Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 20.12.1958, Blaðsíða 2

Frjáls þjóð - 20.12.1958, Blaðsíða 2
8 oCaugarcfatjinn 20. cfei. 1958 - FRJALS ÞjSö' Islenzk “» sem vekiir stármikða athygili HÍNUMEGIN VIÐ HEIMINN eftir Guðm. L. Friðíinnsson Kristmann Guðmunds- son segir í Mbl.: ... I þessari skáld- sögu verSur allt ao skáldskap, sem höf- undiu- snertir á . . . . .... ég (las) bók- ina í einni lotu og byrjaði á henni aítur. .... fietía er töfr- andi skáldverk. .... fietta er sagan um vöxt lífsins, yndi « I>ess og kvöí, auðlegð | og fegurð.... Indriði G. Þorsteins- son segir í Tímanum: .... sagan er upp- gjör einyrkjans við pasturslitla samtíð . . . (Guðmundi) hefur hér tekist upp .... Isafold Tóbakið heidur esin velli, þrátt fyrir varnaðarorð læknanna Eins og alkunna er, halda margir læknar víöa um heim því fram, að um beint orsakasamband sé að ræða milli reykinga og lungnakrabba, og hafa bví skorið upp herör gegn tóbaks- notkun-og heitið á fólk að leggja niður }>ann leiða vana. Hvað sem annars má segja um staðhæfingar læknanna og hvort sem það er árangur af herför þeirra eða ekki, þá er það staðreynd, að undanfarna mánuði hefur fjöldi fólks í Reykjavík látið af tóbaks- reykingum. Reyklítið • samkvæmii Blaðið hefur haft fregnir af samkvæmi einu, sem nýlega var haldið hér í borginni. Þar voru um þrjátíu manns saman- komnir, en það þótti tíðindum sæta, að meðal þessa fjölda voru aðeins þrír eða fjórir, sem reyktu. — Mætti prófessor Dungal, sem manna hatramm- ast hefur barizt gegn tóbaki hérlendis, sennilega vel við una, ef þetta gæfi rétta mynd af tóbaksnautn manna almennt. Glöggir menn hafa einnig þótzt hafa orðið varir við greinilega breytingu á tóbaks- notkun karlmanna, þannig að mun fleiri hefðu nú snúið sér að pípunni en áður var og hætt við sígarettur. Kennir þar einnig glöggt hins háa verðlags á vindlingum. Eðlileg aukning tóbakssölu. Af þessu tilefni sneri blaðið sér til Ara Guðfnundssonar, skrifstofustjóra Tóbakseinka- sölunnar, og innti hann eftir, hvort þess hefði orðið vart á tóbakssölunni, að menn hefðu breytt svo um háttu sem að ofan getur. Ari kvað að vísu ófullbúnar skýrslur og yfirlit yfir þetta síðustu mánuði, en taldi þó mega fullyrða, að ekki hefði dregið neitt úr sölu tó- baks frá einkasölunni. Færi hún eðlilega vaxandi með auknum fólksfjölda. Ef um breytingu væri að ræða frá vindlingum til píputóbaks, væri hún að minnsta kosti ekki svo mikil, að hennar yrði vart í dagleg- um rekstri. Þess er því ekki að vænta, að Dungal geti að svo stöddu NÝJU neinum bakinu. sigri hrósað yfir tó-. Skrudda i BBI s/' ({(i< já ^ J> J l Töfralandið ísland bók hinnct uandidti er Skrifstofur Vatnsveitu Reykjavíkur eru fluttar að Laugavegi 185 — V. hæð. -Símar: 13134 og 18612. Yerkstjóri: 35122. Yatnsveita Reykjavíkur. í fyrra gaf Búnaðarfélag ís- iands út bók eftir Ragnar As- g.eirsson ráðunaut, er nefndist Skrudda. Var það safn ýmissa sagna og vísna. Nú er kamið annað bindi af f Skruddu, og fjallar það ein- vörðungu um séra Pál Jónsson skálda, hinn brostíelduga Vest- mannaeyjaprest, sem löngum var á faraldsfæti hin síðari ár ævi sinnar og kvaddi þennan heim eitt haust í Rangá. ! Sumum er lítið um það gefið, að haldið sé á loft lífssögu ann- arra en þeirra, sem eiga gull í 1 lendum eða hafa annað það til brunns að bera, er gefur til- efni til sléttmálla eftirmæla í gylltum ramma mannkostanna. Ýmsir prestar og sýslumenn eru kjörnir til slíkrar innrömmun- ar, ef þess er nógu vandlega gætt að sleppa öllum þeim van- , köntum, sem þeir hafa orðið að burðast með eins og aðrir J menn. En þótt Páll skáldi væri prestur, er ókunnugt um heim- ilisfang þess snillings, er gæti haíið hann upp í veldi hins gullna ramma, og enga tilraun gerir Ragnar Ásgeirsson til þess. Hann lofar Páli skálda að koma fram á blaðsíðum bókar sinnar, án slíkrar krossfesting- ar — sýnir hann eins og þjóðin hefur fest sér hann í minni — engan gæfumann á borgaralega vísu, en mann, sem fólk trúði, að gæddur væri yfirnáttúrlegri orku í krafti skáldskapar síns. | í bókinni er mjög mikið af skáldskap, lausavísur og jafn- vel • langir bragir. Það er að vísu ekki sérlega fágaður skáld- skapur, enda var Páll enginn nostursmaður, en þó svo mergj- aður, að samtíð hans hugði, að rímuð orð hans gætu í sumum atriðum stjórnað rás framvind- unnar með guði almáttugum, ef ekki tekið fram fyrir hendurnar á honum. Ég er ekki frá því, að Ragn- . ar hefði getað unnið bók sína ’ bétur, en hún er fersk og hress- andi eins og hún er og blessun- arlega laus við alla slepju. Ragnar er yfirleitt hressilegur höfundur, hvað sem hann skrif- ar, og góður skemmtanamaður. Sumt af því, sem í bókinni greinir, ætlast hánn að sjálf- sögðu ekki til, að litið sé á sem sagnfræði, heldur þjóðsög- ur, enda átti þjóðtrúin leikvang í kringum Pál, eins og áður segir. Hinn gamli, brotlegi klerk- ur og göngumaður um vegi og vegleysur þessa lands, hefur hér fengið minnisvarða sem stend- ' ur föstum fótum á grunni þeirra sagna, sem um hann lifa í landinu. I Eitthvaö við alira hæfi Veröld sem var hin frábæra sjáifsævisagá Stefáns Z'weig. Verð kr,- 140 og kr. 185 í bandi. Þjóðháííðin 1874 eftir Brynleif Tobíasson* Vegleg bók, prýdd fjölda ágætra mynda. Verð kr. 1G0 ób. og I- 220 í bandi. j Hestar iitmyndabókin fagra. Til-* valin gjafabók. Verð kr. j 110 í banai. Frá óbyggðum ferðasögur og landiýsingatt eftir Pálma Hannesson. —• Verð kr. 125 ób., I 170 í bandi. j Höfundur Njálu hin gagnmerka og snjallal bók Barða Guðmundssonar; um leitina að Njálshöfundi. Verð kr. 135 ób., j 185 í bandi. j Andvökur IV síðasta bindi ritsafns SL G. St. Verð kr. 125 ób.e 170 í rexinbanai, 230 í skinnbandi. Öll rit St. G. St., samtala 3800 bls., kosta aðeins kl. 919 í skinnbandi. j Snæbjörn galti ný söguleg skáldsaga eftifl Sigurjón Jónsson rithöf-« und. Verð kr. 120 i bandi. I íslenzku handritin eftir Bjarna M. Gíslason. ] Jónas Kristjánsson þýddi. 1 Verð kr. 70 ób., 105 í bandi* Saga íslendinga níunda bindi, síðari hlutS eftir dr. theol. Magnúa Jónsson. — Vevð kr. 12®, ób., 165 í rexínbandi, . 215 í skinnbandi. Öll bindi þessa verks, semj út eru komin, sjö að tölu, 3400 bls. samtals, kosta að- eins kr. 480 ób., 638 í rexínbandi og 932 í skinnb, Ævintýri dagsins þulur og barnaljóð eftir Erlu, með 40 myndum eftir Barböru M. Árnason. Stór og gullfalleg barnabók. —- Verð kr. 75 í bandi. Bókaútgáfa Menningarsjóðs J. H.

x

Frjáls þjóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.