Eintak

Tölublað

Eintak - 30.03.1994, Blaðsíða 9

Eintak - 30.03.1994, Blaðsíða 9
Markaðsverð hlutabréfa í Eimskipafélagi íslands hefur rýmað um 11,5 prósent á þremur árum sem að stórum hluta má rekja til einkennilegra hlutaljárkaupa í öðrum fýrirtækjum. Fjórtán þúsund hluthafartapa sparifé á meðan stjórnarsætum forráðamanna félagsins Ijölgar stöðugt. Styrmir Guölaugsson rakti hlutabréfakaup og ítök Eimskips í öðrum fýrirtækjum og velti fýrir sér ástæðunum að baki ákvarðana stjórnenda fýrirtækisins. Stjórn keypt hundr milliór Höröur Sigurgestsson, ® FORSTJÓRI ElMSKIPS Auk stjórnarsetu i ýmsum fyrirtækjum i gegnum starf sitt sem forstjóri hefur Hörður eignast ótrúlega stóran hlut i Eimskip frá þvi hann tók við störfum. Hann á nú einn um 52 milljóna króna virði i félaginu. Umræðan um fjölskyldurnar fjórtán og kolkrabbann gjósa alltaf upp annað veifið. Nýlegar upplýs- ingar um gríðarlegt tap Eimskipa- félags íslands á hlutabréfakaupunr í gegnum dótturfyrirtæki sitt, Burð- arás, á undanförnum árum, hafa orðið til þess að beina kastljósinu enn einu sinni að þeim valdaþráð- um í íslensku viðskiptalífi sem liggja inn í stjórnarherbergi fýrir- tækisins. Þá hefur gagnrýni stór- kaupmanna á há flutningsgjöld, sem þeir rökstyðja með skýrslu er- lends ráðgjafafyrirtækis, einnig veitt þeim skoðunum vind í seglin að Eimskip eigi að einbeita sér að skipaflutningum í stað þess að auka sífell ítök sín í óskyldum atvinn- rekstri. Engar augljósar skýringar hafa fundist eða fengist á ýmsum fjár- festingarákvörðunum sem teknar hafa verið en það er í það minnsta freistandi að túlka sumar þeirra á þann hátt að stjórnarmennirnir hafi einfaldlega verið að auka mátt sinn og völd í íslensku viðskiptalífi á kostnað almennra hluthafa. Agnes Bragadóttir, blaðamað- ur Morgunblaðsins, komst að þeirri niðurstöðu í grein sem hún skrifaði að raunávöxtun hluthafa í Eimskip hafi verið minni en engin á síðustu þremur árum þar sem markaðsverð hlutabréfa í Eimskip hefur rýrnað um 11,5 prósent á þeim tíma. Til hliðsjónar benti hún á þá staðreynd að ef ein- ungis hefðu verið keypt ríkisskuldabréf á um- ræddu tímabili, en ekki hlutabréf í öðrum fyrir- tækjum í gegnum Burð- arás, þá hefðu hluthafar í Eimskip verið 1,4 milljörðum ríkari um síðustu áramót en í árs- lok 1990. Stjórnendur Eimskips svöruðu full- um fetum og tilskrif frá félaginu, sem birtist á miðopnu Morgun- blaðsins, bar yfirskriftina „Hluthaf- ar Eimskips hafa engu hlutafé tap- að“. Það er erfitt að skilja þessa fyr- irsögn því varla hafa fjórtán þús- und Islendingar lagt sparifé sitt í Eimskip til að það rýrnaði. Auk þess hlýtur það að vera skylda stjórnenda almenningshlutafélaga að ávaxta sem best það fé sem þeim er falin umsjá með. Valdaþræðimir li'ggja víða Valdaþræðina í íslensku við- skiptalífi má rekja eftir stjórnum helstu fyrirtækja. Nánast er nóg að rekja spor stjórnarmanna Eimskips og annarra stjórnenda þess til að komast að kjarna valdsins í við- skiptalífinu. Öruggari leiðarvísir er að minnsta kosti vandfundinn. Hörður Sigurgestsson, for- stjóri Eimskips, er stjórnarformað- ur Flugleiða og situr auk þess í stjórnum Skeljungs og Hafnar- bakka. Indriði Pálsson, stjórnarfor- maður Eimskips, er jafnframt stjórnarformaður Skeljungs og Hafharbakka. Synir Halldórs H. Jónssonar, sem nú er látinn en var oft kallaður stjórnarformaður Islands, skipta með sér stjórnarsetu í nokkrum fyrirtækjum. Garðar Halldórsson er varafor- maður stjórnar Eimskips og á sæti í stjórn Sjóvár-Almennra og Úrvals- Útsýnar. Halldór Þór Halldórsson er í stjórn Flugleiða. Og þriðji bróðirinn, Jón Halldórsson, er fúlltrúi þeirra í stjórn Islandsbanka. Benedikt Sveínsson á sæti í stjórnum Eimskips, Hafnarbakka og Flugleiða og er stjórnarformað- ur Sjóvár-Almennra og Marels. Bróðir hans, Einar Sveinsson, sit- ur hins vegar í stjórn íslandsbanka. Aðrir stjórnarmenn í Eimskip eru Jón H. Bergs, Hjalti Geir Kristjánsson, Jón Ingvarsson, Gunnar Ragnars, Baldur Gu- laugsson og Kristinn Bjömsson forstjóri Skeljungs. Hörður, Indriði og Halldór hafa verið kallaðir guðfeður kolkrabb- ans en eftír lát Halldórs tóku synir hans við kyndlinum. Hægt er að rekja valdaþræði þeirra og fleiri sem tengjast Eimskip á einn eða annan hátt miklu víðar í íslensku viðskiptalífi. Almenna bókafélaginu bjargað á kostnað hluthafa Það er ekki skrýtið að menn velti fyrir sér þeirri spurningu hvort það sé hlutverk Eimskips sem almenn- ingshlutafélags að fjárfesta hinum og þessum fyrirtækjum sem standa í rekstri alls óskyldum skipaflutn- ingum. Forráðamenn fyrirtækisins hafa gjarnan bent á að stærri og öfl- ugri fyrirtæki í öðrum löndum hafi gert það til að dreifa áhættunni til hagsbóta fýrir hinn almenna hlut- hafa. En setja má spurningamerki við það hvort pláss sé í smáríki eins og Islandi fyrir fyrirtæki sem þenur sig út á mörgum sviðum og hefúr ítök í flestum geirum viðskiptalífs- ins. Gagnrýnisraddir benda á að með vafasömum fjárfestingum geti stjórnarmenn Eimskips hindrað eðliiega samkeppni og hafi gert það. Augljósasta dæmið kom upp fyr- ir þremur árum þegar nokkur fýrir- tæki keyptu hlutafé í Al- menna bókafélaginu fýrir samtals 100 millj- ónir króna. AB var þá í dauðateygjunum og ekkert nema gjaldþrot blasti við. Eimskip lagði ffam 20 milljónir á móti Sjóvá-Almennum, Skeljungi og fleiri fýrir- tækjum. Fæstir sáu til- ganginn með þessum björgunaraðgerðum. Leitað var pólitískra skýringa, bent á kunn- ingjatengsl og annað sem gæti skýrt þessa ákvörðun. Það eina sem hönd var á festandi var að Eimskip átti ítök í flestum fýrirtækjanna í björgunarhópnum. Leiðir stjórnar- manna lágu víða saman og sumir þeirra sátu og sitja í stjórnum nokkurra þeirra. Sögur gengu um að bjarga ætti Bimi Bjamasyni, stjórnarformanni AB, ffá persónu- legum ábyrgðum sem hann hafði gengist í og að bókhaldið þyldi ekki skoðun skiptaréttarins. Þótt forsvarsmenn björgunarfýr- irtækjanna vr'suðu öllu slíku tali á bug er eðlilegt að slíkar vangaveltur komi upp. Ekki var með nokkru móti hægt að sýna fram á að hags- munir hins almenna hluthafa í fyr- irtækjunum hafi verið höfð að leið- arljósi. Aðrar fjárfestingarákvarðanir stjórnarmanna Eimskips á undan- förnum árum hafa einnig orkað tvímælis. Fnykur af valdafíkn hefur fýlgt þeim að mati ýmissa gagnrýn- enda. Tap á fíestum fjárfesting- um í öðrum fýrirtækjum Eimskip á 9,6 prósenta hlut í Sjó- vá-Almennum og situr Garðar Halldórsson þar í stjórn fyrir félag- ið. Engin rök sýna ffam á að hags- munir stórs skipafélags felist í því að eiga ítök í vátryggingafélagi. Tryggingarnar eru boðnar út og stórt fýrirtæki getur fengið bestu kjör án þess að eiga hlut í slíku fé- lagi. Árið 1990 keypti Eimskip stór- an hlut í Sjóvá-Álmennum á átt- földu nafnverði en á þeim tíma var gangverð hlutabréfanna sexfalt nafnverð. Jókst hluturinn þá úr 3,5 prósentum í 9,6 prósent. Nú er skráð gengi hlutabréfanna innan við fimmfalt nafnverð. Þessi gjörn- ingur stingur í augu þegar litið er til fullyrðinga stjórnenda Eimskips í Morgunblaðinu að keypt hafi verið hlutabréf á hagstæðu verði áður en markaðurinn fór að hækka. Þeirri kenningu hefur verið hald- ið á lofti að Hörður Sigurgestsson og Halldór H. Jónsson hafi viljað sýna Einari og Benedikt Sveinsson- um hver valdið hefði. Þeir ættu ekkert með það að auka hlut sinn í Eimskip í gegnum Sjóvá-Almenn- ar. Tengsl Eimskips og Skeljungs eru augljós þar sem Indriði Pálsson er stjórnarformaður beggja fýrirtækj- anna og Kristinn Björnsson, stjórn- armaður í Eimskipi er forstjóri Skeljungs. Hörður Sigurgestsson tók einnig sæti í stjórn Skeljungs í fyrra. Eimskip á 11,7 prósenta hlut í fyrirtækinu. Olíukaup Eimskips fara ffam með útboði og hörð sam- keppni er ríkjandi á olíusölumark- aðnum. Rök fyrir slíkri tengingu fýrirtækjanna geta því ekki falist í þeim hagsmunum að tryggja Eim- skipi ódýra olíu. Stjórnarmenn Eimskips telja greinilega ástæðu til að fyrirtækið eigi ítök í bankakerfinu. Hlutur þess í íslandsbanka nemur 206 milljónum króna sem er 5,8 pró- sent af hlutafé bankans. Fyrir Eim- skip sitja Einar Sveinsson og Jón Halldórsson í stjórn bankans. Fjár- festingin hefur ekki skilað neinum arði og vandséð er hvaða hagsmun- ir eru á ferðinni þar sem Lands- bankinn er viðskiptabanki Eim- skips. Valdabrask, segja gagnrýn- endur. Eimskip var einu sinni í ferða- geiranum þegar Gullfoss var og hét. Fyrirtækið haslaði sér aftur völl í þessurn geira þegar keypt voru hlutabréf í Úrval-Utsýn en þau telja nú 18,5 prósent. Hörður og Indriði sitja þar í stjórn og njóta ferðafríð- inda auk stjórnarlauna. Ferðaskrif- stofurekstur hefur verið mjög áhættusamur á íslandi í gegnum tíðina og því varla hægt að grípa til ffasans um dreifða áhættu til að réttlæta þessa fjárfestingu. Marel hf., sem framleiðir tæki fýrir sjávarútveg, er enn eitt fýrir- tækið sem Eimskip á stóran hlut í en hann nemur 40 prósentum. Benedikt Sveinsson fer með stjórn- arformennskuna í krafti eignar- hluta Eimskips. Starfsemi Marels er á allt öðru sviði en Eimskips. Hægt væri að réttlæta fjárfestinguna með því að styðja þurfi við bakið á ffam- sæknum nýsköpunarfýrirtækjum en þetta er mikill áhætturekstur og hlutur Eimskips stór. Eimskip keypti 27,7 prósenta hlut í Fjárfestingarfélagi Islands. Fyrir nokkrum árum var fyrirtækið áber- andi á verðbréfamarkaðnum en bar skarðan hlut frá borði í samkeppn- inni og er nú eignarhaldsfélag. Nokkuð ljóst er að fjárfestingin mun aldrei skila sér. Þótt verulegir fjármunir séu í húfi í tengslum við ofangreind fýr- irtæki eru það smámunir þegar kemur að eignarhluta Eimskips í Flugleiðum. Félagið á 34 prósent í flugfélaginu og nægir það til að ráða stjórn þess að nánast öllu leyti. Hörður er stjómarformaður Flug- leiða og aðrir fúlltrúar Eimskips eru Indriði Pálsson, Halldór Hall- dórsson og Benedikt Sveinsson. Þá er Jón Ingvarsson í varastjórninni. 50 prósent af hlutafjáreign Eim- skips liggur í Flugleiðum, er það fært til bókar á 801 milljón. Áætlað markaðsverð í dag er hins vegar tal- ið um 60 milljónum króna lægra. Á aðalfundi Flugleiða nú nýlega var ákveðið að greiða hluthöfúm engan arð. Það getur því ekki talist annað en slæmur kostur að liggja með há- ar fjárhæðir í fyrirtæki sem gefur enga ávöxtun. Rök Eimskipsmanna eru þau að um langtímafjárfestingu sé að ræða. Gagnrýnendum verður hins vegar starsýnt á ferðahlunn- indi stjórnarmanna auk launa fyrir stjórnarsetuna. Enginn efast heldur um að stjórnarsetu í Flugleiðum fylgir vald í viðskiptalífinu. Fjórtán þúsund hluthafar bíða ennsvara Ekki liggja allar fjárfestingar- ákvarðanir stjórnenda Eimskips um kaup á hlutabréfum í öðrum fýrirtækjum undir gagnrýni. Eðli- legt hlýtur að teljast að fýrirtækið eigi ítök í atvinnurekstri sem teng- ist starfsemi fýrirtækisins á augljós- an hátt. Dæmi um þetta er eignar- hlutur í Tollvörugeymslunni og Saltfélaginu á Reykjanesi. Dótturfé- lag Eimskips, Hafnarbakki, selur fiskverkendum salt og fyrir fjárfest- ingu í Saltfélaginu eru því fullkom- lega eðlilegar ástæður. En það eru upphæðirnar sem telja og þegar tap félagsins á hluta- bréfum nemur meira en einum milljarði á þriggja ára tímabili er eðlilegt að skýringa sé krafist og stjórnendur krafðir um fúllnægj- andi rök fýrir fjárfestingarákvörð- unum sinum. Fjórtán þúsund hlut- hafar bíða svars. Einni athyglisverðri spurningu hefur verið velt upp. Fyrst stjórn- endur Eimskips hafa svona mikla trú á fjárfestingum í þessum fýrir- tækjum, hvers vegna leggja þeir þá ekki sitt eigið sparifé í þau? Það heyrir nefnilega til undantekninga að þeir hafi sjálfir keypt hlutabréf í þeim og virðast hafa valið aðra og fýsilegri fjárfestingarkosti. I framhaldi af þeirri spurningu hafa menn velt fyrir sér hvort verið sé að kaupa stóla við stjórnarborð annarra fýrirtækja handa forráða- mönnum Eimskips fýrir sparifé al- mennra hluthafa þannig að þeir geti geti þegið stjórnarlaunin og ffíðindin. Ef sú kenning er sett í samhengi við rýrnun á markaðs- verði hlutabréfa Eimskips eru það örugglega dýrustu stólar á Is- landi. © MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1994 9

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.