Vikublaðið - 14.06.1996, Side 3
VIKUBLAÐIÐ - ÞINGTÍÐINDI - JÚNÍ 1996
3
Jákvæð tilvísun til
betri framtíðar
Svavar Gestsson formaður þingflokks Alþýðubandalagsins og óháðra skrifar:
Það sem einkenndi þingið í vetur
var Éraman af fremur dauf stjóm-
arandstaða en sterk stjómarand-
staða er leið á þingið. I rauninni
var stj ómarandstaðan ekki veikari
af því að hún er í fjómm hópum
heldur líka sterkari því þannig gat
hún komið að einstökum málum
úr fleiri en einni átt.
I þessu blaði er gerð grein fyrir
þingmálum Alþýðubandalagsins og
óháðra á þessum vetri og þar kemur
fram að um sterka málafylgju var að
ræða í flestum greinum. En saman-
lögð stjómarandstaðan náði einnig
miklum árangri á þinginu. Finnst
mér ástæða til þess að nota þessa
samantekt til að koma á framfæri
þakklæti til allra þeirra þingmanna
stjómarandstöðunnar sem lögðu sig
fram um að smðla að góðu vinnuand-
rúmslofti á liðnu þingi.
Árangur stjómarandstöðunnar
birtist aðallega í verulegum breyting-
um á öllum helstu málum þingsins;
þó stjómarandstaðan hafi greitt at-
kvæði gegn þessum þingmálum þá
hafði hún náð að breyta þeim veru-
lega í meðförum þingsins.
Ekki á móti til að vera á
móti
Okkar þingflokkur ákvað að gera
öll mál upp á málefnalegum forsend-
um. Hann var því ekki á móti til þess
að vera á móti eins og stjómarand-
stöðuflokkar era oft gagnrýndir fyrir.
Hann mat málin hvert og eitt. Þess
vegna studdum við mörg mál stjóm-
arinnar og ekld öll mál hinna stjóm-
arandstöðuflokkanna. Eg tek efrir því
að á aðalfundi Þjóðvaka vomm við
sérstaklega gagnrýnd fyrir þessa mál-
efnalegu afstöðu. Og við tökum
þeirri gagnrýni vel.
Á aðalfundi Þjóðvaka kom líka
ffam yfirlýsing um að stjómarand-
staðan væri máttlaus. Þetta er rangt
eins og sést á þeessu blaði. I fyrsta
lagi er þetta rangt efnislega. En í
öðm lagi er þessi stöðuga sjálfsgagn-
rýni einstakra stjórnarandstöðu-
flokka vam á myllu íhaldsins. Fylgis-
tölur Þjóðvaka í skoðanakönnunum
sýna líka hvert málflutningur af þessu
tagi leiðir.
Hvernig yrði Framsókn eft-
ir fjóra íhaldsvetur?
Framsóknarflokkurinn varrn mik-
inn kosningasigur í fyrra. Hann not-
aði þann sigur til þess að gera Davíð
áffam að forsætisráðherra og fékk
fyrir fimm ráðherrastóla. Fram-
sóknarflokkurinn náði því á einum
þingvetri að svíkja nánast öll stefiiu-
mál sín ffá síðustu kosingum.
Hann kvaðst myndu verja velferð-
arkerfið. Veruleildnn er sá að Ingi-
björg hefur gengið feti ffamar en
Sighvatur við að spilla velferðarkerf-
inu.
Framsóknarflokkurinn sagðist æda
að hafa samstarf við Iaunafólk og
samtök þess mn hvaðeina er að þess-
um samtökum lýtur. Veruleildnn er
sá að Framsóknarflokkurinn hefur
forystu um að taka í gegnum þingið
mál sem svipta verkalýðshreyfinguna
þannig ffumburðarréttinum að hún
verður að nota næsm lotu kjarasamn-
inga til þess að leiðrétta þennan
ófögnuð.
Framsóknarflokkurinn lofaði líka
að létta byrðum af öllum þeim sem
erfiði og þunga em hlaðnir, einkum
skuldum heimilanna sem hafa vaxið
margfalt hraðar en skuldir fyrirtækj-
anna. Veruleikinn er sá að Fram-
sóknarflokkurinn hefur ekkert gert
sem marktækt er í þessum efnum.
Framsóknarflokkurinn lofaði líka
að gera námslán að samtímalánum á
nýjan leik. Hann hefur ekkert fengist
til að aðhafast í þeim efnum.
Og ffamsóknarffambjóðendur
vildu ekki einkavæða meira sam-
kvæmt loforðum fyrir síðustu kosn-
ingar. Nú hafa þeir ákveðið að gera
Póst og síma að hlutafélagi með einu
hlutabréfi! í höndunum á Halldóri
Blöndal.
Steingrímur J. Sigfússon flutti
ffumvarp um friðlýsingu Islands fyrir
kjamorku- og eiturefnavopnum.
Steingrímur Hermannsson studdi
málið í fyrra. Framsóknarflokkurinn
ákvað nú að vera á móti málinu. Þar
með sldpar Framsóknarflokkurinn
sér hægra megin í htrófi miðjuflokka
eftir aðeins einn vetur með íhaldinu.
Hvemig verður Framsókn effir fjóra
vetur?
Tilvísun á betri framtíð
Mildð hefur verið rætt um samein-
ingarmál vinstri flokka. Samstarf Al-
þýðuflokksins og Alþýðubandalags-
ins á hðnum vetri var gott. Að vísu
em flokkamir ósammála um margt
en samvinna þeirra hefúr verið afger-
andi í mörgum málum og samstarfið
byggist á gagnkvæmri virðingu. Það
bendir til þess að flokkamir geti náð
saman um áherslur fyrir næstu kosn-
ingar. Einkum ef skynsamlega verður
að því unnið og án stórfelldra yfirlýs-
inga fyrirffam sem eyðileggja oftast
meira en þær byggja upp.
Þeir ryksuguðu þingnefnd-
irnar
Störfum Alþingis þarf að breyta.
Völd ffamkvæmdavaldsins em allt of
mildl. Það kom skýrt í ljós á síðasta
þingi er þeim tókst að taka í gegnum
þingið öll mál sem þeim sýndist og
þeir ryksuguðu þingnefndimar. Nið-
urstaðan varð sú að þinghaldið fór úr
böndunum og stóð þremur vikum
lengur en gert hafði verið ráð fyrir.
Þingmenn tóku sig saman um ffum-
varp dl laga um fjárreiður ríldsins
sem mun hafa miklar breytingar í för
með sér. Það ffumvarp stöðvaði fjár-
málaráðherra á síðustu smndu. Þessu
getur þingforystan breytt. Það er
óþolandi niðurlæging fyrir Alþingi
að láta ffamkvæmdavaldið traðka á
sér með þessum hætti þing eftír þing.
Svavar Gestsson:
í samstarfi stjómarand-
stöðunnar og verka-
lýðshreyfingarinnr felst
jákvæð tilvísun til betri
framtíðar fyrir almenn-
ing í þessu landi, segir
Svavar Gestssonm í
þessari yfirlitsgrein um
þinghaldið
í annan stað verður að ganga betur
ffá starfsháttum þingsins þannig að
meðferð mála verði alltaf vönduð.
Hún er ekld alltaf vönduð í dag.
Af hverju er mikið talað?
Off er talað um að stjómarand-
staðan tali of lengi. Forseti Alþingis
gekk í þann kór í lokaræðu sinni nú í
vor. Það er ekki sanngjam málflutn-
ingur. Stjómarandstaðan verður að
koma sínum málum á ffamfæri og
hún hefur engin önnur úrræði en að
tala lengi. Það er ekld hægt að skerða
þann rétt stjómarandstöðunnar
nema meirihluti þingsins samþykki
að skerða rétt ríkisstjómarinnar. Þar
á milli verður að ríkja fullt jafnvægi.
Verkaskipting þing-
mannanna
Þingflokkur okkar mun hittast
nokkrum sinnum í sumar til að fara
yfir stöðu málefna og til að undirbúa
næsta vetur. Þar munum við einnig
meta reynsluna af síðasta þingi. Þá
verður ákveðin verkasldpting þing-
flokksins fyrir næsta vetur. Á liðnu
þingi var hún sem hér segir:
Bryndís Hlöðversdóttir sat í fjár-
laganefrid og í félagsmálanefiid og
er ritari þingflokksins.
Hjörleifúr Guttormsson er í
umhverfisnefnd og hann er full-
trúi þingflokksins í þingmanna-
nefnd EFTA
Margrét Frímannsdóttir er í
menntamálanefnd og landbúnað-
amefnd og er fullrúi þingflokksins
í Alþjóða þingmannasambandinu.
Kristinn H. Gunnarsson er full-
trúi í fjárlaganefnd, í stjóm
Byggðastofnunar og ervarafor-
maður þingflokksins í Vesmor-
ræna þingmannaráðinu.
Ragnar Amalds er í samgöngu-
nefnd og forsætisnefnd.
Svavar Gestsson er í iðnaðar-
nefnd, í stjóm Landsvirkjunar og
er auk þess formaður þingflokks-
ins.
Ogmundur Jónasson er í alls-
herjamefnd og heilbrigðisnefnd.
Steingrímur J. Sigússon er í
efnahags- og viðskiptanefnd og í
sjávarútvegsnefnd og er formaður
hennar.
Olafúr Ragnar Grímsson er í ut-
anríkismálanefnd. Þegar hann tók
sér leyfi ffá þingmennsku tók
Sigríður Jóhannesdóttir við
starfi hans og gegndi hún störfum
fulltrúa okkar í menntamálanefnd.
Skólinn er hluti af lífskjöramim
Sigríður Jóhannesdóttir hefur sinnt menntamálunum sérstaklega eftir að hún settist á þing í vor.
Þegar talað er um lífskjör er um
fleira að ræða en kaup og vinnutíma.
Eitt fyrsta ffumvarpið sem ég kom að
þegar ég settist á þing í apríl vom lög
um skólagjöld í háskólanum. Skóla-
árið 1991-2 setti Háskólinn á skóla-
gjöld en skólinn var þá í nauðvöm
vegna mikils niðurskurðar á fjárlög-
um en þá var einmitt Sjálfstæðis-
flokkurinn kominn til valda. Því
mótmælti Framsóknarflokkurinn há-
stöfum enda þá í stjómarandstöðu
og umboðsmaður Alþingis tók í
sama streng og úrskurðaði að laga-
heimild skorti til slíks. Nú um daginn
settí svo meirihlutinn lög um skóla-
gjöld og ekki bar á öðm en að Fram-
sókn væri því sammála. Hér er því
búið að opna á þann möguleika að
fjármálaráðherra getur ákveðið ár-
lega hvað skólavist í háskólum skidi
kosta það árið og fer það þá væntan-
lega effir stærð fjárlagagatsins hverju
sinni hvað skólavist í háskóla skuli
kosta það árið. Til munu þeir sem
ekki finnst skipta neinu vemlegu mái
hvort borguð em nokkur þústmd fyr-
ir önnina eða ekld en hinir munu
ugglaust fleiri sem líta svo á að hér sé
vegið að jafnrétti til náms.
Hlutur kennara gerður sem
minnstur
I kjölfarið sigldu svo lög um ffam-
haldsskóla og þar virðist rauði þráð-
urinn vera sá að gera hlut kennara
sem minnstan. Þeir eiga að vísu að
semja skólanámsskrá en úrslitavald
um hvort hún skuli nothæf eiga þeir
ekld heldur skólanefnd en þar er
málum svo hugvitssamlega fyrir
kornið að menntamálaráðherra á
meirihluta í hverri einustu skóla-
nefnd á landinu og hefði þetta ein-
hvem tíma verið talin noldcuð mikil
miðstýring og undir hælinn lagt
hvort í skólanefndinni eigi sæti
nokkur maður sem vit eða áhuga hafi
á skólamálum. Fleira mætti telja en
ég fullyrði að í þesum lagabálki skín í
gegn h'tilsvirðing á kennarastéttinni
og þrátt fyrir fögur orð um mikilvægi
kennara sem ráðamönnum hggja á
tungu við hátíðleg tældfæri er hlutur
Sigríður Jóhannesdóttir
kennara fyrir borð borinn í þessu
ffumvarpi
Það sem fyrst og ffemst er talið
lögunum til telcna er að þau efli hlut-
deild verknáms í ffamhaldsskóla-
kerfinu.
Það er svei mér gott ef satt reynist
en ég vil benda á að það hve illa heftír
gengið að efla hlut verknáms á Is-
landi á ekld síst rætur að rekja til
fjárskorts, stöðugs niðurskurðar á
fjármagni til skólanna sem verður til
þess að ffekar er lögð áhersla á bók-
nám þar sem það er ódýrara í ffam-
kvæmd.
Niðurskurður á fé til fram-
haldsskóla
Nú er áfomiaður enn ffekari nið-
urskurður á fjármagni til framhalds-
skóla næsta ár svo ég er hrædd um að
þetta verknámsfyrirheit renni út í
sandinn eins og í sumum öðrum
ffæðslulögum. Sutnir líkja þessu við
tölvuvírus í íslenska ffæðslukerfinu.
Mér finnst óhugnanlegt að horfa
uppá hvað þessi massífi meirihluti á
Alþingi ætlar sér Eg sé ekki betur en
hann geri ákveðnum hluta eigna-
manna kleift að hrifsa til sín með
ótrúlegri ffekju þær eignir þjóðarinn-
ar sem einhver slægur er í og þó er
kannski verst að finna hvað erfitt er
að koma á einhverri alvöru umræðu
um þessi mál því það er svo komið að
málögn stjómarandstöðunnar em að
heita má engin.
Þó þykir Sjálfstæðisflokknum ekki
nóg að gert því samkvæmt áliti starfs-
hóps er menntamálaráðherra sldpaði
ber nú brýnasta nauðsyn til þess að að
svipta ríkisútvarpið því litia fjárhags-
lega sjálfstæði sem það þó hefur haft
þannig að skoðanamyndun og póh-
tísk umræða verði ffamvegis algjör-
lega á vegum Morgunblaðsins og
einkarekinna útvarps- og sjónvarps-
stöðva.
Ég held að það sé höftíðnauðsyn
fyrir allt vinstra fólk að sameinast
gegn því ofurvaldi sem gróðaöflin í
þessu landi em að verða hvar í flokki
sem þau standa.
Mér virðist augljóst að ríkisstjóm-
in fylgir í verkum sínum ákveðinni
línu. Hugmyndin virðist sú að gera
grundvallarbreytingar á þessu þjóð-
félagi. Takist það verður áratugaverk
að snúa þróuninni við.