Vikublaðið - 05.07.1996, Side 5
VTKUBLAÐIÐ 5. JULI1996
brotamenn og að ekki væri lagður
steinn í götu kvenna sem vildu vinna
úti. Hún lagði fram frumvarp um
vemd bama og ungmenna sem var
samþykkt þrátt fyrir lítinn áhuga
þingsins. A fyrsta þingi sem Katrín
sat lagði hún fram frumvarp um að
tekjur hjóna skyldu taldar fram tdl
skatts hvors í sínu lagi. Það kom
aldrei tdl frekari umræðu og varð ekki
að lögum fyrr en árið 1978. Hún
lagði eirtnig fram frumvarp um dag-
heimih fyrir böm sem gufaði upp og
lagði til að leyft yrði að flytja inn nýja
ávexti sem ekki kom heldur til fram-
kvæmda. Þáverandi viðskiptaráð-
herra benti við það tækifæri á að ís-
lendingar hefðu komist af án ávaxta í
árþúsund. Almennt var Katrín trygg
flokld sínum á þingi en tók sjálfstæða
afstöðu ef því var að skipta. Þegar
beðið var um leyfi tdl að höfða meið-
yrðamál gegn Olafi Thors, aðaland-
stæðingi Sósíalista, varaði hún við
fordæminu, undanþágur frá ffiðhelgi
alþingismanna gætu orðið kúgunar-
tæld stjómar gegn stjómarandstöðu.
Skilningur Katrínar Thoroddsen á
sósíalismanum kemur ffarn í grein í
Melkorku. Þar rifjar hún upp eigin
myrkfælni í bemsku og líldr ótta við
sósíalismann við ofsahræðslu eða
fóbíu: „afstaða margra kvenna til sós-
íalismans og stjómmála almennt er
afar áþekk viðhorfi myrkhrædds
bams til dimmra fjárhússdyra, sem
það annað hvort hendist ffamhjá í
hræðsluofboði eða leggur langa
lykkju á leið sína til að forðast.“ Nið-
urstaðarl‘6r að hræðsla kvenna við
sósíalismann sé óþörf, konur geti sótt
margt til hans. Konur hlutu lægri
laun en karlar fyrir sömu vinnu en
sósíalistar vildu breyta því og taldi
Katrín það mannréttindamál: „þá er
það alls ekld upphæðin sjálf, sem máli
sldptir, heldur ójöfhuðurinn og ó-
réttlætið, sem í þessum kynferðis-
kaupmælikvarða felst.“ Henni fannst
ósamboðið „heiðri íslenzkra kvenna
að Vefa' öfrjálsar í sínu eigin landi.“16'
I jafiiréttismálum lifði Katrín ekld að
sjá ávexti eigin erfiðis. Enn er margt
ógert sem hún barðist fyrir og orðið
„kynferðiskaupmælikvarði" í fullu
gildi.
Á effi ámm segir Katrín um stöðu
kvenréttindabaráttunnar: „Kvenrétt-
indabaráttunni er ekld lokið, hún er
enn á ffumstigi og henni lýkur aldrei
frekar’en öðriim ffelsisstríðum, þau
era eilíf.“U
Katrín taldi kvenréttindabaráttuna
ffelsisstríð, eitt af þremur sem stjóm-
málaævi hennar snerist um. Annað
var hin endalausa barátta fyrir rétti
þeirra snauðu og sjúku, hið þriðja
baráttan fyrir herlausu Islandi. Þau ár
sem hún sat á þingi var samþykktur
herstöðvarsamningur við Bandaríkin
og að ganga í Atlantshafsbandalagið.
Katrín var ffiðarsinni og sjálfstæðis-
maður, dóttir Skúla Thoroddsen sem
ríkastan þátt átti í að Island fékk full-
veldi, og var sárt að sjá sjálfstæði
þjóðarinnar skert í bemsku. En auk
þess stafaði andúð Katrínar á þátt-
töku íslendinga í hemaðarbandalagi
á vantrú hennar á stáli: „þá fyrst lögð-
ust niður vígaferli hér á landi, er
landsmenn hættu að bera vopn, og
við treystum því lítt á ffiðarvilja
þeirra, sem era gráir fyrir vopnum,
hervæðast í óða önn og heimta af
okkur herstöðvar. Til að tryggja ftið
er afvopnun eina leiðin". Afstaða
Katrínar til stríðs og hemaðarbanda-
laga er afstaða föður hennar hálffi öld
fyrr en sjálf hafði hún lifað tvær
heimsstyrjaldir og séð afleiðingar
þeirra. Velmegun og fölsk öryggis-
kennd hafa rænt nútímamanninn
minni á þær hörmungar og sldlningi
á ógnum hemaðarins. Andstaða
Katrínar og fleiri íslendinga við her
er ekki lengur í tísku en eðli stríðs-
reksmrsins hefur ekki breyst og tíma-
bært að rifja upp trúna á vopnlausan
ffið.
Það hefur ekki farið hátt um
Katrínu Thoroddsen undanfarið og
sjálfsagt hafa rnargir aldrei heyrt hana
nefrida. En skjólstæðingar hennar
gleyma henni ekki. Katrín var ekki
sjálfumglaður og athyglissældnn
stjómmálamaður með annað augað á
bankastjóra- og sendiherrastöðum
sem berst fyrir því sem vænlegt er til
atkvæða í næstu kosningum. Hún tók
þátt í stjómmálum af réttlætiskennd
og mannkærleika, var aðeins smtta
stund stjómarþingmaður og talaði að
mesm fyrir daufum eyram en síðan
hafa mörg baráttumál hennar gengið
eftir. Þeir sem kynna sér afstöðu Is-
lendinga til örlaga þýskra gyðinga sjá
í verki sérstöðu Katrínar Thorodd-
sen. Þegar sumir þögðu og aðrir létu
sér nægja að tala reyndi hún að grípa
til aðgerða.
Katrín Thoroddsen hefði orðið
hundrað ára þessa helgi. Off er sagt
um þennan og hinn að þeir hafi verið
á undan samtíð sinni. Sú mgga á sér-
lega vel við ævistarf Katrínar. Hún
var á undan samtíð sinni en ekki að
eigin ósk, hún gerði hvað hún gat til
að breyta samtíðinni í þá átt sem hún
vildi, draga hana með sér inn í ffam-
tíðina. Hún lét aldrei bugast þrátt
fyrir að rekast oft á veggi skilnings-
leysis og eintrjáningsháttar sem
stundum var svo himinhrópandi að
hún hefur verið nefnd „kona í karla-
veröld.“l81 Þessi tímamót era því
áminning um að hætta aldrei að berj-
ast fyrir hugsjónum okkar þó að á
móti blási, horfa ævinlega ff am á veg-
inn og síðast en eldd síst að trúa á
mannkynið og vilja bæði veg þess
sem heildar og faraað hvers manns
sem mestan.
Tilvitnanir:
[ 1 ] Katrín Thoroddsen. Erindi.
[2] Sbr. Kristín Ástgeirsdóttir. „Fyrst
og ffemst einlcamál kvcnna", 57.
[3] Þannig er Katrínar getið í Hug-
myndasögu eftir Olaf Jens Pémrs-
son (bls. 291)
[4] Dæmi um áhrif óléttuý líf ís-
lenskra kvenna eru í: Ágústa Bárð-
ardóttir. „En hún mun hólpin
verða, sakir bamsburðarins ...“ .
[5] Tilvísun í: Einar Heimisson.
,Mannúð bönnuð á Islandi.“.
[6] Katrín Thoroddsen. Áróður og
ofnæmi, 16-17.
[7] Þjóðkunnar konur svara fyrir-
spumuin um kvenréttindamál, 31.
[8] Arnþór Gunnarsson. Kona í -
karlaveröld.
Heimildir:
Alþingistíðindi 1946-1949.
Amþór Gminarsson. Kona í karlaver-
öld. Þáttur Katrínar Thoroddsen í
jafnréttisbarátm íslenskra kvenna
1920-1960. Sagnir (11) 1990, 35-41:
Ágústa Bárðardóttir. „En hún mtm
hólpin verða, sakir bamsburðarins ...“
Um ffjósemi íslenskra kvenna á fyrri
hluta nítjándu aldar. Sagnir (16) 1995,
15-21.
Einar Heimisson. „Mannúð bönnuð á
Islandi." Þjóðlíf 4.árg. 8.tbl. ágúst
1988, 55-7
Einar Olgeirsson, Halldór Hansen og
Sverrir Kristjánsson. Katrín Thorodd-
sen (minningargreinar). Þjóðviljinn
20. maí 1970. Tvær þær seinusm era
prentaðar í Æviminningabók Menn-
ingar- og minningarsjóðs kvenna. IV.
Sigrún Ámadóttir sá um útgáfu. Rvík
1973. Minningargrein Sverris er í
Ritsafhi hans.
Katrín Thoroddsen. Frjálsar Ástir. Er-
indi um takmarkanir bameigna. Rvík
1931.
Katrín Thoroddsen. Áróður og of-
næmi. Melkorka (1) 1944,11-17.
Katrín Thoroddsen. Erindi. Melkorka
(1) 1944,47-50.
Kristín Ástgeirsdóttdr. „Fyrst og
ffemst einkamál kvenna.“ Fræðsla tun
takmarkanir bameigna á Islandi 1880-
1960. íslenskar kvennarannsóknir
29.ágúst-l.sept.l985. Háskóla Islands,
Odda. Rvík 1985,50-66.
Olafur Jens Pétursson. Hugmynda-
saga. Rvík 1989
Þjóðkunnar konur svara fyrirspumum
um kvenréttindamál. Melkorka (16)
1960, 29-32.
Hqfur kjör
Olafs Ragnars
politisk áhrif?
Hinn glœsilegi sigur Ólafs Ragnars Grímssonar í
forsetakosningunum sl. helgi hefur af sumum
verið túlkaður sem pólitísk skilaboð til vinstri-
manna og félagshyggjufólks. Öðrum finnst að
fyrst og fremst sé um persónulegan sigur Ólafs
Ragnars og Guðrúnar Katrínar konu hans að
rœða, sigur sem komi flokkapólitík lítið sem
ekkert við. Vikublaðið innti nokkra einstaklinga
álits á mögulegum pólitískum áhrifum þess að
fyrrum formaður Alþýðubandalagsins hafi unn-
ið yfirburðasigur í forsetakjöri.
Ásta R. Jóhannesdóttir,
þingmaður Þjóðvaka
Ýtir undir gerj-
un meðal fé-
lagshyggjufólks
Forsetakosningar era auðvitað ekld
flokkspólitískar kosningar og fylgi
Olafs Ragnars Grímssonar kom
ekld úr einni átt fremur en annarri.
Hinu er ekki að neita að það hefur
verið í gangi
ákveðin gerjun
hjá félags-
hyggjuflokkun-
um og ég gæti
trúað því að kjör
Ólafs hafi áhrif á
þá gerjun og ýti
undir hana
þannig að fólk
vinni frekar saman. Eg gæti þannig
trúað því að félagshyggjufólk sé nú
efitir þessar kosningar frekar tilbúið
en áður að snúa sér að samstarfi og
samvinnu.
Það er erfitt að segja hvaða áhrif
þetta hefur á Alþýðubandalagið
sérstaklega. Ólafur Ragnar hefur
lagt áherslu á samstarf félags-
hyggjuflokkanna og leitt Alþýðu-
bandalagið inn á ffjálsyndari og
víðsýnni brautir og því er eðlilega
spurt að því hvort hin frjálslyndari
öfl hafi eftir sem áður jafn sterkan
hljómgrunn innan flokksins. Það
kemur í ljós, en ég tel ekld að kjör
Ólafs hafi mildl pólitísk áhrif til
hægri. Þau öfl sem beittu sér gegn
Ólafi verða að sætta sig við orðinn
hlut og ég er reyndar sannfærð um
að Ólafur eigi eftir að gegna þessu
embætti af stakri prýði. Þau hjónin
bæði era kjörin í þetta embætti - í
tvennum skilningi. Eg efast ekki
um að það eigi eftir að verða sátt
um hann í embætti þegar ffarn líða
stundir.
ffernst Sjálfstæðisflokkurinn sem
verður undir. Hann verður undir í
forsetakjöri í fimmta sinn og það
hlýmr að segja okkur dálítið um
stöðu hans í dag, burtséð ffá miklu
gengi í skoðanakönnunum. Mér
finnst athyglisvert að ffambjóðend-
ur úr röðum eða með málstað
vinstrisinna fengu um 70% at-
kvæða í forsetakjörinu, sem kallar á
að menn reyni að hagnýta sér og
þjóðinni sigurinn til ffambúðar.
Þar bendi ég t.d. á yfirlýsingar
Guðrúnar Agnarsdóttur eftir kosn-
ingamar um að sá málstaður sem
hún barðist fyrir verði að vera á-
ffam á dagskrá.
Karvel Pálmason, fyrrum
þingmaður Alþýðuflokks
Stórt skarð í
Alþýðubanda-
laginu
Eg er ekld far-
inn að hugleiða
kjör Ólafs
Ragnars út ffá
möguleikanum
um pólitísk áhrif
eða hvort kjör
hans hafi ein-
hverja pólitíska þýðingu almennt.
Ég geri mér ekki alveg grein fyrir
því hvort eitthvað muni breytast
vegna þessa, en þó er ég ekla í vafa
um að það er stór biti tekinn af Al-
þýðubandalaginu með þessu. Það
er auðvitað afetætt hvort þetta get-
ur talist gott eða illt, en það er að
minnsta kosti stórt skarð sem Ólaf-
ur Ragnar skilur eftir sig í Alþýðu-
bandalaginu.
Einar K. Guðfinnsson,
þingmaður Sjálfstæðis-
flokks
Svavar Gestsson, formað-
ur þingflokks Alþýðu-
bandalagsins og óháðra
Kalda stríðinu
er lokið
Með þessum
kosningum er
staðfest í þjóðar-
atkvæðagreiðslu
að kalda stríðinu
er loldð. Leiðari
Morgunblaðsins
sl. þriðjudag
kvittaði fyrir þá staðreynd. Þessar
kosningar sýna síðan fram á á-
kveðna möguleika fyrir vinstri-
menn, ef rétt er á haldið og það er
ljóst að Alþýðubandalagið á par
sérstaklega mikla möguleika, eitt
eða í samvinnu við aðra.
Eg tel að þessar kosningar séu
gríðarlega mikill persónulegur sig-
ur fyrir Olaf Ragnar Grímsson,
sem nauðsynlegt er að hafa í huga
hvað pólitíkina varðar á næsm vik-
um og. mánuðum.
I forsetakjörinu er það fýrst og
Misskilningur
að kjör Ólafs
séu pólitísk
skilaboð
Ég vil fyrst óska hinum nýkjöma
forseta og fjölskyldu hans til ham-
ingju með glæsilegan árangur og
vona að Ólafi auðnist að verða
sameiningartákn þjóðarinnar.
Hvað pólitískar afleiðingar varð-
ar þá held ég að
það sé fullkom-
inn misskiln-
ingur að kjör
Ólafs Ragnars
séu einhver
pólitísk skila-
boð. Eg vek at-
hygfi á því að
fimmmngur
eða fjórðungur kjósenda Sjálfetæð-
isflokksins smddi Ólaf Ragnar sam-
kvæmt skoðanakönnunum og ég
vara því rnjög við því að menn
dragi rniklar og sterkar pólitískar á-
lyktanir af þessari niðurstöðu.
Á hinn bóginn hefur Ólafur
Ragnar verið mildl stærð í íslensk-
um stjómmálum og merkisberi á-
kveðinna hugmynda innan Alþýðu-
bandalagsins. Eg velti því fyrir mér
hvort brotthvarf hans úr pólitíkinni
yfir á friðsælli vettvang boði kafla-
sldpti innan Alþýðubandalagsins.
Eg verð líka var við það að menn
eru byrjaðir með sameiningarsöng-
inn á vinstri kantinum að nýju. Eg
segi nú bara að það er ekld meiri al-
vara í þeim söng núna en endranær
og verð að játa að fyrir mig, sem
stend utan við þessa umræðu, þá
virka þær bæði sem leiðinlegar og
þreytandi.
Kristín Ástgeirsdóttir,
þingmaður Kvennalistans
Forsetakjörið
hefur engin
áhrif á sam-
starf fiokka
Mér finnst ákaflega erfitt að sjá það
í fljóm bragði að kjör Ólafs hafi
mildl pólitísk áhrif eða að hann sem
forseti hafi slík áhrif. Hann gæti
það vissulega með sínum málflutn-
mSJ-
Eg held að
pólitískra áhrifa
gæti fyrst og
ffemst innan
Alþýðubanda-
lagins. Þar
gætu orðið
töluverðar
breytingar þeg-
ar úr flokknum
hverfur einhver áhrifamesti for-
ystumaður hans um margra ára
skeið. Það hlýtur að hafa áhrif. En
ég get vart séð ffarn á önnur áhrif
og mér finnst það vægast sagt
furðulegt að leggja saman atkvæði
Ólafe og Guðrúnar Agnarsdóttur í
þessu sambandi. Fólk úr öllum átt-
um smddi þessa ffambjóðendur út
ffá ólíkum forsendum og óþarfi að
vera að blanda saman hlutum til að
sjá einhverjar pólitískar línur sem
fyrirfinnast ekki.
í rauninni get ég ekld séð að
þetta forsetakjör skipti nokkra máli
varðandi hugsanlegt samstarf
flokka á vinstri væng stjómmál-
anna. Það er ekkert samhengi milli
úrslitanna og þess hvort félags-
hyggjufólk er fusara en áður að
starfa saman.
Árni Gunnarsson, fyrrum
þingmaður Alþýðufiokks
Kjör Ólafs
Ragnars engin
ávísun á vinstri
sveifiu
Það er mikill missldlningur að
halda því ffam, að kjör Ölafe Ragn-
ars Grímssonar sem forseta lýð-
veldisins, sé ávísun á vinstri sveiflu í
stjómmálum. Það era margir sam-
verkandi þættir sem valda því að
fólk úr öllum
stjómmála-
fjokkum kaus
Ólaf. Væntan-
lega hefur
flestum þótt
hann hæfileika-
ríkur og mörg-
um kostum bú-
inn til að sinna
þessu ábyrgð-
armikla embætti. Guðrún Katrín
hafði einnig mikil áhrif á úrshtin.
Því fer t.d. fjarri að allir forystu-
menn Alþýðubandalagsins hafi kos-
ið Ólaf Ragnar. Og allir, sem
þekkja íslenska stjómmálasögu, vita
að Ólafur mun forðast eins og heit-
an eldinn að hafa nokkur afskipti af
stjómmálum, umffam það sem
embætti hans ætlast til af honuni.
Vinstri sveifla í samfélaginu verður
til með öðrum hætti en í forseta-
kosningum. Þá verður við að eiga
aðra persónulega hagsmuni en réðu
ríkjum í aðdraganda forsetakosn-
inga.