Vikublaðið


Vikublaðið - 29.11.1996, Page 5

Vikublaðið - 29.11.1996, Page 5
Fyrirtœki landsmanna blóðmjólkuð, löglegt en siðlaust og bruðl í yfirstjómun. Þessi ummæli fékk blaðamaður Viku- blaðsins að heyra við úttekt á stöðu minni sveitarfélaga landsins. Gríðarlegur mun- ur er á stöðu sveitarfélag- anna og áberandi hærri fasteignastuðull hjá þeim sem hafa virkjanir og stór- fyrirtæki innan sinna marka. Skilar virkjana- gróðinn sér til almennings? Stendur félagsmálaráðu- neytið sig ekki stykkinu við eftirlit með reikningum sveitarsjoðá? ' ' . Ríkasti hreppur landsins er Svína- vatnshreppur í A-Húnavatnssýslu. Árið 1995 námu skatttekjur ársins 184.000.kr. á hvem íbúa og peninga- leg staða sveitarinnar var jákvæð upp á 55,3 miljónir króna. Það út- leggst sem hver íbúi eigi 469.000 kr. í sveitarsjóði. Til samanburðar má nefna að ef skuldum Hafnarfjarðar er deilt niður á íbúa hans þá skuldar hver Hafnfirðingur 203.000 kr. og hvér Reykvíkingur skuldar ■95.000.kr. Spumingin er; í hveiju liggur ,sá gríðarlegi munur sem er á stððu sveitarfélaganna í landinu og ekki síðúr hvemig sveitarfélögin verji þessum fjármunum? Svínavatnshreppur eyddi 243% yfir landsmeðaltali árið 1995 og skuldar samt ekki krónu, á reyndar fimmtíu milljónir í sjóði. Ef skatt- tekjur Kópavogs væru þær sömu á hvem íbúa og er í Svínavatnshreppi væm tekjur bæjarins ekki 1,8 mill- jarður heldur 3,3 miljarðar króna. Af öðram velstæðum hreppum af svip- aðri stærðargráðu má nefna Ása- hrepp í A-Húnavatnssýslu pg Grafn- ingshrepp í Ámessýslu. Árið 1995 námu skatttekjur Ásahrepps 152.000 kr. á hvem íbúa og Grafningshrepps 248.000 kr. á hvem íbúa. Til saman- burðar má nefna Skarðshrepp í A- Húnavatnssýslu en hann hafði ein- ungis 82.000 kr. í skatttekjur á hvem íbúa og er með neikvæða peninga- stöðu upp á níu miljónir króna. Svip- að er ástatt með annan nágranna- hrepp Svínavatnshrepps, Bólstaðar- hlíðarhrepp en hann telur 118 íbúa og hafði 76.000 kr. í skatttekjur á hvem íbúa en jákvæða peningalega stöðu upp á rúmar átján miljónir króna. En í hverju felst þessi gríðarlegi munur á afkomu sveitarfélaganna? Stórfyrirtækin ráða úrslitum Vikublaðið bar það undir Ólaf Hilmar Sverrisson bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar hvort það réði úrslitum um afkomu sveitarfélag- anna að fá stórfyrirtæki inn fyrir hreppamörkin? „Já það gefur auga leið að það hefur allt að segja. Sem dæmi má nefna Skilmannahrepp, sem er vel stöndugur, en hann hefur Grandartangaverksmiðjuna og Svínavatnshrepp, sem hefur Blöndu- virkjun. Það er algjört happdrætti fyrir minni sveitarfélögin að fá slík stórfyrirtæki og styrkir sjálfsforræði þeirra gagnvart ásælni ríkisvaldsins,” sagði Ölafur. Þetta skýrir hinn afgerandi mun sem er á stöðu nágrannahreppanna Skarðshrepps og Svínavatnshrepps. Svínavatnshreppur sem er með pen- ingalegar eignir upp á 493% á íbúa yfir meðaltali hreppa af svipaðri stærðargráðu á meðan Skarðshrepp- ur er með peningalegar eignir upp á 18,6% að meðaltali yfir hreppa með undir þrjúhundrað íbúa. Svínavatns- hreppur hefur gríðarlegar fjárhæðir í tekjur af Blönduvirkjun á meðan Skarðshreppur hefur ekkert stórfyrir- tæki sem tekjustofn. Meðaltals álagningarprósenta sveitarfélaga á fyrirtæki er 1%. Það er áberandi að hreppar sem hafa virkjanir og stórfyrirtæki í sinni sveit era með hærri álagsprósentu en með- altalið segir til um. Til að mynda er Svínavatnshreppur með sína álags- prósentu þriðjungi hærri en lands- meðaltalið er, á meðan Skarðshrepp- ur er vel undir landsmeðaltali í álög- um á fyrirtæki. Greinilegt er að þeir hreppar sem era með stórfyrirtækin ganga mun lengra í gjaldheimtu af fyrirtækjunum en tekjuminni hrepp- arnir. Sömu sögu er að segja um þá hreppa sem hafa tekjur sínar af fjöl- mennum sumarbústaðabyggðum. Þeir era með álögur á fasteignir mun hærri en almennt gerist. Dæmi um það era Grímsneshreppur og Grafn- ingshreppur. f hvað fara tekjur ríku hreppanna? En í hvað nota ríku hrepparnir tekjurnar? Ef dæmi er tekið af Svína- vatnshreppi og viðmiðunarárið er áfram 1995, þá fer drýgstur hluti teknanna í yfirstjóm, fræðslumál og framlag til atvinnuvega, sem er í til- felli Svínavatnshrepps niðurgreiðsla að hluta á orku til íbúa. Slíkt er mjög óvenjulegt og þekkist ekki annars staðar á landinu og vakna upp spum- ingar um lögmæti þeirrar ráðstöfunar á skatttekjunum. Yfirstjóm Svfnavatnshrepps er sexfalt dýrari en hjá Skarðshreppi. Mesti munurinn felst í útgjöldum þessara tveggja hreppa til atvinnu- mála. Svínavatnshreppur ver 55.000 kr. per. íbúa til atvinnumála en Skarðshreppur einungis 3.000 kr. Munurinn er því nánast tuttugufald- ur. Greinilegt er að eftir því sem tekjumar era meiri þá tekur yfir- stjómin meira til sín og betur er gert við fræðslu og atvinnumálin. Erfitt er þó að finna skýringu þess að yfir- stjómun er svo dýr. Ekki náðist í Oddvita Svínavatnshrepps vegna greinar þessarar. En spumingin er hvort ekki orki tvímælis að spenna álagningarpró- sentuna í botn á fyrirtækin, þegar sveitarfélögin vita að ekki er mögu- leiki á að það hrekji fyrirtækin í burtu, sem óneitanlega á við í tilfelli Landsvirkjunar og Grandartanga- verksmiðjunnar. Eins er farið með útgjöld Grafn- ingshrepps. Hann er gríðalega tekju- hár og hefur tvo þriðju hluta tekna sinna af fasteignagjöldum sem inn- heimt era af sumarbústaðaeigendum hreppsins. Þar fara rúmlega 40.000 kr. í yfirstjómunina en þeir gera einnig vel við fræðslumálin, í þau fóra 62.000 kr. á hvem íbúa árið 1995. Báðir útgjaldaliðimir voru langt yfir landsmeðaltali. Löglegt en siðlaust? Mikill auðsöftiuiy hreppa á borð við Svínavatns- og Ásahrepps hlýtur að vekja upp spumingar um réttmæti þess að ganga svo hart í skattheimtu á fyrirtæki í þjóðareign. Sveitarfé- lögum er ætlað að miða álagspró- sentu sína við útgjöld og þarfir. Það á ekki að vera hlutskipti þeirra að safna í sjóði á kostnað almennings. Reikningar sveitarfélaganna eru samþykktir af endurskoðunarmönn- um og síðan sendir til félagsmála- ráðuneytisins, sem getur gert athuga- semdir við þá ef eitthvað óeðlilegt þykir vera á ferð. Nú vill svo til að Svínavatnshreppur er heimasveit Páls Péturssonar félagsmálaráðherra. Sá hreppur á mest allra hreppa í sjóði, af tekjum sem eru nær ein- göngu til komnar vegna hárrar álagningarprósentu á fyrirtæki. Fyr- irtækið er þjóðareign og heitir Landsvirkjun. Nú er ekki svo að Svínavatns- hreppur noti tekjumar til félagslegrar þjónustu eða raunveralegrar atvinnu- uppbyggingar. Ellefu manns í þess- um 118 manna hreppi þurfa að sækja atvinnu út fyrir hann á meðan raf- magn er niðurgreitt til íbúa hans, Páls Péturssonar félagsmálaráðherra þeirra á meðal. Heimildarmaður Vikublaðsins fyr- ir norðan, sem ekki vildi láta nafns síns getið, hafði meðal annars um málið að segja: „Mikil auðsöfnun hreppanna vekur upp kröfu á hendur þeim að nýta hluta hans í uppbygg- ingu atvinnulífs í héraðinu. Það er í hæsta máta furðulegt að félagsmála- ráðherra beiti sér ekki fyrir því að svo sé gert. Tekjum sem er varið í yfirbyggingu og niðurgreiðslu á orku er varla rétt varið, á meðan hluti fbúa þarf að sækja vinnu í önnur byggðar- lög. Almenningur í héraðinu ætti með réttu að njóta arðsins af stað- setningu virkjunar á svæðinu en ekki örfáir einstaklingar. Eins orkai' það tvímælis að hreppur sem ekki er í fjárþröng mjólki það sem hægt er út úr fyrirtæki í eigu allrar þjóðarinnar. Það getur vel verið að þetta sé lög- legt en þetta er algjörlega siðlaust.” bgs Að skipta inisréttimi jafnt Sjálfsagt hafa fleiri en ég hrokkið við þegar það spurðist út að jafnrétti væri annað aðalum- fjöllunarefnið á landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins á sl. hausti. Það var látið í veðri vaka að flokkurinn hygðist beita sér fyrir auknu jafn- rétti framvegis. Hingað til hefur þessi flokkur ekki fengið orð á sig fyrir að hvetja til jöfnuðar innan samfélagsins, allra síst launajöfnuðar. Þvert á móti hefur það oft heyrst úr þessari átt að efnalegu mismunun s.s. veralegur launa- munur sé ómissandi hvati í efnahagslífinu, verki þar eins og vítamín. Þessi jafnréttisáhugi kom því flatt upp á fólk. Það kom svo í ljós að það misrétti sem þarna átti að fjalla um var jafnrétti kynjanna og var runnið undan rifjum sjálfstæðra kvenna, sem töldu sig ekki hafa fengið eðlilegan frama innan flokksins. Enda þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi hingað til ekki eytt miklu púðri á jafnrétti kynjanna mun hann nú gera sér grein fyrir því að þróun í þá átt verði ekki stöðvuð og því hollara að verða þar samferða með einhverjum hætti. Mætti þá spyrja hvort flokkurinn hafi þar með tekið upp baráttu fyrir almennum jöfnuði í samfélaginu. I þessu sambandi er rétt að gera sér grein fyrir því að orðið jafnrétti hefur skroppið sam- an á síðustu árum á síðustu árunt. Ef talað er um jafnrétti án frekari skilgreiningar er gjaman átt við jafnrétti kynjanna. Sú stofnun sem fjall- ar um jafnrétti karla og kvenna heitir einfald- „Það er krafan um almennan jöfnuð sem skiptir máli, ekki frami örfárra kvenna.“ lega Jafnréttisráð eins og ekkert jafnrétti sé til nema jafnrétti kynjanna. Ef menn vilja hins- vegar tala um jafnrétti almennt, þá verða þeir að taka það fram til að komast hjá misskiln- ingi. Þessi hliðrun á merkingu orðsins jafnrétti stafar af því að jafnréttisbarátta kvenna er að hluta til orðin viðskila við almenna jafnréttis- baráttu en það þýðir aftur, að konur virðast ekki endilega vera að berjast fyrir jöfnum rétti karla og kvenna, heldur jöfnum órétti kynj- Sjónarhóll Guðmundar Ilelga Þórðarsonar fyrrv. heilsugæslulæknis anna. Misréttinu skal skipt jafnt milli kynj- anna. Manni dettur sterklega í hug, að þama sé að finna skýringuna á því, að Sjálfstæðisflokkur- inn fer að blanda sér í málið. Með því skuld- bindur hann sig ekki endilega til að beita sér fyrir almennum jöfnuði. Konur hafa í aldanna rás verið eins konar minnihlutahópur í flestum samfélögum og lengst af búið við skert mannréttindi. Þrátt fyrir það eru dæmi um það svo langt aftur sem sög- ur herma, að einstakar konur hafa komist til mannaforráða, m.a. orðið þjóðhöfðingjar og þjóðarleiðtogar, án þess að það hafi breytt stöðu kvenna almennt. Kvenréttindabarátta síðari tíma hefur lengst af grandvallast á þeirri hugmyndafræði, að allir menn, karlar og konur, eigi jafnan rétt til lífs- gæðanna. Hún var því hluti af almennri jafn- réttisbaráttu. Ef kvenréttindabaráttan verður viðskila við baráttuna fyrir almennum jöfnuði, er grandvellinum kippt undan henni, þá er hún dæmd til að renna út í sandinn. Það skiptir ekki miklu fyrir almenna stöðu kvenna, hvort fámennur hópur kvenna fær mannaforráð, hvað þá ein og ein kona, ef það skilar sér ekki út í samfélagið sem jöfnuður kvenna innbyrðis. Ef kvennahreyfingin krefst ekki jöfnuðar kvenna innbyrðis, þá glatar hún siðferðilegum rétti til að kalla sig jafnréttis- hreyfingu. Ef misrétti verður látið viðgangast í þjóðfélaginu yfir höfuð, þá er það undir atvik- um komið, á hverjum það bitnar. Það er krafan um almennan jöfnuð sem skiptir máli, ekki frami örfárra kvenna. Maigrét Thatcher komst til æðstu metorða í Bretlandi en það bætti ekki stöðu breskra kvenna. Þvert á móti mun staða verkakvenna þar í landi hafa versnað. Það er heldur ekki gefið, að staða íslenskra kvenna, t.d. í launamálum, batni mikið, þótt konum fjölgi til muna í þingliði Sjálfstæðisflokksins, ef flokkurinn aðhyllist áfram þá hugmynda- fræði, að launamunur sé nauðsynlegur hvati í efnahagslífinu. Það er lítið unnið með því að kona sé gerð að bankastjóra, ef sá bankastjóri heimtar 30 sinnum hærri laun en ræstitæknirinn. Jafnrétt- iskrafa kvenna á að snúast um jafnan rétt, ekki bara jafnan órétt.

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.