Þjóðvakablaðið - 18.09.1996, Síða 7

Þjóðvakablaðið - 18.09.1996, Síða 7
þJOðVAKABLAðlð 7 Matra - Simca Bagheera S árgerð 1976. Vinsæll sportbíll Sportbíllinn Matra Bagheera sem lauslega verður sagt hér frá var ætlaður kaupendum með sæmileg fjárráð. Þetta voru kaupendur sem vildu sportlegan bíl en urðu að láta sér drauminn einan nægja þegar komið var að sex, átta eða tólf strokka vélum sem Ferrari og slíkir buðu uppá. Þar sem ekki var ætlunin að keppa við bfla í dýrari flokkum lögðu verksmiðjumar áherslu á liðlegt og spennandi útlit. Þær lögðu enga áherslu á stærð vélar. Þetta varð til þess að eftirspum eftir bflnum fór fram úr björtustu vonum þeirra og fengu færri bfl en vildu. Ekki minnkaði áhugi al- mennings á bflnum þegar glæstir sigrar unnust í flokki ódýrari og aflminni bfla á hinum ýmsu keppnisbrautum Evrópu. Hngmynd virkjuð Bifreiðin varð til í samstarfi tveggja fyrirtækja. Annað þeirra var Matra sem hafði verið betur þekkt fyrir afskipti sín af geim- ferðum og búnaði fyrir þær en framleiðslu á bflum. Breyting varð þar á árið 1964 þegar Matra verksmiðjumar yfirtóku bfla- smiðju og lager stjömuöku- mannsins Réne Bonnet. Réne hafði vakið mikla athygli árið 1938 þegar hann hóf að framleiða framúrstefnulega bfla með vél- búnaði frá Citroen. Bflar þessir áttu mikilli velgengni að fagna á keppnisbrautum enda var Réne einn fárra bflasmiða sem gerði sér grein fyrir nauðsyn straum- línulags og að hafa vindstuðul sem lægstan. Stríðið setti nokkurt strik í reikninginn varðandi þróunina, en hann lagaði sig að aðstæðum og notaði stríðsárin til þess að hanna og leggja drög að fram- leiðslu á nýjum bfl sem hann ætl- aði að nota til kappaksturs. Þegar bfllinn var kynntur fyrsta sinni eftir stríð vakti hann mikla at- hygli, ekki síst vegna byltingar- kenndrar hönnunar en bifreiðin var mjög rennileg, hún var fram- drifin og smíðuð að miklu leyti úr léttmálmi. Þá vann Réne glæsi- legan sigur í fyrsta kappakstri sem haldinn var í Frakklandi eftir stríð sem varð til þess að auð- velda honum að fjármagna frek- ari smíði og hönnunarvinnu. Hugmyndaauðgi Réne var við- brugðið og mikla athygli vakti þegar hann setti Panhard bfllinn á markað (lrkast til voru þrír bflar af þeirri gerð fluttir hingað til lands). Panhardinn var af meðal- stærð og knúinn 850 cm3 2 strokka loftkældri vél. Maður skyldi ætla að rokkurinn hafi ekki verið til mikilla stórræða en það var öðm nær. Þrátt fyrir stærð bflsins og spameytni vélarinnar þá náði hún að knýja bflinn upp í 160 km hraða á klukkustund. í þáttum mínum hef ég lagt nokkra rækt við að kynna viðbragð hinna ýmsu bfla úr kyrrstöðu í 100 km hraða, lái mér hver sem vill, en í Panhard tilvikinu læt ég það vera. Upprisa ojg liiiignun Simca Hinn aðilinn sem stóð að smíði Matra Bagheera bflsins var Simca en bflar frá þeim áttu nokkmm vinsældum að fagna hér á landi á sjötta og sjöunda áratugnum. Simca verksmiðjumar frönsku áttu ekki langa sögu að baki en árið 1938 sáu fyrstu bflar frá þeim dagsins ljós. Á þeim tíma þurfti ekki glögga manneskju til þess að sjá hvaðan Simca bflamir vom ættaðir því forráðamenn verksmiðjunnar höfðu stytt sér leið og fengið framleiðsluleyfi frá Fiat verksmiðjunum ítölsku og tókst á þann hátt að koma fótunum undir frekari framleiðslu. I kringum 1950 beittu metnaðar- fullir stjómendur verksmiðjanna sér fyrir því að bflar teiknaðir af hönnuðum og verkfræðingum Simca sáu dagsins ljós. Of miklu var til kostað og eftir nokkrar hremmingar að árið 1955 eignuð- ust frönsku Ford verksmiðjumar framleiðslurétt á Simca bifreið- um. Nokkm síðar eða árið 1963 komust Chrysler verksmiðjumar með puttana í spilið og yfirtóku reksturinn. Hjá þeim skiptust á skin og skúrir og svo fór að eftir allnokkur ár komust verksmiðj- umar í eigu Peugeot. Smám sam- an minnkaði vægi Simca í fram- leiðslunni. Talbot Simca bif- reiðar fengust keyptar en þar kom að Simca nafnið var fellt niður. Ævintýpið úr frumskóginum Það var eftir 1970 sem lögð vom drög að samvinnu um smíði sportbfls milli Matra verksmiðj- anna og Simca. Afrakstur þess var Bagheera en nafnið var feng- ið úr fmmskógabók Kipling og tilheyrði svarta pardusnum. Keppnissigrar og spennandi útlit urðu til þess að erfitt reyndist að anna eftirspum fyrsta kastið. Þá dró ekki úr áhuga almennings sú nýjung í þeim flokki sem Bag- heera tilheyrði að vélin var þver- stæð og staðsett rétt fyrir aftan sæti ökumanns. Þessi staðsetning gerði það að verkum að bfllinn lá enn betur en ella og þunginn lá að mestu á drifhjólum. Þá spillti ekki fyrir að bfllinn var 3 manna og sátu ökumaður og farþegar hlið við hlið. Yfir- bygging bflsins var úr plasti og var hún fest á stálramma sem hvfldi á sjálfberandi botnplötu. Vélin sem notuð var til þess að knýja bflinn var 1442 cm3 og var 90 hestöfl, hámarkshraði vel ásættanlegur, 185 km á klukku- stund, en viðbragðið þætti ekki merkilegt í dag því bfllinn var 12,5 sek úr kyrrstöðu í 100 km hraða. F i i i • ■ i . I L ■ ■ i Látlaus framendi en nokkuð áreit- inn. Vélin í Bagheera S kom frá Simca. þessum bíl. Bílapartar Jónasar Grannar okkar fyrir vestan eiga snöggtum fleiri kosti en við hvað bílaflóruna varðar á nokkuð heiðarlegu verði. Skrifari skemmti sér við að umreikna verð nokkurra bfla úr $ í íslenskar krónur. Hér má sjá afraksturinn. BMW 8 árgerð 1997. Yfirbygging: Coupe. Aflrás: Vél að framan, drif að aftan Þyngd: u.þ.b. 2100 kg Vél: 4,4 lítra V8. 282 hö. Sérpöntun 5,4 lítra, V12. 322 hestöfl. Eyðsla á 100 km: u.þ.b.. 18 1 innanb., 12 1 utanb. Verð frá krónum 5,1 að 6,5 milljónum. Buick Century árgerð 1997. Yfirbygging: Stallbakur Aflrás: Vél að framan, drif sambyggt. Þyngd: u.þ.b. 1700 kg. Vél: 3,1 lítra, V6, 160 hö. Sérpöntun: ekki hægt. Eyðsla á 100 km: u.þ.b. 13 1 innanb., 9 1 utanb. Verð frá krónum 1,1 að 1,4 milljón. Chrysler Cirrus árgerð 1997 Yfirbygging: Stallbakur Aflrás: Vél að framan, drif sambyggt Þyngd: u.þ.b. 1550 kg. Vél: 2,4 lítra, 1.4, 150 hö.; 2,5 lítra, V6, 168 hö. Eyðsla á 100 km: u.þ.b. 12 1 innanb., 8 1 utanb. Verð frá krónum 1,2 milljón eftir búnaði. Ford Taurus árgerð 1997. Yfirbygging: Stallbakur Aflrás: Vél að framan, drif sambyggt Þyngd: u.þ.b. 1670 kg. Vél: 3,0 lítra V6, 145 hö. 3,0 lítra, V6, 200 hö. 3,4 lítra, V8, 235 hö. Verð frá krónum 1,25 að 1,8 milljón. Húsbréf Utdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: 1. flokki 1989 - 24. útdráttur 1. fiokki 1990 - 21. útdráttur 2. flokki 1990 - 20. útdráttur 2. flokki 1991 - 18. útdráttur 3. flokki 1992 - 13. útdráttur 2. flokki 1993 - 9. útdráttur 2. flokki 1994 - 6. útdráttur 3. flokki 1994 - 5. útdráttur Koma þessi bréf til innlausnar 15. nóvember 1996. Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði. Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birt í DV þriðjudaginn 10. september. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfa- fyrirtækjum. [Sd húsnæðisstofnun ríkisins I I HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SÍMI 569 690

x

Þjóðvakablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðvakablaðið
https://timarit.is/publication/312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.