Eintak - 30.03.1994, Blaðsíða 34
SÖLUBÖRN!
•E i N TA-K
óskar eftir sölubörnum í miðbænum, út-
hverfunum og út um allan bæ
Duglegir krakkar geta unnið sér inn góð-
an pening og verðlaun að auki
Komið og sækið EINTAK
eða fáið það sent heim
EINTAK
Vatnsstíg 4
101 Reykjavík
sími 1 68 88
10 páskaliljur kr. 695,-
5 “ 7p áskalilj ur,blandaðir
páskavendir
kr.
Páskaliljur í pottum
>-■ 195,-
6UIA
62 62 62
Þossi
er með vikulega fönk og sýru-
djassþætti á X-inu.
ÍO
Miðvikudass kvök 22-03.00.
Danshcéðin: DJ. Gcir 03
Gunni Tutti Frutti í
diskótekinu. Með
dúndrandi gleöitónlist
Bóhem: ^Örkin hans Nóa
ÚJék&uAJ
Cbkc
v/Vitatorg 9s: 628585
Pnpps
næsta trendið
Sýrudjass í sókn.
Vegir tískunnar eru órannsakan-
legir. Fyrir örfáum árum var djass-
inn á góðri leið með að lokast inní
konsertsölum og litlum sérhæfðum
klúbbum. t grófum dráttum voru
flokkadrættirnir hjá aðdáendum
þessarar tónlistartegundar
á þá leið að annað hvort
voru menn hreintrúaðir og
hlustuðu á bebop eða þeir
voru framúrstefnulegir og
hlustuðu á frjálsan djass
sem var þó ekkert sérstak-
lega framúrstefnulegur
lengur, hafði bara verið
það fyrir mörgum árum í
samanburði við bebopið.
Og staðreyndin var sú að
djassinn var eitt ólíklegasta
næsta trend innan tónlist-
arinnar sem hægt vara að
hugsa sér. En síðustu ár
hefur djassinn verið að
brjóta af sér stirðnaðan
búninginn í gegnum aðra
svarta tónlist, rappið. Nú
er svo komið að djassinn er
genginn í endurnýjun líf-
daga, ekki gamaldags hefð-
bundinn spuna djass, held-
ur svokallaður sýrudjass
sem er að verða einhver
mest hip tónlistin út í hin-
um stóra heimi. Útvarps-
maðurinn Þossi er viku-
lega með þætti á X-inu þar
sem hann spilar eingöngu
sýrudjass og fönk. Hans
leið að þessari tónlist var
einmitt í gegnum rappið:
„Þetta byrjáði með því að
maður heyrði brot úr þess-
um gömlu lögum sömpluð
inní lög yngri hljómsveita.
Maður varð forvitinn og
vildi fá að heyra meira og
leitaði þetta uppi. Það var
mesta gróskan í þessari
tónlist frá síðari hluta sjö-
unda áratugarins fram
undir lok þess áttunda.
Núna hefur verið í nokkurn tíma
töluverður samgangur milli yngri
manna og gamalla djasshetja og
menn hafa verið að spila sem gestir
hjá hvor öðrum. Svartir, reiðir ung-
ir menn segjast vera með þessum
hætti að ná djassinum til baka,
dusta af honum rykið, og setja
hann í þannig búning að fólk af
yngri kynslóðum skilji hann.“
Nýjungar eru alltaf þess eðlis að
þær hrista uppí gömlum gildum og
það vilja örugglega ekki allir grónir
djassaðdáendur skrifa uppá að þesi
tónlist flokkist sem djass. Það eru
samt alltaf einhverjir sem er fljótir
til að koma auga á hvar framtíðin
liggur. Snilld Miles Davis lá til
dæmis ekki síst í því hvað hann var
forspár og þótt Miles hafi dáið fýrir
tveimur árum var hann búinn að
gera plötur í þessum anda töluvert
áður en hann gaf upp öndina.
Sýrudjass er í rauninni mjög
breitt hugtak, í grófum dráttum er
þetta djasskennd, mjög danshæf
tónlist með þungum takti og sterkri
bassalínu. Þróunin er sú að menn
eru sífellt meir að færa sig frá tölv-
unum yfir í hefðbundin hljóðfæri,
samplerar og græjur þeirrar ættar
eru sem sagt á undanhaldi.
En hvar skyldi mesta gróskan í
sýrudjassi vera þessa daganá, gefum
Þossa aftur orðið.
„Það er mjög mikið að gerast í
Evrópu og þá einna helst í London,
en ferskustu hlutirnir koma ffá Jap-
an. Þar eru mörg mjög spennandi
og skemmtileg bönd og greinilega
mikil gróska í tónlistinni.“
Áhugasömum er bent á þáttinn
Þossi mótorfönk á X-inu á mið-
vikudögum milli klukkan 20.00 og
22.00. Þossi kynnir ekki lögin en
hlustendum er velkomið að hringja
á meðan útsendingu stendur og fá
upplýsingar um flytjendur. ©
Opið um páskana:
Skírdag 9-21
Föstudag lokað
Laugardag 9-21
9:.íl
Urvals páskaliljur úr eigin ræktun
Páskadag lokað
Annan í páskum 9-21
U#si VIRKAR! qp
HEFUR ÞÚ KYNNT ÞÉR MANEX TILBOÐIÐ?
MIÐVIKUDAGUR 30. MARS 1994