Þjóðvakablaðið - 24.02.1995, Qupperneq 1
okkar
tími er
kominn
Þjóðvaki - hreyfmg fólksins býðurfram
J-listann í öllum kjördœmum landsins í vor.
Fjöldifólks hefur síðan í haust komið til liðs
við Jóhönnu Sigurðardóttur í þessari nýju
stjórnmálahreyfmgu, fólk sem áður hefur
staifað í gömlu flokkunum ogfólk sem ekki
hefur áður tekið virkan þátt í stjórnmálum.
Með Þjóðvaka - hreyfingufólksins er kom-
.inn vettvangur til að taka höndum saman um
breyttar áherslur og ný vinnubrögð í íslensk-
um stjórnmálum.
• Meginmarkmið hreyfingarinnar er að
vinna að öflugri atvinnuuppbyggingu,
jafnrétti í tekju- og eignaskiptingu, og að
sporna við söfnun auðs og valds í fárra
manna hendur.
• ísland er í raun meðal auðugustu þjóða
heimsins og hér eiga allir einstaklingar að
geta lifað við sómasamleg lífskjör, atvinnu-
og afkomuöryggi og með sjálfsvirðingu og
fullri reisn.
• Pjóðvaki vill sameina félagshyggjufólk og
frjálsynda í öfluga hreyfingu til að tryggja
jöfnuð, réttlæti og afkomuöryggi fyrir alla.
• Alltof lengi hefur fyrirgreiðsla, ábyrgðar-
leysi og slakt siðferði í stjórnmála- og við-
skiptalífí, ásamt handahófskenndum niður-
skurði velferðarkerfisins, og ónýtu launa- og
lífeyriskerfi, breikkað bilið milli ríkra og
fátækra í þjóðfélaginu og dregið lífs-
kjörin niður á fátækrastig hjá fjölda heimila
í landinu.
• Gamla flokkakerfið hefur í raun gefist upp
andspænis þessum brýnu verkefnum í
íslenskum stjórnmálum . Þess vegna hefur
hreyfíng fólks um Þjóðvaka orðið til og
hvetur til uppstokkunar flokkakerfisins.
Kosningamiðstöð Þjóðvaka
Kosningami&stööin iímnarstræti 7 • Sími 28100 Fax 627060 • Opiö frá kl 9.00 til 19.00
Allar upplýsingar um Þjóðvaka. Útfærsla á stefnumiáum hreyfingarinnar.
Kaffi og hlýtt viömót. Opió hús á laugardögum frá kl. 14.00. Opnir umræáufundir meb
frambjóðendum og fyrirlesurum fimmtudagskvöld frá kl.20.30.