. Ég hef fengið mikla virðingu út á það í út- löndum að geta sagt fólki subbulegar sögur af frægu fólki mörgum ámm áður en þær koma út í bókum eftir Kitty Kelly eða AI- bert Goldman. Það eru að verða tveir ára- tugir síðan ég kom Rock Hudson út úr skápnum við mikla vantrú áheyrenda og ég er enn að bíða eftir þvi að allt djúsí stöffið sem hann sagði mér um Paul Newman og Oral Roberts verði gert opinbert. Eftir tveggja mánaða dvöl hvarf hann út úr lífi okkar og kvaddi mig með þeim orðum að hann vonaðist til að ég yrði ekki sama f- ing næva fiflið að eilífú. Ári síðar fékk ég póstkort frá fsrael sem sagði að allt væri að fara til fjandans, að ég ætti að vara mig á eitr- uðum appelsínum og að maður sem ég var að lesa þá stundina væri hæfileikalaus barn- sníðingur sem ætti ekki að taka mark á. Þetta gat bara verið frá einum manni. Stundum þegar ég verð heimspekilega þenkjandi dett- ur mér í hug að þetta hafi ekki verið maður. Og síðan hvort hann hafi komið að ofan eða neðan. Stundum dettur mér í hug að hann hafi verið CIA eða eitthvað álíka. Þegar ég er á ferð í Evrópu heilsa ég alltaf þessum örfáu júróhippum sem eru eftir með nafúi. Þeir verða alltaf jafn hissa. Ég hef líka alltaf augun opin ef ég skyldi rekast á hið gangandi svarthol, því ef það er eitthvað sem læknar horfið sakleysi er það góður skammt- ur af slúðri. 4 MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.