Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 30.03.1994, Qupperneq 17

Eintak - 30.03.1994, Qupperneq 17
Sta rff svettva n g u r frambjóðenda Heimavinn i ö og aðrir láglaunamenn - þurfa þvi að leita vel til að finna fram- bjóðendur sem búa við svipaða afkomu og þeir. Tekjur, lífsstíll og fleira skiptir máli þegar fólk velur sér hverfí til að búa í. Rætur hafa örugglega einnig sitt að segja. Það er fróðlegt að sjá hvernig búseta frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins og Reykjavíkurlistans skiptist. Til einföldunar er hér miðað við póstnúmer því hverfi borgarinnar skipta tugum. I grófum dráttum má segja að sjálfstæðismennirnir haldi sig aust- arlega í borginni, þó lítið í úthverf- unum, en fólkið á Reykjavíkurlist- anum vestar. Sjálfstæðismenn eru fjölmenn- astir í póstnúmeri 108, eða sjö tals- ins, en undir það fellur meðal ann- ars Fossvogurinn og Smáíbúða- hverfið. Fimm búa í hverfum sem falla undir póstnúmer 101, Miðbæinn, og 107, Vesturbæinn. Fjórir eru í póstnúmeri 104, Heimunum, Vog- unum og Sundunum, og jafnmarg- ir í 105 en undir það póstnúmer falla meðal annars Hlíðarnar og Holtin. Tveir búa í Grafarvogi, tveir í Breiðholti og einn í Árbæ. Níu á Reykjavíkurlistanum búa í Miðbænum, eða póstnúmeri 101. Fimm eru Vesturbænum og sex í póstnúmeri 105, Hlíðunum og hverfunum þar í kring. Fjórir búa í Breiðholti en þeir sex sem eftir eru skiptast á fjögur póstnúmer. Tveir eru í Leitunum, póstnúmeri 103, tveir í 108, Fossvogi og nágrenni, einn í Grafarvogi og loks einn í 104, Laugarásnum. Þessi upptalning segir kannski ekki mikið. En þo er hægt að skipta listunum í austur- og vestur- framboð. Wleira en helminaur frambióð- enda H-listans búa vestarlega í borginni á meðan sjálfstæðis- mennirnir eru austar. Þeir síðarnefndu eru frekar í einbýlis- og raðhúsahverfum. Tiltölulega fáir á báðum listum búa í úthverfunum sem sýnir enn og aftur að frambjóðendur list- anna búa við aðrar og betri aðstæður en flestir reykvíkinga. Frambjóðendur listanna tveggja halda sig ekki aðeins í ólíkum hverfum heldur búa þeir líka í mismunandi húsnæði. Átján manns á D-listanum býr í Par-, rað- eða einbýlishúsi á móti þrettán á R-listanum. Þeir síðar- nefndu búa þó í hverfum þar sem hús eru bæði minni og ódýrari. Níu sjálfstæðismenn búa í tví- eða þrí- býli en sjö á R-listanum. I fjölbýlis- húsum búa fæstir á báðum listum, fimm á D-lista og átta á R-lista. Munurinn á því húsnæði sem fram- bjóðendur listanna búa í er einkum sá að að fleiri sjálfstæðismenn búa í stórum einbýlis- og raðhúsum. Þótt tæpur helmingur frambjoðenda Reykja- víkurlistans búi í slíkum húsum eru þau að jafnaði minni og ódýrari. Þó er ekki hægt að segja annað en ao frambióð- enaur beggja listanna búi al- mennt betur en gildir um aðra borgar- búa. Se n n i 1 e g a komast fram- bjóðendurnir næst norminu í lífsstíl þegar bílaeign er annars vegar. Langflestir eiga bíl og á sumum heimilum eru þeir tveir. Sjaldnast er þó um lúxusvagna að ræða. Fjórir sjálfstæðismenn og þrír á Reykjavíkurlistanum eiga hins vegar ekki bil. Þeir fýrrnefndu eiga vinninginn þegar meðaltalið er skoðað með 1,34 bíla á heimili á móti 1,13 að meðaltali á heimilum frambjóð- enda Reykjavíkurlistans. Japanskir bílar eru langalgeng- astir hjá báðum listum en inn á milli er að finna annarra þjóða teg- undir. Hjá sjálfstæðismönnum er að finna sjö jeppa, átta fólksbíla af stærri gerðinni og tuttugu og tvo minni. Jepparnir eru sex hjá R-list- anum, stærri fólksbílarnir 7 og þeir minni tuttugu og einn. Þegar rýnt er nánar í tegundir og áraerðir sést að frambjóðendur Reykjavíkurlistans aka a odýrari gerðum og eldri. ert er að gera tilraun til að draga sam- an niður- stöður af saman- burðinum á frambjóð- endum Sjálf- stæðisflokks- ins og Reykja- víkurlistans sem gerður hefur verið hér að framan. Fyrst er til að taka að konum er gert hærra undir höfði hjá Reykja- víkurlistanum. Þær eru fleiri en karlarnir, bæði í heildina og í efstu sætunum. Dæmið snýst hins vegar við hjá Sjálfstæðisflokknum. Enginn teljandi munur er á með- alaldri frambjóðenda listanna eða aldursdreifingu þeirra. Fólk á aldr- inum frá miðjum þrítugsaldri og upp í áttrætt er í framboði. Meðal- aldur á báðum listum er rúmlega fjörutíu ár. Langflestir frambjóðendanna eiga maka og barneignin er svipuð. Sjálfstæðismennirnir eiga 2,5 börn að meðaltali á móti 2,3 börnum hjá INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR BORGARSTJÓRAEFNI R-LISTANS. Annað hvort þeirra Árna verður borgarstjóri í Reykjavík næsta kjörtímabil. Að mörgu leyti eru þau dæmigerðir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Reykjavíkuríistans. Fyrir það fyrsta eru konur í meiríhluta á R-listanum en karlará D-listanum og bæði eru þau nálægt meðalaldri frambjóðendanna á listunum sem þau leiða. Ingibjörg hefur lægri tekjuren Árni, hún á hæð í vesturbænum sem rímar við hverfa- skiptinguna. Árni á fleiri börn en Ingibjörg. frambjóðendum Reykjavíkurlist- ans. Stærri barnahópar eru algeng- ari hjá þeim fyrrnefndu en skipt- Arni Þór Sigurðsson FÉLAGSMÁLAFULLTRÚI hjá Kennarasambandinu ergott dæmi um menntun og starf frambjóðenda Reykjavikuríistans. Hann hefur Cand.mag.-próf í þjóðhagfræði, rússnesku og almennum málvísindum, auk þess sem hann stundaði framhaldsnám í slavneskum málvísindum. Margir á listanum hafa háskólanám í húmanískum greinum að baki og starfa hjá hinu opinbera eða hjá félagasamtökum. ÓLAFUR F. MAGNÚSSON LÆKNIR er í hópi þriggja annarra kollega sinna á lista Sjálfstæðisflokksins, auk þess sem einn er i læknisnámi. Áberandi er hve frambjóðendur D- listans hafa valið sér hagnýtara nám sem gefur meirí von um hærrí tekjur. ingin er jafnari hjá þeim síðar- nefndu. Þegar kemur að menntun, starfi og tekjum fer munurinn á listun- um að koma í ljós. Helftin af fram- bjóðendum beggja lista eru þó langskólagengin. Sjálfstæðismenn- irnir hafa frekar lagt fýrir sig hag- nýtt nám þar sem tekju- og starfs- framavonin er meiri en áberandi er hjá R-listanum hve margir hafa há- skólagráður í húmanískum grein- um. Þetta endurspeglast í störfum og tekjum. Sjálfstæðismennirnir hafa talsvert hærri tekjur að meðal- tali og eru frekar í stjórnunarstörf- um. Áberandi er líka hve miklu fleiri á R-listanum starfa hjá ríki eða borg. Athyglisvert er þó að þeg- ar aðeins eru bornar saman tekjur þeirra fimmtán hæstu á listunum þá hefur Reykjavíkurlistinn vinn- inginn. Augljóst er að menntun, starf og tekjur frambjóðenda á báð- um listum eru langt frá því að end- urspegla þann raunveruleika sem flestir Reykvíkingar búa við. Það ætti ekki að koma á óvart að það sama gildir um húsnæði og bú- setu eftir hverfum. Sjálfstæðis- mennirnir eru fjölmennir í einbýl- is- og raðhúsum í finni hverfum borgarinnar. R-listafóIkið býr einn- ig flest vel en í minni húsum í ódýr- ari hverfum. Sammerkt með listun- um er að fæstir búa í fjölbýli. Svip- aður rnunur er á bílaeign en bíla- floti Reykjavíkurlistans er eldri og gerðirnar að jafnaði ódýrari. Niðurstaðan af þessari saman- tekt er sú að það er talsverður mun- ur á aðstæðum og lífsstíl frambjóð- enda Sjálfstæðisflokksins og Reykj- avíkurlistans. Ólík menntun er líka vísbending um mismunandi þankagang sem ætti í sjálfu sér ekki að koma á óvart. Meginniðurstaðan er hins vegar sú að hvorki D- ne R-listi endur- spegla íbúasam- setningu Reykjavíkur óg þær aðstæður sem þorri borgarbúa býr við. Það hlýtur að vera umhugsunar- efni. 0 Kynjahlutfall listanna Stærri skífurnar sýna kynjahlutföll listanna allra, en þær mlnni hlutföll í efstu átta sætum. MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1994 17

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.