Þjóðvakablaðið - 24.02.1995, Síða 2
2
ÞJÓÐVAKI
V ÞJÓÐVAKI
málgagn hreyfingar fólksins
1. árgangur, 1 .tbl. febrúar 1995.
Abm. Katrín Theódórsdóttir • Utgáfust.: Marías Sveinsson.
Prentað í Isafoldarprentsmiðju í 15 þúsund eintökum.
Uppstokkun
Á síöustu árum hefur köld peningahyggja, tilviljanakennd-
ur niðurskurður á velferðarþjónustu, ábyrgðarleysi og
slakt siðferði í stjórnmálum og viðskipalífi einkennt ástand-
ið í landsmálunum. Allar valdastofnanir samfélagsins eiga
nokkra sök að máli; stjórnkerfið, fjölmiðlavaldið, einokun-
aröflin í efnahaagslífinu og flokkakerfið. Þessar valda-
stofnanir ríghalda í völd sín og áhrif og óttast mjög „utan-
aðkomandi" afskipti.
Síðustu vikur hafa gömlu flokkarnir og fjölmiðlaflóran
þeirra farið hamförum gegn hinu nýja afli, Þjóðvaka.
Stundum er engu líkara en æði hafi runnið á þessar
gömlu valdastofnanir, - fréttafalsanir og hatrammar á-
rásir hafa verið daglegt brauð. Auðvitað hefur þessi at-
gangur haft áhrif á fólk, en það er sama hversu miklu
moldvirði er þyrlað upp -- þörfin fyrir uppstokkun í
íslenska stjómkierfinu er jafn brýn. Og það er eitt aðal
erindi hinn-
ar nýju hreyfingar fólksins inn í íslenskt samfélag, - að
hvetja til uppstokkunar á flokkakerfinu.
Kjarajöfnun
Þjóðvaki leggur áherslu á það \ stefnuskrá sinni, að Island
er í raun meðal auðugustu þjóða heimsins og hér eiga
allir einstaklingar að geta lifað við sómasamleg lífskjör,
atvinnu- og afkomuöryggi og með sjálfsvirðingu og fullri
reisn. Meginmarkmið hreyfingarinnar er að vinna að öfl-
ugri atvinnuuppbyggingu, jafnrétti í tekju- og eignaskipt-
ingu og að sporna við söfnun auðs og valds í fárra
manna hendur.
Mikilvægir þættir til eflingar lýðræðinu er jafnrétti kynj-
anna á öllum sviðum þjóðlífsins. Raunverulegt lýðræði er
ekki tryggt nema með fullkomnu jafnrétti kvenna og karla.
Alls staðar skal jafnréttis gætt, jafnt á opinberum vett-
vangi, í stjórnmálum, á vinnumarkaði, í menntun og í
einkalífi.
Þjóðvaki leggur áherslu á að nota skattakerfið til kjara-
jöfnunar og ýmissa jöfnunaraðgerða þegar við á. Við
ætlum að miða við það fyrirkomulag sem best hefur gef-
ist hjá nágrannalöndum okkar í velferðarmálum.
Trúnaður
Á síðustu árum hafa ýmis góð og gömul gildi orðið undan
að láta í þeirri köldu græðgi og markaðsofstæki sem tröll-
riðið hafa húsum á íslandi og reyndar víðar á
Vesturlönd-
um. Mannúð, samhjálp, trúnaður og sjálfsvirðing eru hug-
tök sem áður lýstu eftirsóknarverðum kostum í fari fólks en
eru í dag að verða innihaldsrýr eða óþekkt. Valdsmenn
hafa í skjóli þessara viðhorfa gengið á lagið og auðsýnt
hroka og mannfyrirlitningu. Þetta á bæði við um embætt-
ismenn og forystumenn í stjórnmálum og viðskiptalífi.
Valdsmenn hafa gleymt því að þeir eiga að vera þjónar
fólksins, þeir hafa gleymt því að stofnanirnar sem þeir
veita forstöðu eru eign fólksins í landinu og eiga að vera
því til þjónustu og nota.
Það er íramkoma af þessu tagi ásamt valdhroka kerfisins
sem leitt hefur til trúnaðarbrests milli almennings, einstakl-
inganna, og alls hins opinbera kerfis. Þessi trúnaðarbrest-
ur, þetta ginnungargap, milli þjóðar og valdakerfis, hefur
leitt til tortryggni og fjarlægðar almennings frá sínum eig-
in stofnunum.
Bæði á Islandi og víðar um heim er fólk að vakna til and-
svara við hinu kaldranalega lífsviðhorfi og fólk ætlast til
þess að siðlegir samskiptahættir taki við af valdhrokanum,
- að mannúð og virðing fyrir mannréttindum skipi aftur
æðri sess í samskiptum manna og stofnana. Þjóðvaki
leggur sérstaka áherslu á sjálfsvirðingu og virðingu allra
borgara þessa samfélags, Þjóðvaki vill samfélag þarsem
mannhelgi er í heiðrum höfð. Þjóðvaki vill vinna að því að
endurreisa traust einstaklinga á stjórnkerfinu og öðrum
samfélagsstofnunum,---------------------------------------
Mikill hugur í fólki
Sterk málefnastaða rœður úrslitum, segir Kristín Erna
Arnardóttir Suðurlandi
"Það er dálítið sorglegt að
fjölmiðlar- skyldu ekki fjalla
meira um þau mál sem voru á
dagskrá landsfundarins í stað
þess að velta sér upp úr nokkrum
einstaklingum sem gengu út,"
sagði Kristín Ema Arnardóttir,
fulltrúi Suðurlandskjördæmis,
sem kosin var í stjóm Þjóðvaka á
landsfundinum.
"Eg er t.d. sérstaklega hrifin af
þeirri stefnu Þjóðvaka að hafa
jafnt hlutfall kynja í stjóm og
öðmm trúnaðarstöðum.
Auk þess hefðu fjölmiðlar mátt
fjalla meira um
þá stefnu okkar að auka siðferði í
íslenskum stjómmálum,"sagði
hún en bætti síðan við að líklega
hafi þeir vitað upp á sig
skömmina. "Enda er siðferðis-
vitundin ekki oft upp á marga
fiska hjá fjölmiðlum." Kristín
kvaðst í heildina vera ánægð
með landsfundinn; þar hefðu
merkileg mál verið til umjöllunar
og kvaðst hún hlakka til kosn-
ingabaráttunnar framundan. "í
Suðurlandskjördæmi er mikill
hugur í fólki. Þessa dagana erum
við að koma saman lista og
finnum að hreyfingin á mikinn
hljómgmnn í kjördæminu. Ann-
ars finnst mér fólk vera svolítið
hrætt við að koma og kynna sér
málin á fundum; það er eins og
það þori ekki að mæta af ótta við
sviðsljós fjölmiðlanna,"sagði hún
en gat þess að lokum að hún
hefði mikla trú á Þjóðvaka og var
sannfærð um þegar upp væri
staðið yrði tekist á um málefni en
ekki einstaklinga.
"Þótt frambjóðendur skipti
auðvitað miklu máli er víst að
sterk málefnastaða okkar mun
ráða úrslitum þegar upp verður
staðið.
Sameinum jafnaðarmenn
og félagshyggjufólk
Verðum að uppræta spillingu í stjórnmála- og viðskiptalífi,
segir Sveinn Allan Morthens Norðurlandi vestra
Sveinn Allan Morthens, fundinn í lok janúar. "GóS
Norurlandskjördæmi vestra og unirbúningsvinna og að stærsf
stjórnarmaður í Þjóðvaka, var um hluta málefnalegur fund-
einn þeirra fjölmörgu lands- ur,"sagði hann aðspurður um
byggðafulltrúa sem sóttu lands- hvað honum hefði þótt um
landsfundinn. Sveinn Allan,
sem starfaði um árabil innan
Alþýðubandalagsins, gekk til
liðs við Jóhönnu Sigurðardóttur,
skömmu fyrir stofnun Þjóðvaka
og segist ekki sjá eftir því. "Eg
hef mikla trú á þessu stjórn-
amálaafli og get nefnt nokkra
mikilvæga þætti sem einkenna
Þjóðvaka umfram aðra flokka.
I fyrsta lagi tel ég að nú hafi
fyrst skapast raunhæfur
möguleiki fyrir félagshyggju -
og jafnaðarmenn á Islandi að
sameinast - án tillits til skoðana
formanna hinna hefðbundnu
vistri flokka. Þá bind ég miklar
vonir við að Þjóðvaka takist að
uppræta langvarandi spillingu í
íslensku stjórnmála- og við-
skiptalífi og ef hreyfingin kemst
til valda muni verða tekið á
þessum málum af alvöru,"sagði
Sveinn Allan.
"Þetta og margt fleira varð til
þess að ég tók mig upp af
ættaróðalinu og fór í göngur
með Jóhönnu og Þjóðvaka,"
sagði Sveinn Allan að lokum.