Frjáls þjóð - 12.07.1958, Blaðsíða 2
2
cHaugardaginn 12.
ful
1958
FRJÁLS ÞJÓÐ
Eru nú íyririiggjandi í eftirtöidum stærðum
GASOLÍUTÆKI
Gerð A-2
— A-4
— A-8
— A-18
10 ferm. katla
15 ferm. —
30 ferm. —
65 ferm. —
Ennfremur
LOFTHITUNARKATLAR
fyrir 400—800 m hús.
Brennarinn
Vandið val á kynditækjum fyrir hás yðar
Rcynsilan sviiir. að REXOIL reynist bezt
ISLANDS
Frumsýning í Leikhúsi Heimdailar:
HALTU MÉR - SLEPPTU MÉR
Leikhús Heimdallar er nú
tekið til starfa eins og undan-
farin sumur. Frumsýning fór
fram í Sjálfstæðishúsinu á
þriðjudagskvöld síðastliðið, og
var sýndur gamanleikur, sem
í þýðingu hefur hlotið nafnið
Haltu mér — slepptu mér!
Leikurinn er franskur að ætt-
erni — enda er efnið þesslega
meðhöndlað — og faðirinn
sagður heita Claiule 3Iagnier,
sem undirrituðum er reyndar
með öllu ókunnur og verður
bví eigi nánar kynntur. En
Islenzka þýðingin, sem er verk
hárusar Pálssonar leikstjóra,
er gerð eftir enskri staðfærslu
leiksins.
íslenzka nafnið, Haltu mér
— slepptu mér! finnst mér
satt að segja kauðalegt, og
held ég vel hefði farið á að
útfæra það þannig að sleppa
nafninu, en halda leiknum.
Hann er nefnilega fyndinn og
bráðskemmtilegur. Efnið er
hið forna og nýja vandamál,
þegar þriðja aðilanum skýtur
upp í hjónabandinu. Hirði ég
ekki að lýsa því nánar, en rás
leiksins er mjög fjörleg allt
til enda, því að höfundurinn
hefur átt í pokahorninu næga
eftir Cdíaude hlfja^niev
fyndni í öll fimm atriðin, og
reyndar hefur leikstjóri víða
undirstrikað hana mjög kunn-
áttulega. Leikstjórn Lárusar
Pálssonar er einnig að öðru
leyti mjög góð.' Ég minnist
ekki neinnar misfellu, sem
hnotið yrði um, en eftirtektar-
vert er, hversu vel leikurinn
rúmast á litlu, þröngu sviði
Sjálfstæðishússins. Maður
tekur varla eftir neinum
þrengslum. Sviðið hefur
Magnús Pálsson annars búið
haganlegum, einföldum, en
mjög fallegum tjöldum.
Lárus Pálsson hefur auk
leikstjórnar á hendi eitt af
þrem hlutverkum leiksins.
Lárus var lítt áberandi á svið-
inu það leikár, sem nú er ný-
lioið, en þvi betur nýtur hann
sín nú, þegar hann lætur sjá
sig aftur og hefur fengið
tima til að staldra vúð og hu.g-
leiða, hvar hann er staddur.
Hann leikur nú fremur leiðin-
legan eiginmann af mikilli
kímni.
Helga Valtýsclóttir leikur
eiginkonuna. Helga er raunar
fyrst og fremst skapgerðar-
leikkona, en það fer ekki hjá
því, að vandvirkni hennar, yf-
irvegun á hverju tilsvari og
hreyfingu, beri ávöxt, hvert
svo sem hlutverkið er. Leikur
hennar nú er enn ein sönnun
þess, hófsamlegur og fágaður.
Rúrik Haraldsson er þriðji
leikarinn. Mér hefur ailtaf
fundizt Rúrik bráðskemmti-
legur gamanleikari, og svo er
enn í þetta sinn, að leikur
hans er fyndinn og öruggur.
En þess utan lízt mér svo á,
að Rúrik megi fara að gá að
sér að staðna ekki í nákvæm-
lega sömu töktum og áherzl-
um, hvaða persónu sem hann
leikur. Og vafalaust væri hon-
um hollt að fá stöku sinnum
alvarlegri hlutverk til með-
ferðar en þau, sem hann hef-
ur einkum farið með um
nokkurt undanfarið skeið.
Það fer varla milii mála, að
sýning þessa gamanleiks er
sú bezta, sem sézt hefur í
Leikhúsi Heimdallar, enda er
því ekki að leyna, að fram til
þessa hefur ekki tekizt sér-
lega vel til um leikritavai.
Fátt er jafnóskemmtilegt og
horfa á gamanleik, sem vant-
ar í allt gamanið. En hér er
sem sagt á ferðinni gaman-
leikur, -sem vissulega kafnar
ekki undir því nafni. H. H.
Biðjið alls sáaöar une fsessar vistsælsi
íegiEBedér;
Siiialco
Spur Cola
Engiíeröl (Ginger Aíe)
Appelsín
Sódavaín
Maltexírakt
Pilsner
Biór
Hvítöl
IS.F ÖlgerHiEi
£gill Skallagrímsson
Sími 1-13-90.
Pan American World
Airways Inc.
Tii Osló — Stokkhólms — Helsinki alla þriðjudaga.
Frá Helsinki — Stokkhólmi og Osló alla miðvikud.
Fiugfar: Aðra leiðina: Báðar leiðir:
Keflavík—Osló kr. 2278.00 kr. 4101.00
Keflavík—Stokkhólmur kr. 2972.00 kr. 5350.00
Keflavík—Helsinki kr. 3820.00 kr. 6873.00
Farmiðar frá útlöndum og heim til íslands mega
greiðast hér. Sæti laus fyrir næstu ferðir.
Allar nánari upplýsingar hjá umboðsmönnum okkar.
G. HeEgason & Melsted h.f.
Hafnarstræti 19, sími 10275 og 11644.
§k4»iai5aiiiBiiar§íedlar
Afhending skömmtunarseðla fer frarn í
stræti 20 alla virka daga kl. 9—12 og 1-
laugardaga kl. 9—12.
Uthlutunarskriístoía Reykjavíkur.
Hafnar-
-3 nema
Veiðimensdirnir -
Framh. af 1. síðu.
þurft að sökiun að spyrja. Slík-
ur veiðimaður sem hann hefði
með engu móti getað síillt sig
um að renna í liið forboðna
vatn! Því spyrja menn nú hvern
annan kankvísir á svip, hverjar
muni verða lyktir á þessum
málarekstri.