Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 03.03.1962, Blaðsíða 12

Frjáls þjóð - 03.03.1962, Blaðsíða 12
KOSNINGARNAR í VERKALÝÐSFÉLÖGUNUM: Vinstri w.m verða að læra af sigri íhaidsaflanna Laugardaginn 3. marz 1962 Kosningarnar í verklýðsfélögunum eru nú langt komnar, og hafa þær verið sóttar af mikilli hörku á báða bóga og mörg blöð látið líkt og kosningar til Al- þingis væru í aðsigi, enda kosningar þessar að mörgu leyti mjög þýðingarmiklar. Það hefur vakið mikla at- hygli, að frambjóðendur í- haldsaflanna hafa víða unn- ið á, sums staðar svo um munar, t. d. í Iðju, félagi verksmiðjufólks. Sumir töldu, að jarðvegur ætti að vera góður fyrir frambjóðendur vinstrimanna í þessum kosningum, þegar tillit væri tekið til þess, hversu núverandi ríkisstjórn hefur skert afkomumögu- leika launþega síðasta ár með gengislækkunum og öðrum hefndarráðstöfunum. Reynslan varð samt sú, að yfirleitt hafa vinstrimenn í verkalýðsfélögunum tapað fylgi hlutfallslega frá síð- asta ári. Þetta er stað- reynd, sem vinstri menn verða að viðurkenna og reyna að læra af. Orsakir. Orsakir fyrir þessu fylgis- tapi eru vafalaust margar. Ef Iitið er til dæmis á Iðjukosn- ingarnar kemur þar sennilega aðallega tvennt til greina. I fyrsta lagi sú furðulega ráð- stöfun, að láta Björn Bjarna- son skipa þar efsta sæti. Það var fyrirfram vonlaust, aðra eins útreið og sá maður hef- ur fengið, bæði með réttu og röngu. I öðru lagi það, að mikill hluti af Iðjufélögum er fólk, sem EKKERT skyn- bragð ber á pólitík né verka- lýðsbaráttu og trúir því, að kjarabætur náist án baráttu, ef réttir menn séu við stjórn, aðeins ef moggi matthíasson segir það nógu oft. Þá kemur þar og til, að sé kjarabarátt- unni sleppt, en þar hefur stjórn Iðju farizt heldur lít- ilmannlega, þá hefur stjórn- in staðið sig vel í félagsmál- um og þokað mörgu góðu máli áleiðis. Þegar þetta allt fer saman, er ekki von á góðu. En sé Iðju sleppt verður að líta öðruvísi á málin. Og þá er ekki hægt að ganga fram- hjá þeirri staðreynd, að for- ystumenn verkalýðsfélag- anna hafa að miklu leyti LÍTIÐ FRÉTTABLAÐ Laugardagmn í 20. viku vetrar. Lúðvík Sjómaður í Nes- kaupstað skrifar: Lúðvik Jósepsson er „drengur góður og vinfastur". Það hefur hann marg sannað. En nú er auðséð að Lúðvik vor er hrœdd- ur. Við hér eystra sáum það bezt þegar við lásum grein hans í Þjóðviljanum um Væl Kona úr Skaga- firði skrifar: „Það hefur löngum hrellt margan góð- hjartaðan mann að heyra væl hinna svo- kölluðu bandingja á fleka veiðimanna, sem tæla áttu aðra " igla í snörurnar. Mér varð svipað innan brjósts þegar ég las í Þjóð- viljanum nýlega væl þeirra Alfreðs Gísla- sonar og Kristjáns verðlagsstjóra, sem eru eins og allir vita ekkert annað en band ingjar á fleka komm- únista, ætlaðir til að iokka hrekklau:' fólk í snörur komma. Treysti ég þvi, að Þjóðvarnarmenn láti ekki væl þessara band ingja tæla sig í snörurnar". tiræddur Einar bónda í Mýnesi. Við, sem höfum ákveð ið að gera nú alvöru úr því að segja skilið við komma, sem satt að segja hefur alitof lengi verið að vefjast fyrir okkur, erum að velta því fyrir okkur, hvort Lúðvík muni launa okkur nær 20 ára stuðning og fáð- herradóm með því að lýsa því yfir á prenti, að við höfum allir verið í „sérlega litlu áliti“ í heimkynnum okkar. Annars finnst manni ómögulegt að hugsa til þess, að kommúnistar skyldu BiðSe til Helsprengjur Krús- évs í andrúmsloftinu og uppljóstranir hans um stjórnarfar Stalíns og félaga hafa nú farið svo herfilega með kommúnista hér á landi, að þeir virð- ast ekki vita sitt rjúkandi ráð. Þannig skrifaði t. d. komminn Björn Bjarnason í Iðju íhaldsmanninum Guð- jóni Sigurðssyni í Iðju bréf fyrir Iðjukosn- Ærubaukurinn Enn halda túkall- arnir áfram að berast í ærubaukinn hans Emils skreiðarmála- ráðherra. I síðustu viku kom m. a. pakki frá Raufarhöfn með túköllum og fylgdi orðsending: „Frjálst framlag af vinnustöð- um á Raufarhöfn í æru Emils". Þá kom einnig tú- kallasending með flug vél frá Höfn i Horna- firði. sparka jafn gáfuðum og falslausum manni og Brynjólfi, að und- anskilinni draugatrú, fyrir mann eins og Lúðvik Jósepsson. íhaldsins ingarnar, og bað auð- mjúklega um sæti fyrir sig á íhaldslist- anum. Kommar á Siglu- firði fóru líka fram á það við íhaldið þar og aðra flokka að nú- verandi bæjarstjórn skipti bara á milli sín sætum í næstu bæjar- stjórn, þannig að fólk- ið væri ekkert að skipta sér af málun- um með kosninga- vafstri! — Hversvcgna reynið þér ekld að verða ríkur? — Ég hef ekki cfni á því að kaupa Fálkann. Þrír íslendingar til Nýfundnalands brugðizt í þeirri baráttu, sem afturhald og hefndarráðstaf- anir viðreisnarstjórnarinnar hafa neytt þá út í. Þeir hafa ekki tekið á málunum með nógu mikilli hörku, þeir liafa því miður hugsað meira um þægileg sæti á skrifstofum en harða forystu í kjaramálum. Þegar hefndargengisfellingin var gerð s.l. sumar áttu verkalýðsfélögin að ganga hreint til yerks, taka upp hanzkann og leggja út í nýja baráttu, sýna auðmönnum landsins mátt sinn og láta sverfa til stáls. Þetta gerðu þau ekki, og þess gjalda nú forystumenn verkalýðsfé- laga, verkalýðurinn og allir vinstri menn. — Launþegar þessa lands verða að skilja það, fyrr en seinna, að pen- ingamenn þessa lands hafa Iagt út í stríð gegn þeim og þeir græða á hverri mínútu sem líður, án þess að þeim sé svarað. Reynist forystumenn verkalýðsins þess ekki um- komnir að skilja þessa þró- un, verða þeir að víkja. Vinstri menn verða að finna nýja fulltrúa, sem lausir eru við Hannibalisma og bitl- ingapólitík, og Iausir við öll áhrif frá auðmönnum og makka ekki við íhaldið bak við tjöldin. Áríðandi j fundur verður haldinn í Fulltrúa- ráði þjóðvarnarfélaganna í Reykjavík í dag, laugar- dag, kl. 16. Stjórnin. Norski rithöfundurinn Helge Ingstad og kona hans, fornleifa- fræðingurinn Anne Stine Ing- stad hafa dvalizt hér á landi undanfarna viku. Þau skýrðu þtjóðminjaverði og öðrum starfs- mönnum Þjóðminjasafnsins frá rannsóknum sínum á Nýfundna- landi og buðu íslenzkum fræði- mönnum að taka þátt í fram- haldi þeirra rannsókna á sumri komandi. í samráði við mennta- málaráðuneytið hefur nú verið ákveðið að þekkjast þetta boð. Ingstad er enn að skipuleggja leiðangur sinn til Nýfundna- lands, og að svo stöddu er ekki fastákveðið hvenær íslenzku fornleifafræðingarnir leggja af stað, en ekki ólíklegt að það verði um mánaðamótin júní— júlí. í ráði er að þátt taki af ís- lands hálfu Kristján Eldjárn og Gísli Gestsson frá Þjóðminja- safninu og Þórhallur Vilmund- arson prófessor, þó ekki allir samtímis, heldur munu þeir að líkindum að verulegu leyti skiptast á um þátttökuna. (Frétt frá Þjóðminja- safninu.) MENNINGARVIKA SAMTAKA HERNÁMSANDSTÆÐINGA Samtök hernámsandstæðinga efna til menningarviku í Lista- mannaskálanum í Reykjavík 3. —11. þessa mánaðar. í henni taka þátt fjölmargir þekktir listamenn á rnörgum sviðum, myndhöggvarar, listmálarar, skáld, rithöfundar, söngvarar, hljóðfæraleikarar og upplesar- ar. Sýning á málvcrkum og höggmyndum mun standa yfir i Listamannaskálanum þcnnan tíma. Málararnir, scm þar sýna, eru: Barbara Árnason, Benc- dikt Gunnarsson, Einar Bald- vinsson, Eiríkur Smith, Guð- munda Andrésdóttir, Gunnlaug- ur Scheving, Hafsteinn Aust- mann, Hrólfur Sigurðsson, Hörður Ágústsson, Jóhann Briem, Jóhannes Geir, Jóhann- es Jóhannesson, Jón Engilberts, Karl Kvaran, Kjartan Guðjóns- son, Magnús Á. Árnason, Sig- urður Sigurðsson, Steinþór Sig- urðsson, Sverrir Haraldsson, Svavar Guðnason og Þorvaldur Skúlason. Myndhöggvarar: Ás- mundur Sveinsson, Guðmund- ur Benediktsson, Guðmundur Elíasson, Jón Benediktsson, Magnús Á. Árnason, Ríkarður Jónsson og Sigurjón Ólafsson. Má af þessari upptalningu sjá, að þarna kennir margra grasa og óhætt fyrir alla unnendur þessara lista að leggja leið sína í Listamannaskálann. Dagskráin verður annars á þessa leið: Laugardaginn 3. marz klukk- an 2 setur Gils Guðmundsson rithöfundur menningarvikuna og Myndlistarsýningin verður opnuð. Sunnudaginn 4. marz, klukk- an 5: Langferð inn í myrkrið, samfelld dagskrá úr íslands- sögu, 1262—1662. Bjarni Benc- diktsson tók saman. Flytjendur: Einar Laxness, Gils Guðmunds- son, Óskar Halldórsson og Páll Bergþórsson. Framh. á 5. síðu.

x

Frjáls þjóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.