Eintak

Issue

Eintak - 30.03.1994, Page 32

Eintak - 30.03.1994, Page 32
Gallerí Greip. Þar sýnir hún útsaum, málverk og lágmyndir. Bragi Ásgeirs var voöa hrifinn af út- saumnum og sagöi listakonuna þar hafa fundið sinnhreina tón. Rut Rebekka sýnir í Portinu í Hafnarfirði. Þar getur meðal annars að líta myndir unnar með olíuþurrpensli á pappír og tússteikningar. í Lísthúsinu Ófeigi stendur yfir samsýningin Stefnumót Listamennirnir sem þar sýnaeru þeir Þorri Hringsson, Finninn Jouni Japp- inen, Helga Magnúsdóttir, Bandaríkjamað- urinn Robert Bell Sigurður Þórir og Hring- ur Jóhannesson Ragnheiður Jónsdóttir og Sólveig Aðai- steinsdóttir eru enn með sýningar á Kjarvals- stöðum og standa þær þar til annan í páskum. Á Kjarvalsstöðum hanga lika verk Kjarvals sjálls uppi til 8. maí. Norski listamaðurinn Olav Christopher Jensen sýnir teikningar sínar í kjallara Nor- ræna hússins. Þetta er farandsýning sem kemur frá Tallin í Eistlandi. í andyri hússins eru aftur á móti biblíumyndir Bodil Kaalund Biblían virðist því vera nokkuð „inn" um þessar mundir því hún er heldur ekki langt undan á Mokka. En Bodil er Ifka með vatnslitamyndir á sýningu f Hallgrímskirkju. Ósk Vilhjáimsdóttir heldur nú Ijósmynda- sýningu f Gerðubergi. Ósk hefur verið í Berlín sfðastliðin sjö ár við nám og störf. Henni var hnftið aft vinna í eitt ár vift skólann eftir aft hefft- FYRIR FORSJÁLA Það stendur i auglýsingu frá Stöð 2 að áskriftin að dag- skránni kosti aðeins 105 krónur á dag. Þaö hljómar eins og lítil fjárhæð. En þann- ig er það með allt. Jafnvel skatturinn sem við greiðum verður ekki svo há upphæð ef við deilum honum niður á mínútur og sekúndur. En safnast þegar saman kemur. Það kostar fjölskyldu ekki nema 105 krónur að horfa á tíu tíma dagskrá Stöðvar 2 samkvæmt auglýsingu (og það hljómar sem góð kaup). Þessi sama fjölskylda getur sagt upp áskriftinni fram til aldamóta, lagt sambærilega upphæð í banka og átt tæpar 270 þúsund krónur til að halda upp á aldamótin. Átta ibúða stigagangur getur líka lagt saman í púkk og átt 2.155 þúsund krónur. Það má gera ýmislegt fyrir þann pen- ing um aldamótin. Siónvarp SIGURJÓN KJARTANSSON Á vegum úti Malbik Ríkissjónvarpinu -* *★ Finnsk-íslenska kvikmyndin Malbik var sýnd fyrir nokkrum vik- um í Ríkissjónvarpinu og ég missti af henni þá. En eftir að nokkrir vin- ir mínir voru ítrekað búnir að segja mér undan og ofan af myndinni og hversu góð hún væri, ákvað ég að fara á stúfana og redda mér henni á myndbandi. Það tókst ekki betur en svo að í lokin varð ég að leita til eins leikarans sem lék í myndinni og fá lánaða spólu hjá honum. Þetta hefði getað komið mér í heil- mikla klípu ef mér hefði fundist myndin léleg eftir allt saman. Ég get ekki ímyndað mér hvernig ég hefði getað horft í augun á viðkomandi leikara, verandi búinn að rakka mynd niður sem hann kannski eyddi heilu sumri í að vinna við og ég tala nú ekki um eftir að hann hafði lánað mér vídeóspóluna sína sem hann hafði nostrað við að taka upp úr sjónvarpinu. En sem betur fer var myndin í / A N 0 G ágætu meðallagi, kannski ekki góð, en ekkert vond heldur og alls ekki leiðinleg. Myndin segir frá tveimur bjánum sem stela amerískum kagga frá málleysingja og bruna á honum fyrst til Akureyrar og síðan til Reykjavíkur til þess að leysa út 25.000 króna lottóvinning. Þeir taka upp fmnskan puttaferðalang sem lánar þeim fyrir bensíni og eru þeir á stöðugum flótta undan mál- leysingjanum sem eltir þá á mótor- hjóli. Sagan er að mestu sögð frá sjónarhóli finnska puttaferðalangs- ins, þar sem hann les úr dagbók sinni hugrenningar sínar í bland við hallærislega frasa. Þetta er svona andhetju vegamynd sem nær LANDIfl því oft að vera þokkalega fyndin og þó hún sé stundum pínu hallæris- leg dettur hún aldrei niður í ein- hvern Foxtrott-hallærisleika. Að vísu breytist myndin í útvarpsleik- rit á smá kafla þar sem lýsingin er stundum svo vond að ekki sést glóra. En þegar upp er staðið: Ekk- ert meistaraverk en bráðgóð skemmtun. Áfram fmnsk-íslensk samvinna. © Myndlist Guöbergur Bergsson Einföld línuföll Rut Rebekka PoRTIÐ, STRANDGÖTU 50 Það sem áhorfandinn rekur fyrst augun í, ef hann bregður sér til Hafnarfjarðar á sýninguna sem Rut Rebekka heidur um þessar mundir í Portinu, Strandgötu 50, er hvernig fjallað er um einfaldleik- ann í efni og litum. Listakonan vinnur á hvítleitan venjulegan pappír og litirnir sem hún notar eru fábrotin misjafnlega grá blæ- brigði. Öli myndverkin eru einhver tegund af teikningum. Viðfangs- efnið felst öðru fremur í línunum, að viðbættum hughrifum sem lit- irnir eru látnir laða fram. Þetta verður ekki skilið frá hugblæ eða skoðun listakonunnar sjálfrar. í fljótu bragði fæst hún við það, að leiða okkur fýrir sjónir hvernig einfaldar beinar línur eiga samleið með fallandi línum. Hún leiðir til fundar nekt líkama konunnar og línuföll þess sem hylur hann, línur klæða og brotin í þeim. Þetta er sígild aðferð myndlistar- innar þegar hún kemur hvað göf- ugust úr pensli eða penna lista- mannsins. Þetta er sagan um hjúp- inn og nektina, myndin af því sem hjúpar með hálfgagnsærri hulu sent augað sækist eftir að sjá. Maður sér málverk fremur með innri sjón en augunum. Ef áhorfandinn hefur verulegan áhuga á myndlist getur hann greint á sýningunni ekki aðeins þessa eig- inleika, heldur líka að hún er þrí- skipt. Auk áðurnefnds eru tvö önn- ur viðfangsefni. Annað er kona í landslagi, hitt konan í hugblæ sín- um. Kona í landslagi er kona í er- lendu landslagi. Hún situr í garði þannig klædd að hann getur ekki verið hér. Við búum við veðurfar sem er dyntótt í blíðu og stríðu. Is- lensk náttúra hefnir sín á fegurð sinni. Hér á ég við það, að þegar minnst varir og fegurð náttúrunnar er hvað mest, þá rýkur hann upp með versta veður og eyðir hinu blíða og fagra. í náttúruverkunum er Rut Reb- ekka ekki alveg hún sjálf. En af þeim væri hægt að greina vanda ís- lensks landslags í myndlist. Það verður að vera eitt með sjálfu sér. Það þolir ekki persónur eða fáklætt fólk í návist sinni. Af þeim sökum er það sjaldgæft í íslensku lands- lagsmálverki. Málarar okkar kunna ekki að mála menn í úlpum og með trefil allan ársins hring úti á hól. Þeir mála hólinn og sleppa mann- inum. I hans stað skjóta þeir inn lubbalegu hrossi og sauðkind í þykku reyfi. Til að vekja hugsun okkar um mann og náttúru málar listakonan myndir af konum sem eru ekki í öðru en sínu innsta eðli. Þær eru í hugblænum. Þær eru klæddar brosi sínu. Rut Rebekka er vönduð mynd- listarkona. Hún fer sér hægt en víkkar sviðið á svipaðan hátt og vatn sem seytlar úr rauf á kletti. Við rennslið minnkar hann en vatnið eykst í straum. Nú er sjaldgæft að sjá þannig vinnubrögð hjá þeim sem fást við listir. Venjulega byrjar listafólk sem fossinn en fíflast brátt inn í ófrjóan klettinn sem lykst um hæfileika þess. Síðan á það ekki afturkvæmt úr honum þótt það kunni að gaula eins og gamall draugur á ellilífeyris- bótum. Ekki er það gert undir hamrin- um í Hafnarfirði. © Popp Óttarr Proppé Órœðir brœður í stœðum The Sparks Mael Intuition: The best of sparks 1974-1976 ★ ★ ★ The Sparks Profile: The Ultimate Sparks Collection ★ ★★★ Pervisinn öfuguggalegur maður með Hitlerskegg og lævíst augnaráð hamrar píanóið. Söngvarinn flótta- leg mjóna með hrokkinn þunga- málmsmakka. Hljómsveitinni B í Ó I N BiOBORGIN Pelikanaskjalið The Pelican Brief+k Þrátt fyrir ágaett efni kemst þessi mynd aldrei á flug. Bókin er betri. 1 það minnsta fyrir þá sem haía þokkalegt ímyndunarafl og eilítið skárra en Pak- ula. Hús andanna The House olthe Spirits ★★★★ Frábær leikur. Myndin verður aldrei leiðinleg þrátt fyrir þriggja tíma setu. Mrs. Doubtfire ★★★★ Óborganlega fyndin. Sumar senurnar eru hreint hættulegar. BÍÓHÖLLIN Pelikanaskjalið ThePelican Brief★★ Þrátt fyrir einvala lið er þessi mynd hálf andvana. Hvorki persónurnar né sagan ná að lifna við. Ágæt afþreying. Mrs. Doubtfire ★★★★ Gasalega fyndin mynd. Á dauðaslöð On Deadiy Ground ★ Steven Seagal fær málið og heldur barnalega einlægar ræður um umhverfisvernd á milli þess sem hann dregur umhverfissóða. f næstu mynd fer hann á hvalaslóðir og kviðristir Halldór Ás- grímsson og Kristján Loftsson. Hús andanna The House otthe Spirits ★★★★ Mikil saga, magnaður leikur, frábær myndataka, falleg og áhrifamikil mynd. Beethoven 2 ★ Annar þáttur með fleiri hund- um en færri og þynnri bröndurum. Svalar ferðir Coot fíunnings-k Það skemmti- legasta við þessa mynd er lagið og að hún skuli vera byggð á sönnum heimildum. Það dugir þó vart sem afsökun fyrir bíóferð. HÁSKÓLABÍÓ Listi Schindlers Schindler's List-k-k-k-k Verðskulduð Óskarsverðlaunamynd Sþielbergs. Allir skila sínu besta og úr verður heljarinnar mynd. Meir að segja Polanski braut odd af of- læti sínu og fór á ameríska mynd (en hann er nú reyndar gyðingur og missti mömmu sína (hel- förinni). Beethoven 2 ★ Meira gelt en hlátur. Líf mitt MyLile ★★ Hugguleg tilraun til að búa til mynd um venjulegt fólk. í nafni föðursins In Ihe Name olthe Father kkkk Mögnuð mynd um réttarmorð í Eng- landi. Umdeild fyrir tilfærslur á smáum atriöum sögunnar en ísköld og sönn engu að síður. Örlagahelgi Dirty Weekendk Charles Brons- on í pilsi. Og akkúrat jafn ógeðfelldur og það hljómar. Vanrækt vor Det lorsömte lorar ★★ Dönsk saga um kennaraskandal. Ys og þys út af engu Much Ado About Not- hing kk Gott leikrit en ekki neitt sérstaklega góð mynd. LAUGARÁSBÍÓ Leiftursýn Blinkk Ágæt tæknivinna en engin hugsun. Dúmsdagur JudgementNightk Heiðarlegir og velmeinandi ameríkanar villast I frumskógi eigin heimaborgar. Og hitta óþjóðalýð sem undir það síðasta óskar sér að hann hefði ekki abbast upp á þá. Banvæn múðir Mother's Boys ★ Sálfræðitrill- ir með enga sál. Og litla spennu. REGNBOGINN Lævís leikur Maticek Sérdeilis bjánaleg mynd. Ætlar að gabba áhorfandann með því að byggja upp söguþráð en henda honum svo skyndilega og taka upp nýjan. Áhorfandinn gabbast ekki heldur móðgast. Píanú ★★★ Óskarsverðlaunaður leikur í að- al- og aukahlutverkum. Þykk og góð saga. Far vei, frilla mín Farwell My Concubine kkk Glæsíleg mynd. Germinal ★★ Leikur og tæknileg vinnsla er óaðfinnanleg en samt nær þessi hryllilega saga aldrei að veröa áhugaverð. Kryddlegin hjörtu Como Aqua Para Chocot- atekkk Ástir undir mexíkóskum mána. STJÖRNUBÍÓ Dreggjar dagsins Remains olthe Day kkkk Magnað verk. ekki handrit áöur en hann samþykkir að leika í Morðgáta á Manhattan Manhattan Murder þeim. Mystery ★★★ Allen er fyndinn I þessari mynd. Skuggi úlfsins ★ Hún er ekki ein af hans bestu en sannar að það er skemmtilegra að tímanum undir Allen-mynd en annars konar myndum. Fleiri pottormar Look Who's Thatking Now ★ Allir tala en fáir segja neitt fyndið. í kjölfar morðingja Striking Distance ★★ Bruce Willis við vanabundin skyldustörf. SÖGUBÍÓ The Joy Luck Club ★★★Indæl mynd um miöaldra kínverskar konur. í loftinu In the Air Up There k Mynd sem sannar það sem flesta hefur grunað. Kevin Ba- con kann ekki aö lesa. (það minnsta les hann FYRIR SVANGm Þeir sem eru svo svangir að þeir gætu dáið áður en kokkurinn væri búinn að útbúa forréttinn geta farið á Pisa í Austurstræti. Þar eru hreint ágætar brauðstangir alltaf á borðum og einhvers konar kryddsósa úr sýrðum rjóma sem bragðast ekki sem verst. Á meðan maður maular stangirnar fær kokkurinn færi á að klára forréttinn, maginn aðjafna sig og garnirnar að þagna. 32 MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1994

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.