Eintak

Eksemplar

Eintak - 30.03.1994, Side 14

Eintak - 30.03.1994, Side 14
Efnahagslegur og félagslegur bakgrunnur pólitískra frambjóðenda segir oft meira til um fyrir hvað þeir standa en framboðsræður og kosningaloforð. Styrmir Guðlaugsson bar saman bakgrunn frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins og Reykja- víkurlistans við borgarstjórnarkosningarnar í vor; aldur, menntun, störf, tekjur, heimili, bíla, barneignir og fleira. Hann komst að þeirri niðurstöðu að greinilegur munur er á frambjóðendum á D- og R-lista en jafnframt að listarnir eiga það sameiginlegt að tefla fram fólki sem býr við aðstæður sem eru flestum samborgurum þeirra framandi. Isveitastjórnarkosningum hneigjast kjósendur fremur til að gffa upp hug sinn eftir ein- stökum frambjóðendum en flokk- um, eins og raunin er frekar við kosningar til alþingis. Ekki er fjarri lagi að ætla að kjósendur vilji að í sveitar- og bæjarstjórnum sitji fólk sem býr við aðstæður sem endur- spegla líf þess sjálfs. f Reykjavík er návígi manna við frambjóðendur hins vegar minna en í öðrum bæj- arfélögum og út um hinar dreifðu byggðir landsins og því erfíðara fyr- ir kjósendur að máta sitt líf við þeirra. f borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík, sem fram fara laugar- daginn 28. maí, bjóða að öllum lík- indum aðeins fram tveir listar. Annars vegar D-listi Sjálfstæðis- flokks og hins vegar R- listinn eða Reykjavíkurlistinn, sem Alþýðu- flokkurinn, Alþýðubandalagið, Framsóknarflokkurinn og Kvenna- listinn bjóða fram sameiginlega, auk þess sem á honum sitja nokkrir óflokksbundnir einstaklingar. Þær aðstæður sem fólk býr við hefur að verulegu leyti áhrif á viðhorf þeirra og oft öfugt. Og þó að svo sé ekki í öll- um tilvikum hlýtur það að hjálpa kjósendum að gera upp hug sinn að vita meira en minna um aðstæður þær sem frambjóðendur búa við. Þannig geta þeir frekar fundið „sína“ fulltrúa sem eru líklegri en aðrir til að þekkja líf þeirra sjálfra. EINTAK skoðaði nokkuð skýrt af- markaða þætti í bakgrunni frambjóðenda beggja listanna, sem líklegir eru til að segja lesendum Menntun frambjóðendanna 25 20 15 10 Fláskólapróf ^ JÍ w UjO Verslunar- eða samvinnu- skólapróf Stúdents- próf Ustnám Húsmæðra- iðnnám skólapróf Ustnám r Landspróf gagnfræðapróf Iðnnám Landspróf/ gagnfræðapróf Fóstrunám Fláskólapróf eitthvað um fyrir hvað þeir standa, og bar saman listana. Þeir þættir sem voru kannaðir eru aldur fram- bjóðenda, menntun, starf og mán- aðartekjur þeirra og maka þeirra, hversu mörg börn þeir eiga, hverfi sem þeir búa í og í hvernig húsnæði og loks á hvernig bílum þeir aka. Listarnir eru síðan bornir saman og dregnar upp myndir af hinum dæmigerðu frambjóðendum hvors lista fyrir sig, svo langt sem slíkt nær. Aframboðslista Sjálfstæðis- flokksins eru sautján karlar og þrettán konur en á Reykjavíkurlistanum eru konurnar fleiri, eða sextán á móti fjórtán körlum. Bæði framboðin líta á 8. sætið sem baráttusæti og því segir það kannski meira að skoða kynja- skiptinguna milli þeirra átta efstu. Þá er staðan þannig að konurnar eru þrjár af átta hjá Sjálfstæðis- flokknum en dæmið snýst við hjá Reykjavíkurlistanum þar sem kon- urnar eru fimm af átta. Sjálf- stæðisflokkurinn: 17 karlar 13 konur. Reykjavíkurlistinn: 14 karlar 16 konur. Ef meðalaldur frambjóðenda listanna tveggja er borinn saman kemur í ljós að þeir eru á líku reki, ef þannig er hægt að komast að orði. Meðalaldur fram- bjóðenda Sjálfstæðisflokksins er 41,9 ár en Reykjavíkurlistans 41,3 ár. Lítill munur er á meðalaldri karla og kvenna á listunum, fram- bjóðendur af báðum kynjum eru rúmlega fertugir að meðaltali. Fjórir frambjóðendur Sjálfstæð- isflokksins eru nálægt meðaltalinu í sínum flokki í aldri, á bilinu 40-43 ára, Inga Jóna Þórðardóttir við- skiptafræðingur, Ólafur F. Magn- ússon læknir, Einar Stefánsson augnlæknir og Helgi Eiríksson verkamaður. Fjórar konur á Reykj- avíkurlistanum eru fertugar og þrjár til viðbótar eru nálægt meðal- aldrinum þar, 39- 42 ára; Guðrún Ögmundsdóttir borgarfulltrúi, borgarstjóraefnið Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir alþingismaður, Hulda Ólafsdóttir sjúkraþjálfari, Guðrún Kr. Óladóttir varafor- maður Sóknar, Bryndís Kristjáns- dóttir blaðamaður, Margrét Sæ- mundsdóttir fóstra og Bima Kr. Svavarsdóttir hjúkrunarforstjóri. Aldursdreifingin er áþekk á báð- um listum. Á þrítugsaldri eru sjö á D-Iista en sex á R-lista. sex á móti tíu á fertugsaldri, tólf á móti tíu á fimmtugsaldri, tveir á móti þremur á sextugsaldri og svo eru þrír á D- lista á sjötugsaldri og einn á R-lista stendur á áttræðu. Yngsti frambjóðandi Sjálfstæðis- flokksins er Elsa Björk Valsdóttir háskólanemi, sem er 24 ára, en á Reykjavíkurlistanum er það Sig- þrúður Gunnarsdóttir, einnig nemi við Háskólann, 22 ára sem er í 25. sæti. Aldursforsetarnir eru hins vegar Páll Gíslason læknir og borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem á eitt ár í sjötugt, og Guðmundur Arnlaugsson fyrrverandi rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, sem er áttræður. Báðir sitja þeir í heiðurssætum; Páll í 27. sæti D-list- ans en Guðmundur í því 30. á R- listanum. Sjálfstæðis- flokkurinn: Með- ........... alaldur 41,9 ÉfiBi ar. Reykja- Æm víkurlistinn: """ Meðal- aldur 41,3 ár. Langflestir frambjóð- e n d u r beggja lista eiga maka og börn Fimm á D-listanum og þrír á R-listanum búa ein- ir og eru flestir þeirra í yngsta aldurshópnum. Sjálfstæðismenn eiga fleiri börn, eða 2,5 að meðaltali, en 2,3 börn eiga frambjóðendur Reykjavíkur- listans að meðaltali. I báðum tilvikum nær barna- fjöldinn þeim mörkum að fjölga þjóðinni. Báðir listar geta því talist fulltrúar barnafólks í borginni. Skipting barna á einstaka fram- bjóðendur er þó jafnari á R- listan- um og fjölskyldumynstrið er nær því sem kallað hefur verið vísitölu- fjölskyldan. Þar eiga allir nema tveir börn og þeir sem eiga mestu barnaláni að fagna eiga fjögur börn. Það eru Hulda Kristinsdóttir klæðskeri, Guðrún Jónsdóttir arkitekt, Helgi Pétursson mark- aðsstjóri og tónlistarmaður, Jónas Engilbertsson strætisvagnastjóri, og Kristín Blöndal, myndlistar- kona. Fimm frambjóðendur Sjálfstæð- isflokksins eru barnlausir. Stærsta barnahópinn á Helga óhannsdóttir húsmóðir með manni sínum, Ómari Þ. Ragnars- syni frétta- manni, en þau eiga sjö börn. F i m m börn eiga hver um sig, Jóna Gróa Sigurð- ardóttir hús- móðir, Guð- mundur Gunnars- son formaður Rafiðnaðar- sambandsins, Einar Stefánsson 14 MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1994

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.