Vikublaðið - 24.11.1995, Blaðsíða 11
VIKUBLAÐIÐ 24. NÓVEMBER 1995
11
Bréf frá lesanda:
Byltingin á sjónvarpsskjánum
Ráðamenn Stöðvar 2 hafa orðið að
leggja baráttu sína fyrir því að afhota-
gjald RÚV verði lagt af til hliðar í bih.
Astæðan er sú að Stöðin hefur verið
ónáðuð með samkeppni ffá nýrri
einkarekinni sjónvarpsstöð, Stöð 3.
Þessi óheppilega samkeppni hefur
knúið Stöð 2 til að dusta ryldð af dótt-
urstöð sinni Sýn.
Stöð 2 og Sýn hafa gert „sérstakan
samning” sín á milli (eins og um
óskylda aðila sé að ræða!) sem þýðir
að áskrifendur Stöðvar 2 geta fengið
Sýn og 9 erlendar rásir ókeypis í
nokkra mánuði, þ.e. á þær 3.031
krónur (miðað við boðgreiðslur) sem
fólkið er þegar að greiða fyrir Stöð 2.
Páll Magnússon sjónvarpsstjóri Sýnar
(og fréttaþulur á Stöð 2) boðar síðan
að seinna fái áskrifendur sama pakk-
ann „gegn vægu viðbótargjaldi“.
Nú liggur ekkert fyrir um hvað Páll
á við með „vægu viðbótargjaldi“. Ef
viðbótargjald er vægt þá þýðir það
væntanlega varla mildð rneira en
10% hækkun. Það þýðir að Stöð 2
getur boðið áskrifendum súmm
upp á Sýn og 9 erlendar rásir fyrir
um það bil 300 krónur. Sem þá seg-
ir meira um núverandi verð fyrir
Stöð 2 en það verð sem Sýn bíður
upp á. Maður hlýtur að spyrja:
Hvers vegna í ósköpunum hefur
þetta kostaboð ekki séð dagsins ljós
fyrir löngu síðan? Hvar hafa þessir
menn geynit örlætið og þjónustu-
lundina fram að þessu? I bankaliólfi
hjá Chase Manhattan?
Ég hygg að undirboð Stöðvar 2
og Sýnar segi einna helst þá sögu að
forráðameiui stöðvanna eru tilbún-
ir til að taka á sig tímabundið tap ef
það verður til þess að eyðileggja
möguleika Stöðvar 3 tíl að festa sig í
Hvers vegna í ósköpunum
hefur þetta kostaboð ekki
séð dagsins Ijós fyrir
löngu síðan? Hvar hafa
þessir menn geymt örlœt-
ið og þjónustulundina
fram að þessu? í banka-
hólfi hjá Chase Manhatt-
an?
Fimm rásir fyrir 2.145 kr. en
1.995 kr.
ef greitt er með boðgreiöslum!
Nú hafa aliir
efni á aö njóta
þoss besta
með Stöö 3
sessi.
Stöð 2/Sýn vill nefhilega vera í
vemduðu andrúmslofti eins og Eim-
sldp og Flugleiðir. Það vill „einka-
væðingu“ á þann hátt að RUV verði
svipt afhotagjaldinu og koðni niður
og vill síðan standa uppi með mark-
aðsráðandi stöðu eftir að Stöð 3 hefur
verið kveðin í kútinn.
Oneitanlega hlýtur Bjöm Bjama-
son mennta- og menningarmálaráð-
herra að vera í erfiðri aðstöðu frammi
fyrir þessari þróun. Hann hugsar án
efa hlýlega til Stöðvar 3 því þar er
Morgunblaðið stór hluthafi og Bjöm
er alinn upp á Mogganum. Hami vill
án efa einkavæða RUV og þ.a.l. af-
nema afnotagjaldið. Og Stöð 2/Sýn
spilar undan vindi á meðan Stöð 3
baslar í mótvindi. Einn ótvfræður
væntanlegur ósigurvegari er íslensk
dagskrárgerð (íslensk menning). Og
svoleiðis nokkuð er undir hatti
mennta- og menningarmálaráðherra.
Nú er búið að taka um það ákvörð-
un af menningarmálaráði Evrópu-
sambandsins að Reykjavík verði ein af
níu menningarborgum Evrópu árið
2000. Skyldi sá veruleiki blasa þá við
að Bjöm og félagar hafi einkavætt
RUV, öll innlend dagskrárgerð orðin
einskorðuð við ódýra ffamleiðslu (t.d.
umræðuþætti og happadrættis/aug-
lýsingaþætti) og einna helst amerískar
B-bíómyndir og amerískir framhalds-
þættir á boðstólum á besta sjónvarps-
tíma? Munu innkaupastjórar einka-
stöðva eyða peningum í t.d. íslenska
Radíusbræður eða Þeytingsþætti þeg-
ar „úrvalsefhi" eins og Beevis and
Butthead fæst ókeypis?
Hannes Hraíhsson
Aðalfundur Birtingar
verður haldinn á Kornhlöðuloftinu laugardag-
inn 25. nóv. kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Leitað heimildartil sameiningar við Framsýn.
3. Önnur mál.
7Vlf^(/íy
* *
* *
30ARA
Fjölskyldutdnleikar í íþróttahúsi HK
laugardaginn 25. nóvember 1995 kl. 17:00
Með Ríó koma fram:
Skólahljómsveit Kópavogs yngri deild
Kór Kársnesskóla • Karnivala
Hljómsveitin Saga Class • Szymon Kuran fiðluleikari
Reynir Jónasson harmonikuleikari
Björn Thoroddsen gítarleikari
Forsala aðgöngumiða í Bóka- og l itlangaversluniinii VEDIJ og í lþróttahúsi
G.BHN .£JJa
HK
Verð
kr. 500
Aðalfundur Framsýnar
verður haldinn á Kornhlöðuloftinu laugardag-
inn 25. nóv. kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Leitað heimildar til sameiningar við Birtingu.
3. Önnur mál.
Sósíalistafélagið
Sósíalistafélagið boðar til fólagsfundar laugardags-
morguninn 25. nóvember kl. 10.30 að Laugavegi 3,
á fjórðu hæð.
Dagskrá:
1. Staðan í kjarabaráttunni.
Frummælandi Ögmundur Jónasson.
2. Önnur mál.
Félagar erú hvattir til að mæta og taka með sér
gesti.
Aðalfundur
Alþýðubandalagsins
í Keflavík, Njarðvík
verður haldinn í Ásbergi, Hafnargötu 26 í Reykja-
nesbæ, mánudaginn 27. nóvember kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
3. Gestur fundarins, Guðrún Helgadóttir
ræðir stjórnmálaástandið.
Stjórnin