Eintak

Issue

Eintak - 30.03.1994, Page 18

Eintak - 30.03.1994, Page 18
GunnarSmári Egilsson til að éta íbúðina sína leigja er álíka niðurlægjandi og einokunarverslu in og yfirráð Dana. rekur hér nokkrar sögur af leigjendum, húseigenda sem gerði tilraun og straujárni sem stóð undir veisluhöldum í forstofuherbergi. / Leigjendur eru ekki fínasta fólk á íslandi. Þetta er fólk sem hefur svikið sjálfstæðishugsjónina og neitað að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Fólk sem skilur ekki að sjálfseignarstefnan er sjálfstæðisstefnan og það að Ég efast um að jafn stirðbusalegt hugtak og „séreignarstefna í hús- næðismálum“ hafi yfir sér töfra- hljóm hjá annarri þjóð en íslend- ingum. Ég efast meira að segja um að þetta hugtak sé til hjá öðrum þjóðum. í það minnsta ekki í þeirri merkingu að æskilegast sé að allir, án undantek- inga, eignist íbúð. Ef son skrifað um þá hrökklandi milli forstofuherbergja. En Guð- bergur skrifaði líka um mesta hús- eiganda á íslandi, Tómas Jónsson, sem á endanum varð að íbúðinni sem hann átti. Þótt einhverjir álíti þetta mikinn skáldskap hjá Guðbergi fmnst mér það ekki. Ég veit í það minnsta um einn mann sem reyndi að verða að íbúð sinni og hefði tekist það ef leigjendurnir hefðu ekki flúið hann. Af því er lítil saga. Þegar ég vann á skrifstofu Leigjenda- samtakanna ein- hvern tímann fyrir tvítugt kom einu sinni til mín par sem var ósátt við viðskipti sín við húseigandann einhver hópur hefur sannanlega ekki efni á því skal samfélagið taka höndum saman og greiða niður í hann húsnæðið. Fyrir Islendingum er eigið hús- næði samofið sjálfstæði þjóðarinn- ar. Eins og íslenska þjóðin losaði sig úr danska konungssambandinu þannig ber hverjum Islending að koma sér úr leiguhúsnæði og í sína eigin sjálfstæðu íbúð. I huga þeirra býr leigjandinn við sömu niðurlæg- ingu og íslenska þjóðin þegar hún kúldraðist hokin og svöng í mold- arkofum á sama tíma og íslands- verslunin blómstraði í Kaup- mannahöfn. Enginn leigjandi í íslenskum bókmenntum hefur verið almenni- legur maður nema leigjandi Svövu Jakobsdóttur sem var ekki íslenskur leigjandi heldur sjálf heimsvaldastefna Bandaríkjanna holdi gerfur. Aðrir leigjendur í bókmenntunum eru aumingjar. Svo miklir aumingjar að í raun hafa fáir aðrir en Guðbergur Bergs- sem þau leigðu hjá. Þau voru búin að auglýsa lengi eftir íbúð án þess að fá svör frá öðr- um en þeim sem vildu leigja þeim óeinangraða hanabjálka eða íbúðir tilbúnar undir tréverk. Þar til einn daginn að húseigandi í Ljósheim- unum hringir í þau og býður þeim að leigja fjögurra herbergja glæsi- íbúð með bæði eldhús- og baðher- bergistækjum í fullkomnu lagi. Sá hængur var á að maðurinn sagðist vera orðinn hálf lúinn og vildi leigja íbúðina með þeim kjörum að hann fengi að liggja í kör í einu herbergj- anna, leigjendurnir þvæðu þvott af honum og elduðu handa honum. Hann tók það fram að hann væri alls ekki matvandur og sætti sig við að borða þann mat sem leigjend- urnir væru hvort eð er að búa til handa sjálfum sér. Leiguverðið væri þessi þjónusta og auk þess fór hann fram á að vera laus við sinn hlut af matarreikningnum. Þetta hljómaði sanngjarnt; karl- inn góðlátlegur og íbúðin glæsileg — og fólkið gekk að þessum kjör- um. Maðurinn og konan fluttu inn. Stuttu síðar fór að renna á þau tvær grímur. Það kom í ljós að karlinn var ótrúlega lystarmikill. Til að byrja með keyptu þau 600 grömm af beinlausu og 750 grömm af kjöti með beini í matinn handa þeim þremur, samkvæmt formúlu sem maðurinn hafði lært til sjós. En það dugði engan veginn. Karlinn var glorsoltinn eftir að hafa klárað sinn skammt. Smátt og smátt neyddist fólkið til að kaupa meira og meira í matinn. Undir það síðasta keyptu þau aldrei minna en 1.200 grömm af beinlausu, 200 grömm handa hvoru um sig en 800 grömm handa karlinum. Og hann vildi heitt bæði í hádeginu og á kvöldin og morg- unkaffi, síðdegiskaffi og kvöldkaffi. Fólkinu leið eins og það væri þrælar karlsins. Bæði unnu úti og tóku alla þá aukavinnu sem bauðst. Samt áttu þau í vandræðum með að láta enda ná saman. Karlinn át svo ofboðslega. En þar sem erfitt var um húsnæði á þessum árum sættu þau sig við þetta fremur en að enda á götunni. Þar sem þau sátu á móti mér á skrifstofu Leigjendasamtakanna lýstu þau lífi sínu sem helvíti. Þau sátu þögul við eldhúsborðið og horfðu upp á karlinn sporðrenna sex saltkjötsbitum með rófustöppu og kartöflumús og heilli skál af búðingi á eftir. Þegar hann var far- inn inn til sín á eftir án þess að þakka fyrir sig hékk nærvera hans í loftinu svo fólkið þorði ekki annað en að hvísla viðbjóð sínum á karl- inum. Það rak þau á skrifstofu Leigj- endasamtakanna að eitt föstudags- kvöld um tíuleytið hafði maðurinn komið við í Hagkaupi í Skeifunni á leiðinni heim og keypt fimm kex- pakka ef einhver gestur skyldi líta inn. Þegar hann kom heim stakk hann pökkunum inn í skáp og fór að sofa. Þegar hann vaknaði til vinnu daginn eftir klukkan sjö kom hann að öllum fimm kexpökkun- um tómum á eldhúsborðinu. Þar sem maðurinn sat fýrir fram- an mig, búinn á sál og líkama, gat ég ekki ráðlagt honum annað en leita sér að nýju húsnæði. Lögfræð- ingar gætu ef til vill fundið aðferð til að takmarka leigufjárhæðina við ákveðið magn af kjöti og ákveðinn fjölda af kexi en ég taldi best fýrir fólkið að koma sér sem fyrst og sem lengst frá karlinum og íbúðinni. Líf þeirra ætti að snúast um annað en maga hans og munn. Annars gerðist fátt markvért þessar fáu vikur sem ég vann á skrifstofu Leigjenda- samtakanna. Samtökin reyndu að reka leigumiðlun en fengu litið af húsnæði á skrá. Helst húsnæði sem fólk hafði reynt að koma út með öðrum hætti en allir fúlsað við. Ég man eftir konu sem hringdi ofan úr Breiðholti og sagðist vera með herbergi á jarðhæð sem hún vildi leigja út. Eftir stutt samtal kom í ljós að jarðhæðin var kjallari sem var niðurgrafinn af þremur fjórðu hlutum. Það er reyndar ekki í frásögur færandi, þar sem húseig- endur kalla kjallara aldrei kjallara. Konan sagði enga eldhúsaðstöðu fylgja herberginu og þegar ég spurði hvort leigjandinn gæti farið í sturtu eða bað sagðist hún hafa hugsað sér að leigja einhleypum karlmanni og hann gæti bara farið í sund til að baða sig. Ég spurði þá hvort hún gerði ráð fyrir að leigj- andinn þyrfti að pissa. Hún hafði nú ekki hugsað fyrir því en það væri sjálfsagt fyrir hann að banka upp á hæðinni hjá þeim ef hann þyrfti að nota klósettið, en þó ekki eftir klukkan átta á kvöldin. Svona hélt samtalið áfram. Undir lokin var ég búinn að átta mig á að konan hafði neglt fyrir rimla- kompu sem hún átti í blokkinni sinni og vildi kalla það herbergi. Kompan var um einn og hálfur á breidd og þrír metrar á lengd eða 4,5 fermetrar í allt. Það var einn þverhandarhár gluggi á kompunni upp undir lofti. Ekkert eldhús, ekk- ert bað og ekkert klósett eftir klukkan átta á kvöldin. Ég sagði konunni að þetta væri húsnæði sem væri sniðið fyrir einhleypa karla og hún kvaddi mig vonglöð um að fá góðan pening fýrir. ins og sjá má af þessu hafa húseigendur ekki talið ein- hleypa karla freka til lífs- gæða. Einu sinni leigði ég forstofu- herbergi í húsi á Hverfisgötu sem var fullt af leigjendum á þremur hæðum. Á neðstu hæðinni bjó kona sem jafnframt var húsvörður. Hún hafði sér bað, tvö herbergi og eldhús. Á næstu hæð fyrir ofan bjuggu tvær skólastúlkur hvor í sínu herberginu en deildu eldhúsi og baði. Efst uppi í risinu bjuggu síðan einir sex einhleypir karlar hver í sínu herbergi sem voru álíka stór öll saman og íbúð húsvarðar- ins og herbergi skólastelpnanna. Karlarnir deildu allir saman einu klósetti. Þannig var gæðum hússins skipt á milli íbúanna. Ég var síðan á ein- hvers konar óráðnu svæði í for- stofuherberginu enda of ungur til að vera ffáskilinn. Karlarnir á efri hæðinni voru flestir óreglumenn. Unnu aðra hverja viku hjá skilningsríkum vinnuveitendum en drukku hina. Ég gat ekki áfellst þá. Á sama hátt og það er ekki hægt að enda í einu herbergi edrú er ekki hægt að lifa edrú í einu herbergi. Alla vega gafst ég upp á forstofuherberginu og hef ekki þorað fyrir mitt litla líf að ger- ast svo lítillátur affur að sætta mig við eitt herbergi. En það eru heilar kynslóðir einhleypra karla sem búa í herbergjum út um allan bæ. Þetta eru kynslóðir karla sem eng- inn gerir ráð fyrir að kunni að elda og flestir telja ekki þrifnari en svo að þeir geti vel látið sér nægja að skreppa annað slagið í sund. Og eins og í húsinu á Hverfisgötu er stéttaskipting meðal þessara manna. Þeir aumustu búa í kjall- araherbergjum, þeir sem búa undir súð eru skör hærri en topparnir búa í forstofuherbergjum hjá kon- um í Hlíðunum. Ég hitti einu sinni einn þessara fínni einhleypinga á Kaffivagnin- um. Hann sagði mér frá ferð sinni milli forstofuherbergja og því fýlgdu margar kostulegar sögur af húseigendunum. Ein var þessi: Einu sinni leigði hann forstofu- herbergi af konu sem var ákaflega passasöm í fjármálum. Leiguverðið sem hún setti fram var ekki ósann- gjarnt en hún vildi vera þess fullviss að hún tapaði ekki á viðskiptunum. Og þar sem forstofuherbergið var tengt sömu rafmagnstöflu og íbúð konunnar lagði hún blátt bann við að hann hefði nokkur rafmagns- tæki inni hjá sér. Mannin- um fannst súrt í broti að geta ekki einu sinni hellt sér upp á kaffi en sætti sig við þetta framan af þar sem það er alltaf svo þröngt á leigumarkaðinum. Einn dag gekk hann hins vegar á fund konunnar og bað um leyfi til að halda straujárn í herberginu sínu. Konan féllst á þetta eftir nokkra umhugsun, enda er ekki hægt að eyða miklu rafmagni með einu straujárni og eins eru mið- aldra konur alltaf viðkvæmar fyrir einhleypum körlum sem eru snyrtimenni. Maðurinn bjó með straujárni sínu í nokkurn tíma og smátt og smátt lærðist honum að nota það til fleiri hluta en að strauja. Hann kom sér upp tveimur múrsteinum, setti straujárnið á hæstu stillingu og skorðaði það á hvolfi milli múr- steinanna. Síðan setti hann pott, sem hann faldi vel í skápnum sín- um, ofan á straujárnið og sauð sér vatn í Nescafé. Og eftir því sem tíminn leið varð maðurinn leiknari við að elda á straujárninu og ofmetnaðist að lok- um. Konan kom að honum í her- berginu þar sem hann hafði boðið fimm kunningjum sínum í saltkjöt og baunir og rak hann á dyr. © 18 MIÐVIKUDAGUR 30. MARS>I1994

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.