Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 11.08.1994, Qupperneq 26

Eintak - 11.08.1994, Qupperneq 26
ÉQ VEIT PAÐ EKKI HALLGRIMUR HELGASON Dótaskápnum. Ég man allt í einu eftir þessum heimsviðburði þegar við sitjum á Kaffibarnum, nokkur óstrekkt and- lit, og talið beinist að lýtalækning- um eins og oft vill verða þegar fleiri en tveir koma saman. Við erum bara nokkuð ánægð með ráðahaginn en hörmum þó að á sínum tíma hafi ekki gengið sam- an með megastjörnunni og Önnu Mjöll. Mægðir Jacksonanna og Gaukanna. Það hefði orðið stærsta landkynning Islandssögunnar, en að vísu þýtt miklar fórnir fyrir okk- ur. Ríkisstjórnin hefði þurft að leggja fram 140 milljónir dollara í heimanmund. Það hefði nú samt verið þess virði. En það hefði samt aldrei gengið, og alls ekki eftir að hin íslenska söngkona stal frá hon- um bassalínu og notaði í síðustu Eurovision, eins og Dóra Takef- usa bendir á. Og hún var nú í nefndinni. Sem sagt. Presley var það. Ævin- týrin gerast enn. Síðan veltum við fyrir okkur væntanlegum erfmgja þessara tveggja konungsríkja, hvort hann verði rokkari eða diskóbolti, hvítur eða svartur. I ljósi fortíðar föðurins höllumst við helst að tæknifrjóvg- un og Húbert Nói er á því að notuð verði húðfruma úr fingri Michaels til að tryggja hvitan ávöxt. Þó læknavísindin séu orðin nokkuð langt leidd er vísast að sæði Jack- sons sé ennþá svart. Mér hefur alltaf verið fremur hlýtt til Michaels Jacksons, þessa (kannski full mikla) barnavinar, sem í raun er eina tótal séníið sem nú er uppi (og giftingin sannar enn á ný) og hef ég alltaf reynt að verja hann í óvinahópi. Á sínum tíma eyddi ég meðal annars tveimur vik- um í (enn óbirta) þýðingu á ljóði hans um Billie Jean. Hér er sýnis- horn: Hún var bæði mjög sæt og synd, (sena úr bíómynd). Ég meinti vá, en hún meintiþá, að ég yrði sá sem byði í dans, sér uppí skans, í strákafans. Hún sagði að ég væri sá er sýndi dans, þann óla skans, með mestum glans. Hún bað um eld oghét Billie Jean og bauð mér vín. Þar snerust augu, hver háls oghaus oghjarta fraus. Þeir áttu ei séns, íþetta kvens, til dæmis Jens. Billie Jean er ekki mín. Hún bara segir, éghafi sofíð hjá sér. En barnið er ei bólað af mér. svarta mannsins“, eins og Anna Mjöll, en ég gerði þó tilraun á sín- um tíma og hringdi bjöllunni við heimili hans, sem þá var, í Encino í San Fernando-dalnum við L.A., en var fremur fálega tekið af lífverði meistarans sem hrakti mig í burtu með klúryrðum í dyrasíma. -Fuck off!“ -Voff!“ svaraði ég áður en ég hrökklaðist burt með skottið á milli lappanna. Ég taldi það mína einu von: Að bregða mér í dýralíki. En Mikjáll bjó þá enn í stórhýsi for- eldra sinna, þeirra Katrínar og Jóseps, ásamt lamadýrinu Musc- les og simpansanum Knuckles (Vöðvar og Hnúar!) og var ekki kominn útí það sem hann síðar var þekktur fyrir. Smám saman fikraði hann sig svo með sínar bólþarfir úr dýraríkinu og yfir til eigin tegund- ar, og hvað var þá eðlilegra en að byrja neðst í skalanum? Nú er hann hins vegar loksins búinn að ná -eðlilegum aldri“ og -réttu kyni“ á sinn bólfélaga sem hlýtur að kæta streitarana í Ameríku, þó félagar i Ku Klux Klan telji sig tekna aftanfrá með þessum óvænta ráðahag eins og Húbert bendir á. Michael Jackson er semsagt kominn útúr dótaskápnum og orð- inn kvæntur maður. Eða hvað gerir maður þegar löggan í L.A. er búin að ljósmynda á manni tittlinginn? Þá er aðeins eitt að gera: Að ná sér í það sem eitt sinn flaut úr næst- frægasta tittlingi í heimi.O listiön, hönnun og byggingarlist. Þetta er mjög athygllsverð sýning og greinilega mikil vinna á bak viö heimildasöfnunina. Heidi Kristiansen sýnir textílmyndteppi í Perlunni. Verkin eru alls 18 talsins og eru unnin með quilt- og applikasjónstækni. Nýlistasafnið sýnir myndlist í öllum mögu- legum vistarverum og á laugardaginn verður opnuö í setustofu satnsins sýning á verki Lilju Bjarkar Egilsdóttur. Verkið nefnist Miðar, pjötlur, snifsi og er unnið beint á veggi setu- stofunnar. „Þetta er skítug plata og jafnvel dálítið „sleazy“ á köflum. Betri en hægt er að búast við af mönnum á þeirra aldri. Það er verst að Rolling Stones koma héðan af til með að standa í skugganum af sjálfum sér.“ Popp ÓTTARR PROPPÉ Gamlir, góðir og voða geggjaðir Rolling Stones: Voodoo Lounge ★ ★★★ Það er alveg gegndarlaus helling- ur af öfum og ömmum í rokkinu þessa dagana. Einhver öruggasta leiðin til vinsælda í dag er annað hvort að vera kominn á ellilauna- aldurinn, sjá Tinu Turner, Johnny Cash, Bee Gee’s, eða þá í það minnsta að líta út fyrir það, saman- ber McCartney og Sting. Rolling Stones hljóta þó að teljast ömmur allra rokkafanna til samans. Þeir bræður hafa hjakkað saman í þetta rúmlega þrjátíu ár og eru enn rokk- aðri en aðrir menn. Á þessum árum hafa þeir öðlast slíka heimsíf ægð að það hálfa væri nóg. Jafnvel strák- greyin úr Bítlunum, sem sömdu einmitt fyrsta Stones-hittarann (skemmtileg tilviljun það), eru farnir að missa frægðarljómann meðan Bravó og önnur gelgjurit hamast við að gefa út plaköt af Ri- chards með rettuna og Jagger berum að ofan. Það er kannski þessi óhemju frægð sem eyðileggur dálítið fyrir manni þessa nýjustu af- urð þeirra bræðra. Það kunna allir utan að sögurnar um fylleríið, dóp- ið, dauðsföllin og grúppíurnar að ógleymdum þessum sandi sem drengirnir hafa samið af ldassískum rokkslögurum. Maður má eiginlega ekki heyra á Rolling Stones minnst öðruvísi en að eitthvað úr fortíð- inni rifjist upp. Nýja platan með Stones æsir helst upp í manni löngun til að tína fram eldri plötur sveitarinnar. Ekki þar með sagt að Voodoo Lounge sé ekki arfagóð skífa. Stones eru dálít- ið mikið að herma eftir sínum yngri árum sem hlýtur að vera göf- ug iðja ef marka má fjölda þeirra hljómsveita sem lifa góðu lífi á því sama þessa dagana. Hér er ekki mikið um nýjungar á sveimi. Bara gamla góða stuðið í betra sándi. Þó að Bill Wyman hafi lagt bassanum til að svamla í laug- inni sinni og telja peninga, og yngri sé spekingur tekinn við, heyrist það varla. Bassagúrúinn Darryl Jones spilar bara alveg eins og Wyman. Það ánægjulegasta við þessa skífu er að Stones eru farnir að líta aftur til gullaldarára sinna fyrir 1970. Mús- íkin á meira að þakka blús og kántrí en leikvangarokkið sem einkennt hefur síðustu plötur. Fyrir vikið njóta hljóðfæraleikararnir sín betur og þá sérstaklega meistari Charlie Watts sem gælir við húðirnar eins og ástsjúkur nuddari á tælenskri ópíumbúllu. Þetta er skítug plata og jafhvel dálítið „sleazy“ á köflum. Betri en hægt er að búast við af mönnum á þeirra aldri. Það er verst að Rolling Stones koma héðan af til með að standa í skugganum af sjálf- um sér. Yngri hljómsveit færi langt á svona grip. © Rolluhjakk! Kiss: Kiss My Ass ® Það er orðin lenska í útlandinu að gefa út plötur þar sem ungir popparar fá að riðlast á minnigu goða sinna með því að taka mis- góðar útgáfúr af uppáhaldslögum sínum með viðkomandi goði. Þess- ar útgáfur seljast eins og heitar lummur svo manni dettur helst í hug að þær séu gefnar út til að efna eftirlaunasjóði hjá gengi sem fyrir veit ekki aura sinna tal. Hvað um það. í þetta skiptið eru það teikni- myndafígúrurnar í Kiss sem verða fyrir barðinu á tólf hljómsveitum, hljómsveitum jafn gerólíkum hver annarri og þær eru Kiss. Þetta var reyndar reynt fyrir nokkrum árum en seldist þá ekkert. Nú þegar verið er að prófa þetta aftur, selst gripur- inn í bílförmum. Þrátt fyrir þann algenga mis- skilning að Kiss hafi bara verið heimskuleg auglýsingabrella, sem eflaust stafar út frá búningunum, málningunni og almennum aula- hætti sveitarmeðlima, þá er stað- reyndin sú að sveitin gaf út sæg af dúndurfínum rokkperlum á ferlin- um. Þessum glæsta ferli er reyndar langt frá því lokið svo manni dettur í hug að útgefendur ættu frekar að eyða sínu púðri í næstu Kissplöt- una en svona bull. Það er fátt sem stendur hér upp úr. Sýruhausinn Lenny Kravitz á reyndar dáfína út- gáfu af Deuce og Garth Brooks tekst að taka Hard Luck Woman því sem næst alveg eins og Kiss tóku það á sínum tíma. En til hvers? Helsti glaðningurinn á Kiss My Ass er þegar þýska stórsveitin Die Arzte syngur Unholy af síðustu plötu Kiss á þýsku: Unheilig. Voða gaman og álíka fýndið og þýskir fjölskylduþættir í sjónvarpinu með íslensku tali. Svona plötur á að banna og gefa út alvöru safnplötur með snillingum. Kiss eru reyndar búnir að því fyrir nokkru. Sú heitir Smashes Thrashes & Hits og fær hér með þær fjórar stjörnur sem hún á skildar ★★★★. íslandsvin- irnir í Kiss voru hörkurokkarar og eru það enn. Þessi plata nær varla að impra á þeirri staðreynd. © Sjónvarp SIGURJÓN KJARTANSSON í geimferðahug Tunglganga 1 25 ÁR Ríkissjónvarpinu ★ ★★★ Um þessar mundir eru liðin tutt- ugu og fimm ár frá því að jarðarbú- ar stigu fyrst fæti á tunglið. I tilefni af því sýndi Ríkissjónvarpið ágætan bandarískan þátt frá CBS um þenn- an sögulega viðburð. í þættinum var rakin saga þessarar gullaldar NASA, þegar kalda stríðið var í blóma og peningum var mokað í geimferðir. Rætt var við nokkra sem áttu hlut að máli, svo sem „Mest var þó gaman þegar menn fóru að tala um framtíðina og þá sat helst fyrir svör- um sköllóttur geimfari sem að minnti helst á Dr. Spock í útliti.“ „Sýruhausinn Lenny Kravitz á reyndar dá- fína útgáfu af Deuce og Garth Brooks tekst að taka Hard Luck Wo- man því sem næst al- veg eins og Kiss tóku það á sínum tíma. En til hvers?“ geimfara (það er að segja, þá sem eru enn með réttu ráði), mennina sem tóku þátt í smíði geimflaug- anna og þá sem stjórnuðu fram- kvæmdinni. Þetta var allt saman í hæsta máta fróðlegt, svo ég tali nú elcki um þegar sjálfur Carl Sagan fór að láta móðan mása. Seinni helmingur fór síðan í að rifja upp hvað gerst hefur í geimferðamálum undanfarið, Challenger-slysið kruf- ið til mergjar og svo framvegis. Mest var þó gaman þegar menn fóru að tala um framtíðina og þá sat helst fyrir svörum sköllóttur geimfari sem að minnti helst á Dr. Spock í útliti. Þesi frábæri geim- karl sagðist eiga sér þann draum heitastan að verða sendur með las- ergeisla út í geiminn. Já, það er ljúft að láta sig dreyma og þessi þáttur gaf svo sannarlega tilefni til hinna fegurstu draumfara. Til dæmis um það má geta þess að nú eru menn að gera tilraunir með að senda ómönnuð geimför til Mars og eru þessi geimför svo þægileg og meðfærileg að fram- kvæmdin ætti ekki að kosta nema um það bil 200 milljónir Banda- ríkjadala (þegar að fyrsta geimfarið fór til Mars kostaði framkvæmdin um 3000 milljónir). Þetta hlýtur að vera stórkostleg bylting og ætti að auðvelda rannsóknir á Mars til muna. Hver veit þá nema að einn góðan veðurdag getum við farið og fengið okkur hádegismat á tungl- inu og kvöldmat á Mars! © BÍÓBORGIN Eg elska hasar I Love Trouble ★ Fullkomlega fyrirséður söguþráður um ástir milli blaða- manna á Mogganum og DV. Og álíka spennandi og það hljómar. Hið undirförula plott efnaverk- smiðjunnar dugir ekki til að hressa upp á leiðin- legt ástarlíf þessa lólks. Maverick ★★ Bíómynd byggð á sixtfs sjón- varpslöggunni sem skaut allt í tætlur. Blákaldur raunveruleiki Reality Bites ★★★ Góð skemmtun fyrir unglinga. Hvað pirrar Gilbert Grape What’s Eating Gilbert Grape ★★★ Ein af þessum myndum sem maður gleymir sér ytir. BÍÓHÖLLIN Maverick ★★ Jody Foster skýtur James Garner og Mel Gibson ref fyrir rass (þessum grínvestra sem er lengri en hann er fyndinn. SteinaldarmennirnirThe Flintstones ★ Eftir hina ájptu sendingu frá steinöld í Júragarðin- um ke'mur hér ein mjög vond. Manni verður nánast illt í veskinu að sjá jafn mörgum milljón- um kastað á glæ. Ace Ventura ★★★ Davíð Alexander, 9 ára gagnrýnandi EINTAKS, segir myndina fyndna. Fullorðnir geta hlegið með góðum vilja. Lögregluskólinn — Leyniför til Meskvu Police Academy — Mission to Moscow. ★ Yf- irþyrmandi vitleysa sem er alltaf sjaldan skemmtileg. Járnvilji Iron Will ★★ Ævintýramynd frá Walt Disney sem fær mann til að velta fyrir sér hvers vegna leiknu myndirnar frá fyrirtækinu eru svona miklu verri en teiknimyndirnar. Ef til vill eru þær búnar til í allt annarri deild. HÁSKÓLABÍÓ Fjögur brúðkaup og jarðarför Four Wedd- ings and a Funeral ★★ Hlýleg mynd f gaman- sömum tón um ástir og heitbindingar. Þrátt fyrir nokkurt erfiði nær hún aldrei að verða mjög skemmileg. Steinaldarmennirnir The Flintstones ★ Mis- lukkuð skemmtun sem verður nánast óbærilega leiðinleg þegar á líður. Flest barnanna hefðu frekar kosið teiknimyndirnar. Veröld Waynes 2 Wayne’s World 2 ★★★ Sannkölluð gleöimynd. Löggan í Beverly Hills 3 Beverly Hills Cop 3 ★ Það er löngu komið í Ijós að Eddie Murphy er einnar hliðar maður. Ef maður snýr honum við þá er sama lagið hinum megin. Brúðkaupsveislan The Wedding Banquet ★★ Gamanmynd um homma í felum. LAUGARÁSBÍÓ Krákan The Crow ★★ Mynd fyrir áhugamenn um rokk, dulrænu, teiknimyndir og annað þess- legt. Serial Mom ★★★ Fyndin og bara rétt mátu- lega geggjuð svo ýmsir aðrir en einlægir John Waters-aðdáendur geta haft gaman af. Ögrun Sirens ★★ Innihaldslaus og snubbótt saga sem hefði mátt klára fyrir hlé. Þótt sumar kenurnar séu full jussulegar geta karlar skemmt sér við að horfa á prestsfrúna. Og konurnar á Hugh Grant. Þessi tvö eiga stjörnurnar. REGNBOGINN Flóttinn The Getaway ★ Þeir sem sáu Steve MacQuinn á sínum tíma munu fussa yfir Alec Baldwin þrátt fyrir að hann keyri hraðar, skjóti meira og að Kim Basinger sé kyssilegri en Ali McGraw. Svínin þagna The Silence of the Ham ® Steypa. Gestirnir Les Visiteurs ★★★ Frönsk della 26 FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST 1994

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.