Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 08.10.1960, Page 4

Frjáls þjóð - 08.10.1960, Page 4
frjáls þjðö Útgefandi: Þjóðvamarflokkur - Islirnán. Ritstjórar: Ragruxr Ámaids, ; Gils .Guðmundsson, ábm., Framkvæmdastióri: Kristmann Eiðsson. •p •'Ii rr- iV- •: 'I AfgreiBsla: Ingólfsstræti 8. —• Sími 19985. — Pósthólf 1419. Áskriftargj. kr. 12,00 á mán. Argj. kr. 144,00, í lausas. kr. 4,00. Félagsprentsmiðjan h.f. ■ f - jJeiLt '’.I'v .fii! M fc -u ' i“»i r I Meginatriði landhelgismáls Þegar íslendingar ákáðú, að fiskveiðilögsaga þeirra skyldi vera 12 sjómílur frá grunnlínum, var þjóðin einhuga og sammála um þá ákvörðun, að undanskildum sárafáum einstaklingum, sem veitt höfðu viðtöku og tryggt pólitískt vald sitt með erlendum fjárgjöfum og mútum, og litu af þeim sökum í raun á sig sem fulltrúa erlendra hagsmuna á íslandi en ekki íslenzkra. Sjaldan eða aldrei hafði þjóðin verið jafn einhuga nema í sjálfstæðistökunni 1944. En þjóðin var ekki aðeins einhuga um, að fiskveiðalögsagan skyldi vera 12 sjómílur. Hún vár einnig og engu síðar, sammála um að þessar 12 sjómílur væru EINGÖNGU UPPHAF að friðun alls landgrunnsins í ÁFÖNGUM í sam- ræmi við vísindalegar niðurstöðum og Hfshagsmuni lands- manna. Og loks var þjóðin sammála um, með þeim undan- tekningum, sem upphafi greinir, að útfærslu fiskveiða- lögsögunnar í áföngum frá 12 sjómílum yrðu íslendingar að gera EINHLIÐA vegna þess, að hér væri um lífshags- muni íslendinga einna að ræða, og því algert innanríkis- mál, sem þyldi ekki bið þvælinna milliríkjasamninga m. a. við óbilgjarna nýlendukúgara eins og Breta. Auk þess, sem slíkar ráðstafanir hefðu alltaf verið gerðar einhliða. TVrú eru einna valdamestir í landinu þeir menn, sem aí ■*- ^ þeim ástæðum, er i upphafi greinir líta á sig sem einskonar vinnuhjú erlendra húsbænda. Þess vegna hafa þeir nú setzt að samningaborði við það erlenda störveldi. sem eitt allra bar þá frelsis- og mannást i brjósti að beita okkur, vopnlausa smáþjóð, fallbyssuofbeldi í þessu máli, og það þrátt fyrir einróma samþykktir alþingis og kröfur alþjóðar um að samningar um 12 mílna Jínuna væru ó- hugsandi. Af því, sem oddviti þessara manna, Bjarni Benediktsson hefur sagt á Valhallarfundi og Varðarfundi, er ljóst, að nú á að semja við Breta um 12 milna fiskveiða- lögsögu og tilslökun af okkar hálfu frá henni. — Þetta óverjandi samningamakk er afsakað með því, að við hefð- um sem siðuð þjóð ekki getað' neitað að ræða við Breta eða semja við þá. Auðvitað gátum við rætt við Breta um allt annað en 12 mílna fiskveiðalögsögu okkar. Við gátum rætt við þá um útfærslu okkar frá 12 mílum, og að rétt mundi fyrir þá að fara að búa sig undir það. Um ofbeldi þeirra innan okkar lögsögu og hversu því mætti linna, svo að skömm þeirra yrði aldrei meiri en þegar er. Og margt fleira þess háttar hefði að skaðlausu mátt við þá ræða. En 12 mílna reglan verður aldrei að skaðlausu rædd við Breta, eftir þeirra ósk, studdri hótun um ofbeldi frá 12. október, vegna þess, að í því felst viðurkenning á rétti Breta til að ræða innanríkismál okkar. Samkvæmt því, sem Bjarni Benediktsson sagði á Val- hallarfundi, á að réttlæta tilslökun af okkar hálfu frá 12 mílna reglunni, með því að semja við Breta um það, að við megum færa friðunarlinuna ÚT FYRIR 12 mílur á ákveðnum svæðum á netavertíð. — Þetta er svo langt frá því að geta verið RÉTTLÆTING, að það er blátt áfram eitthvað það SKAÐLEGASTA, sem unnt er að gera í mál- inu, eins og sakir standa. Með því að semja við Breta um útfærslu friðunarlínu okkar út fyrir 12 mílur værum við að VIÐURKENNA SAMNINGSRÉTT Breta og annarra þjóða að landgimnnssvæðunum utan núverandi 12 míina linu, og gætum þaðan í frá ALDREI fært fiskveiðilögsögu okkar út fyrir þá línu einhliða, þó svo að líf og tilvera íslenzkrar þjóðar lægi við, að það yrði gert. Slíka samninga hefur engin ríkisstjórn rétt til að gera. Það væru fjörráð. Þetta er þegar af þeirri ástæðu ljóst, að þó íslenzka ríkis- stjórnin gerði slíka samninga við Breta, þyrftu aðrar þjóðir, sem teldu sig hafa hér hagsmuna að gæta, að sjálf- sögðu ekki að virða þá samninga, þar sem Bretar hafa ekkert umboð frá einum eða neinum til að gera samningana. Við gtæum auk þess ekki varið þau friðunarsvæði, utan 12 milna, sem við. kynnum að semja um við Breta fyrir öðrum en Betum sjálfum, þar sem við með samninga- gerðinni við Breta hefðum viðurkennt samningsrétt annarrá þjóða um þessi svæði. Þessi hugmynd ríkisstjórnarinnar er þvi tilræði við framtíð þjóðaririnar en ekki'bjargráð.. ■ h. g Hesturinn er lítið hrifinn af því að láta fanga sig. En enginn má við margnum. Rettarsaga úr Heimsókn í Rauðsgilsrétt í Hálsasveit Um miðjan september, þeg- ar sá tími kom, að fé yæri rekið af- heiðum, brá tíðinda- maðúr blaðsins sér úpp í Borgarfjörð til að sjá rollur og stóðhesta dregna í dilka. Ofarlega í Reykholtsdal sunnan verðum stendur göm- ul rétt á hálfgrónum mel undir svonefndu Rauðsgili. Þaðan sér í hvítan skalla Ei- ríksjökuls upp af botni dals- ins, en utar og neðar liggur Reykholt. Þessi rétt er ekki sérlega stór eða nýtízkuleg, ytri hringurinn er gerður úr torfi og grjóti og innveggir steyptir. Þegar blaðamann- inn bar þar að garði var mik- ið um að vera í réttinni: menn og konur á harða- hlaupum með rollurnar milli fóta sér, og fjöldi fólks á ráfi innanum safnið. Raunar fannst manni, að miklu fleiri stæðu þarna á tveimur fót- um en fjórum í réttinni, en það hlýtur að hafa verið mis- sýn. Veður yar hlýtt og gott og við tylltum okkur niður á réttarvegginn. Réttirnar fara ekki hljóð- laust fram eins og kunnugt er. Það er*mikið jarmað þennan dag og upp úr hring- leikahúsinu við Rauðsgil bár- ust hljómar frá gamalkunn- um samsöng, lömbin voru skrækróma og hrútarnir sungu bassa. Nokkrir krafta- miklir menn gengu vaskar fram en aðrir, þeir voru markglöggir og skjótráðir, þrifu öruggum tökum í gimbrarnar og sviptu þeim yfir vegginn í réttan djlk. En ekki voru allir að draga. í hólfinu fyrir neðan mig var feitur strákur á tólfta ári með ljósa lokka niður í augu. Hann skellti sér á bak gömlum hrúti með stór og voldug horn og vildi fá hann til að spretta úr spori með sig. En hrúturinn var staður og vildi ekki hreyfa sig, var í vondu skapi. Skyndilega tók hann þó á sprett og geystist inn í hópinn, svo að rollurnar hrukku skelfdar undan, en strákur hékk allt- af á baki. Þá staðnæmdist hrúturinn við réttarvegginn og boraði haus og hornum í steininn, þungur á brún og reiður. í sama bili kom hund- ur inn í fjárhólfið og skokk- aði léttilega.í áttina að hrútn- um með skottið hringað og fjarska ánægður með lífið. Þá brast hrútinn alla þolin- mæði, enda.taugarnar í miklu ólagi, og æddi að hundinum með hornin á undan sér, en strákur datt af baki í drull- una. Hundurinn varð of seinn að flýja og skelfingu lostinn hnipraði hann sig nið- ur í moldina um leið og hann rak upp stingandi ámátlegt væl. Þegar hrúturinn hafði hefnt sín á hundgreyinu gekk hann á brott hrokafullur- á svip, en hundurinn læddist út úr hólfinu með skottið milli fóta sér. Þá var strák- ur þegar farinn að líta í kringum sig eftir nýjum reiðskjóta. Það var ekki auðvelt að sjá við fyrstu sýn, að nokkur stjórn væri á samkomunni. En þegar betur var að gáð Gils Guðmundsson: Sögulegur réttur Kafli úr ræöu um landhelgismáiið, sem flutt var á útifundi Alþýðusambandsins á Lækjartorgi Þeir komu hingað í gær nokkrir sendimerin brezka heimsveldisins. Þeir eru með skilaboð. Þeir eru sendir hingað til að bera fram litla bón til íslenzku þjóðarinnar. Kannski er það krafa, því að Bretar eru gamalt stórveldi og eiga vænan flota herskipa, eins og hverju mannsbarni á íslandi er kunnugt. Bretar fara fram á dálítil fríðindi sér til handa. Þá langar ó- sköp mikið til að veiða ögn af fiski innan íslenzkrar landhelgi. Bitur reynsla hef- ur kennt þeim ' að slikt er tórvelt án heimildar, jafnvel þótt herskip vaði á bægsluri- um um allan sjó. — og nú munu þeir setztir við samn- Ólafs Thórs, Bjarna Bene- dikssonar og Guðmundar í. Guðmundssonar -— ekki við fulltrúa þjóðarinnar, hún hefur engum veitt umboð til að semja um landhelgina. Fólkið í landinu hefur hik- laust mælt svo fyrir, að ekki skyldi samið. Alþingi hefur einnig ákveðið, að svó skyldi ekki gert. — Og þó eru þeir byrjaðir að semja. - Bretar hafa undanfarin misseri haft mörg orð um rétt sinn til að draga fisk úr sjó við íslandsstrendur. Sjálf-- sagt endurtekur samninga- nefnd þeirra hér einhverjar svipaðar staðhæfingar. At- hugum þær lítillega. Þeir tala um sögulegan rétt. Hér eiga þeir að njóta fríðinda umfram aðrar þjóð- ir, af því að þeir hafi fiskað hér svo lengi. En hver er þessi sögulegi réttur, sem samningamenn brezku lá- varðanna vitna svo mjög til? Er hann nokkuð annað en framhald á ágengni og bola- brögðum hins sterka, sem situr yfir hlut. litilmagnans; segist ' ætla að gera það p- fram, af því að horiúm hafi haldizt það svo lengi uþpi. Við munum fæst, sem hér •: V; Erjáls síin tám«íti,da:gintt-8. oktriber 1960

x

Frjáls þjóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.