Þjóðvakablaðið - 24.02.1995, Side 2

Þjóðvakablaðið - 24.02.1995, Side 2
2 ÞJÓÐVAKI V ÞJÓÐVAKI málgagn hreyfingar fólksins 1. árgangur, 1 .tbl. febrúar 1995. Abm. Katrín Theódórsdóttir • Utgáfust.: Marías Sveinsson. Prentað í Isafoldarprentsmiðju í 15 þúsund eintökum. Uppstokkun Á síöustu árum hefur köld peningahyggja, tilviljanakennd- ur niðurskurður á velferðarþjónustu, ábyrgðarleysi og slakt siðferði í stjórnmálum og viðskipalífi einkennt ástand- ið í landsmálunum. Allar valdastofnanir samfélagsins eiga nokkra sök að máli; stjórnkerfið, fjölmiðlavaldið, einokun- aröflin í efnahaagslífinu og flokkakerfið. Þessar valda- stofnanir ríghalda í völd sín og áhrif og óttast mjög „utan- aðkomandi" afskipti. Síðustu vikur hafa gömlu flokkarnir og fjölmiðlaflóran þeirra farið hamförum gegn hinu nýja afli, Þjóðvaka. Stundum er engu líkara en æði hafi runnið á þessar gömlu valdastofnanir, - fréttafalsanir og hatrammar á- rásir hafa verið daglegt brauð. Auðvitað hefur þessi at- gangur haft áhrif á fólk, en það er sama hversu miklu moldvirði er þyrlað upp -- þörfin fyrir uppstokkun í íslenska stjómkierfinu er jafn brýn. Og það er eitt aðal erindi hinn- ar nýju hreyfingar fólksins inn í íslenskt samfélag, - að hvetja til uppstokkunar á flokkakerfinu. Kjarajöfnun Þjóðvaki leggur áherslu á það \ stefnuskrá sinni, að Island er í raun meðal auðugustu þjóða heimsins og hér eiga allir einstaklingar að geta lifað við sómasamleg lífskjör, atvinnu- og afkomuöryggi og með sjálfsvirðingu og fullri reisn. Meginmarkmið hreyfingarinnar er að vinna að öfl- ugri atvinnuuppbyggingu, jafnrétti í tekju- og eignaskipt- ingu og að sporna við söfnun auðs og valds í fárra manna hendur. Mikilvægir þættir til eflingar lýðræðinu er jafnrétti kynj- anna á öllum sviðum þjóðlífsins. Raunverulegt lýðræði er ekki tryggt nema með fullkomnu jafnrétti kvenna og karla. Alls staðar skal jafnréttis gætt, jafnt á opinberum vett- vangi, í stjórnmálum, á vinnumarkaði, í menntun og í einkalífi. Þjóðvaki leggur áherslu á að nota skattakerfið til kjara- jöfnunar og ýmissa jöfnunaraðgerða þegar við á. Við ætlum að miða við það fyrirkomulag sem best hefur gef- ist hjá nágrannalöndum okkar í velferðarmálum. Trúnaður Á síðustu árum hafa ýmis góð og gömul gildi orðið undan að láta í þeirri köldu græðgi og markaðsofstæki sem tröll- riðið hafa húsum á íslandi og reyndar víðar á Vesturlönd- um. Mannúð, samhjálp, trúnaður og sjálfsvirðing eru hug- tök sem áður lýstu eftirsóknarverðum kostum í fari fólks en eru í dag að verða innihaldsrýr eða óþekkt. Valdsmenn hafa í skjóli þessara viðhorfa gengið á lagið og auðsýnt hroka og mannfyrirlitningu. Þetta á bæði við um embætt- ismenn og forystumenn í stjórnmálum og viðskiptalífi. Valdsmenn hafa gleymt því að þeir eiga að vera þjónar fólksins, þeir hafa gleymt því að stofnanirnar sem þeir veita forstöðu eru eign fólksins í landinu og eiga að vera því til þjónustu og nota. Það er íramkoma af þessu tagi ásamt valdhroka kerfisins sem leitt hefur til trúnaðarbrests milli almennings, einstakl- inganna, og alls hins opinbera kerfis. Þessi trúnaðarbrest- ur, þetta ginnungargap, milli þjóðar og valdakerfis, hefur leitt til tortryggni og fjarlægðar almennings frá sínum eig- in stofnunum. Bæði á Islandi og víðar um heim er fólk að vakna til and- svara við hinu kaldranalega lífsviðhorfi og fólk ætlast til þess að siðlegir samskiptahættir taki við af valdhrokanum, - að mannúð og virðing fyrir mannréttindum skipi aftur æðri sess í samskiptum manna og stofnana. Þjóðvaki leggur sérstaka áherslu á sjálfsvirðingu og virðingu allra borgara þessa samfélags, Þjóðvaki vill samfélag þarsem mannhelgi er í heiðrum höfð. Þjóðvaki vill vinna að því að endurreisa traust einstaklinga á stjórnkerfinu og öðrum samfélagsstofnunum,--------------------------------------- Mikill hugur í fólki Sterk málefnastaða rœður úrslitum, segir Kristín Erna Arnardóttir Suðurlandi "Það er dálítið sorglegt að fjölmiðlar- skyldu ekki fjalla meira um þau mál sem voru á dagskrá landsfundarins í stað þess að velta sér upp úr nokkrum einstaklingum sem gengu út," sagði Kristín Ema Arnardóttir, fulltrúi Suðurlandskjördæmis, sem kosin var í stjóm Þjóðvaka á landsfundinum. "Eg er t.d. sérstaklega hrifin af þeirri stefnu Þjóðvaka að hafa jafnt hlutfall kynja í stjóm og öðmm trúnaðarstöðum. Auk þess hefðu fjölmiðlar mátt fjalla meira um þá stefnu okkar að auka siðferði í íslenskum stjómmálum,"sagði hún en bætti síðan við að líklega hafi þeir vitað upp á sig skömmina. "Enda er siðferðis- vitundin ekki oft upp á marga fiska hjá fjölmiðlum." Kristín kvaðst í heildina vera ánægð með landsfundinn; þar hefðu merkileg mál verið til umjöllunar og kvaðst hún hlakka til kosn- ingabaráttunnar framundan. "í Suðurlandskjördæmi er mikill hugur í fólki. Þessa dagana erum við að koma saman lista og finnum að hreyfingin á mikinn hljómgmnn í kjördæminu. Ann- ars finnst mér fólk vera svolítið hrætt við að koma og kynna sér málin á fundum; það er eins og það þori ekki að mæta af ótta við sviðsljós fjölmiðlanna,"sagði hún en gat þess að lokum að hún hefði mikla trú á Þjóðvaka og var sannfærð um þegar upp væri staðið yrði tekist á um málefni en ekki einstaklinga. "Þótt frambjóðendur skipti auðvitað miklu máli er víst að sterk málefnastaða okkar mun ráða úrslitum þegar upp verður staðið. Sameinum jafnaðarmenn og félagshyggjufólk Verðum að uppræta spillingu í stjórnmála- og viðskiptalífi, segir Sveinn Allan Morthens Norðurlandi vestra Sveinn Allan Morthens, fundinn í lok janúar. "GóS Norurlandskjördæmi vestra og unirbúningsvinna og að stærsf stjórnarmaður í Þjóðvaka, var um hluta málefnalegur fund- einn þeirra fjölmörgu lands- ur,"sagði hann aðspurður um byggðafulltrúa sem sóttu lands- hvað honum hefði þótt um landsfundinn. Sveinn Allan, sem starfaði um árabil innan Alþýðubandalagsins, gekk til liðs við Jóhönnu Sigurðardóttur, skömmu fyrir stofnun Þjóðvaka og segist ekki sjá eftir því. "Eg hef mikla trú á þessu stjórn- amálaafli og get nefnt nokkra mikilvæga þætti sem einkenna Þjóðvaka umfram aðra flokka. I fyrsta lagi tel ég að nú hafi fyrst skapast raunhæfur möguleiki fyrir félagshyggju - og jafnaðarmenn á Islandi að sameinast - án tillits til skoðana formanna hinna hefðbundnu vistri flokka. Þá bind ég miklar vonir við að Þjóðvaka takist að uppræta langvarandi spillingu í íslensku stjórnmála- og við- skiptalífi og ef hreyfingin kemst til valda muni verða tekið á þessum málum af alvöru,"sagði Sveinn Allan. "Þetta og margt fleira varð til þess að ég tók mig upp af ættaróðalinu og fór í göngur með Jóhönnu og Þjóðvaka," sagði Sveinn Allan að lokum.

x

Þjóðvakablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðvakablaðið
https://timarit.is/publication/312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.