Vikublaðið


Vikublaðið - 29.11.1996, Qupperneq 12

Vikublaðið - 29.11.1996, Qupperneq 12
I Vikublaðið FÖSTUDAGURINN 29. NÓVEMBER 1996 Selfyssingar dejja M fflf w Vikublaðið 552 8655 Á FÖSTUDÖGUM Selfoss - bœrinn sem fólk keyrir í gegnum - eða hvað? A dögunum birtist í tímaritinu Vís- bendingu nokkurs konar gœðalisti yfir sveitarfé- lög landsins. Það kom sjálfsagt sumum á óvart að sjá Selfossbœ tróna þar í efsta sœti. Gœða- listinn tekur tillit til fjár- hagsstöðu og rekstrar bœjarfélagsins en sam- kvœmt niðurstöðum Vís- bendingar hlýtur Sel- fossbœr að vera vel rek- inn bœr. Vikublaðið fékk Sigríði Olafsdóttur, for- mann bœjarmálaráðs og bœjarfulltrúa K-tistans, til þess að skýra mátið. Fulltrúar fjögurra flokka stjórna bænum í bæjarstjórn Selfoss sitja nú þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokks og þrír fulltrúar K-listans en hann saman- stendur af fulltrúum Kvennalista, Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. Þrír framsóknarmenn mynda minni- hluta þrátt fyrir góða útkomu í síð- ustu kosningum. En hvemig finnst Sigríði samstarfið hafa gengið? „Samstarfið hefur gengið vel. Þó kemur fyrir að mál þarfnist mikillar umræðu innan stjómarinnar áður en lendingu er náð; en allt hefst þetta að lokum. Eg er ánægð með vinnu meirihlutans og tel að okkur hafi orðið vel ágengt að ná fram mark- miðum okkar; en það er nóg að gera og við emm hvergi hætt að vinna að þvf að gera bæinn okkar enn betri.” f bæjarfélagi eins og Selfossi era verkefnin ótalmörg en Sigríður segir bæjarstjórnina fyrst fremst hafa tekið fjármálin föstum tökum og menn hafi lagst á eitt við að borga skuldir bæjarins fremur en að stofna til nýrra. Þó hafa framkvæmdir alls ekki verið lagðar af. „Við höfum haft mikið að gera í bæjarstjóminni á þessu kjörtímabili og í mínum huga ber leikskóla- og skólamálin hæst. Á síðasta ári var reistur nýr leikskóli í bænum en hann er samstarfsverkefni Selfossbæjar og nágrannahreppanna, Ölfus-, Villingaholts- og Hraungerð- ishrepps. Nú heyra biðlistar til lið- inni tíð og við búum svo vel að hafa nokkur pláss laus. Okkur hefur einn- ig gengið vel að leysa mál grann- skólans, í bili að minnsta kosti, en skólinn hefur verið einsetinn frá því í haust. Til þess að af einsetningu skólans mætti verða urðum við að reisa fjórar nýjar skólastofur og við erum í raun á undan þeirri áætlun sem upphaflega var sett. Þá erum við mjög stolt af hversu vel hefur gengið með rekstur skóladagheimilis hér í bænum, og ég þori næstum að full- yrða að Selfoss er eina sveitarfélagið á Suðurlandi sem hefur tekist að fullnægja þörf fyrir slíka vistun”, sagði Sigríður. Þótt mikið hafi verið unnið í skólamálum á Selfossi - til dæmis hefur verið reist vegleg bygging um Fjölbrautaskóla Suðurlands en þar era að jafnaði um 800 nemendur - þá þarf enn að byggja grunnskóla til viðbótar við þá tvo sem eru fyrir í bænum. „Já, bærinn þarf einn skóla í viðbót og bæjarstjómin hefur ákveð- ið að eyða 250 milljónum til þess verkefnis og stefnt er að því að minnsta kosti helmingur hins nýja skólahúss verði tekinn í notkun árið 2001. Vaxandi ferðaþjónusta Selfoss er mikill ferðamannabær; allir sem keyra suðurleiðina fara í gegnum bæinn og einnig nýtur bær- inn góðs af þúsundum sumarhúsa- gesta sem dvelja í nágrannasveitun- um. Sigríður segir að ferðamanna- iðnaðurinn sé afar jákvæður fyrir bæinn og á Selfossi sé að finna alla þjónustu sem ferðarnenn þurfa og einnig sé ýmislegt hægt að gera sér til afþreyingar og má þar nefna Dýrasafnið en þar er að finna um 200 uppstoppuð dýr; þeirra á meðal einn fjögurra ísbjama sem til era á fslandi. Einnig er Listasafn Ámes- inga verðugur staður að heimsækja. Sigríður segir að til að bæta enn að- stöðu ferðamanna standi nú til að bæta sundaðstöðu bæjarins til muna; m.a. með byggingu rennibrautar fyr- ir yngstu kynslóðina og heitum pott- um fyrir þá eldri. Vegavinnuskúr Tryggva Gunnarssonar endur- bættur Það hefur stundum verið gagnrýnt að Selfyssingar hugsi ekki nógu vel um hreinleika Ölfusárinnar. Sigríður segir þetta ekki allskostar rétt en bætir þó við að enn þurfi að ganga betur frá ræsum bæjarins og til standi að fá enn öflugri hreinsibúnað til þess, en slíkt fyrirtæki sé afar kostnaðarsamt og hlaupi á tugum milljóna. „Áin er ekki eins óhrein og margir vilja halda fram og í raun er aðeins um vandamál að ræða í ein- um hluta bæjarins og stendur til að bæta úr því í nánustu framtíð”, sagði Sigríður. Endurvinnsla pappírs er með ágætum á Selfossi en bærinn er í samstarfi við Gámastöðina í Reykjavlk um það verkefni. Flestir sem keyrt hafa yfir Ölfus- árbrúna inn í bæinn hafa tekið eftir gömlu rauðu húsi á vinstri hönd. Húsið, sem var byggt af Tryggva Gunnarssyni árið 1891, var í fyrstu vegavinnuskúr en hefur gegnt ýms- um hlutverkum síðan; þar var lengi vel rekin greiðasala en upp á síðkast- ið hefur Ungmennafélagið haft þar aðstöðu auk þess sem bridsarar hafa fengið þar inni með starfsemi sína einu sinni f viku. „Bæjarstjórnin hef- ur samþykkt að ganga til samninga við hóp áhugamanna sem vill endur- byggja Tiyggvaskála. Bærinn leggur strax tólf milljónir til fyrsta áfanga endurbyggingarinnar. Mér líst vel á hugmyndir hópsins um að í húsinu verði rekið kaffihús ásamt litlu minjasafni”, sagði Sigríður. Félagslífið í miklum blóma Alla jafna er félagslíf öflugt í bæj- um og þorpum á landsbyggðinni og greinilegt að Selfyssingar era engir eftirbátar annarra í þeim efnum. Leikfélag Selfoss hefur í gegnum tíðina verið öflugt og sett upp metn- aðarfullar sýningar. Nú er til dæmis verið að sýna bamaleikritið Ottó Nashyming í leikstjóm Sigurgeirs Hilmars. Sigríður segir menningar- lífið í bænum í miklum blóma, „hér er mikið sungið enda margir kórar starfandi í bænum, tónlistarskólinn er einnig öflugur og góður skóli. Þá er í bænum myndlistarfélag sem heldur árlega sýningu um páskaleyt- ið. Ymsar uppákomur era einnig reglulega; til dæmis héldum við veg- lega upp á afmæli Jónasar Hall- grímssonar í síðustu viku; en þá vora fluttar vísur og tónlist í sal Fjöl- brautaskólans auk þess sem söng- kvartett úr höfuðborginni heiðraði okkur með nærveru sinni”. Á Selfossi er ekkert bíó, en Sel- fyssingar deyja ekki ráðalausir því að í kvöld stendur til að sýna Djöfla- eyju Friðriks Þórs í bflabíói sem staðsett verður á íþróttavelli bæjar- ins. Sigríður segir að til standi að opna tvo bíósali og einn leikhússal þegar Hótel Selfoss verður klárað. „Bíósalur er langþráður hér á Sel- fossi og eins almennileg aðstaða til leiksýninga”, sagði Sigríður. Nýlega var héraðsbókasafnið flutt í gamla kaupfélagshúsið við Austur- veg og segir Sigríður starfsemi þess með miklum ágætum. „Bókasafnið er mikið að vöxtum og afar vinsælt jafnt af bömum sem fullorðnum. Auk bókakostsins gefst bæjarbúum nú kostur á að fá leigðar hljóðsnæld- ur og myndbönd”. Á Selfossi er augljóslega nóg að gera til afþreyingar en auk þess sem hér hefur verið nefnt era rekin tvö kaffihús og tveir skemmtistaðir en Sigríður segir besta merki þess að bærinn blómstri og hafi upp á margt að bjóða að eftir því sé tekið að unga fólkið snýr gjama aftur til bæjarins að námi loknu. Hvað landsmálapólitíkina varðar almennt þá er Sigríður ekki hrifin af stefnu núverandi ríkisstjómar. „Mér finnst peningahyggjan alltof ríkj- andi. Mér finnst það afleitt þegar þyí er komið inn hjá fólki ap þaþ sé „dýrt eintak” og þá á ég við He.il- brigðisþjónustuna en þar hefur tíðk- ast að eymamerkja suma sjúklinga”. Sigrfður bætir við að sér lítist ágæt- lega á sameiningarumræðu félags- hyggjuflokkanna en hún sé þó á þeirri skoðun að fyrstu skrefin verði að vera í formi samvinnu áður en samruni geti orðið. aþ rÖttLEllíAR i MSÍQLAmt FIMMTUDAGINN 5. DESEMBER KL. 20.00 lifitisskm Johannes Brahms: Harmaforleikur Benjamin Britten: Fiðlukonsert Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 7 SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Háskólabíói vib Hagatorg, sími 562 2255 MIÐASALA Á SKRIFSTOFU HLJÓMSVEITARINNAR OG VIÐ INNGANGINN ARGUS & öRKIN / SÍA SI090

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.