Eintak - 30.03.1994, Blaðsíða 6
Þýsk-fslenska hf. lætur umboðin fyrir Marabou og Seiko til Hans Petersen hf.
Vóg IfHð í rekstrinum
segir Ómar Kristjánsson framkvæmdastjóri Þýsk-íslenska
Hildur Petersen og Ómar
Kristjánsson undirrituðu í gær
samning um kaup Hans Petersen
hf. á umboðum Þýsk-islenska hf. á
Marabou sælgæti og Seiko úrum og
klukkum. Hans Petersen hefur sí-
fellt verið að auka umsvif sín á und-
anförnum árum og haslað sér völl á
fleiri sviðum undir framkvæmda-
stjórn Hildar, en íýrirtækið er sem
kunnugt þekktast fyrir framköllun
og sölu á myndavélum.
Eitt sinn var Seiko eitt af þekkt-
ustu umboðunum sem Þýsk-ís-
lenska haíði og salan á úrum og
klukkum af þeirri tegund gríðarleg.
Nú er hún hins vegar lítil sem eng-
in.
Þegar heildsölur láta frá sér þekkt
umboð er raunin oft sú að erlendu
framleiðendurnir eru óánægðir
með frammistöðu heildsalanna og
knýja þá til að selja umboðið öðr-
um fyrir málamyndaupphæð.
Ómar staðfesti í samtali víð EIN-
Hildur Petersen
FRAMKVÆMDASTJÓRI HANS
Petersen
Hreppti umboðin en ekki er vit-
að hvort erlendu framleiðend-
urnir hafi átt frumkvæðið að því.
TAK að umboðin hafi verið seld fyr-
ir lága upphæð en sagði jafnframt
að ástæðan fyrir sölunni væri sú að
Þýsk-íslenska ætlaði að snúa sér
meira að byggingavörum. Innflutn-
ingur og heildsala á þeim er nú
burðarbitinn í starfsemi fyrirtækis-
ins en Metró-verslanirnar eru hin
hliðin á vaxandi veldi Ómars á
byggingavörumarkaðnum.
„Þessi umboð gengu ágætlega en
hafa vegið sáralítið í rekstri Þýsk-ís-
Ienska,“ sagði Ómar. „Þetta var
pínulítið brot af okkar viðskipt-
um.“
Þýsk-íslenska var dæmt til að
greiða háar sektir vegna undan-
skota á söluskatti fýrir nokkrum ár-
um auk skattaskuldarinnar sjálfrar
.og dráttarvaxta. Kunnugir hafa leitt
að því getum að salan á Marabou
og Seiko eigi sér skýringu í því máli.
Ómar neitaði því hins vegar að
skuld við skattinn kæmi við sögu.
„Hún spilar ekki inn í og er löngu
uppgerð og frágengin.“ ©
Ómar Kristjánsson framkvæmdastjóri Þýsk-íslenska
Neitar að háar sektir vegna söluskattsvika séu ástæða sölunnar á umboðunum.
Þaö er vitað
mál að þú gerir
reyfarakaup í
EINTAKI á
aðeins
195 krónur
eintakið...
En vissir þú að
fyrir aðeins
700 krónur
á mánuði getur
þú gerst
áskrifandi að
blaðinu?
Hringdu í síma
16888 og
pantaðu áskrift
strax!
EINTAK
w
Dían Valur Dentchef
íslenskur ríkisborgari fæddur í Búlgaríu í baráttu við kerfið og barnsmóður sína um umgengnisrétt við
son sinn sem hann hefur ekki séð síðan í október.
Sýslumaður staðfestir umsögn
barnaverndarnefndar í máli
íslenska búlgarans Díans Vals
Dentcher.
Samvistir
feðganna
næstu fpra
mánuði
aðeins 32
klukkustundir
Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur
kveðið upp úrskurð í máli Hönnu
Ragnarsdóttur og Díans Vals
Dentchef varðandi umgengnisrétt
föðurins við son þeirra hjóna, Dav-
íð Valdimar Dentchef.
I úrskurðinum er staðfest um-
sögn barnaverndarnefndar Reykja-
víkur sem nefndin skilaði til sýslu-
manns, en þar er lagt til að næstu
fjóra mánuði fái þeir feðgar að vera
í samveru annan hvern laugardag
frá kl. 13.00 til kl.16.00 í fyrstu fjög-
ur skiptin og tveimur stundum bet-
ur næstu fjögur skipti þar á eftir.
Sýslumaður úrskurðar að þessi
samskipti skulu eiga sér stað í hús-
næði barnaverndarnefndar undir
eftirliti starfsmanns nefndarinnar.
I eintaki þann 24. febrúar síð-
astliðinn var viðtal við Dían Val
Dentchef þar sem forsaga þessa úr-
skurðar er rakin. Þar kom fram að
hann hefur ekki fengið að sjá son
sinn frá 30. október 1993 en fýrir
þann fund höfðu þeir feðgar ekki
sést frá því í desember árið áður.
Mikil beiskja hljóp í samskipti Dí-
ans og Hönnu eftir að þau slitu
samvistum að hans frumkvæði 1991
og þrátt fýrir að hann hafi ítrekað
sóst eftir eðlilegum umgengnisrétti
við Davíð hefur móðirin hafnað er-
indinu og margsinnis kært hann til
lögreglu fyrir áreitni. I bréfi frá Sig-
mundi Böðvarssyni, lögmanni
Díans, til Sýslumannsins í Reykja-
vík frá 9. febrúar 1994 segir hann
meðal annars um álitsgerð barna-
verndarnefndar: „Undrun vekur að
nefndin skuli gera ráð fyrir að feðg-
arnir skuli hittast undir eftirliti, þar
eð haft er eftir móðurinni að faðir-
inn sé drengnum mjög hugleikinn
og hafi verið glaður og ánægður
þegar hann hefur fengið að hitta
hann.“
Sigmundur og Dían eru sammála
um að það geti haft skaðleg áhrif á
samband feðganna ef sonurinn
finnur að fylgst er með samveru
þeirra. Dían Valur Dentchef sagði í
samtali við EINTAK að fengnum úr-
skurði sýslumanns að hann hygðist
kæra hann til dómsmálaráðuneyt-
isins og í örvæntingu sinni hefur
hann einnig leitað til Mannrétt-
indadómstóls Evrópu en þangað
getur hann ekki sent málið fýrr en
það hefur verið útkljáð fyrir æðstu
dómsstólum hér á landi.Ó
6
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1994