Eintak

Útgáva

Eintak - 11.08.1994, Síða 6

Eintak - 11.08.1994, Síða 6
EINTAK Gefið út af Nokkrum íslendingum hf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Framkvæmdastjóri: Árni Benediktsson Auglýsingastjóri: Örn ísleifsson Dreifingarstjóri: Pétur Gíslason HÖFUNDAR EFNIS í ÞESSU BLAÐI Alda Lóa Leifsdóttir, Andrés Magnússon, Björn Ingi Hrafnsson, Björn Malmquist, Bonni, Davíð Alexander, Gauti Bergþóruson Eggertsson, Glúmur Baldvinsson, Gerður Kristný, Hallgrímur Helgason, Huldar Breiðfjörð, Jói Dungal, Jón Óskar Hafsteinsson, Jón Kaldal, Loftur Atli Eiríksson, Óttarr Proppé, Ragnar Óskarsson, Sigurjón Kjartansson og Sævar Hreiðarsson. Setning og umbrot: Nokkrir íslendingar hf. Filmuvinnsla og prentun: Prentsmiðjan Oddi. Verð í lausasölu kr. 195. Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuði fyrir tvö blöð í viku. Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 10 prósenta afslátt. Sameiningarhug- myndir án stjórn- málahugmynda Niðurstöður skoðanakannana virðast hafa komið stjórnmála- mönnum í opna skjöldu á undanförnum dögum. Á sunnudag undruðust stuðningsmenn Jóhönnu Sigurðardóttur hversu lítinn stuðning hún fékk í Gallup-könnun. Á mánudag undruðust for- ystumenn annarra flokka hversu margir sögðust geta hugsað sér að kjósa Jóhönnu í DV-könnun. Sú könnun leiddi meðal annars til þess að forsætisráðherra blés haustkosningar af. Og í gærkvöld birt- ist enn ein könnunin sem sýndi að noldcur vilji er meðal almenn- ings til sameiningar á vinstri kanti stjórnmálanna. í kjölfar þessara tveggja síðartöldu kannana hafa hugmyndir um slíka sameiningu farið á flug. I sjálfu sér er full ástæða til að taka tillit til þessara niðurstaðna. En það er jafnframt full ástæða til að taka þær með varúð. í fyrsta lagi má benda á að þegar DV spyr um fylgi við einstaka flokka fær tilvonandi sérlisti Jóhönnu sáralítið fylgi. Þegar þátttakendur eru síðan spurðir hvort þeir geti hugsað sér að kjósa slíkan lista þá kveða rúm 30 prósent þátttakenda já við. Sökum þess hversu veikt þessi spurning er orðuð má allt eins segja sem svo að tæp 70 pró- sent landsmanna geti á engan hátt hugsað sér að kjósa Jóhönnu. Og þegar stór hluti þátttakenda lýsa yfir áhuga á sameiginlegum vinstri lista þá getur það allt eins borið vott um langþreytu þeirra yfir hin- um hefðbundnu flokkum. Og menn ættu að varast að draga sama- semmerld á milli niðurstöðunnar úr könnuninni nú og sambæri- legri könnun fýrir um ári síðan sem sýndi mikinn vilja til samein- ingar vinstri flokkanna í Reykjavík. Sú könnun leiddi til þess að flokkarnir sameinuðust um vinsælt borgarstjóraefni. Ef þingflokk- arnir sameinast er ekki að búast við því að þeir bjóði fram forsætis- ráðherraefni. Líldegra er að listarnir verði bræddir saman. Og slík bræðsla gefur ekki tilefni til að búast við viðlíka árangri og náðist í Reykjavík. Á undanförnum árum hafa ný framboð yfirleitt fengið mildð fýlgi í könnunum fyrst eftir að hugmyndir um þau koma upp. Þeg- ar fólki hefur síðan verið stillt á lista þessara framboða hefur lyst kjósenda á þeim minnkað. Á meðan þau eru enn ómótuð er tiltölu- lega ábyrgðarlaust að lýsa yfir stuðningi við þau. Á sínum tíma fékk Borgarafloldcurinn vel yfir 20 prósent í fyrstu könnunum eftir að stofnun hans var boðuð. Sömu sögu er að segja af Bandalagi jafn- aðarmanna. Bæði þessi framboð náðu hins vegar ekki nema um 8 til 10 prósenta fýlgi. Og það má jafnframt minna á að Kvennalistinn fór einu sinni yfir 30 prósentin í skoðanakönnun en hefur aldrei komist yfir 11 prósent í kosningum. Meira að segja Alþýðuflokkur- inn var risastór flolckur einu sinni — en aðeins í könnunum. En þrátt fýrir að taka beri kannanir sem gerðar eru þegar enn er langt til kosninga og engin kosningabarátta í raun hafin, hafa þess- ar þrjár kannanir haft mikil áhrif á forystumenn stjórnmálaflokk- anna. Forsætisráðherra las út úr þeim að hann var líklegri til að tapa haustkosningum en vinna. Þeir forystumenn á vinstri vængn- um sem lengst hefur dreymt um sameiningu þar hafa tekið þeim sem sterku vopni í sinni baráttu. Og aðrir forystumenn á þessum kanti sem hafa hingað til verið tregir í taumi hafa nú ljáð máls á einhvers konar sameiningu. Ef til vill væri réttast að taka þeim tíðindum fagnandi. En það er erfitt þegar ekkert virðist liggja að baki þessum sameiningarhug- myndum annað en væntingar um kosningasigur og að slíku fram- boði tældst að koma vænlegu höggi á Sjálfstæðisflokldnn. Elckert í málflutningi þessara flolcka bendir til að nú sé styttra á milli þeirra en oftast áður. í sjálfu sér væri gleðilegt ef vinstri menn hefðu komið auga á þær lausnir í þjóðfélagsmálum sem þeir gætu sameinast um. En ef þær lausnir eru einhvers staðar til þá eru þær ekki hafðar í hámælum. Af ummælum forystumanna vinstri flokkanna má ráða að þeir stefni á sameiningu nú einfaldlega vegna þess að nú er lag. © Ritstjóm og skrifstofur Vesturgata 2, 101 Reykjavík sími 1 68 88 og fax 1 68 83. Stefán Jón Hafstein ráðinn í Ráðhúsið Stefán naskur á að skynja umhverfið segir Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi. Stefán Jón ráðinn tímabundið til að kanna hvort þörf sé á að ráða aðila til að endurskipuleggja stjórn- sýslu í Ráðhúsinu. Árni Sigfússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, kallarþetta einkavinavæðingu. SlGRÚN MAGNÚSDÓTTIR „Stefán Jón er ekki ráðinn sem fagmaður til að breyta skipulagi borgarinnar heldur á hann að kanna jarðveginn. Hann var ráðinn fyrir opnum tjöldum og tilkynnti borgarstjóri um það fyrir hálfum mánuði." Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, hefur ráðið Stefán Jón Hafstein, fyrrverandi dag- skrárstjóra Rásar 2, til tímabundins verkefnis í Ráðhúsinu. Að sögn Sigrúnar Magnúsdóttur, borgar- fulltrúa, sem situr fyrir svörum í stað borgarstjóra sem er í leyfi, mun Stefán Jón fá þann starfa að gera úttekt á innanbúðarmálum í Ráðhúsinu, það er, þeim er tengjast almennri stjórnsýslu og boðskipt- um milli embættismanna og stjórnmálamanna. Árni Sigfús- son, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, hefur gagnrýnt þessa ráðningu og lagði fram spurningar varðandi hana á síðasta fundi borg- arráðs. Stefán Jón á að skynja andrúms- loftið, eins og Sigrún orðar það, og að því loknu ber honum að svara því hvort þörf sé á að borgarstjórn ráði sérlegt ráðgjafafýrirtæki til starfa, með það fyrir augum að endurskipuleggja stjórnsýsluna. „Stefán Jón er naskur að skilja umhverfið. Hann mun spyrja menn út úr hér innandyra í Ráð- húsinu og athuga alla starfshætti." Sigrún segir að ýmsar borgarstofn- anir hafi nýtt sér aðstoð ráðgjafa- Árni Sigfússon „Borgarstjóri hefur ráðið sér einkastarfsmann og einkavinur er ráðinn ráðgjafi. Mér skilst að fleiri ráðgjafar séu á leiðinni til handa öðrum borgarfulltrúum R-listans. Það sem ég vil fá að vita er, hvar endar þetta og hverjar eru forsendurnar fyrir slíkum ráðningum?“ Fjárlagagerð Samkvæmt upplýsingum úr fjár- málaráðuneytinu búast menn við tíu til tólf milljarða halla á fjárlög- um þessa árs. Nú stendur yfir vinna í ráðuneytunum vegna fjárlaga- frumvarpsins, sem lagt verður fram á Alþingi í byrjun október og þau boð hafa verið látin út ganga frá fjármálaráðuneytinu, að ríkiskerfið skuli rifa seglin. „Ráðuneytin hafa fengið þau skilaboð að rammi fjárlaganna á næsta ári verði smærri en í ár, þannig að það er ljóst að útgjalda- fyrirtækja eins og Rafmagnsveita ríkisins og Hitaveitan. Hún segir að ýmislegt megi bæta varðandi stjórnsýslu í Ráðhúsinu, til dæmis sé þar ekki unnið eftir skipuriti. „Á síðasta ári var komið á fót stjórnsýslunefnd sem ég hafði með- al annars barist lengi fyrir að stofn- uð yrði. Sú nefnd skilaði ekki miklu en athuganir hennar leiddu þó til þess að skipuriti borgarendurskoð- unar var breytt,“ sagði Sigrún. Minnihluti sjálfstæðismanna hefur gagnrýnt hvernig staðið hefur verið að ráðningu Stefán Jóns og einnig forsendur fyrir ráðningunni. Árni Sigfússon, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, segir að þeir i minnihlutanum séu búnir að bíða í hálfan mánuð eftir upplýsingum um þessa ráðningu. Hann segir að borgarstjóri hafi tilkynnt um þetta í lok borgarráðs- fundar fyrir tveimur vikum og þá hafi verið farið fram á nánari upp- lýsingar. Þær upplýsingar hafi þó ekki enn verið lagðar fram. Af þess- um ástæðum segist Árni hafa lagt fram spurningalista fyrir borgar- stjóra um forsendur ráðningarinn- ar. „Mér sýnist hafa orðið til ný skil- greining á hugtakinu einkavæð- ing,“ sagði Árni. „Það var jú sá hópur sem nú skipar meirihluta í borgarstjórn sem fann upp hugtak- ið einkavinavæðing og því ekkert óeðlilegt að þeirra fyrsta verk sé að nýta þetta hugtak. Borgarstjóri hef- ur ráðið sér einkastarfsmann og einkavinur er ráðinn ráðgjafí. Mér skilst að fleiri ráðgjafar séu á leið- inni til handa öðrum borgarfulltrú- um R-listans. Það sem ég vil fá að vita er, hvar endar þetta og hverjar eru forsendurnar fýrir slíkum ráðn- ingum? Sigrún Magnúsdóttir segir að Stefáni sé ekki ætlað að sinna stjórnsýsluráðgjöf heldur eigi hann einungis að komast að því hvort slíkrar ráðgjafar sé þörf. Varðandi svör Sigrúnar segist Árni telja það óvenjulegt að ráðinn sé andrúms- loftsskynjari til starfa hjá borginni. Hann bendir á að leysa megi at- vinnuleysisvandann í borginni með því að fá fleiri af atvinnuleysisskrá til að taka þátt í sérstöku átaki í að skynja andrúmsloftið. Aðspurð hvort ekki sé óvenjulegt að maður sé ráðinn til starfa til að lækkun verður allnokkur,“ segir Halldór Árnason hjá fjárlagaskrif- stofu fjármálaráðuneytisins. „Sam- kvæmt fjárlögum þessa árs átti hall- inn að verða 9.6 milljarðar króna, en þær upplýsingar sem við höfum núna benda til þess að hann verði á bilinu tíu til tólf milljarðar. Mark- mið næsta árs hljóðar upp á að halda hallanum neðan við níu milljarða markið, þannig að all nokkur niðurskurður verður að koma til, eigi það markmið að nást.“ kanna hvort hagkvæmt sé að ráða nýja aðila, segir Sigrún það mjög eðíilegt og sjálfsagt að nýir stjórn- endur athugi hvort gera megi betur hvað skipulag og stjórnsýslu varð- ar. „Sjálfstæðismenn, margir hverj- ir, og embættismenn telja sjálfir að margt megi betur fara, sérstaklega að stjórnsýslan megi vera markviss- ari,“ segir Sigrún. „Stefán Jón er ekki ráðinn sem fagmaður til að breyta skipulagi Samkvæmt spá Þjóðhagsstofn- unar um efnahagsástandið á næsta ári, verður hagvöxtur hér á landi um eitt prósent, þannig að einhver von er til þess að tekjur ríkisins hækki af þeim sökum. „Sú vinna sem nú fer fram í ráðu- neytunum miðar auðvitað að því að þau haldi sér innan fjárlaga. Hvert ráðuneyti er nú búið að fá viðmið- unarramma fýrir næsta ár og það er ljóst að til þess að komast inn í þann ramma, þarf að draga nokkuð úr útgjöldum,“ segir Halldór. 0 borgarinnar heldur á hann að kanna jarðveginn. Hann var ráðinn fyrir opnum tjöldum og tilkynnti borgarstjóri um það fýrir hálfum mánuði. Þessi vinnubrögð tíðkuðust ekki hjá sjálfstæðismönnum, í tíð Mark- úsar Arnar var til dæmis Inga Jóna Þórðardóttir ráðin sem verktaki. Við í minnihlutanum fréttum ekki af því fýrr en hálfu ári eftir að hún lauk störfum.“ © Opið svar við fyrirspurn Kjartans Valgarðssonar Kjartan Valgarðsson skrifaði bréf í Morgunblaðið í gær eftir að hafa lent í þeirri reynslu að blaðamaður EINTAKS sem jafn- framt er sonur formanns Al- þýðuflokksins hringdi í hann og spurði hann um hugsanlegt sameiginlegt framboð vinstri manna með Jóhönnu Sigurðar- dóttur. I lok hugleiðinga hans ber hann fram tvær spurningar, annars vegar hvaða reglur gildi um tengsl blaðamanna við um- fjöllunarefni sín og hins vegar hvort eðlilegt geti talist að sonur formannsins hafi hringt í sig. Svarið við fyrri spurningunni er: Engar umfram heilbrigða skyn- semi. Og við seinni spurning- unni: Já. Ritstj. Stefriir í tíu til tólf milljarða halla Búist við all nokkrum niðurskurði á næsta ári 6 FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1994

x

Eintak

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.