Þjóðvakablaðið - 24.02.1995, Síða 5

Þjóðvakablaðið - 24.02.1995, Síða 5
ÞJÓÐVAKI 5 Þjóðvaki er afl til að breyta segir Svanfríður Jónasdóttir oddviti Þjóðvakalistans í Norðurlandskjördœmi eystra Pólitískir flokkar eru fyrst og fremst tæki til að breyta því sem við teljum að þurfi að breyta í samfélaginu. Okkur hefur verið ljóst lengi að núverandi flokka- kerfi, sem varð til við allt aðrar aðstæður en nú eru, er handónýtt þegar að því kemur að taka hér á stærstu málum. Menn reyna að skerpa línur milli flokkanna fyrir kosningar og yfirbjóða hver annan til þess að sanna tilverurétt sinn fyrir kjósendum. Eitt aðal markmið þeirra virðist vera að viðhalda óbreyttu ástandi og þar með sjálfum sér. Um það snýst samtrygging þeirra. En þeim fjölgar sífellt sem ekki sætta sig við að þurfa að greiða fyrir óbreytt ástand í lakari lífskjörum. Þess vegna verður til afl eins og Þjóðvaki, pólitískt hreyfiafl sem þarf til að fá staðnað stjómmálakerfi til að endurskoða málin með velferð fólksins að leiðarljósi. Ég ákvað að taka þátt í að raska ró gömlu flokkanna með þessum hæííi þegar mér sýndist útséð um að nokkrar breytingar mundu ella eiga sér stað . Ég skynjaði afar vel þá hreyfingu fólks sem var í gangi og krafðist breytinga á vinnubrögðum og viðhorfi. Til viðbótar annarri gagnrýni minni á flokkakerfið, gagnrýni sem ég hef látið í Ijós bæði í ræðu og riti mörg undanfarin ár, bættist það síðan að flokkakerfi, sem ekki rúmar stjómmálamann á borð við Jóhönnu Sigurðardóttur, einn ötulasta og heiðarlegasta baráttu- mann á Alþingi fyrir rétti þeirra sem minna mega sín í þjóðfé- laginu, því yrði að breyta. Brýnasta byggðamálið Ég er auðvitað landsbyggðar- kona og mín viðhorf hljóta að taka mið af því. Sem og þátttaka mín í sveitarstjómarmálum. Mér hefur oft fundist of mikillar íhaldssemi gæta bæði í atvinnu- uppbyggingu og þróun úti á landi og í breytingum á stjómsýslunni. En meðan velferðarkerfið er jafn götótt og raun ber vitni þorir landsbyggðafólk síður að taka þá áhættu sem fylgir breytingum, jafnvel þó menn viti innst inni að þær horfi til framfara og aukinnar velmegunar. Menn vita hvað þeir hafa og halda í það. Breytingum fylgir óöryggi. Þær gætu t.d valdið alvarlegri röskun á búsetu og þannig kippt burt öðrum nauðsynlegum stoð- um fjölbreytts mannlífs. Ef við byggjum við öflugra velferðar- kerfi sem héldi betur utan um fjölskylduna, þá þyldum við á minni stöðunum úti á landi e.t.v. betur það tímabundna öryggis- leysi sem fylgir breytingum í atvinnulífinu. Styrking velferð- arkerfisins er því brýnasta byggðamálið í dag ef við viljum notfæra okkur þá möguleika sem bjóðast í atvinnulífinu með nýrri tækni og mörkuðum. Ég sé fyrir mér að í náinni framtíð skipti ekki jafn miklu máli hvar fólk býr. í upplýs- ingaþjóðfélaginu, sem við erum að byrja að kynnast og notfæra okkur, skipta símalínur ekki minna máli en aðrar samgöngur. Hvaða máli skiptir t.d póstnúm- erið eða heimilsfangið fyrir Internet? Fyrir tilstuðlan netsins get ég nú þegar lesið Moggann á undan sjálfu blaðburðarfólkinu í Reykjavík. Vegna frumkvæðis Péturs á Kópaskeri geta nú allir skólar landsins og margir fleiri átt s^mskipti um íslenska menntanetið. Verkmenntaskólinn á Akureyri býður m.a. uppá fjar- kennslu um tölvu í ýmsum áföngum sem fólk um allt land getur notfært sér. Fiskmarkaðir eru tölvutengdir svo allt landið getur nú verið einn uppboðs- markaður. Bættar samgöngur á landi styðja síðan við þessa þróun. Nóg komið af skýrslum Ég vil að stjórnmál snúist meira um það hvemig við tryggjum hér lífskjörin á næstu árum. Við hljótum líka að þurfa að ræða það af meiri alvöru hvemig aðstæður við búum bömum okkar og hvemig við búum þau undir samkeppni um vinnu og lífskjör í óvissri framtíð. Við þurfum að ganga í breytingar sem gera þarf bæði á fjölskyldu- stefnu og skólakerfi. Það er nóg komið af skýrslum. Og síðast en ekki síst þarf að styðja þá sem höllum fæti standa í lífsbarátt- unni. Ef við ekki jöfnum aðstæð- ur fólks hér í okkar fámenna samfélagi er hætt við að fólk skiptist í stríðandi fylkingar. Að ekki verði ein þjóð í einu landi. Ég veit að fjöldi fólks um allt land vill leggja okkur lið. Það er sammála þeirri gagnrýni sem við höfum sett fram. Það treystir því að við stöndum við það sem við segjum. Þess vegna er ég bjartsýn á að með stuðningi alls' þessa fólks verði Þjóðvaki það afl breytinga í pólitíkinni sem við þurfum. Gríptu Visa og Eurocard raðgreiðslur Fjöldi fylgihluta fáanlegur. Traust viðgerðar- og varahlutaþjónusta. POSTUR OG SIMI Söludeild Ármúla 27, sími 63 66 80 Söludeild Kringlunni, simi 63 66 90 Söludeild Kirkjustræti, sími 63 66 70 og á póst- og símstöðvum um land allt. GSM síma á f stgr. Beocom MOTOROLA 7200 Viðurkennd Motorola gæði. Lítill og léttur GSM farsími. Sendistyrkurirn er 2 Wött. Flipi er á símanum sem lokar takkaborðinu 100 númera skammvalsminni. Simanum fylqir fullkomið hleðslutæki og tvær rafhlöður. 69.980,- stgr. ERICSSON ^ ERICSSON POCKET GH 337 Léttur og handhægur GSM farsími sem vegur aðeins um 197 gr og er með 2 Watta sendistyrk. Minni fyrir númer og nöfn. Hleðsluspennir fyrir rafhlöður fylgir. góöu veröi BEOCOM 9500 Beocom frá Bang & Olufsen. Úrvals hönnun og gæði. Beocom vegur aðeins um 197 gr og hentar því einstaklega vel í vasa og veski. Sendistyrkurinn er 2 wött. Síminn er einfaldur í notkun með minni fyrir númer og nöfn. Hleðsluspennir fyrir rafhlöður fylgir. msmr m.979,- stgr. S J j J J J J MOTOROLA MOTOROLA 8200 Nýjasti og léttasti GSM síminn frá Motorola vegur aðeins 149 gr með minnstu gerð rafhiöðu. Sendistyrkurinn er 2 Wött. Flipi er á simanum sem lokar takkaborðinu. Hægt er að stilla á titrara í stað hringingar. Simanum fylqir fullkomið hleðslutæki og tvær rafhíöður. 98.900,- ,„k Ef þú kaupir Motorola síma hjá Pósti og síma nýtur þú hraðskiptaþjónustu Motorola um allan heim vegna mögu- legra bilana á ábyrgðartima.

x

Þjóðvakablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðvakablaðið
https://timarit.is/publication/312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.