Vikublaðið - 29.11.1996, Page 11
VIKUBLAÐIÐ 29. NÓVEMBER 1996
Vilja aukið samstarf
félagshygsjuflokkanna
Á aðalfundi Alpyðubandalagsfélags
Keflavíkur og Njarðvíkur 25.
nóvember sl. var bæjarmálapólitíkin
rædd og í ályktun sem var samþykkt
samhljóða á fundinum kemur m.a.
fram að Alþýðubandalagsfélagið
fagnar þeim bættu samskiptum sem
nú eiga sér stað milli bæjarfulltrúa
Alþýðubandalagsins og Alþýðu-
flokksins í bæjarstjóm Reykjanes-
bæjar. Þessir flokkar, sem saman
mynda minnihluta bæjarstjómar,
hafa tekið upp aukið samstarf sem
felur m.a. ,í sér að haldnir em sér-
stakir minnihlutafundir bæjarfulltrúa
fyrir fundi bæjarstjómar. I ályktun-
inni segir ennfremur að reynslan af
þessu samstarfi sé góð og hvetur að-
alfundurinn bæjarfulltrúa G-listans
til þess að halda áfram á þessari
braut og leitast við að auka enn sam-
starf þessara flokka, ekki aðeins bæj-
arfulltrúa þeirra heldur einnig nefnd-
armanna og á fleiri sviðum þar sem
bæjarfulltrúamir eiga fulltrúa.
i!í tJókr.álykthpajihnar[ .et. njinnt, á að
við sfðö'Stifi-'bíejítrstjómarkösningar
verið atvinnulausir, 1857 karlar og
3089 konur, í mánuðinum.
Atvinnuástandið versnar á nær öllum
atvinnusvæðum frá því í september
nema á Norðurlandi vestra og Aust-
urlandi. Hlutfallsleg fjölgun atvinnu-
lausra er mest á Suðurnesjum en
hlutfallsleg fækkun mest á Norður-
landi vestra. Mest atvinnuleysi er á
höfuðborgarsvæðinu og minnst á
Vestfjörðum.
Ný bókabúð á netinu
Sett hefur verið upp sameiginleg
bókabúð byggingamiðstöðva á
Norðurlöndum á Intemetinu. Bóka-
búðin er vettvangur þar sem hægt er
að kynna norrænar byggingarrann-
sóknir þ.m.t. íslenskar um allan
heim. Höfundar sem hafa gefið út
efni um byggingarmál em hvattir til
þess að koma þeim á framfæri með
þessum hætti. Verkefnið hefur hlotið
stuðning Húsnæðisstofnunar ríkisins
og iðnaðarráðuneytis. Bókabúðin
hefur slóðina http://build-
net.vtt.fi/nbb/.
Amnesty International
- ákall
Amnesty Intemational vekur athygli
á að enginn hefur verið ákærður fyrir
morðið á kaþólska prestinum Jean-
Marie Vincent sem var skotinn til
bana á Haítí, 28. ágúst 1994 í valda-
tíð Raoul Cédras herforingja. Hann
var skotinn af óþekktum þar sem
hann var að ganga inn í aðsetur
hafi G-listinn verið borinn fram af
Alþýðubandalaginu og öðm jafnað-
ar- og félagshyggjufólki og bent á að
áfram eigi að stuðla að því að auka
samstarf þeirra sem vilja fylkja sér
undir merki jafnaðar og félagshyggju.
5000 manns á
atvinnuleysisskrá
í október sl. vom skráðir rúmlega
107 þúsund atvinnuleysisdagar á
landinu öllu, rúmlega 40 þúsund hjá
körlum og tæplega 67 þúsund hjá
konum. Skráðum atvinnuleysisdög-
um fjölgaði um 10 þúsund frá mán-
uðinum á undan en atvinnuleysis-
dögum fækkaði hins vegar um 17
þúsund ef borið er saman við októ-
ber í fyrra.
Fjöldi atvinnuleysisdaga t október
jafngildir því að 4946 manns hafi
landinu. Fundurinn bendir á að aukin
verkmenntun auki fjölbreytni í ís-
lensku atvinnulífi og veiti ungling-
um þroskavænleg viðfangsefni.
Þá lýsir fundurinn ánægju sinni með
viðurkenningu sem Vilborg Dag-
bjartsdóttir hlaut á degi íslenskrar
tungu fyrir að hvetja unga íslendinga
til þess að rækta mál sitt.
Evrópusambandið,
mannréttindi og fullveldi
Mannréttindaskrifstofa íslands og
aðildarfélögin halda opinn fund um
Evrópusambandið, mannréttindi og
fullveldi á Hótel Sögu, Sunnusal,
laugardaginn 30. nóvember nk. kl.
14.30.
Frummælandi verður Allan Rosas,
aðalráðgjafi og framkvæmdastjóri
réttarsviðs Evrópusambandsins.
Allan Rosas hóf störf sem aðalráð-
gjaft og framkvæmdastjóri réttar-
sviðs Evrópusambandsins árið 1995.
Hann hefur verið gestaprófessor við
Sheffíeld háskóla í Englandi síðan
árið 1995. Hann var prófessor í lög-
fræði við Háskólan í Turku, Finn-
landi árið 1981-1995, framkvæmda-
stjóri Mannréttindastofnunar háskól-
ans árin 1985-1995 og fyrsti vara-
rektor þess skóla árin 1994-1995.
Yfir tvöhundruð fræðirit og -greinar
hafa verið birtar eftir Allan Rosas á
sviði þjóðaréttar, mannréttinda,
mannúðarlaga, stjómskipunarréttar
o.fl.
Sýningum á Bar Pari fer
fækkandi
Bar Par eftir Jim Cartwright hefur
gengið fyrir fullu húsi í rúmt ár. Á
morgun, laugardag, verður 80 sýn-
ingin en þeim fer nú fækkandi, síð-
asta sýning fyrir jól verður 7. desem-
ber og aðeins ein sýning er fyrirhug-
uð á milli jóla og nýárs. Þau Saga
Jónsdóttir og Guðmundur Ólafsson
fara með öll hlutverk sýningarinnar.
Kaupmáttur launa
lækkar
Samkvæmt útreikningum þjóðhags-
stofnunar var kaupmáttur launa nú í
október 93,5 stig og hefur hann þá
Montfortain prestanna í Port-Au-
Prince. Því er fast haldið fram að
hann hafi verið drepinn af öryggis-
sveitum vegna þess að hann var ná-
inn vinur Jean-Bertrand Aristide for-
seta sem þá var í útlegð.
Síðla árs árið 1994 komst Aristide
forseti aftur til valda og hefur dregið
vemlega úr grófum mannréttinda-
brotum í landinu. Þrátt fyrir það hef-
ur mjög litlum árangri verið náð í að
færa til saka þá aðila sem frömdu
hroðaleg mannréttindabrot í stjómar-
tíð fyrri ríkisstjóma. Þar kemur m.a.
til að réttarkerfið á Haítf er mjög
ófullkomið, vegna ótta dómara við
að beita refsiaðgerðum og viljaleysis
lögreglunnar.
Vilja stóraukin framlög
til verkmenntunar
Fundur Menningar- og friðarsam-
taka kvenna, 23. nóvember sl., skor-
ar á Alþingi og ríkisstjóm að stór-
auka framlög til verkmenntunar í
lækkað um 1,2% frá því í mars.
Vísitala kaupmáttar launa var fyrstu
tíu mánuði þessa árs 94,1 stig, sem
er hækkun um 4,1% frá meðaltali
síðasta árs. Um leið er kaupmáttur-
inn 6,9% hærri en hann var að með-
altali 1994. Eitthvað vantar því upp
á í málflutningi stjómarsinna um að
kaupmáttur hafi aukist um 10%, ef
miðað er við útreikninga þjóðhags-
stofnunnar. Kaupmáttur launa er nú
hinsvegar 11 % lægri en hann var að
meðaltali árið 1988.
Hai'w þiS keytt eitíltmS étíneml?
Hringið þá í ritstjóra Vikublaðsins.
552-8655
Utanríkishopur
Alþýðubandalagsins
Fundur
þriðjudaginn 3. desember
að Laugavegi 3, 4. hæð
klukkan 20.30.
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
Borgartúni 3 105 Fteykjavík Sími 563 2340 Myndsendir 562 3219
Hraunbær 107
Kynning á tillögum um lóðarafmörkun og skilmála
fyrir heimili fyrir aldraðra að Hraunbæ 107.
Tillagan verður til sýnis í kynningarsal Borgar-
skipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1.
hæð, kl. 9:00 - 16:00 virka daga og stendur til
27. desember 1996.
Ábendingum og athugsemdum skal skila skriflega
til Borgarskipulags, Borgartúni 3 105 Reykjavík
eigi síðar en föstudaginn 27. desember 1996.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
UTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræöings, er óskaö eftir
tilboðum í uppsteypu og fullnaðarfrágang stjórnunar-
álmu Rimaskóla.
Stærð húss:
Flatarmál 1.600 m2
Rúmmál 6.700 m3
Verkinu á að vera lokið 15. ágúst 1997.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri gegn kr. 15.000,- skila-
tryggingu.
Opnun tilboða: miðvikud. 11. desember 1996, kl. 15:00 á
sama stað.
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir
tilboðum i innréttingar fyrir félagslegar leiguíbúðir.
Um er að ræða tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar og
Samtaka iðnaðarins (Hönnunarstöð), og er frumsmíði inn-
réttinga til sýnis að Hallveigarstíg 1, þriðjud. 26. og mið-
vikud. 27. nóvember frá kl. 14:00 til 18:00 báða dagana, þar
sem hönnuðir og fulltrúi framleiðanda frumsmíðinnar munu
svara fyrirspurnum væntanlegra bjóðenda.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá þriðjud. 26.
nóvember nk. kl. 14:00 gegn kr. 15.000 skilatr.
Opnun tilboða: þriðjud. 17. desember 1996, kl. 11:00 á
sama stað.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. sjálfseignarstofnun-
arinnar Skógarbæjar óskar eftir tilboðum í smíði og upp-
setningu á fataskápum fyrir hjúkrunarheimilið Skógarbæ
að Árskógum 2, í Reykjavík.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá þriðjud. 26.
nóvember nk. gegn kr. 10.000 skilatr.
Opnun tilboða: fimmtud. 12. desember 1996, ki. 11:00 á
sama stað.
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir
tilboðum í loftræsisamstæður og útsogsblásara fyrir nýja
sundlaug í Grafarvogi í Reykjavík.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri.
Opnun tilboða: fimmtud. 12. desember 1996, kl. 14:00 á
sama stað.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍNKUBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Pósthólf 878 -121 Reykjavík
Sími: 552 5800 Bréfasími 562 2616