Þjóðvakablaðið - 24.02.1995, Síða 8
ÞJÓÐVAKI
HREYFING FÓLKSINS 1. ÁRG. 1. TBL. FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚ4R 1995
Afl þcgar þörf krefurl
Til sigurs fyrir málstað
réttlætis og jöfnuðar!
Jóhanna Sigurðardóttir formaður Þjóðvaka boðar uppstokkun
og breytingar í íslensku stjórnmálalífi
Atgangurinn gegn Þjóðvaka í fjölmiðlunum að undanförnu hefur einungis hert okkur í
þeim ásetningi að skapa nýjan vettvang, sem er og verður upphafíð að því að sameina jafn-
aðarmenn og félagshyggjufólk í öfluga fjöldahreyfingu. Afl okkar verður fólkið í landinu
sem berjast mun með þessari hreyfíngu til sigurs, -til sigurs fyrir málstað réttlætis og jöfn-
uðar í þjóðfélaginu, sagði Jóhanna Sigurðardóttir formaður Þjóðvaka í eldshúsdagsumræð-
unum á Alþingi 22. febrúar. Hér á eftir fara nokkrir bútar úr ræðu Jóhönnu, sem vakti
mikla athygli:
Við erum mörg í þjóðfélaginu sem
þekkjum vel og vitum af reynslu, -
að gamla flokkakerfið sem áratugum
saman hefur setið á valdastóli megn-
ar ekki að jafna hér lífsjörin. Við
finnum vel hræðslu fjórflokkanna
við þessa nýju hreyfingu fólksins, -
nú þegar þeir sjá valdakerfi sínu
ógnað.
Ný hreyfing fólksins hefur mælst
með 10—20% fylgi á undanförnum
vikum, þrátt fyrir hrakspár flokka og
fjölmiðla og villandi og ómálefna-
legan fréttaflutning af starfi
hreyfingarinnar. Slíkt hefur einungis
hert okkur f þeim ásetningi að skapa
nýjan vettvang, sem er og verður
upphafið að því að sameina
jafnaðarmenn og félagshyggjufólk í
öfluga fjöldahreyfingu. Afl okkar
verður fólkið í Iandinu sem berjast
mun með þessari hreyfmgu til sigurs,
-til sigurs fyrir málstað réttlætis og
jöfnuðar í þjóðfélaginu, -til sigurs
fyrir þann málstað sem ganga mun á
hólm við valdakerfin í landinu sem í
skjóli flokkakerfisins hafa dregið
niður ltfskjörin og breikkað bilið
milli ríkra og fátækra í þjóðfélaginu.
Gamla flokkakerfið hefur í raun
gefist upp við að jafna hér eigna- og
tekjuskiptinguna. Þess vegna hefur
hreyfing fólksins, Þjóðvaki, orðið til,
-hreyfing sem krefst sanngjarnar
skiptingar þjóðarauðsins,- hreyfing
sem leggur fram leiðir til nýrra
sóknarfæra í atvinnulífinu og til
átaks í mannréttinda- , siðvæðingar-
og jafnréttismálum.
Uppreisn í Singapore
norðursins
Við þurfum að brjótast út úr þeim
vítahring sem kjaramálin eru komin
í. Það er eitthvað mikið að í okkar
þjóðfélagi, þegar láglaunafólk fær
ekki meira fyrir vinnu sína en sem
nokkurn veginn samsvarar atvinnu-
leysisbótum, enda er ísland auglýst
sem „Singapore norðursins" ti! að
laða að erlenda fjárfesta vegna lítils
launakostnaðar. Þetta fyrirkomulag
brýtur niður sjálfstraust og
sjálfsvirðingu fólks sem ekki á einu
sinni fyrir brýnustu nauðþurftum.
Við vitum að stöðugleiki síðustu
missera byggist fyrst og fremst á
framlagi launafólks, sem tekið hefur
á sig þungar byrðar, m.a. skatta-
tilfærslur frá atvinnulífinu. Það hefur
skapað atvinnuvegunum ný sókn-
arfæri, aukið hagnað þeirra og
minnkað skuldir. Við hljótum að
gera þá kröfu til atvinnulífsins að
framleiðni aukist, en hún er með því
lægsta sem þekkist í Evrópu og að
hagræðing og endurskipulagning í
fyrirtækjum nái til yfirbyggingar og
stjórnunarkostnaðar en byrji ekki og
endi á gólfinu hjá lægst launaða
fólkinu.
Kjarajöfnun fyrir hálaunafólk
Kjarajöfnun sagði ríkisstjórnin aftur
vegna nýgerðra kjarasaminga. Ja
svei. A yfirborðinu heitir það 3700
kr. hækkun fyrir láglaunafólk, en
2700 kr. fyrir þá betur settu. í
aðgerðum ríkisstjómarinnar vegna
nýgerðra kjarasamninga gildir það
sama og í svokallaðri kjarajöfnun
ríkissjórnarinnar fyrir jólin. 3/4 hluti
af 3 til 4 milljörðum úr ríkissjóði
rennur til skattalíSkkana vegna
lífeyrissjóðsiðgjalda, sem best skilar
sér til hálaunafólks. Þannig fær 50
þúsund króna maðurinn í auknar
ráðstöfunartekjur vegna kjarasam-
inganna og ráðstafana
ríkisstjórnarinnar 43.500 kr. á ári
samkvæmt mati Þjóðhagsstofnunar,
en 300 þúsund króna maðurinn fær
85.000 kr. á ári. Þetta er innihaldið í
kjarajöfnuninni þegar umbúðirnar
hafa verið teknar af, sem
verkalýðsforingjar og ráðherrar með
300 þúsund króna laun fagna í
dag - 43 þúsund krónur fyrir
láglaunamanninn, en 85 þúsund fyrir
hálaunamanninn. Þetta er þeirra
réttlæti...
Uppstokkun
Þegar í stað þarf að að setja lög um
greiðsluaðlögun, til aðstoðar
heimilum sem eru í miklum
vanskilum. Greiðsluaðlögun' felur í
sér að heimilt verði að undir
ströngum skilyrðum að skuldbreyta
lánum, þannig að lánstími lengist og
vextir og höfuðstóll lækki.
Samhliða því að taka upp lög um
greíðsluaðlögun þarf að lækka
þjónustugjöld fjármálastofnana og
lögfræðinga. Ótækt er líka með öllu
að ríkisvaldið sé að leggja skatt á
skuldir heimilanna á sama tíma og
þeir koma sér hjá að leggja skatt á
eignatekjur stóreignafólks, en
virðisaukasktattur er að fullu lagður
á innheimtuþjónustu lögfræðinga.
Fjármagnstekjuskattur, sem greiddur
er af öllum eignatekjum umfram
eðlilegan sparnað fólks verður lfka
að koma til sögunnar, til að minnka
skattbyrði hjá fólki með lágar og
meðaltekjur t.d. með lækkun á
skatthlutfalli þeirra.
Uppstokkun á ónýtu launa- og
lífeyriskerfi verður ekki undan
vikist, en afnema þarf það
lífeyriskerfi sem tryggir æðstu
embættismönnunum margfaldar
lífeyrisgreiðslur úr opinberum
sjóðum.
Skilgreina þarf forgangsröðun
útgjalda m.a. átak til að byggja upp
fjölþætt menntakerfi sem er forsenda
framfara í atvinnulífinu.
Stjórnlagaþing - meira valfrelsi
Nauðsyn á því að skipað verði
stjórnlagaþing eins og Þjóðvaki
hefur lagt til liggur þegar fyrir, nú
þegar flokkakerfið nær ekki saman
um að jafna atkvæðavægi kjósenda.
Utn þá nmiðurstöðu sem þar varð má
segja:- „Fjallið tók jóðsótt - og
færðist lítill flakkari". Stjórnlagaþing
skipað þjóðkjörnum fulltrúum,
öðrum en alþingismönnum á að taka
á þessu máli, ásamt því að auka rétt
fólks til þjóðaratkvæðagreiðslu,
endurskoða ráðherraábyrgð, svo og
skráðar og óskráðar reglur sem ríkja
um embættisfærslu í opinberri
stjómsýslu og ráðstöfun opinberra
fjármuna, fækka þingmönnum í 50
og auka valfrelsi kjósenda með
persónukjöri.
Þjóðvaki hreyfiaflið
Til þess að fá nýja sýn til mála þarf
nýjan sjónarhól. Stjómmálaflokkar
sem eiga þá hugsjón stærsta að
viðhalda sjálfum sér, eða að vera
eins konar tryggingafélög fyrir þá
einstaklinga sem telja sig ómissandi
í pólitíkinni fara ekki ótilneyddir upp
á nýjan sjónarhól.
Fólkið sem nú fylkir sér um
Þjóðvaka eru boðberar breytinga og
hefur kjark til að raska ró gömlu
flokkanna og neyða þá til að
endurskoða vinnubrögð sín og
viðhorf.
Fólki um land allt er ljóst að óbreytt
flokkakerfi er ekki leið til að bæta
lífskjörin og breyta
tekjuskiptingunni. Þess vegna varð
Þjóðvaki til, - hreyfíng fólksins gegn
óbreyttu ástandi.
Þjóðvaki er það pólitíska hreyfiafl
sem þarf til að fá staðnað
stjórnmálakerfi til að endurskoða
málin með velferð fólksins að
leiðarljósi.
Mynd: Marías Sveinsson.
JOFNUÐUR OG RETTLÆTI
Á fimmtudagskvöldið héldu þeir Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna og Páll Halldórsson formaður BHMR ræður á
umræðukvöldi hjá Þjóðvaka í Hafnarstræti. Fjöldi fólks mætti á fundinn og var gerður góður rómur að máli þeirra Páls og Jóhannesar.
Jákvætt afl gegn afturhaldi
Endurreisum trúnað í
samfélaginu