Vikublaðið


Vikublaðið - 18.03.1993, Síða 1

Vikublaðið - 18.03.1993, Síða 1
Rflásstjómin sviðsetti Landsbanka- fárið tíl að bjarga Islandsbanka Á þriðjudaginn sviðsetti ríkisstjórnin uppákomu þar sem hún frestaði þingfundum Alþingis og skaut á neyðarfundi undir því yfirskini að koma þyrfti Landsbanka Islands snar- lega til bjargar. I nokka tíma hélt þjóðin að stærsti banki landsins væri að fara á hausinn og menn biðu milli vonar og ótta eftir niðurstöðu ríkisstjórnarfundarins í Stjórnarráðinu. En það var ekkert sem knúði á um skyndilausn á málum Landsbankans. Engar nýjar upplýsingar um stöðu bankans höfðu litið dagsins ljós. Ríkisstjórnin þurfti tilefni til að leggja fram frumvarp um stuðning ríkissjóðs við illa staddan banka. Sá banki var hins vegar ekki Landsbankinn heldur hinn einkavæddi Islandsbanki. Frumvarpið sem ríkisstjórnin smíðaði á skyndifundi sínum er í sjö greinum og aðeins ein fjallar um Landsbankann. Hinar sex fjalla um Tryggingasjóð við- skiptabankanna sem verður veitt heimild til að taka að láni erlend- is allt að þrjá milljarða króna með ríkisábyrgð, en aðeins einn milljarður á að renna til Lands- bankans. Það er vitað að íslands- banki er illa staddur vegna tap- aðra útlána. Það er hinsvegar pólitískt mjög erfitt fyrir ríkis- stjómina að koma til Alþingis og biðja um stuðning við íslands- banka sem er flaggskip einka- væðingarinnar og tengist helstu áhrifaaðilum í Sjálfstæðisflokkn- um. Með því að'fá frumvarp um aukið hlutverk Tryggingasjóðs viðskiptabankanna samþykkt með hraði er ríkisstjómin að búa í haginn fyrir Islandsbanka svo að hann geti sótt um stuðning sjóðsins eftir nokkrar vikur. Þegar búið er að samþykkja frumvarpið mun Tryggingasjóð- ur viðskiptabankanna hafa tvo milljarða til ráðstöfunar. Strax daginn eftir neyðarfund ríkis- stjórnarinnar gaf Valur Valsson, bankastjóri íslandsbanka, út þá yfirlýsingu að vegna „samkeppn- isstöðu bankanna“ væri nauðsyn- legt að ríkisstjómin kæmi einnig til móts við aðra banka. Leikflétta ríkisstjórnarinnar gengur út á það að fá frumvarp um Tryggingasjóð viðskipta- bankanna samþykkt undir því yf- irskini að bjarga þurfi Lands- bankanum. En það er rangt því að Landsbankinn er ekki í neinni hættu. Bankinn er með góða lausafjárstöðu og eiginfjárstöðu upp á sex milljarða. Samkvæmt upplýsingum Vikublaðsins var eiginfjárstaða bankans 8,3 pró- ,sent en alþjóðareglur kveða á um 8 prósent eiginfjárhlutfall. Mörgum þótti í meira lagi kyndugt að bankastjórar Lands- bankans voru víðs fjarri þegar ríkisstjómin fjallaði um málefni bankans á neyðarfundi. Viku- blaðið hefur heimildir fyrir því að Jón.Sigurðsson viðskiptaráð- herra hafi á þriðjudagsmorgun átt samtal við bankastjóra Lands- bankans og ekki látið neitt uppi um áform ríkisstjórnarinnar. Þvert á móti hafi Jón sagt banka- stjórunum að ríkisstjómin væri ekki með í bígerð aðgerðir til að taka á málum bankans. Þegar ósköpin dundu svo yfir eftir há- dagi á þriðjudag hafi þrír banka- stjórar Landsbankans setið eins og illa gerðir hlutir á skrifstofum sínum og fylgst með athöfnum ríkisstjórnarinnar í gegnum síð- degisþætti útvarpsstöðvanna. Starfsaðferðir ríkisstjómarinn- ar enr til þess fallnar að rýra traust erlendra bankamanna á ís- lensku efnahagslífi. Það gæti orðið til þess að lánskjör íslend- inga versnuðu á erlendum pen- ingamörkuðum og kostuðu okkur stórfé vegna hærri vaxta- greiðslna. Um síðustu helgi birti Morgunblaðið opnugrein þar sem harkalega er vegið að Jóni Sigurðs- syni iðnaðarráðherra. Jón er sakaður um fordild og hégóma, að sniðganga aðra ráðherra og ætla að þjösnast með mál í gegnum ríkisstjórn og þingið, að gefa iðnaðinum opinbert fé og fara með ósannindi. Allt bendir til þess að atlagan sé gerð fyrir tilstilli einhvers eða einhverra ráðherra. Miklir hagsmunir eru í veði og Morgunblaðið hefur tekið að sér að verja hið opin- bera gegn ásókn atvinnugreinanna í sjóði almennings. Morgunblaðið hefur tekið að sér að verja almannahagsmuni gegn ásókn sérhagsmuna atvinnugreinanna í opinbera sjóði. Styrmir Gunnarsson ritstjóri Morgunblaðsins. Tilefnið fyrir ásökunum á hendur Jóni Sigurðssyni er áætl- un hans um að stofna fjárfest- ingabanka iðnaðarins með því að slá saman Iðnlánasjóði og Iðn- þróunarsjóði. Nýi bankinn yrði hlutafélagsbanki í eigu samtaka iðnaðarins annarsvegar og hins- vegar ríkisins. Jón er sagður ætla að reisa sér pólitískan minnisvarða með því að gangast fyrir stofnun fjárfest- ingabankans. Hann er sakaður um að fara á bakvið ríkisstjórn- ina með því að ræða ekki þessi áform á þeim vettvangi. í frétta- skýringu Morgunblaðsins eru endursögð samtöl sem Jón Sig- urðsson átti við aðra ráðherra og þótt ekki sé það sagt berum orð- um er vart hægt að komast hjá þeirri ályktun að samráðherrar Jóns hafi tekið undir ásakanir Morgunblaðsins, Á ráðstefnu sem samtök fé- lagsmálastjóra. á Islandi gekkst fyrir á mánudag og þriðjudag var fjallað um liðveislu við fatl- aða og sjálfræðishugtakið. Að- alsteinn Sigfússon félagsmál- astjóri Kópavogs birti þar sam- antekt sína um það hvernig sveitarfélögin standa sig í lið- veislunni. Nokkur sveitarfélög Fréttaskýringin í sunnudags- blaði Morgunblaðsins er engin venjuleg afgreiðsla á frétt eða fréttatengdu efni. Stjómendur Morgunblaðsins, ritstjóramir Styrmir Gunnarsson og Matthías Johannessen, hafa ákveðið að taka iðnaðarráðherra á beinið. Blaðamaðurinn sem er skrifaður fyrir fréttinni, Agnes Bragadóttir, er „ritstjórablaðamaður" Morg- unblaðsins. Agnes er sett í þau mál sem ritstjóramir bera sér- staklega fyrir brjósti og er um- hugað um að*fái „rétta“ meðferð. Dæmi urp það er þegar Agnes vann langar og ítarlegar frétta- skýringar um kvótamálið og ftsk- veiðistjómunina, þótt annar blaðamaður Morgunblaðsins, Hjörtur Gíslason, sé sérfræðing- ur blaðsins í sjávarútvegsmálum. Agnes skrifar ritstjóralínuna inn í fréttir blaðsins. skera sig úr að því leyti að þau verja ekki einum eyri til þessa málaflokks. Það eru Akranes, Akureyri, Hveragerði, Ólafs- fjörður og Sauðárkrókur. Grindavík ver áberandi mest til liðveislu, eða 515 krónum á íbúa á ári, og Selfoss er í öðm sæti með 411 krónur. Þá eru Dalvík, með 267 krónur á íbúa, og Höfn Upp á síðkastið hefur Morgun- blaðið boðað að ríkisstjórnin skuli fara sér hægt í því að hrófla við bankakerfinu. I Reykjavíkur- bréfi blaðsins 6. mars síðast lið- inn er lagt að ríkisstjóminni að leggja til hliðar, a.m.k. um sinn, áform um að einkavæða ríkis- •bankana. Þegar ritstjórar Morg- unblaðsins horfa síðan upp á það að Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ætlar að ger- breyta fjárfestingalánasjóðum at- vinnugreinanna, hefur Morgun- blaðinu þótt kominn tími til að láta ráðherrann fá til tevatnsins. Það undarlega við þetta mál er að bandamenn Morgunblaðsins í ráðherraliðinu hafa ekki stigið fram og lýst sig andvíga áform- um Jóns Sigurðssonar um fjár- festingabanka iðnaðarins. Morgunblaðið reynir að draga fleiri aðila inn í málið til að tor- Bragi Guðbrandsson aðstoð- armaður félagsmálaráðherra: Vegna smœðar sveitarfélag- anna eiga þau erfitt með að uppfylla lagaskyldur um lið- veislu til fatlaðra. tryggja það. í fréttaskýringunni segir að stjórnarmenn í Iðnlána- sjóði og Iðnþróunarsjóði hafi ekki fengið vitneskju um fyrir- ætlan Jóns Sigurðssonar. Stað- reyndin er sú að Jón undirbjó ntálið í fullu samráði við for- svarsmenn samtaka iðnaðarins. Það er hagur iðnrekenda'að fá til sín stóran hlut í öflugum fjárfest- ingabanka. Þórleifur Jónsson, framkvæmdastjóri Landssam- bands iðnaðarmanna, segist reyndar líta svo á að ríkisstjórnin hafi þegar samþykkt að stofna fjárfestingabanka iðnaðarins. Verkalýðshreyfingin á kröfu í fjárfestingabankann Morgunblaðið óttast að verði slíkur banki að veruleika muni hinar stóru atvinnugreinarnar, sjávarútvegur og landbúnaður, gera kröfu um að fá með sam- bærilegum hætti til sín Fisk- veiðasjóð og Stofnlánadeild landbúnaðarins. Sjóðirnir eru að mestu eða öllu leyti í eigu rikis- sjóðs, en atvinnugreinamar gera tilkall til þessara fjármuna. með 213 krónur á íbúa langt yfir meðaltalinu, sem er 129 krónur á íbúa. Reykjavík er talsvert undir því, en í höfuðborginni er varið 88 krónum á hvern íbúa til liðveislu við fatlaða. I máli Braga Guðbrandsson- ar, aðstoðarmanns félagsmála- ráðherra, kom fram að nijög vandasamt væri að skýra þetta ákvæði laganna. Þjónustan ætti að vera persónubundin eftir þörfum hvers fatlaðs einstakl- ings. Hinsvegar væru mörg sveitarfélög svo smá að þau gælu ekki sinnt þessu hlutverki sem skyldi. Bragi taldi að í framtíðinni þyrfti að fela sam- vinnufélögum fatlaðra að reka þessa þjónustu og veita þeim fjármagn til þess. Á síðustu árum hefur Morgun- blaðið í slauknum mæli tekið að sér að gæta hagsmuna hins opin- bera og almennings, samanber baráttublaðamennsku Morgun- blaðsins gegn því að útgerðin fái úthlutað veiðiheimildum endur- gjaldslaust. Morgunblaðið hefur fyllt út í valdatóm sem myndast hjá hinu opinbera gagnvart stóru atvinnugreinunum. Verkalýðshreyfingunni hefur ekki tekist að móta sameiginlega stefnu til mótvægis við hags- munapólitík atvinnugreinanna. Lauslegar fyrirspurnir um af- stöðu verkalýðshreyfingarinnar til stofnunar fjárfestingabanka iðnaðarins benda til þess að mál- ið hafi lítið verið rætt á þeim vett- vangi. Þetta er þó að breytast því að í gær afhenti Benedikt Dav- íðsson, forseti ASÍ, ríkisstjórn- inni kröfu um að samtök launa- fólks verði ekki sniðgengin þegar fjárfestingabankar atvinnuveg- anna verða stofnaðir. Ákveðin rök eru fyrir því að samtök verkafólks fái eignarhlut í sjóði sem yrði stofnaður upp úr Iðnlánasjóði. Iðnrekendur hafa greitt í Iðnlánasjóð og það fram- lag dregist frá þeim hagnaði sent skiptist á milli eigenda fyrirtækja og starfsfólks. Ef iðnfyrirtæki hefðu ekki greitt í sjóðinn hefði rneira verið til skiptanna og starfsfólk fengið hærri laun. I kjarasamningum segja at- vinnurekendur að reksturinn beri svo og svo mikinn kostnað og laun starfsfólks verði að taka mið af því. Iðnrekendur telja sig hafa náð samkomulagi við ríkisstjórn- ina unt að fá 40% eignarhlut í nýjum íjárfestingabanka iðnað- arins, á grundvelli framlaga til Iðnlánasjóðs sem iðnrekendur hófu að greiða árið 1963. Iðn- lánasjóðsgjaldið var fært sem kostnaður í bækur iðnfyrirtækja. Ef þessi kostnaður verður núna að eign er eðlilegt og sanngjamt að iðnverkafólk og samtök þeirra fái hlutdeild í eigninni. Er Friðrik í óvirkri andstöðu? Ríkisstjórnin á að gæta al- mannahagsmuna og að Davíð Oddssyni forsætisráðherra frá- töldum stendur það upp á Friðrik Sophusson fjármálaráðherra að verja fjármuni hins opinbera fyrir ásókn sérhagsmunaaðila. Opin- berlega hefur Friðrik verið að- gerðalaus og ekki andmælt ein- leik Jóns Sigurðssonar í málefn- um fjárfestingasjóðanna. Þögn Friðriks varð hrópandi þegar hann lét hjá líða að taka þátt í umræðum á Alþingi í byrjun vik- unnar þar sem framganga iðnað- arráðherra var rædd. Ólafur Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, hóf umræðuna en af hálfu stjórnar- liða tóku aðeins Davíð Oddsson og Jón Sigurðsson til máls. Davíð lýsti yfir stuðningi við Jón en gerði það almennum orðum og forðaðist eins og heitan eldinn að fara út í efnisatriði málsins. Það er ekki ósennilegt að Frið- rik Sophusson hafi veitt Morgun- blaðinu upplýsingar um það hvernig Jón Sigurðsson hefur unnið að undirbúningi stofnunar fjárfestingabanka iðnaðarins. Davíð Oddsson liggur líka undir grun því að í fréttaskýringunni er sagt frá tveggja manna tali þeirra Davíðs og Jóns Sigurðssonar. Þegar liðsoddar ríkisstjómar- innar þurfa að fara í fjölmiðla til að stöðva einleik einstakra ráð- herra er ekki mikið að marka þau orð forsætisráðherra að traust og samvinnuhugur einkenni starfs- háttu ríkisstjórnarinnar. pv Ekkí eyrir í liðveislu við fatlaða Grindavík ver 500 krónum á hvem íbúa meðan mörg önnur sveitarfélög gera ekkert Geysilegur munur er á því hversu miklu fé sveitarfélögin verja til svokallaðrar liðveislu við fatlaða. Samkvæmt lög- um um málefni fatlaðra frá árinu 1991 eiga sveitarfélög „eftir föngum“ að veita fótluðum aðstoð til þess að rjúla fé- lagslega einangrun. Áður gekk aðstoð af þessum toga undir heitinu tilsjón, en hún getur falist í hjálp til fatlaðra við að komast á milli staða og sinna erindum, sækja vinnu og jafn- vel stunda nám.

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.