Vikublaðið - 22.03.1996, Síða 9
Verðandi
T
VIKUBLAÐIÐ 22. MARS 1996
9
Mannréttíndaveislur
í desember síðastliðnum héldu
Samtökin 78, félag homma og
lesbía á íslandi, mannréttinda-
veislu í íslensku ópenumi. Mark-
mið veislunnar var að vekja athygli
á takmörkuðum lagalegum rétt-
indum homma og lesbía á Islandi.
Otrúleg stemmning myndaðist í
troðfullum salnum þegar hvert
skemmtiatriðið rak annað langt
fram yfir miðnætd, rokk, popp,
klassík; allt fiá Kolrössu krókríð-
andi til kirkju- og lögreglukórs.
Þegar gestimir stigu út í stjömu-
bjarta nóttina að tónleikumun
loknum og þustu hver til síns
heima held ég að í brjósti hvers og
eins hafi búið sú von að innan
skamms yrði haldin önnur mann-
réttindaveisla, hún þyrfti ekki
endilega að vera eins fjömg og sú í
Óperunni, en yrði að vera skipu-
lögð af Alþingi Islendinga. Nú
hillir undir þá veislu því rílds-
stjómin hefúr sent frá sér frum-
varp til laga um staðfesta samvist
samkynhneigðra.
Hommar og lesbíur eru þjóðfé-
lagshópur sem á öllum tímum hefur
mátt þola ótrúlega fordóma og of-
sóknir í sinn garð, ekki síður í litlu
þjóðfélagi eins og okkar en í þeim
sem stærri eru. Hátt settu fólki líðst
jafnvel að bera hatur sitt á þessum
þjóðfélagshópi, sem er tahð að sé
einn títmdi mannkynsins, á torg án
teljandi viðbragða, eins og við höfum
séð einn af forsetakandídötum
bandaríska Repúblíkanaflokksins
gera að imdanfömu.
A áðumefhdum tónleikum sagði
Bubbi Morthens sögu af því þegar
hann var í verbúð á stað þar sem það
var fastur hður að fara reglulega og
berja hommann. Sá Ieikur endaði
með því að homminn gafst upp og
fyrirfór sér. Einnig var fluttur átaka-
mikill en sannur leikþátt-
ur um örlög tveggja ást-
fanginna karlmanna í
Reykjavík imi miðja öld-
ina og það var heldur
enginn happy-ending
þar. Fleiri sögur vom
ekki sagðar þetta kvöld,
svo að ég muni, en hefðu
svo vel geta orðið miklu
fleiri, því þær em
mýmargar til og misfagr-
ar. Margir þekkja slíka
sögu sjálfir, hafa jafhvel
átt þátt í því að fordæma
og særa. En batnandi
manni er best að lifa og
það er aldrei of seint að
útrýma fordómum sín-
um!
Eins og allir vita er
fræðsla besta lausnin á
fordómum en jafnvel
hún mætir andstöðu.
Skemmst er að minnast
þess þegar bamiað var að
kynffæðslubókin Þú og
Eg: Bók um kynhf fyrir
ungt fólk, lægi ffammi á
skólabókasöfhum, en þar
er algerlega fordómalaus
kafli um samkynhneigð
enda bæði skrifeður og
þýddur af homma. Þetta
gerist árið 1985, fyrir
ellefú árum síðan, og enn
þann dag í dag er ffæðsla
um samkynhneigð því
miður ekki sjálfeagður
hluti af kynffæðslu í
skólum og því undir hæl-
inn lagt hvort böm og
unglingar fói nokkum
tíma fordómalausa
ffæðslu um þessi mál. A-
stæðan er sjálfeagt sú að
margir em ennþá, á síð-
ari hluta 20. aldar, hrædd-
ir um að fræðsla auki eða
stuðh á einhvem hátt að
samkynhneigð. Með fúllri
virðingu (eða hálffi að
minnsta kosti) fyrir sögu-
legum ranghugmyndum
held ég þó að við verðum
að taka okkur saman og
kveða þær í kútinn. Það
verður enginn hommi af
því að lesa urn það í bók,
það vitum við.
Með lögum um stað-
festa samvist verður gerð
mikil bragarbót í réttind-
um samkynhneigðra á Is-
landi en sambærileg lög
em nú í gildi á hinum
Norðurlöndunum. Um
staðfesta samvist gilda
sömu lagaákvæði og um
hjónaband nema leyfi til
að ættleiða böm, rétt til
gervifrjóvgana og Idrkju-
legra giffinga. Þetta með
bömin er kannski sárast í
þeim tilfellum þegar ann-
ar aðilinn eða báðir koma
með böm inn í sambúð-
ina og hafe ekki þann
möguleika að ætdeiða
hvors annars böm eins og
gagnkynhneigðir geta.
Þar af leiðandi hafe þessi
böm heldur ekki þann
möguleika að erfe fóstur-
foreldri sitt sem verður að
teljast óeðhlegt ef þau
hafa ahst upp hjá því. Þar
fyrir utan hefúr engum
tekist að sýna fram á það
að hommar og lesbíur séu
verri foreldrar og því er
að mínu mati ástæðulaust
að taka alveg fyrir ætdeið-
ingar bama. Hvemig væri
að breyta því áður en ffumvarpið er
samþykkt? (Þeir taki til sín sem ein-
hverju ráða.)
Fyrsta umræða var um ffumvarpið
á Alþingi fyrr í þessum mánuði. Eins
og þeir sem hlustuðu á fféttir gerðist
einn þingmaður svo ffægur að opin-
bera fordóma sína og fomfálegar
hugmyndir. Það liggur í hlutarins
eðli að sambúð samkynhneigðra er á
engan hátt hægt að líkja við bama-
giftingar og fjölkvæni/veri eins og
Ami Jolmsen gerði. Astarsambandi
tveggja fullorðinna einstakhnga má
aldrei líkja við ofbeldisfuht samband
fullorðins og bams og samlíkingar af
því tagi hafa þann eina tilgang að
rétdæta eða fegra gjörðir barnaníð-
inga og vei þeim sem það gerir. Það
hversu lidar undirtektir þingmaður-
inn fékk í þjóðfélaginu og fjölmiðlum
gerir martn hins vegar bjartsýnan en
sýnir manni jafnffamt að þessi lög
hefði átt að samþykkja fyrir löngu
síðan.
Um þessar mundir er mikið fjaUað
um mannréttindamál í fjölmiðlum,
en einkum þó í samhengi við fjarlæga
heimshluta. Umræðan um eina
mestu mannréttindabætandi löggjöf
á íslandi í langan tíma hefur hins veg-
ar að mestu feUið í skuggann af
meintum kynlífebrotum biskups og
uppsögnum hárra og Iágra í leikhús-
um borgarinnar. Eg vona að þing-
menn sameinist um ffumvarpið ailir
sem einn og að það verði sammþykkt
sem fyrst. I framhaldi af því þarf svo
að taka til hendinni í náms- og
fræðsluefnisgerð með það að mark-
miði að útrýma fordómum í garð
homma og lesbía á íslandi.
Sigþrúður Gunnarsdóttir.
Formaður Drífendi, félags
ungs Alþýðubandalagsfólks
í Reykjavík.
Ný nafaalög eyða ólögum
I síðustu viku kom til 2. umræðu á
Alþingi ffumvarp til nýrra nafiia-
Iaga, sem eykur verulega frelsi
manna í nafngjöfúm. Þa stóðu upp
tveir þingmenn Alþýðubandalags-
ins til að verja núgildandi nafnalög
og reyndu að fí frumvarpinu vísað
ffá. Þeir telja að vanda þurfi betur
undirbúning slíks menningarmáls
(sem einnig var lagt fyrir síðasta
þing) og gefe í skyn að ekki sé
samstaða um frumvarpið meðal
þings og þjóðar.
Samkvæmt núgildandi lögum nr.
37/1991 verða eiginnöfn að vera ís-
lensk eða eiga sér hefð hérlendis. Þá
verða þau að falla að íslensku mál-
kerfi. Millinöfn eru ekld leyfð lengur.
Aðalbreytingamar samkvæmt nýja
ffumvarpinu eru annars vegar að eig-
innöfn þurfe aðeins að taka eignar-
fallsendingu, enda séu þau í samræmi
við íslenskt málkerfi og hins vegar
verða millinöfn tekin upp (t.d. gemr
fólk með ættamöfn gert þau að milli-
nöfiiuin og þannig kennt sig til föður
eða móður).
Núgildandi lög óréttlát
Annar áðurgreindra þingmanna
telur ffumvarpið fela í sér byltingar-
kenndar breytingar og að það væri
ótrúlegt fljótræði að breyta nafnalög-
unum ffá 1991 áður en reynsla væri
komin á þau. Nú em tæp fimm ár ffá
gildistöku laganna og á fyrsm þremur
ámnum hafnaði mannanafnanefnd
237 beiðnum um eiginnöfn og nafn-
ritanir, sem er allnokkur aukning ffá
þvf sem áður var. Þetta hlýmr nú að
teljast ákveðin reynsla - og jafnvel ár-
angur fyrir þingmanninn.
Er nema von að fólk telji lögin ó-
réttlát, þegar því er meinað að skíra
böm sín eftir allra nánusm ættingj-
uni? Er réttlátt að ung tökunöfn telj-
ist ekki hefðuð nema þau séu nú bor-
in af 20 íslendingum yngri en 30 ára
(færri efdr því sem nafti er eldra).
Mörgum finnst líka hart að fí synjun
um nafti sem er samstoftia leyfðum
nöftium og beygist jaftivel bemr en
hin leyfilegu nöfti.
Markmiðið með þessum synjtmum
er að efla íslensk nöfti. Þó er ein-
hverra hluta vegna ekki hreyfí við er-
lendum ættamöfiium sem era að
kæfa hina sérstöku kenninaftiahefð
okkar. Af hverju era menn ekki
skyldaðir til að bera ættamafn sem
millinafn og heiðra hinn aldagamla
sið íslendinga, að kenna sig til föður
eða móður? Þannig yrðu nöfnin ólflct
íslenskulegri. Hér er verið að mis-
mima mönnum eftir ætt og uppruna.
Era menn hræddari við að hrófla við
ættamöfnunum, vegna þess að mót-
mæh þeirra sem þau bera yrðu erfið-
ari viðfengs en mótmæli. “sauðsvarts
almúgans”?
Of mikil ríkisforsjá
Nöfn manna era mikið tilfinninga-
mál og hluti af sjálfeímynd fólks.
Fjöldskyldunöfti tengjast vitund fóllcs
um uppruna sinn og tilfinningum
þess í garð náins ættingja. Ríkið er
því komið út á hálan ís með afekipt-
um á þessu persónulega sviði. Menn
verða að hafa hugfast að réttur for-
eldris til að ráða nafni bams síns,
hlýtur að vera ríkari en réttur ríkisins
til að setja nöftium takmörk.
Mér finnst rfldsforsjá núgildandi
naftialaga óþolandi ofbeldi. Það er
sjálfeagt að skerast í leikinn séu nöfti-
in það óheppileg að þau verði nafti-
bera til ama. Mér finnst líka að við
eigum að vemda aldagamla kenni-
nafnahefð okkar. En annars held ég
að almenningi sé fullkonmlega
treystandi til að velja felleg og farsæl
nöfti á böm sín - án allrar rfldsað-
stoðar!
Andstæð almannavilja
Áðurgreindir þingmenn vildu vísa
hinu nýja frumvarpi frá, m.a. vegna
þess að skapa þurfi um það sem víð-
tækasta samstöðu meðal þings og
þjóðar. Árið 1994 gerði Gallup skoð-
anakönnun sem sýndi að mikill
meirihluti aðspurðra, eða 79%, vildi
aukið frjálsræði um naftigjöf; þar af
vildu 34% algert frjálsræði. Þetta
þýðir, að um 80% almennings var
andvígur naftialögunum - nema fyrir
stjómmálamenn sem telja skoðana-
kannanir aldrei gefa alveg raunhæfe
rnynd af skoðunum almennings.
Nú hggja auðvitað göfúg markmið
að baki núgildandi nafiialaga; að efla
íslensk nöfti og þar með íslenska
menningu. En menn mega ekki
gleyma sér svo í krossferð til eflingar
íslenskri menningu, að þeir missi
sjónar af vilja almennings. Það hefúr
verið talinn aðall góðrar lagasetning-
ar að hún feri ekla í bága við al-
mannavilja, sérstaklega ekki varðandi
lög á persónulegum sviðum.
Að rnínu mati era naftialög ekki í
samræmi við vilja almennings og því
tel ég þau ólög.
Vísbendingar um vilja ahnennings
er ekki erfitt að finna. Þær er að finna
í skoðanakönnun Gallups og allri
umræðu almennings í landinu. Mað-
ur kemur elcki svo í skfrnarveislur að
ekki sé verið að deila á lögin! Breyt-
ingar á naftialögum era orðnar löngu
tímabærar.
Veikir virðingu fyrir lögun-
um.
Það hlýmr að vera betra að fera
aðrar leiðir til að efla íslensk nöfti en
að beita lögþvingun. Slíkt vekur ein-
ungis úlfúð og veildr virðingu manna
fyrir lögunum. Dæmi era um að
menn hafi úrskurð mannanafna-
neftidar að engu og skfri óleyfilegum
nöftium í ldrkju. Þetta sýnir það ó-
réttlæti sem felst í lögunum, þegar
prestum finnst réttlætanlegt að snið-
ganga þau í embættisstörfum sínum.
Það er alvarlegt mál þegar almenn-
ingi finnst ekkert athugavert við að
þverbrjóta lög. Þá er eitthvað mildð
að lögunum.
Nú í lok vikunnar kemur áður-
greint frumvarp til 3. umræðu á Al-
þingi og yfirgnæfandi líkur eru á að
það verði samþykkt. Frá og með
næstu áramótum munu því núgild-
andi að öllum líkindum heyra sög-
unni ttil. Eg fagna komandi naftialög-
um og fullyrði að í þeim felist núkil
réttarbót. Nú þegar hafe alltof marg-
ir foreldrar að þarflausu þurft að fella
frá því naftii sem þeir vildu gefa barni
sínu. Margir sitja eftir reiðir og sárir.
Þingmenn okkar tvo, sem áður
komu við sögu, vil ég hvetja áfram í
krossferð þeirra til eflingar íslenskri
menningu - bara ekld á sviði naftia-
laga.
Harpa H. Frankelsdóttir er í
stjóm Drífendi, félags ungs Al-
þýðubandalagsfólks í Reykjavík.