Vikublaðið


Vikublaðið - 14.06.1996, Blaðsíða 8

Vikublaðið - 14.06.1996, Blaðsíða 8
8 VIKUBLAÐIÐ - ÞINGTÍÐINDI - JÚNÍ 1996 Við skulum ekki gleyma því að það var Verkamannaflokkurinn á Nýja Sjálandí sem kom örgustu frjálshyggjudellunni á þar i landi og jafnaðarmannaflokkarnir á Norður- löndum hafa stundum gengið ansi langt inn i hœgrímennskuna svona eins og þeir telji það „nútímalegt'* - svo maður noti orð sem mjög er í tísku - að sýna þeim tíðaranda sem frjálshyggjan hefur skapað lotningu sína, segir Ögmundur. Hvað hefur að þínum dómi ein- kennt þetta þinghald? Það setur óneitanlega mark sitt á þinghaldið að við erum í minnihluta og stjómar- andstöðu. Þetta þýðir að við höfum fremur verið í vöm en í sókn. Að sjálfsögðu höfum við kappkostað að koma baráttumálum okkar fram. Þannig höfum við verið með til- lögur í skattamálum, til dæmis varð- andi fjármagnstekjuskattinn. Þær til- lögur fannst mér mjög góðar gagn- stætt þeim sem ríkisstjómin setti ffam. Það er dæmigert fyrir vinnu- brögð hennar að nánast undantekn- ingalaust er öllum góðum áformum snúið upp í andhverfu sína. Þannig tókst henni að gera kröfur um skatt á fjármagnstekjur að skattaafslætti á arðgreiðslur. Og til að kóróna allt saman reyndi hún síðan að skella skuldinni á minnihluta vinnuhóps sem fulltrúar stjómarandstöðu höfðu átt sæti í - minnihluta sem sldlaði sér- álitd eftir að reyna að bjarga því sem bjargað varð. Okkur hefur tekist að þoka ýmsu fram og hafa mikil áhrif miðað við þá þröngu stöðu sem við erum í. Á því leikur ekki vafi. Frá okkar þingflokki hefur rignt yfir þingið þingsályktun- um og frumvörpum þar sem við reynum að ná stefhumálum okkar ffarn, og vinna þeim fylgi, til dæmis vomm við með ffumvarp um Lána- sjóð íslenskra námsmanna, þar sem gert er ráð fyrir að bæta hag náms- manna í samræmi við það sem við í kosningabaráttunni kváðumst mynd- um beita okkur fyrir. Þá er ég ekki í nokkmm vafa um að við höfum haft áhrif á mörg stjórnarffumvörp til hins betra á meðan þau vom á vinnslustigi inni í nefndum þingsins. Þetta er nokkuð sem ég held að fólk geri sér ekld fulla grein fyrir - ekki gerði ég það fyrr en á reyndi - hve mildð starf er unnið í nefhdum þings- ins. Vandað til málefnavinn- unnar Þamúg að áhrifin eru ekki alltaf sýnileg? Á vinnslusdginu geta þing- menn haft umtalsverð áhrif. For- senda þess er að sjálfsögðu sú að menn viti hvað þeir vilja - hafi stefhumál sín á hreinu. Það finnst mér einkenna þennan hóp okkar - þingflokk Alþýðubandalags og óháðra - að við höfum þegar á heild- ina er litið unnið okkar málefhavinnu mjög vel og höfum traustan grunn að standa á. Hér byggir Alþýðubanda- lagið að sjálfsögðu á gömlum merg en þessa vinnu unnum við einnig í sameiningu fyrir síðustu þingkosn- ingar og síðan höfum við treyst þennan málefhagrunn með endur- skoðun og stöðugri vinnu. Fyrir dyr- um stendur slík vinna í sumar og hef- ur formaður Alþýðubandalagsins haff slíka undirbúningsvinnu á hendi og vænti ég mjög góðs af henni. Þegar á heildina er litið finnst mér þingflokkurinn hafa fylgt mjög skýrri stefhu og verið sjálíum sér samkvæm- ur. Hann tekur afstöðu með hinum almenna launamanni, elli- og ör- orkuþegum og hefúr það að megin- markmiði að vinna að kjarajöfhuði í þjóðfélaginu. Þetta er grtmdvalla- þemað sem byggt er á. Einnig höfum við -tekið mjög skýra afstöðu með verkalýðshreyfingunni gegn yfir- gangi ríkisstjómarinnar varðandi skerðingar- og haftaffumvörpin. Styðjum lýðræðislega rétt- indabaráttu Hver verða langtímaáhrif þess- ara firumvarpa? Eg held að það sé smám saman að renna upp fyrir mönnum hvers konar sldpulags- breytingum er verið að reyna að koma á í þjóðfélaginu með þessum ffumvörpum. Þannig stóðum við í miklu stappi við fjármálaráðherrann um að fá hann til að greina okkur ffá þeim reglum sem hann kveðst ætla að setja um viðbótargreiðslur sem for- stjórar mega greiða ofan á launataxt- ana samkvæmt afköstum og dugnaði einstaklinganna. Við kváðumst ekld sætta okkur við einstaldingsbundna samninga á forsendum forstjóranna, því slíkt gæfi þeim auldn völd yfir starfsfólld og gæti leitt til spillingar og mismununar. Fjármálaráðherra svaraði því til að hann myndi setja reglur. Við vitum hins vegar að helst vill hann ekki setja neinar reglur sem eru takmarkandi einfaldlega vegna þess að hugmynd hans byggir á því að markaðsvæða launakerfið. Hitt er náttúrulega umhugsunarefhi að það sem ráðherrann kallar reglur og hann hefúr sagt að hann vilji setja einhliða hefur hingað til gengið undir vinnu- heitinu kjarasamningar. Um þessar reglur hafa menn samið, hvort sem það heita bónusar eða annað. Þetta er hins vegar dæmigert fyrir það sem verið er að reyna að gera; draga úr á- hrifum launamannsins, og samtaka launafólks. Það er markmiðið með lögunum um stéttarfélög og vinnu- deilur. Það er mjög í anda Thatcher- ismans. Allt fyrir lýðræðið segja þeir en eru í raun að reyna með öllum tiltækum ráðum að gera lýðræðislega réttindabaráttu erfiðari enda samtök atvinnurekenda himinlifandi með sína menn. Jákvæður farvegur og samvinna launafólks Hvað langtímaáhrif snertir, þá á það hreinlega eftir að koma í ljós. Kerfisbreytingamar munu að sjálf- sögðu hafa áhrif en við munum reyna að beina skaðlegum áhrifum inn í jákvæðan farveg. Þetta verður verk- efhi okkar. Málið er að láta aldrei deigan síga. Auðvitað munum við reyna að sjá til þess að samningar inni í einstökum stofnunum verði eftir sem áður á félagslegum grunni. Hins vegar munu vinnubrögð ríkisstjóm- arinnar lengi sitja eftir sem óbragð í munni. Mín von er sú að langtíma- áhrifin verði til þess fallin að þjappa verkalýðshreyfingunni saman og öll- um þeim sem vilja stuðla að jöfriuði í þjóðfélaginu. Ur þessu verðum við að vinna og þá reynir á samstöðuna. En hvað með pólitíska samein- ingu - í einn stóran jafinaðar- mannaflokk? Mér finnst sldpta máli hvað slíkur stór flokkur kæmi til með að gera. Við skulum ekld gleyma því að það var Verkamannaflokkurinn á Nýja-Sjálandi sem kom örgustu frjálshyggjudellunni á þar í landi og jafhaðarmannaflokkamir á Norður- löndum hafa stundum gengið ansi langt inn í hægrimermskuna svona eins og þeir telji það „nútímalegt" - svo maður noti orð sem mjög er í tísku - að sýna þeim tíðaranda sem frjálshyggjan hefur skapað lotningu sína. Stefna gerir menn sterka Það kom hins vegar frarn á þinginu í vetur að stjómarandstaðan var mjög sterk þegar skoðanir manna lágu saman. Þá hættu líka allar flokkslínur að sldpta máfi. I öðrum málum lágu skoðanir ekld saman og þá fóm menn sundur. Það sem vantar í þetta sof- andi þjóðfélag okkar er ekld nýr valdaflokkur heldur meiri skapandi, gagnrýnin og róttæk pófitík. Á henni þurfum við að halda en ég er ekki í neinum vafa um að hana er helst að finna innan vébanda okkar - Alþýðu- bandalags og óháðra. Stefna gerir menn sterka, ekki hentistefna. Og hentistefnu hættir mönnum til að fylgja ef þeir setja það eitt á oddinn að búa til stóran flokk eins og mér finnst margir komnir með á heilann. Stór floklcur er lítils virði nema fólk sé sátt við stefhu hans og nýsjálenska mar- tröðin sannar best. Tony Blair er að takast að gera Verkamannaflokldnn í Bretlandi stóran, en svo hægri sinn- aður er hann að verða að vinstri menn em farnir að horfa allt eins til SDLP, miðjuflokksins. Takmark okkar á að vera það að gera flokk með róttæka jafhaðarstefhu stóran og öfl- ugan. En stór floklcur má aldrei verða sjálfstætt takmark í sjálfu sér, nánast óháð þeirri stefnu sem hann fylgir. Menn era f stjómmálum til að hafa á- hrif á það sem gert er, í hvaða farveg þróuninni er beint. Ef menn gefa pólitíska stefhumótun upp á bátinn í sldptum fyrir völd, þá er til lítils barist. Slíkt þjónar ekki hagsmunum annarra en valdapólitíkusa og fylgi- fiska þeirra. Hverju svarar þú þeirri gagnrýni að þingflokkurinn og stjómarand- staðan í heild sinni hafi ekki staðið sig sem skyldi og verið stefhulaus. Hvað okkar þingflokk varðar þá er þetta alrangt. Stefnan hefur verið mj- ög skýr og mér finnast fullyrðingar í þessa vera afar ósanngjamar og reyndar fráleitar með hliðsjón af því mikla starfi og vinnu sem unnin hef- ur verið. Flins vegar finnst mér þetta lýsandi fyrir ákveðna taugaveiklun á félagshyggjukantinum á undanföm- um árum. Ámeðan frjálshyggjumenn hafa haft það skýra markmið að einkavæða samfélagsþjónustuna og stuðla að aukinni markaðsvæðingu á öllum sviðurn hvort sem er í velferð- ar- eða launakerfi, þá finnst sumum á okkar kanti það vera til marks um stefhuleysi ef þeir ekki skrifa upp á einhverja útfærslu af þessu tagi, það er að segja færa ffarn einhvem nýjan skipulagseinkavæðingarkokteil. Frá mínum bæjardyrum séð er það hins vegar skýr stefna að vinna að bættri samfélagsþjónustu - með stöðugum úrbótum og umbótum - og það er skýr stefna að fylgja launa- og skatta- stefhu sem hefur það að markmiði að jafna kjör. Höfum skýra stefnu - skýr markmið Þetta era skýr pólitísk markmið sem stöðugt er tekist á um og hafa deilur uin þessi efni verið í brenni- depfi í allan vetur, bæði í velferðar-, skatta- og atvinnumálum. Pólitíldna í þessu virðast sumir hins vegar eiga erfitt með að koma auga á eða þá að þeim finnst ekld nógu firit að hafa ekld einhverjar alveg glænýjar patentlausnir upp á vasann. Þeir sem svona hugsa krefjast þess að menn eigi stöðugt í heljarstökkum og stór- fenglegum kerfisbreytingum, þar sem allt er rifið upp með rótum jafh- vel þótt það hafi reynst prýðilega. Þessi gagnrýni og brigsl um stefnu- leysi er því að mínum dómi fyrst og síðast til marks um taugaveiklun eða þá einfaldlega að viðkomandi era ekld sammála þeirri stefhu sem fylgt er, þeim lausnum sem félagshyggjan- hefur ffarn að færa. Félagshyggju- menn verða að gæta að því að láta frjálshyggjumenn ekld skilgreina þjóðfélagsvandamálin, því með því móti er hætt við að lausnimar verði einnig steyptar í þeirra mót. Mér hefur fundist þingflokkur AI- þýðubandalags og óháðra beita sér af krafti í þá vera að leita stöðugt leiða til atvinnusköpunar og lífskjarajöfn-

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.