Vikublaðið


Vikublaðið - 05.07.1996, Page 4

Vikublaðið - 05.07.1996, Page 4
í VIKUBLADIÐ 5. JÚLÍ 1996 stj dramálum Á aldarafmæli Katrínar Thoroddsen , eftir Armann Jakobsson Katrín Thoroddsen fæddist á ísafirði 7. júlí 1896, dóttir Skúla Thoroddsen alþingismanns og ritstjóra, leiðtoga Sjálfstæðisflokksins fyrra, og Theodoru Thoroddsen skálds. Katrín varð stúdent frá Reykjavíkurskóla 1915 en lauk læknisprófi frá Háskóla Islands árið 1921. Hún stund- aði framhaldsnám í bamasjúkdómum í Noregi, Danmörku og Þýskalandi en var þá læknir í Flatey í Breiðafirði og síð- an fyrst kvenna læknir í Reykjavík. Hún var Iæknir ung- bamadeildar Líknar, síðar Heilsuvemdarstöðvar Reykjavík- ur frá 1927 og yfirlæknir firá 1940 en yfirlæknir Heilsu- gæslustöðvar Reykjavíkur og bamadeildar hennar 1955- 1961. Lengi sat hún í miðstjóm Sósíalistaflokksins og gegndi trúnaðarstörfúm fyrir hann. Hún tók sæti á þingi sem varamaður í mánuð árið 1945 en var landskjörinn al- þingismaður 1946-1949 og bæjarfúlltrúi í Reykjavík 1950- 1954. Hún var fyrst vinstrisinnaðra kvenna þingmaður á Is- Iandi. Um skeið sat hún í bamavemdamefnd Reykjavíkur og var formaður Menningar- og minningarsjóðs kvenna frá 1945 til dánardags. Katrín lést í Reykjavík 11. maí 1970. Katrín var fædd á landi á barmi róttækra breytinga sem hafði umbreyst er hún lést. Hún var ein þrettán systkina sem héldu löggjafar- og dómssamkomur og vandist þannig lýðræði frá bemsku, afkomandi frjálslyndra stuðningsmanna Jóns Sigurðs- sonar sem höfðu haldið uppi öflugu menningar- og stjómmála- lífi í Breiðafirðinum. Forfaðir hennar gaf út fyrsta íslenska tíma- ritið, afi hennar skrifaði fyrstu íslensku skáldsöguna, móðir hennar var merkt skáld og bróðir hennar einn af forvemm módemismans. Faðir hennar hafði verið ötulasti málsvari kven- réttinda á alþingi fyrir utan að vera róttækur sjálfstæðismaður og móðurafi hennar hafði löngu fyrr vakið máls á misrétti kynjanna á alþingi án þess að hljóta hljómgrunn. Katrín var meðal fyrstu kvenna á Islandi sem alin var upp í því að hún stæði jafnfætis körlum á öllum sviðum og fyrir henni lá að ryðja brautina, vera meðal fyrstu kvenstúdenta, fyrstu kvenlækna og fyrstu kvenþing- manna. Katrín þjáðist aldrei af vanmáttarkennd vegna kynferðis síns þótt hún sæi misrétti kynjanna hvert sem hún fór. Fyrir henni vom kynin jöfn. Konur gátu allt sem þær vildu. Katrín hlaut því að verða og varð eins konar kvenhetja en sög- unni lýkur þó ekki þar. Kvenhetjan er aðeins ein hliðin á þver- sagnakenndri og jafnvel dularfullri konu sem ekki fellur undir al- hæfingar eða staðalmyndir. A þeim ljósmyndum sem oftast sjást af henni er Katrín geðvonskuleg að sjá, jafnvel grimmúðleg. Samt varð til um hana sú þjóðsaga í lifanda lífi að ungaböm hættu að gráta þegar hún tók á þeim og hún var elskuð og dáð af þeim sem leituðu til hennar sem læknis. Hún var orðlögð fyrir sérstæða og kaldranalega kímnigáfu og hryssingslega framkomu en kastaði þó öllu frá sér til að hjálpa bami í neyð. Hún gantað- ist með helstu baráttumál sín þegar illa gekk, sagði til að mynda í erindi sem birt er í 1. árgangi Melkorku: „Það er sagt, að erfitt sé að koma úlfalda í gegnum nálarauga, og ekld efa ég, að svo sé. En ég þarf að sjá þá skepnu áður en ég sannfærist um, að það sé meira þrekvirld en að koma ungbami á sjúkrahús hér í Reykja- vík.“ Þversagnimar umlykja þessa konu sem helgaði líf sitt reyk- vískum bömum en giftdst aldrei eða eignaðist böm. Hún kann að virðast einfari þegar æviágrip hennar er lesið en bjó oftast með öðmm, lengst með systur sinni, Kristínu hjúkmnarkonu. Fjöl- skylda hennar var mikil að vöxtum og samrýmd og í henni stöðugar heimsóknir, veislur og gjafir. Og þótt Katrín væri bæði læknir og sósíalistí gat hún skemmt sér yfir draugum og andatrú eins og móðir hennar og aðrir fjölskyldumeðlimir. Katrín lifði öld sem allir Islendingar þóttust skyggnir, draugar og andar vom í hverju homi, þegar hringt var á bjöllu komu til dyra einn lifandi og fimm látnir. Þetta var sumum sannfæring, öðmm sem hver önnur dægradvöl. En um leið var þetta tíð vísindanna sem skýrðu jafnt veikindi og samfélag. Læknismenntun Katrínar settí mark á hugsun hennar og mál- flutning, henni var tamt að Iíkja þjóðfélagsástandinu við sjúk- dóma og útskýra mál sitt með samanburði milli þjóðfélagsmeina og likamskvilla. Sem sósíalisti var hún eins konar samfélagslækn- ir. Hún var einstaklingshyggjumaður sem berst fyrir frelsi allra einstaklinga, ekki aðeins þeirra sem eiga fyrirtæki. Þjóðfélagið var fyrir henni samsafn einstaklinga sem hver og einn áttu að fá notíð sín: „öll farsæld og velferð þjóðfélagsheildar byggist fyrst og fremst á vellíðan einstaklinganna, á andlegri og líkamlegri heilbrigði þeirra“ segir hún í fyrmefndu erindi.1'1 En þó að Katrín sameinaði starf og stjómmál átti hún sér fleiri hliðar, var þannig núkill fagurkeri og fylgdist með nýjusm straumum í list- um, á alþingi barðist hún tíl að mynda fyrir að Nína Tryggva- dóttir yrði styrkt til listsköpunar. Katrín Thoroddsen var þversagnakennd kona, þjóðemissinni og alþjóðasinni, trúði bæði á Is- Iand og mannkynið. Hún var einstaklings- hyggjumaður og sósíalisti, barðist fyrir velferð allra einstaklinga og taldi að einungis með sósíalisma mætti ná henni fram. Hún var málsvari þeirra sem minna mega sín þjóðfélaginu, trúði á samfélags- bylringu um leið og sldlning- ur og traust á lýðræðinu vom inngreypt í hana frá bam- æsku. Hún var raunsæ í málflutningi, vildi fara fetið í rétta átt og var þess fullviss að með tíð og tíma myndi hún gera gagn þrátt fyrir skiln- ingsleysi samtíðarinn- ar. Um leið horfði hún í fjarska framtíðarinn- ar, hugsjón hennar var samfélag þar sem allir væm jafhir og gætu norið lífsins, karlar, konur og böm, og tek- ist hefði að vinna bug á helstu meinsemdum mannfélagsins. Árið 1931 héltKatrín erindi á vegum Jafhaðar- mannafélags Reykjavíkur sem hún varð að endur- taka, flytja í útvarpi og að lokum var það gefið út. Það hét hneykslanlegu nafhi Katrín Thoroddsen var þver- sagnakennd kona, þjdðernis- sinni og alþjóðasinni, trilði bæði á Island og mannkynið. Hún var________ lingshyggjumaður og sdsíalisti, barðist fyrir velferð allra einstaklinga og taldi að einungis með sósíalisma mætti ná henni fram. Hún var málsvari þeirra sem minna mega sín í þjdðfé- laginu, trúði á samfélagsbýltingu um leið og skilningur og traust á lýðræðinu voru inngreypt í hana frá barnæsku. Hún var raunsæ í málflutningi, vildi fara fetið í rélta átt og var þess fullviss að með tíð og tfma myndi hún gera gagn þrátt fyrir skilningsleysi samtfð- arinnar. Um leið horfði hún í fjarska framtfðarinnar, hugsjón hennar var samfélag þar sem allir værujafnir og gætu notið lffs- ins, karlar, konur og börn, og tekist hefði að vinna bug á helstu meinsemdum mannfélagsins. Frjálsar ástir, og vakti mikla athygli. Á famennum stöðum safh- aðist fólk kringum þau fáu útvarpstæki sem þar voru.121 Markmið Katrínar var að ffæða um takmarkanir barneigna og eyða for- dómum um þær en auk þess ógilda 62 ára gömul lög um fóstur- eyðingar. Mörgum þóttu fóstureyðingar morð en Katrín taldi að líf og heilsa móðurinnar yrði að hafa forgang. Hafa ber í huga að ólöglegar fóstureyðingar voru ril hér eins og alstaðar þar sem þær voru bannaðar og Katrín vildi í senn bæta getnaðarvamir til að koma í veg fyrir fóstur- eyðingar og leyfa þær með .Iögum til að koma í veg fyrir stórslys. Þau sjónarmið hafa orðið ofan á hvarvetjta sem mannréttíndi eru í hávegum höfð og á Islandi ruddi hún þá braut.P1 Margir urðu tíl að mótmæfá skoðunum Katrínar, hún var' sögð ýta undir siðleysi og stóðlífi og settu andstæð- ingar hennar jafhaðar- merki • .njiltj ggtnaðar- varna' og. kon,upújúsma, siðléýsi hvorttveggja. Frjálsar ástír voru bannorð og sérstak- lega fyrir konur, þolendur getnaðar- vamaleysisins. Katrín vildi frelsa konur frá stöðugri óléttu bestu ár æv- innar. Fyrir tilstílli hennar og þeirra sem fylgdu í kjölfarið lifa gifrar íslenskar konur nú lífi sem for- mæður þeirra á 19. öld dreymdi ekki um sem vom á bameignar- aldri jafnan armað hvort óléttar eða með bam á brjóstí og 7-15 önnur í eftirdragi.141 Viðleitni hennar og ann- arra til að bjarga auSturrísk- um gyðingabömum ffá ömur- legum örlögum um áramórin 1938-1939 bar ekki sama árangur. Foreldrar þeirra höfðu flestir verið sendir í fangabúðir og reyndu að koma bömum sínum undan. Katrín ætlaði að taka í fóstur þriggja ára gamla stúlku en finna öðrum stað á Islandi og hafði fengið jákvæð svör ffá nokkrum stjómmálamönnum en Hermann Jón- asson forsætís- og dómsmálaráðherra varð að ljórú í veginum. Ekki er vitað um örlpg barnanna en líf þeirra var í húfi og var ICatrín að vonum-r.eið yfir af- stöðu forsætisráðherra og vakti athygli á málinu í grein í Þjóðviljanum. Þá skrifaði Tíminn pistil um málið þar sem Katrín var sögð vilja „heldur taka út- lent bam en íslenzkt sökum þess, að það vekur meiri efdrtekt“ og ætla ffemur að „auglýsa mannúð, en sýna hana í verld.“151 Eins og margt sem féll í hita stjómmálaleiksins á þeim tíma em skot Tímans út í Ioffið. Katrín skreytti sig aldrei hjartagæsku. Þvert á mótí faldi hún sig bak við þungbúna ættargrímuna, brynjuð gervi Sturlungualdarkonu eða Olafar ríku sem grét ekld Bjöm bónda heldur safnaði liði. Katrín Thoroddsen sat í þrjú ár á þingi. Þar barð- ist hún fyrir almennum mannréttindum og velferð. Hún birtist okkur í þingtíðindum að tala máli hinna réttlausu í þjóðfélaginu. Hún vildi styrkja böm fá- tækra til ffamhaldsmenntunar, að réttur atvinnu- lausra væri skýr, að á sjúklinga væri ekki litið sem af- 1

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.