Vikublaðið


Vikublaðið - 14.06.1996, Blaðsíða 10

Vikublaðið - 14.06.1996, Blaðsíða 10
10 VIKUBLAÐIÐ - ÞINGTÍÐINDI - JÚNÍ 1996 120. löggjafarþingið 1995-96 Þingmál Alþýðu- bandalagsins og óháðra Þingmenn Alþýðubandalagsins og óháðra tóku fjölmörg mál upp á Alþingi á 120. löggjafarþinginu. Auk fnunvarpa og þingsályktunar- tillagna voru þingmennimir virkir í flutningi fyrirspuma og beiðna um skýrslur, auk þess að efria til utandagskrárumræðna um einstök mikilvæg mál. Hér verður reynt að gera sem gleggsta grein íyrir málatilbúnaði þingflokksins. Bryndís Hlöðversdóttir Þingsályktunartillögur 1. Um stefnumótun í íþróttum stúlkna og kvenna. Nefrid vinni í samráði við ISI og UMFI að því að efla íþróttir stúlkna og kvenna og leitást við að koma í veg fýrir eða minnka hið mikla brotthvarf stúlkna úr í- þróttum. Skoði sldptingu fjár- magns og kynjasldptingu forysm- manna. 2. Um fúllgildingu á samþykkt Al- þjóðavinnumálastofiiunarinnar nr. 158, um uppsögn starfs af hálfú atvinnurekanda. Alþingi felur ríldsstjóminni að fúllgilda samþykkt nr. 158 frá 1982. Hún tekur til þess að at- vinnurekanda er skylt að rök- styðja uppsögn, að gild ástæða sé til uppsagnar og í þriðja lagi er kveðið á um tiltekna málsmeð- ferð við uppsögn. Fyrirspumir 1. Til utanríldsráðherra tun fram- kvæmd alþjóðasamnings um af- nám allrar mismummar gagnvart konum. 2. Til menntamálaráðherra um endurskoðun íþróttalaga. 3. Til menntamálaráðherra um út- hlutunarreglur LIN. 4. Til félagsmálaráðherra um skýrslu um stöðu og þróun jafh- réttismála. 5. Til dómsmálaráðherra um jafh- réttisfræðshi fýrir dómara. 6. Til dómsmálaráðherra um jafn- réttisfræðslu fýrir dómara (innt eftir svörum). Hjörieifur Guttormsson Frumvörp 1. Um rétt dl launa í veikindafor- föllum. Um jöfrtun á rétti launafólks til launa í veikindaforföllum og sér- staklega um rétt heilbrigðra líf- færagjafa í því sambandi. 2. Um orku fallvama og nýtingu hennar og um breytingu á vatna- lögum. Orka fallvatna verði eign íslenska ríldsins - þjóðareign, o.fl. Flutt af öllum þingflokknum. 3. Um jarðhitaréttindi. Lögfestar verði reglur um um- ráðarétt og hagnýtingarrétt jarð- hita. Landeigendur hafi rétt nið- ur að 100 metra dýpi, annars sé um þjóðareign að ræða. Flutt af öllum þingflokknum. 4. Um breytingu á lögum um land- græðslu. Frumvarpið snertir aðallega notkun innfluttra planma í land- græðslu þannig að hún falli að stefhu um gróðurvemd og al- þjóðlegum skuldbindingum tun vemdun h'ffræðilegrar fjölbreytni. 5. Um breytingu á lögum um nátt- úmvemd. Varðar afmörkuð atriði á sviði náttúmvemdar með víðtæku á- kvæði um landslagsvemd og frekari skorður við efhistöku og jarðraski. 6. Um breytingu á útvarpslögum. ÓheimiÍt verði að birta auglýs- ingar sem ganga gegn laga- ákvæðum tim umhverfisvemd og hvetja til hegðvmar sem stangast á við lög og reglur um umgengni við náttúm landsins (t.d. akstur vélknúinna ökutækja utan vega). 7. Um gæludýrahald. Lögfesting á almennri heimild fýrir sveitarfélög til íhlutunar um gæludýrahald í þéttbýli, sam- kvæmt sldlyrðum sem þau setja sjálf. 8. Um sveitarfélög (heiti sveitarfé- laga). Frumvarpið gerir ráð fýrir því að sveitarstjóm ráði sjálf heiti síns sveitarfélags eftir staðfestingu fé- lagsmálaráðuneytisins (nú er kveðið á um að þau verði að bera eitthvert heitanna hreppur, bær eða kaupstaður). Þingsálykmnartillögur 1. Um úttekt á hávaða- og hljóð- mengun. Alþingi skori á ríkisstjómina að láta fara fram víðtæka úttekt á hávaða- og hljóðmengun hér- lendis og leggja fýrir næsta þing niðurstöður hennar og tillögur til úrbóta. 2. Um undirbúning vegna flumings ríldsstofhana. Rfldsstjómin móti reglur um málsmeðferð við flutning ríkis- stofhana milh landshluta (að- staða, kjör, réttarstaða og fleira). Fyrirspumir 1. Til dómsmálaráðherra um hús- næðismál sýslumannsembættisins á Seyðisfirði. 2. Til umhverfisráðherra um mengun af brennisteinssam- böndum (staðfesting á alþjóð- legri bókun). 3. Til iðnaðarráðherra um af- gangsorku í kerfi Landsvirkjunar. 4. Til iðnaðarráðherra um (áætlanir um) gufuaflsvirkjun á Nesjavöll- um. 5. Til iðnaðarráðherra um raforku til stækkunar jámblendiverk- sniiðju. 6. Til iðnaðarráðherra um orku- freka iðnaðarkosti. 7. Til umhverfisráðherra um mengunarhættu vegna olíuflutn- inp. 8. Til samgönguráðherra um vá vegna olíuflutninga. 9. Til iðnaðarráðherra um orku fallvatna og jarðhita. 10. Til forsætisráðherra um verk- efhaskrá rfldsstjómarinnar. 11. Til samgönguráðherra um tölvu- skráningu símtala. 12. Til samgönguráðherra um þungaflutninga á þjóðvegum. 13. Til dómsmálaráðherra um ör- yggi við þungaflutninga á þjóð- vegum. 14. Til umhverfisráðherra um merk- ingar afurða erfðabreyttra h'fvera. 15. Til iðnaðarráðherra um ál- bræðslu á Grundartanga. 16. Til umhverfisráðherra um losun koltvísýrings. 17. Til landbúnaðarráðherra um for- sendu vistvænna landbúnaðaraf- urða. i Kristinn H. Gunnarsson Fyrirspumir 1. Til félagsmálaráðherra um fjár- mál sveitarfélaga (fjárhagsáætlan- ir sveitarsjóða). 2. Til forsætisráðherra um nefhdir á vegum ráðuneyta (í tíð núver- andi rfldsstjómar). Margrét Frímannsdóttir Frumvörp 1. Um breytingu á lögum um gjald af áfengi. Um að innheimt gjald í Forvam- arsjóð megi nota til forvamar- starfa gegn annarri fíkniefha- neyslu en bara áfengisneyslu. Samþykkt sem lög frá Alþingi. 2. Um breytingu á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Um að horfið verði frá „eftirá- greiðslum“ en samtímagreiðslur teknar upp að nýju. Bráðabirgða- ákvæði um heildarendurskoðun á lögunum um LIN. Flutt af öllum þingflokknum. 3. Um atvinnuleysistryggingar (bótaréttur fanga). Maður, sem lokið hefur sam- felldri afþlántm refsivistar sem staðið hefúr a.m.k síðustu 12 mánuði, að meðtalinni gæslu- varðhaldsvist, skal hafa rétt til at- vinnuleysisbóta, þótt hann upp- fýlh ekld almenn skilyrði til greiðslu bótanna. Þingsályktunartillögur 1. Um sldpun nefhdar um menn- ingar- og tómstundastarf fatl- aðra. Félagsmálaráðherra skipi fimm manna nefiid til að kanna á hvem hátt fatlaðir geti notið sumar- leyfa, tómstunda, lista og menn- ingarlífs á sama hátt og aðrir í þjóðfélaginu og gera tillögur um úrbætur. 2. Um rannsókn á launa- og starfs- kjörum landsmanna. Rfldsstjóminni falið að láta gera rækilega og víðtæka rannsókn á launa- og starfskjörum lands- manna, með samanburði milh einstakra hópa og samspili samn- ingsbundinna launataxta og yfir- borgana. Flutt af öllum þing- flokknum. 3. Um könnun á sameiningu ríkis- viðsldptabankanna. Alþingi ályktar að fela rfldsstjóm- inni að kann sérstaklega samein- ingu rfldsviðsldptabankanna í einn viðskiptabanka. Flutt af öll- um þingflokknum. 4. Um samráðsnefhd um hagsmuni aldraðra og öryrkja. Nefhd ýmissa hagsmunaaðila veiti rfldsstjóminni umsagnir um öh málefhi er varði hagsmuni og réttindi aldraðra og öryrkja og hafi frumkvæði að upptöku mála þar að lútandi. Beiðni um skýrslu 1. Til forsætisráðherra um muninn á launum og lífskjörum á íslandi og í Danmörku. Beðið um víðtæka skýrslu þar sem bera skal saman fjölmarga þætti er varða laun og lífskjör í þessum löndum. Flutt af öllum þingflokknum. Fyrirspumir 1. Til landbúnaðarráðherra um Jarðasjóð (kaup á jörðum o.fl.) 2. Til landbúnaðarráðherra um út- hlutanir úr Framleiðnisjóði land- búnaðarins. 3. Til menntamálaráðherra um starfsþjálfun nemenda á ffarn- halds- og háskólastigi. 4. Til dómsmálaráðherra tun störf dómara á vegum framkvæmda- valdsins (seta í nefndum o.fl.). 5. Til dómsmálaráðherra um reglur um þátttöku bama og unglinga í happdrætti (reglur). 6. Til fjármálaráðherra um skatt- lagningu happdrættisreksturs (hvemig háttað). 7. Til heilbrigðisráðherra um rétt- indi langtímaveikra bama. 8. Til félagsmálaráðherra um rétt- arstöðu fólks við gildistöku EES- samningsins. 9. Til heilbrigðisráðherra um rétt- arstöðu fólks við gildistöku EES- - samningsins. Ragnar Arnalds Fyrirspumir 1. Til samgönguráðherra um ein- breiðar brýr (um breikkun og kosmað o.fl.) 2. Til menntamálaráðherra um ó- byggt skólahúsnæði. Steingrímur J. Sigfússon Frumvörp 1. Um friðlýsingu Islands fyrir kjamorku- og eiturefiiavopnum. Lög þessi gera Island að friðlýsm svæði þar sem bannað er að koma fýrir, staðsetja eða geyma, flytja um eða meðhöndla á nokkum annan hátt kjamorku- og eiturefnavopn. Umferð kjam- orkuknúinna farartækja er bönn- uð á hinu friðlýsta svæði og einnig flutningur eða losun kjamakleyffa efna og kjamorku- úrgangs. 2. Um stjóm fiskveiða (heildarafli þorsks, úrelding nótasldpa o.fl.)- 3. Leyfi ráðherra til að gera breyt- ingar á heildarafla þorsks miðist við 1. júm' í stað 15. apríl. 2. Á- Samstaða með öðrum stjórnarandstöðuflokkum Samvinna stjómarandstöðuflokkanna á 120. löggjaf- arþinginu var með miklum ágætum. Þingmenn AI- þýðubandalagsins og óháðra voru meðflutningsmenn að fjölmörgum þingmálum, þar sem þingmenn annarra stjómarandstöðuflokka vom fýrstu flutningsmenn. Hér verður ekki farið út í tæmandi upptalnipgu á shkum málum, aðeins stiklað á stóm. Fyrst skal upp telja „formannaffumvörpin" svokölluðu, þar sem for- menn Alþýðuflokksins, Alþýðubandalagsins og Þjóð- vaka flutm saman tvö ffumvörp er bæði lum að fjár- magnstekjuskattintim. Af öðmm meðflutningsmálum má nefha þessi helst: Bryndís Hlöðversdóttir tók þátt í flutningi mála um t.d. opinbera fjölskyldustefnu, um sérstakan ákæranda í efhahagsbrotum, um læsivarða hemla í biffeiðum og um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni. Hjörleifúr Guttormsson var með í tillögu um aðgerðir gegn kyn- ferðislegri áreitni. Kristinn H. Gunnarsson var með í tillögu rnn samgöngur á Vestfjörðum og um skattlagn- ingu forseta Islands. Margrét Frímannsdóttir var með í formannaffumvörpunum fýrrnefhdu og t.d. ffumvarpi um hækkun lögræðisaldurs. Olafúr Ragnar Grímsson var meðflutningsmaður tillögu um trúnaðarsamband fjölmiðlamanna og heimildarmanna. Steingrímur J. Sigfússon var með í tillögu um græna ferðamennsku og frumvarpi um vörugjald af ökutækj- um. Svavar Gestsson tók þátt í flutningi mála tun t.d. opinbera fjölskyldustefnu, birtingu upplýsinga úr á- lagningar- og skattskrám og um skýrslu um kynferðis- og sifskaparbrotamál. Ögmundur jónasson var með í tillögum um t.d. bætta skattheimtu, um hh'fðarhjálma við hjólreiðar og tun heildarlaun tekjuhæstu starfs- manna ríldsins. Guðmundur Lárusson varaþingmaður var meðflum- ingsmaður að tihögu um mat á jarðskjálftahættu og styrkleika mannvirkja á Suðurlandi. Loks var Guðrún Helgadóttir varaþingmaður meðflutningsmaður að beiðni um skýrslu um áhrif 14% virðisaukaskatts á bóka-, blaða- og tímaritaútgáfu.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.