Vikublaðið


Vikublaðið - 18.03.1993, Side 12

Vikublaðið - 18.03.1993, Side 12
VIKUBIAÐIÐ ♦ «1. TOLUBLAÐ 2 ÁRGANGUR 18 MARS 1993 ÞREFALDUR 1. vinningur Sundlaug Glerárskóla Gallar Sundlaug Glerárskóla á Akureyri átti langa og erfiða með- göngu og fæðingu eftir enn lengri og erfiðari tilraunir til getnaðar. En engum skyldi detta í hug að lífdagar laugarinn- ar hafi verið þrautaminni en það sem á undan var gengið. á galla ofan Konráð Gunnarsson sundlaugarvörður stendur liér við vegg sein jlísarnar hafa hrunið af. Þessi skemmd er hreinasta smárœði við hlið- ina á öðrum göllum sem fram hafa komið í sundlauginni, enöi er liennar ekki einu sinni getið í bókun íþróttaráðs. Mynd: Yngvi Kjart- Yngvi Kjartansson Bygging sundlaugar í Glerár- hverfi var kosningamál í tvenn- um, ef ekki þrennum bæjarstjóm- arkosningum á Akureyri og flest- ir flokkar með byggingu laugar- innar á stefnuskrá sinni. Engu að síður dróst það lengi að nokkuð yrði úr verki og það var ekki fyrr en eftir bæjarstjórnarkosningam- ar 1986 að hafist var handa um byggingu laugarinnar. Bygging- arverktakinn sem fenginn var til verksins hét Híbýli hf. og var á þeim tíma kominn í alvarlega rekstrarerfiðleika og varð gjald- þrota áður en vcrkinu lauk. Þess má geta að einn aðaleigenda Hí- býla var Gísli Bragi Hjartarson múrarameistari, en hann var kos- inn bæjarfulltrúi Alþýðuflokks- ins í miklum kosningasigri flokksins í bæjarstjómarkosning- unum 1986 og sat einnig í íþrótta- ráði bæjarins á þessum tíma. Ekki var mikið eftir af verkinu þegar Híbýli fóru á hausinn. Aðr- ir vom fengnir til að ljúka bygg- ingu laugarinnar og var hún tekin í notkun í mars 1990. Síðan þá hefur hver gallinn á fætur öðrum komið í ljós og hefur sumt verið lagfært en annað ekki. NVi hefur íþróttaráð farið fram á að gerð verði úttekt á göllum á lauginni og að það verði jafn- framt skoðað hver eða hverjir beri ábyrgð á því sem aflaga hef- ur farið. Á síðasta fundi sínum samþykkti bæjarstjórn tillögu íþróttaráðs um að Stefáni Stef- ánssyni bæjarverkfræðingi og Baldri Dýrfjörð bæjarlögmanni verði falið að gera slíka úttekt. í samþykkt íþróttaráðs, sem samin var af formanni ráðsins, Gunnari Jónssyni, segir m.a.: „Síðan Sundlaug Glerárskóla var tekin í notkun þann 20. janúar 1990 hafa komið í ljós allskonar bilanir og gallar, sem kostað hef- ur mikið fé og ómælda fyrirhöfn að láta lagfæra. Þá hefur orðið að loka sundlauginni í tvígang vegna þessara hluta, í nokkra daga í hvort skipti." Gólfefni Eitt af því sem kom fram fljót- lega eftir að laugin var opnuð var að gólfefni í búningsklefum losn- aði upp og hefur nú verið skipt um gólfefni á hluta gólfanna. Það verk unnu starfsmenn efna- verksmiðjunnar Sjafnar hf. á Ak- ureyri og tók Sjöfn þátt í kostnaði við endurbæturnar, en upphaf- lega gólfefnið og lögnin á því var keypt frá Sjöfn. Kostnaður bæj- arins vegna þessara lagfæringa var tæplega hálf milljón króna. Rangt fúguefni Sundlaugin er flísalögð. Uppi á sundlaugarveggjunum er fúga sem mikið mæðir á og er ýmist blaut eða þurr. í verklýsingu var tekið fram að þessi fúga skyldi fyllt með sérstöku „epoxy“-efni sem á að vera mjög slitstérkt. Fyrirmælum í verklýsingu var ekki fylgt heldur var annað efni notað. Það kom síðan í ljós að fúgan þoldi ekki álagið með þeim afieiðingum að flfsar byrj- uðu að losna. Þetta hefur nú verið lagfært. Viðgerðin kostaði bæinn tæplega hundrað þúsund krónur. Hreinsikútar sprungu Sérstakir hreinsikútar eru not- aðir til að hreinsa vatnið í laug- inni. Tveir slíkir kútar hafa sprungið, að því er viröist vegna hönnunargalla sem felst í því að ekki var gert ráð fyrir öryggislok- um á kútunum sem þar hefðu átt að vera. Þessir kútar hafa verið endurnýjaðir og settir á þá örygg- islokar. Kostnaður við þessa við- gerð var tæp hálf milljón. Öll verkfræðihönnun, að undanskil- inni rafiagnahönnun, var í hönd- um Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens hf. Rakaskemmdir í skápum I verklýsingu er tekið fram að í innréttingar í búningsklefum skuli nota rakaþéttar spónaplötur, og þarf kannski ekki að taka fram af hverju. Þessu var ekki fylgt heldur voru notaðar venjulegar kantlímdar spónaplötur 'og eru skápahillur farnar að láta veru- lega á sjá af rakaskemmdum. Spumingin er hvort kasta eigi öllum innréttingum og smíða nýjar, eða reyna að klastra í það sem fyrir er. Ef fyrri leiðin yrði valin og nýjar innréttingar úr vönduðu efni keyptar myndi það kosta um 3 milljónir króna, en ef aðeins væri skipt um hillur myndi það kosta nokkur hundruð þúsund. Aftur skal tekið fram að það eru aðeins liðin þrjú ár síðan sundlaugin var tekin í notkun. Og ekki er allt talið enn. Loftræstikerfi gallað í ljós hafa komið miklir gallar á loftræstikerfi hússins og hefur Blikk- og tækniþjónustan á Ak- ureyri gert úttekt á kerfinu og komist að þeirri niðurstöðu að viðgerð kosti um 700 þúsund krónur. Hver er ábyrgur? Ágúst Berg, húsameistari Ak- ureyrarbæjar, hafði eftirlit með hönnun og framkvæmdum fyrir hönd bæjarins. Hann segir að hann hafi samþykkt að notað væri annað efni en tiltekið var í verklýsingu í fúgur á sundlaugar- bökkum. Ástæðan hefði verið sú að múrararnir sem lögðu flísarn- ar hefðu ekki treyst sér til að leggja „epoxy“-fúguna sem væri mjög vandmeðfarin. Þess í stað hefði verið valið efni sem menn hefði talið sig hafa vissu fyrir að þyldi það álag sem þarna væri. Um hilluefnið í skápunum segir Ágúst að þar hafi menn ekki verið á einu máli um skil- greininguna á orðinu ,,rakavarið“ og hann sé ekki tilbúinn að fallast á að þar hafi verið vikið frá fyrir- mælum hönnuða, sem eru arki- tektarnir Gísli Kristinsson og Páll Tómasson. Gísli Kristinsson sagði í sam- tali við Vikublaðið að það væri í sínum huga enginn vafi á að efn- ið sem valið var hefði ekki verið í samræmi við verklýsingu. Gísli sagði ennfremur að mik- ið kapp hefði verið lagt á að gera mannvirkið sem ódýrast í hönn- un og byggingu og hefði það haft sín áhrif á efnisval. Spurningin sem eftir stendur er sú hvort það hafi ekki verið dýrkeyptur sparn- aður fyrir akureyrska skattgreið- endur. Kópavogsbúar! - Kynningaráskrift! 4* ' í tilefni af sérútgáfu VIKUBLAÐSINS fyrir Kópavog býðst þeim Kópavogsbúum sem þess óska að fá blaðið sent til kynningar í einn mánuð án endurgjalds. Þeir Kópavogsbúar sem vilja notfæra sér þetta tilboð vinsamlegast hafi samband við VIKUBLAÐIÐ í síma 17500. Nýjar leiðir að stefhumiðum ungs félagshyggjufólks Þegar spurt er um stefnumið ungs vinstra fólks í pólitík myndu margir eflaust spyrja: Eru þau ekki alltaf sjálfum sér lík? Er verið að ræða um að breyta stefnunni, taka ann- an kúrs núna þegar grunnhugmyndir félagshyggjunnar þurfa einmitt að slá í gegn? Sigþrúóur Gunnarsdóttir Einmitt þessar spurningar hefur undanfarið borið á góma þegar fólk heyrir af stofnun samtaka ungs alþýðubandalag- sfólks. Og það er ekki skrítið, því vissulega er Æskulýðsfylk- ingin enn til og sums staðar er starfið meira að segja nokkuð lífiegt. En fámenn er hún bless- unin, og tilraunir til að ijölga fé- lögum hennar ýmist ekki verið gerðar eða runnið út í sandinn. Þetta er alls ekkj nógu gott á þessum tímum þegar ríkisstjórn- in skellir orðalaust hverri kjara- skerðingunni af annarri á ungt fólk. Þá er þörfin fyrir öflug ungmennasamtök á vinstri vængnum mikil og jafnvel meiri en oft áður. Það er líka ljóst að- stór hópur ungs fólks hefur áhuga á að starfa með eða í tengslum við Alþýðubandalagið þó að það hafi ekki verið sýni- legt á síðustu misserum. Þess vegna tókum við okkur saman nokkur, sum úr. Fylking- unni og önnur ekki, og hófum undirbúning nýrra æskulýðs- samtaka í tengslum við fiokk- inn. Nýju samtökin, sem skulu bera nafnið Verðandi, á að stofna á landsvísu og inn í það ganga þær fylkingar sem eru til staðar auk einstaklinga um allt land. Markmið samtakanna er að vera opinn og lýðræðislegur vettvangur fyrir róttæka umræðu í anda jafnaðarstefnunnar og sósíalismans um málefni er varða ungt fólk. Til dæmis á að stofna til málefnavinnu með það fyrir augum að vekja nýjar hug- myndir og koma fram aðgerðum og breytingum. Stofnfundur samtakanna verður haldinn í Dagsbrúnar- salnum, Lindargötu 9, laugar- daginn 20. mars kl. 14:00. Þar verður lagður grunnur að starfi samtakanna, lög samþykkt, stjórn kosin og fieira. Sérstakur gestur fundarins verður Guð- mundur Andri Thorsson sem fær það vandasama verk að flytja ungu vinstra fólki hvatningarorð við upphaf starfsins. Áætluð fundarlok eru fyrir kl. 17:00 en þá er samt ekki allt búið. Um kvöldið skal haldið í Rosenberg- kjallararin við Austurstræti þar sem fólki gefst tækifæri til að spjalla saman um allt rriilli him- ins og jarðar, láta skemmta sér og skemmta öðrum. Sú dagskrá hefst kl. 21:00 og stendur svo lengi sem úthaldsmestu menn endast! Eg vil eindregið hvetja allt vinstra fólk 16-35 ára til að streyma á staðinn og láta til sín taka frá upphafi. Við höfum heldur betur verk að vinna! Höfundur er nemi í KHÍ og félagi í Æskulýðsfylkingunni.

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.