Frjáls þjóð - 23.04.1960, Page 4
ÞANKAR —
Framh. af 3. síðu.
nesi er hrognkelsaveiði mikil
og útræð'i nokkurt, en bakkar
að ijiöru háir mjög víðast hvar,
og frá öndverðu hefur ekki ver-
ið hægt að koma við neinni
tækni eða skapa aðstöðu til nýt-
ingar sjávarafurða í verulegum
stíl, þar sem engu var hægt að
koma að eða frá. nema um
grunna og grýtta lendingu. Vet-
urinn 1957 sótti sveitarstjórn
Tjörnesinga um styrk úr at-
vinnubótasjóði til vegalagning-
ar um Tungubakka í f jöru fram,
þar sem aðallending Tjörnes-
inga er.
Hannibal Valdimarsson, þá-
verandi ráðherra, og Karl
Kristjánsson, alþingismaður,
unnu vel að málinu, og voru
veittar 50.000 kr. úr sjóðnum í
þessu skyni. Jarðýta var feng-
in, sem muldi móhellulögin
auðveldlega og stóðst það á
endurn, að þegar fjárveitingin
var þrotin, var aldagamall
þröskuldur að baki. Hófst nú
bygging veglegs sjóhúss, 7X16
m, sem Kaupfélag Þingeyinga,
undir stjórn Finns Kristjáns-
sonar kaupfélagsstjóra, lét reisa.
Þegar hér var komið sögu,
heyrðist því hvíslað, að „þetta
borgaði sig aldrei.“
Vorið 1958 var hið síðasta,
sem Tjörnesingar stunduðu
hrognkelsaveiðina við hina
gömlu og úreltu aðstöðu. Nam
þá veiðin 95 heiltunnum af
fullsöltuðum grásleppuhrogn-
um; útflutningsverðmæti þeirra
var um 124.000 kr. En vorið
1959, fyrsta árið við breytta að-
stöðu, nam veiðin 174 heiltunn-
um, að verðmæti um 226.000
kr.. Tekið skal fram, að bygg-
ingin kostaði um. 130.000 kr.
Allar framkvæmdirnar kostuðu
því um 180.000 kr., en afla-
verðmætismismunur varð 102,-
000 kr. þegar á fyrsta ári, þrátt
fyrir mjög óhagstætt tíðarfar.
Þetta einfalda dæmi sýnir,
hvernig mætti stórauka fram-
leiðsluna með lagfæringum,
sem kosta aðeins smámuni. Vill
nú ekki hið háa alþingi gjöra
svo vel að ganga úr skugga um,
hvort við getum ekki lifað af
eigin aflafé, þótt það kostaði
nokkrar fyrirgreiðslur dreifbýl-
isfólki til handa, áður en lagt
verður upp í næstu betliför,
enda heldur leiðinlegt að for-
svarsmenn þjóðarinnar skuli
vera kunnugri öhnususkjóðum
þeim, sem stórveldin næra
frumstæðar og tæknivana þjóð-
ir úr, en iífstvargarmöguleik-
um sinnar eigin þjóðar.
Kvíslarhóli á Tjörnesi,
í marzmánuði 1960.
Guðmundur Halldórsson.
Ný stjórnamsa
Stjórnin týndi áttiun á
auðnum hagfræðinnar.
Villtist lengra og lengra frá
leiðum skynseminnar.
Höf. ókunnur.
Heildverzlunin Hekla h.f.
/
t óumar 1
Prentmyndir h.f., Laagavegi 1.
FossvogsbáSin, Kársnesbr., Kópav.
Ford-umboSiS, Kr. Kristjánsson h.f.
%
SKRIFSTOFUVÉLAR
OFflCE EQUIPMtNT
Pétur Pétursson, Hafnarstræti 4.
Skallagrímur h.f.
Öskum öllum viðskiptavinum vorum
cjó óamaró
!
9
h/fOFNASMIÐ)AN
EINHOL7I 70 - REYKÍAVÍK - (SLANDI
Kjartan Ásmundsson, gullsmiour, Aðalstræti 8.
4
Frjáls þjóð — Laugardaginn 23. april 1960!